DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Touch of Mystery

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, röndum og klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-37
DROPS Design: Mynstur de-215
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-300-300 g litur 8903, svartur
Og notið:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150-200-200-200 g litur 02, plóma/beige/ljung

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning A.1 er prjónuð í laskalínu og A.2 er prjónað í hlið á fram- og bakstykki og mitt undir ermi.

RENDUR (prjónaðar í hring):
Laskalínur eru prjónaðar í klukkuprjóni eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Aðrar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu á berustykki. Á fram- og bakstykki er stykkinu snúið og síðan er prjónað með sléttum lykkjum frá röngu.
Rendur eru prjónaðar til skiptist með 1 umferð með Alpaca og 1 umferð með Delight.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 23 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 7,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir laskalínu):
Aukið út í hverri umferð með Alpaca (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er prjónaður snúin í næstu umferð. Nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðið.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð í umferð með Alpaca.
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, A.2, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Nýjar lykkjur eru prjónaðar slétt.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, A.2, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 109-121-121-133-133-145 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Hálft bakstykki: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 12-15-15-18-18-21 lykkjur, 2 lykkjur brugðið.
Laskalína: Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt.
Ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 6-6-6-6-6-6 lykkjur, 2 lykkjur brugðið.
Laskalína: Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt.
Framstykki: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 21-27-27-33-33-39 lykkjur, 2 lykkjur brugðið.
Laskalína: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt.
Ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 6-6-6-6-6-6 lykkjur, 2 lykkjur brugðið.
Laskalína: Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt.
Hálft bakstykki: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 12-15-15-18-18-21 lykkjur.
Haldið svona áfram í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Í næstu umferð er prjónað og aukið út jafnt yfir þannig:
Hálft bakstykki: Prjónið 14-17-17-20-20-23 lykkjur brugðið og aukið út 0-0-1-0-3-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING.
Ermi: Prjónið A.1 (11 lykkjur = laskalína), 8-8-8-8-8-8 lykkjur brugðið, prjónið A.1 (= laskalína).
Framstykki: Prjónið 23-29-29-35-35-41 lykkjur brugðið og aukið út 3-5-7-3-11-11 lykkjur jafnt yfir.
Ermi: Prjónið A.1 (= laskalína), 8-8-8-8-8-8 lykkjur brugðið, prjónið A.1 (= laskalína).
Hálft bakstykki: Prjónið 12-15-15-18-18-21 lykkjur brugðið og aukið út 0-2-3-0-5-5 lykkjur.
= 112-128-132-136-152-164 lykkjur.
Prjónið nú stykkið áfram í RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í 3. umferð í A.1 byrjar útaukning fyrir laskalínu þannig:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 í annarri hverri umferð alls 26-28-32-36-40-44 sinnum – sjá ÚTAUKNING-2 = 320-352-388-424-472-516 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina.
Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með Delight, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 47-52-57-63-70-77 lykkjur brugðið (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 68-72-80-88-96-104 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, 92-104-114-124-140-154 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 68-72-80-88-96-104 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi og endið með 45-52-57-61-70-77 lykkjur brugðið (= ca hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 198-222-242-262-294-322 lykkjur. Snúið stykkinu þannig að prjónað sé áfram með sléttar lykkjur frá röngu hringinn þannig: Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, í miðju af nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir allar lykkjur og A.2 yfir lykkju með merkiþræði í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2a á hæðina.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.2 – sjá ÚTAUKNING-3.
Aukið svona út með 3 cm millibili alls 7 sinnum = 226-250-270-290-322-350 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með Delight, aukið út jafnt yfir þannig:
Prjónið 57-62-67-73-80-87 lykkjur slétt og aukið út 0-1-2-2-1-0 lykkjur, A.2a eins og áður, 112-124-134-144-160-174 lykkjur slétt og aukið út 1-1-0-2-1-2 lykkjur, A.2a eins og áður, 55-62-67-71-80-87 lykkjur slétt og aukið út 1-0-1-0-0-2 lykkjur = 228-252-273-294-324-354 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú stykkið til loka í Alpaca.
Prjónið * 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (A.2a er prjónað brugðið).
Prjónið svona þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 68-72-80-88-96-104 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-79-87-95-103-111 lykkjur.
Snúið stykkinu, þannig að nú er prjónað í hring með sléttum lykkjum frá röngu.
Prjónið A.2 yfir miðjulykkju mitt undir ermi, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt frá röngu í röndum.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2a á hæðina.
Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2a – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 12-13-17-20-22-23 sinnum = 51-53-53-55-59-65 lykkjur. Þegar ermin mælist 41-40-39-38-36-35 cm frá skiptingu, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 0-1-1-2-1-1 lykkjur = 51-54-54-57-60-66 lykkjur. Prjónið nú stykkið til loka í Alpaca. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið), stillið af að klukkuprjónslykkjan mitt undir ermi sé prjónuð brugðið (það er enn prjónað frá röngu). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Snúið peysunni þannig að brugðnu lykkjurnar snúi út.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman frá röngu
symbols = brugðin lykkja
symbols = þessi umferð er prjónuð með Alpaca

symbols = þessi umferð er prjónuð með Delight
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Claudia wrote:

