DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tracy the Triceratops

Hekluð risaeðla triceratops úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað frá nefi að hala án sauma. Þema: Leikföng.

DROPS Children 37-22
DROPS Design: Mynstur me-078-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: ca 13 cm
Lengd: ca 28 cm.

EFNI:
DROPS Merino Extra Fine frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 41, ólífa – fyrir búk og fætur
50 g litur 18, ólífugrænn – fyrir nef og kraga
50 g litur 29, turkos – fyrir gadda og horn
Og notið:
Afgang af svartur fyrir augu.

HEKLFESTA:
20 fastalykkjur á breidd og 20 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkju dragist aðeins upp á heklunálina svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, kemur mynstrið til með að dragast saman í þeim einingum þar sem margar loftlykkjur eru.

HEKLAÐ SAMAN:
Heklið 2 fastalykkjur saman að 1 fastalykkju þannig:
Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

LYKKJUSPOR:
Saumið með einföldum svörtum þræði. Augun eru saumuð út yfir 12. og 13. umferð á nefi og það eru 4 lykkjur á milli augna. Sjá mynsturteikningu sem sýnir hvernig lykkjusporið er gert.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

RISAEÐLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá nefi að hala án sauma. Fyrstu eru heklaðir 4 fætur og 3 horn sem er langt til hliðar um stund. Risaeðlan byrjar við nef, síðan er kraginn heklaður áfram frá nefi. Búkurinn er heklaður frá bakhlið á kraga, fæturnir eru heklaðir við stykkið og búkurinn endar með halanum. Að lokum eru gaddarnir heklaðir meðfram kanti á kraga.

FRAMFÓTUR OG AFTURFÓTUR:
Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífa – sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur með lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum, 2 fastsalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 3 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur).
UMFERÐ 4-10: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja lykkju í umferð. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 15 lykkjur).
Heklið 4 fætur svona og fyllið þá með vatti.

HORN:
VIÐ ENNI:
Heklið 11 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum turkos. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 keðjulykkju í hverja af næstu 10 loftlykkjum, að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkjuna (þessar 2 fastalykkjur eru notaðar til að hekla síðar stykkið saman). Snúið stykkinu og heklið 1 keðjulykkju í neðri hlið á 10 loftlykkjum sem heklað var í. Klippið frá og festið enda. Heklið 2 horn.
VIÐ NEF:
Heklið 6 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífugrænn. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 keðjulykkju í hverja af næstu 5 loftlykkjum, að auki eru heklaðar 2 fastalykkjur í síðustu loftlykkjuna (þessar 2 fastalykkjur eru notaðar síðar til að hekla stykkið saman). Klippið frá og festið enda. Heklið 1 horn.

NEF:
Heklið 2 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ólífugrænn, í fyrstu loftlykkju eru heklaðar 5 fastalykkjur, þetta verður lítill hringur af lykkjum. Endið hringinn með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, þar með er hringurinn fastur og 1. umferð er lokið.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, síðan eru heklaðar 2 fastalykkjur í hverja lykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, það eru 10 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3-4: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í hverja lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 10 lykkjur).
UMFERÐ 5: Í þessari umferð er hornið heklað fast við nefið þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 lykkjum, leggið hornið á nefið þannig að næstu 2 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 2 lög í hvora lykkju, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 10 lykkjur).
UMFERÐ 6: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 4 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 4 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 2 lykkjur fleiri, það eru 12 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 7: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í hvora af 2 næstu lykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 5 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 14 lykkjur).
UMFERÐ 8-15: Heklið eins og umferð 6 með útaukningu með 2 fastalykkjum í hvora af 2 miðju lykkjum á nefi í hverri umferð.
Eftir UMFERÐ 15 eru 30 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 16: Í þessari umferð eru hornin hekluð föst við enni þannig:
Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, leggið hornið á nefið þannig að næstu 2 fastalykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 2 lög í hvora lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= miðja á nefi), 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið hitt hornið fast yfir næstu 2 fastalykkjur alveg eins og það fyrra. Heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju og 1 fastalykkja í síðustu lykkju. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 36 lykkjur).

