Spring Water |
|
|
|
Prjónað sjal í klukkuprjóni með 2 litum úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningum í klukkuprjónsmynstri.
DROPS 214-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- AUKIÐ ÚT 8 LYKKJUR: Útaukningin er gerð í sléttri lykkju frá réttu með litnum natur – passið uppá að strekkja ekki of mikið á stykkinu þegar aukið er út. * Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en ekki sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn saman 1 sinni til viðbótar. Sleppið síðan lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni = 9 lykkjur á hægri prjóni (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru lykkjur prjónaðar inn í mynstur, lykkjan sem aukið var út í hefur nú margfaldast frá 1 lykkju slétt til 5 lykkjur slétt með 4 uppsláttum á milli sem síðar verða brugðnar lykkjur. LEIÐBEININGAR-1 Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því sjá hvaða litur er á kantlykkju og uppslætti. KLUKKUPRJÓN Í 2 LITUM: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið með litnum beige þannig: 1 kantlykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið með litnum natur þannig: 1 kantlykkja slétt, prjónið 1 lykkju og 1 uppslátt slétt saman, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju og 1 uppslátt slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir (uppslátturinn er ekki talinn með). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju og 1 uppslátt slétt saman og prjónið 1 kantlykkju slétt. Færið til baka lykkjur á hringprjóni þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit – sjá LEIÐBEININGAR-1. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið með litnum beige þannig: 1 kantlykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 uppslátt og 1 lykkja brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjóni með litnum natur þannig: 1 kantlykkja slétt, * prjónið 1 lykkju og 1 uppslátt brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið * prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir (uppslátturinn er ekki talinn með). Prjónið 1 lykkju og 1 uppslátt brugðið saman og prjónið 1 kantlykkju slétt. Færið til baka lykkjur á hringprjóni þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið með litnum beige þannig: 1 kantlykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 uppslátt og 1 lykkju slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið 1 kantlykkju slétt. Snúið stykkinu. Endurtakið umferð 2 til 5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. Prjónað er KLUKKUPRJÓN Í 2 LITUM – sjá útskýringu að ofan, jafnframt eru lykkjur auknar út frá réttu með jöfnu millibili (réttan er hlið sem er með sléttar lykkjur í klukkuprjóni í litnum natur). SJAL: Fitjið upp 55 lykkjur á hringprjóna 5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið eins og 1. umferð í KLUKKUPRJÓN Í 2 LITUM – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Skiptið yfir í litinn natur, prjónið eins og 2. umferð í klukkuprjóni, en JAFNFRAMT er aukið út í fyrstu og síðustu sléttu lykkju í umferð – sjá AUKIÐ ÚT 8 LYKKJUR – í útskýringu að ofan = 71 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og 3. umferð í klukkuprjóni með litnum beige, útauknar lykkjur frá fyrri umferð eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjóns mynstur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og 4. umferð í klukkuprjóni með litnum natur. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið eins og 5. umferð í klukkuprjóni með litnum beige. Endurtakið síðan umferð 2 til 5 í klukkuprjóni án útaukninga þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er frá réttu með litnum natur. Sjá LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan! LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Nú á að auka út í 5 af sléttum lykkjunum í umferð JAFNFRAMT er prjónað klukkuprjón eins og áður. Setjið prjónamerki í sléttar lykkjur þar sem auka á út þannig: Setjið eitt prjónamerki í hverja af næstu sléttu lykkjum (séð frá réttu = hlið sem er með sléttar lykkjur í natur): 6. lykkju, 12. lykkju, 18. lykkju, 24. lykkju og 30. lykkju. Prjónamerkin eiga að fylgja með í miðju lykkjunni af sléttum lykkjum í þessari útaukningu, þannig að útaukningarnar komi til með að verða beint yfir hverja aðra í hvert skipti sem aukið er út. Prjónið klukkuprjón eins og áður og aukið út 8 LYKKJUR í hverja og eina af 5 lykkjum slétt með prjónamerki í = 40 lykkjur fleiri = 111 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni eins og áður þar til stykkið mælist ca 13 cm (8 cm frá fyrri útaukningu) og næsta umferð er frá réttu með litnum natur. Prjónið klukkuprjón eins og áður og aukið út 8 LYKKJUR í hverja af 5 lykkjum slétt með prjónamerki í = 40 lykkjur fleiri = 151 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni eins og áður þar til stykki mælist ca 21 cm (8 cm frá fyrri útaukningu) og næsta umferð er frá réttu með litnum natur. Prjónið klukkuprjón eins og áður og aukið út 8 LYKKJUR í hverja af 5 lykkjum slétt með prjónamerki í = 40 lykkjur fleiri = 191 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni eins og áður þar til stykki mælist ca 29 cm (8 cm frá fyrri útaukningu) og næsta umferð er frá réttu með litnum natur. Prjónið klukkuprjón eins og áður og aukið út 8 LYKKJUR í hverja af 5 lykkjum slétt með prjónamerki í = 40 lykkjur fleiri = 231 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni eins og áður þar til stykki mælist ca 37 cm (8 cm frá fyrri útaukningu) og næsta umferð er frá réttu með litnum natur. Prjónið klukkuprjón eins og áður og aukið út 8 LYKKJUR í hverja af 5 lykkjum slétt með prjónamerki í = 40 lykkjur fleiri = 281 lykkjur. Prjónið áfram í klukkuprjóni eins og áður þar til stykki mælist ca 45 cm (8 cm frá fyrri útaukningu) og næsta umferð er frá réttu með litnum beige. AFFELLING. Fellt er af með litnum beige. Til að affellingarkanturinn verði ekki stífur, á að fella uppsláttinn af eins og eigin lykkju (þannig að það verði 1 lykkja + 1 lykkja með uppslætti að 3 lykkjum þegar fellt er af). Ef kanturinn verður enn stífur, er hægt að nota grófari prjóna við affellinguna. Klippið frá og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Cascade wrote:
So schön wie ein flacher Wasserfall
05.06.2020 - 21:07Grażyna wrote:
Przepiękny
05.06.2020 - 11:48