Es heißt in der Anleitung, dass die Raglanlinie in Vollpatent gestrickt wird. Und A.1a ist die Strickschrift dafür, richtig? Leider ist A1.a die Strickschrift für ein Halbpatent. Frage ist nun: wie soll die Raglanlinie gestrickt werden? In Vollpatent oder Halbpatent?

25.09.2022 - 13:01

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Raglanlinien werden gestrickt wie im A.1 gezeigt; dann stricken Sie diese Maschen nach der Verteilung wie im A.2 gezeigt. Viel Spaß beim stricken!

26.09.2022 - 09:32

country flag Neige wrote:

Hallo, warum muss man die Abtei wenden und dann Rechts weiterschicken? Welchen Effekt hat das? Kann ich auch bis zum Ende links auf der richtigen Seite Stricken? Vielen Dank für ein Feedback

25.01.2022 - 21:33

DROPS Design answered:

Liebe Neige, also mange Strickerinnen stricken lieber mit rechten Maschen als mit nur linken Maschen in der Runde, deshalb wird die Arbeit gewendet und nur mit rechten Maschen gestrickt- wenn Sie immer noch bei Hinreihen /von der Vorderseite stricken, sollen Sie dann A.2 anpassen. Viel Spaß beim stricken!

26.01.2022 - 08:53

country flag Helga Ternes wrote:

In der Anleitung ist von Diagramm A.1 und A.2 die Rede. Fehlt das Diagramm in der Anleitung?

11.10.2021 - 08:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ternes, A.1 und A.2 finden Sie neben der Maßskizze, können Sie sie sehen? Viel Spaß beim stricken!

11.10.2021 - 08:44

country flag Lil wrote:

Are the amounts correct? It would appear to me that the black colour is the lesser amount, however in the pattern it is stated as almost twice as much as the colour used in the body and sleeves. Please let me know as I just got started on this and would like to know very soon!

31.12.2020 - 04:12

DROPS Design answered:

Dear Lil, you need more of the black yarn = Alpaca than the Delight (stripes colour) since you will require black Alpaca for neck, sleeve edges and bottom edge on sweater. Make sure your tension is correct in both Alpaca and Delight. Happy knitting!

04.01.2021 - 13:31

country flag Elena Petto wrote:

The increase for the raglan. Is it part of the raglan stitches so you increase the English rib part. Or is it either side of the of the A1 section. Thus increasing the sleeve , back front etc. I've increased in the raglan and I think this is wrong.

03.12.2020 - 00:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Petto, A.1 is worked at each raglan line and you will increase on either side of A.1 - see RAGLAN, the number of sts in A.1 (= English rib) won't increase, you will increase the number of sts between A.1 = sleeves, front and back piece. Happy knitting!

03.12.2020 - 09:02

country flag Christiane wrote:

Hallo, die Raglanschrägen werden im Vollpatent gestrickt, der Rest der Runden in Linksreihen. Durch das Vollpatent erreichen die Raglanschrägen nicht die gleiche Höhe wie die Linksreihen. Ich habe schon versucht, das Vollpatent lockerer zu stricken als das Vorder-/Rückenteil u. die Ärmel. Trotzdem kräuselt sich der Übergang zwischen den Raglanschrägen und dem Vorder- bzw. Rückenteil und den Ärmeln. Wie kann man das vermeiden? Danke und Gruß

28.10.2020 - 08:37

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, das Vollpatent sollte die gleiche Höhe haben, die Maschen im Vollpatent sind über 2 Reihen gestrickt, und diese 2 Reihen werden überall anders glatt links gestrickt, versuchen Sie die Umschläge vom Vollpattent nicht zu locker zu stricken - beim spannen/1. Waschen kann auch die Arbeit mehr regelmäßig werden. Ihr DROPS Laden hat vielleicht noch einige Tipps für Sie, gerne bekommen Sie dort Hilfe. Viel Spaß beim stricken!

28.10.2020 - 15:22

country flag MARIA ANTONIA HERRERO wrote:

Bonito contraste con el cuello y los puños. Resalta el rostro. Ideal si tienes algo de peso extra.

05.08.2020 - 11:36