KRAGI:
Allar fastalykkjur í næstu umferð eru heklaðar í fremri lykkjubogann á lykkju. Með þessu þá verður smá lykkjukantur á bakhlið á stykki, það á að hekla í þennan lykkjukant þegar búkurinn er gerður.
UMFERÐ 17: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju (= miðja á nefi), 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 42 lykkjur).
UMFERÐ 18: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 10 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 6 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 10 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 48 lykkjur).
UMFERÐ 19: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 7 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 12 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hvora af síðustu 2 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 54 lykkjur).
UMFERÐ 20: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 8 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 13 lykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð (= 60 lykkjur).
UMFERÐ 21: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.
Þegar nefið og kraginn er tilbúið. Saumið augun með svartur, sjá LYKKJUSPOR í útskýringu að ofan.

BÚKUR:
Notið heklunál 3,5 og litinn ólífa. Byrjið neðst á höfði og heklið í lausu lykkjubogana frá 16. umferð (bakhlið á umferð 17) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern lykkjuboga, en hoppið yfir 1 lykkju í umferð (= 35 lykkjur). Ekki á að enda þessa umferð með 1 keðjulykkju eins og áður. Þegar byrja á næstu umferð er 1. lykkjan í þessari umferð hekluð í fyrstu lykkjuna frá fyrri umferð – þannig að stykkið getur haldið áfram hringinn án þess að umferðin endi.
Setjið 1 prjónamerki mitt ofan á baki og 1 prjónamerki mitt undir maga.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga (= 2 lykkjur fleiri, það eru 37 fastalykkjur í umferð).
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 4 lykkjur fleiri, það eru 41 fastalykkjur í umferð).
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Fyllið risaeðluna með vatti.
UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt undir maga og heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 4 lykkjur fleiri, það eru 45 fastalykkjur í umferð).

UMFERÐ 6: Nú eru framfæturnir heklaðir á búkinn.
Byrjið mitt undir maga, brjótið saman annan framfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Brjótið hinn framfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af 6 lykkjum.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 47 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn.
UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 49 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 10: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn.
UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 51 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 12: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn.
UMFERÐ 13: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju, en heklið 2 fastalykkjur í lykkjuna sem er á undan og á eftir prjónamerki mitt ofan á baki (= 2 lykkjur fleiri, það eru 53 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 14-21: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn.
UMFERÐ 22: Nú eru afturfæturnir heklaðir á búkinn.
Byrjið mitt undir maga, brjótið saman annan afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjur sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 lykkjum. Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð. Brjótið hinn afturfótinn tvöfaldan og leggið á búkinn þannig að næstu 6 lykkjurnar sem eiga að heklast eru heklaðar í gegnum 3 lög í hverja fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af 6 lykkjum.
Fyllið risaeðluna með vatti.

HALI:
UMFERÐ 23: Heklið 2 fyrstu fastalykkjurnar saman – sjá HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn (= 52 lykkjur).
Passið uppá að prjónamerkin sitji áfram mitt ofan á baki og mitt undir maga/hala!
Fækkið nú lykkjum fyrir hala:
UMFERÐ 24: Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram að 6 lykkjum á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman alls 6 sinnum, 1 fastalykkja í hverja fastalykkju fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 8 lykkjur færri, það eru 44 fastalykkjur í umferð).
UMFERÐ 25: Heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 lykkjur færri, það eru 42 fastalykkjur í umferð).
Fyllið risaeðluna með vatti.
UMFERÐ 26: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkju í hverja lykkju fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman alls 4 sinnum, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki mitt undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 6 lykkjur færri, það eru 36 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 27-36: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki ofan á baki, heklið 2 fastalykkjur saman, heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram að prjónamerki mitt undir maga/hala (= 2 lykkjur færri í hverri umferð og á eftir UMFERÐ 36 eru 16 lykkjur í umferð).
Fyllið risaeðluna með vatti, jafnóðum og heklað er.
UMFERÐ 37-42: Heklið 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hverja lykkju fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki undir maga/hala, heklið 2 fastalykkjur saman (= 2 lykkjur færri í umferð). Eftir UMFERÐ 42 eru 6 lykkjur í umferð.
Fyllið afgang af risaeðlunni með vatti. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Notið endann á þræðinum til að sauma saman síðustu 6 lykkjurnar. Festið þráðinn vel.

GADDAR:
Það eru 60 lykkjur í kringum kragann. Notið heklunál 3,5 og litinn turkos.
Byrjið frá réttu neðst á kraga, það eiga að vera 19 lykkjur mitt undir nefi sem gaddar eru ekki heklaðir í. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju, * hoppið yfir 1 lykkju og í næstu lykkju er heklað þannig: 2 stuðlar, 1 tvíbrugðinn stuðull, 3 loftlykkjur og heklið 1 keðjulykkju sem er hekluð föst við fyrri tvíbrugðna stuðul þannig: Stingið heklunálinni efst í tvíbrugðna stuðulinn og síðan niður í gegnum efsta liðinn af sama tvíbrugðna stuðul (í gegnum 2 lykkjur), sækið þráðinn og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni), 1 tvíbrugðinn stuðull, 2 stuðlar, hoppið yfir 1 lykkju og heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 10 sinnum. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. Festið þráðinn.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 37-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Suzan Kornelisse wrote:

In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering , 1 vaste, 1 meerdering enz net als in patroon ee-147-bn, dino cuddles? Die komt wél uit. Alvast bedankt.

28.12.2023 - 09:43

country flag Suzan Kornelisse wrote:

In toer 3 voor de poten komt het steken aantal niet uit. Met 3 steken tussen elke meerdering kom ik niet uit. Moet het niet zijn: 1 vaste, 1 meerdering, 1 vaste, 1 meerdering enzo... net als in patroon ee-147-bn, dino cuddles? Die komt wél uit. Alvast bedankt.

16.08.2023 - 23:08

country flag GIROD Jeannine wrote:

Bonjour, Merci pour les explications précédentes mais je ne comprends pas la suite du rang 24 comment peut il rester 6 mailles avant et 2 mailles avant le marqueur et comment confectionner la queue. Avec tous mes remerciements anticipés.

01.06.2023 - 23:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Girod, vous continuez toujours comme au tour 24: crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 ms avant le marqueur et crochetez ces 2 m ensemble (tour 25), crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur du dos, crochetez 2 m ens avant le marqueur + 2 m end après le marqueur (tour 26), crochetez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant le marqueur, crochetez 2 m ens avant le marqueur, 2 m ens après le marqueur (tours 27 à 36) et ainsi de suite. Bon crochet!

02.06.2023 - 08:25

country flag GIROD Jeannine wrote:

Je ne comprends pas le rang 24 comment écouler 6 fois 2 mailles serrées alors qu’il faut laisser 6 mailles avant le marqueur dos . Merci

01.06.2023 - 12:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Girod, crochetez jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles serrées avant le marqueur du dos, puis crochetez 6 fois 2 mailles serrées écoulées ensemble (soit 3 fois avant le marqueur et 3 fois après le marqueur). Bon crochet!

01.06.2023 - 16:59

country flag CJ AmburDuck wrote:

❤️ these patterns!

01.05.2023 - 14:55

country flag Catharina Almén wrote:

Hej, jag upptäckte att det är fel i mönstret på benens varv 3. Fick inte ihop ökningen, så jag virkade 1 FM, 2 FM i mästa varvet ut för att få 15 FM totalt.

10.11.2022 - 16:44

country flag Guenda wrote:

Salve, lo schema della coda passa dal giro 24 al 27. In totale lavoro 42 o 44 giri? I due giri che mancano come li lavoro? Grazie.

18.12.2020 - 00:43

DROPS Design answered:

Buongiorno Guenda, abbiamo corretto la numerazione dei giri nella coda, le spiegazioni erano corrette. I giri totali sono 42. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!

18.12.2020 - 08:56