DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sienna Wrap

Prjónað sjal með gatamynstri og klukkuprjóni úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.

DROPS 214-3
DROPS Design: Mynstur z-911
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt meðfram miðju = ca 42 cm.
Breidd: Mælt meðfram eftri hlið = ca 168 cm.

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 9026, blush

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni eða 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
19 lykkjur á breidd og 44 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 57 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 1,7.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 1. og 2. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki á prjóninn hér * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, setjið 1 prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 2 (= ranga): 3 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (prjónamerki situr hér), prjónið 3 lykkjur slétt.

UMFERÐ 3 (= rétta): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr hér), * prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman (prjónamerki situr hér), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur fleiri).

UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið (prjónamerkið situr hér), prjónið 4 lykkjur slétt.

Eftir umferð 1-4 hefur verið aukið út um 4 lykkjur alls (2 lykkjur í hvorri hlið). Nú er hægt að prjóna þessar 2 lykkjur inn í klukkuprjónsmynstrið.

UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú eru 2 lykkjur fram þar sem prjónamerkið situr, færið prjónamerkið hingað og prjónið inn 2 lykkjur í klukkuprjónsmynstri þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauku lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstrið.
Prjónið yfir næstu lykkjur þannig: * Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónað er fram að prjónamerki). Takið frá prjónamerkið og prjónið inn fyrstu 2 lykkjur í klukkuprjónsmynstri þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstrið. Setjið prjónamerkið á prjóninn hér. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri).

Endurtakið síðan umferð 2-5 (= 4 lykkjur fleiri í hverri endurtekningu).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

SJAL:
Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

FYRSTA EINING:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, passið uppá að ysti uppslátturinn sé alltaf laus, svo hann herði ekki á kantinum á sjalinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri).
Prjónið eins og umferð 1-2 þar til prjónaðar hafa verið 22 umferðir garðaprjón (stykkið mælist ca 5 cm fyrir miðju), nú eru 57 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 2 lykkjur eins og áður, en aukið út til viðbótar 30 lykkjur jafnt yfir í umferð með því að slá 1 sinni uppá prjóninn – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan.
Nú eru 89 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2 lykkjur eins og áður. Nú eru 91 lykkja í umferð.
Prjónið áfram í garðaprjóni og aukið út eins og áður í umferð 1-2, þar til prjónaðar hafa verið að auki 22 umferðir garðaprjón. Nú eru 135 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-11 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu.

ÖNNUR EINING:
Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 2 lykkjur í hverri umferð eins og áður, uppslátturinn innan við kantlykkju er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu – það eiga að myndast göt. Nú eru 143 lykkjur í umverð.
Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni – aukið út í hlið eins og áður, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 177 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út í hlið eins og áður – MUNIÐ EFTIR að uppslátturinn sem er gerður þegar aukið er út jafnt yfir á að prjónast snúinn.
Nú eru 179 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-13 cm fyrir miðju.
Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur slétt sýnilegar frá réttu): Klukkuprjón mælist ca 4 cm, og stykkið mælist ca 16 cm fyrir miðju. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 195 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu.

ÞRIÐJA EINING:
Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður frá klukkuprjónsmynstri slétt saman með lykkju sem tilheyrir henni) og aukið út 2 lykkjur í hverri umferð eins og áður, uppslátturinn innan við kantlykkju er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu – það eiga að myndast göt. Nú eru 203 lykkjur í umverð.
Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni – aukið út í hlið eins og áður, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 177 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út í hlið eins og áður .
Nú eru 237 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18 cm fyrir miðju.
Nú er prjónað gatamynstur eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynsturteikningu A.1 yfir 2 lykkjur, prjónið mynsturteikningu A.2 yfir næstu 224 lykkjurnar (28 sinnum á breiddina), prjónið A.3 yfir 9 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina hafa verið auknar út 32 lykkjur. Nú eru 269 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23 cm fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:

FJÓRÐA EINING:
ATH! Nú breytist útaukning í hlið.
Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 273 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 306 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju.
Nú eru 307 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 25 cm frá miðju.
Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur slétt sýnilegar frá réttu). Klukkuprjónsmynstrið mælist ca 4 cm. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 323 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 29 cm fyrir miðju. Næsta umferð er frá réttu.

FIMMTA EINING:
Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (í fyrstu um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 327 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 36 lykkjur jafnt yfir = 364 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju.
Nú eru 365 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 31 cm fyrir miðju.
Prjóni nú gatamynstur eftir mynsturteikningu A.4, A.5 og A.6, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynsturteikningu A.4 yfir 2 lykkjur, prjónið mynstureiningu A.5 yfir næstu 352 lykkjurnar (= 44 sinnum á breiddina), prjónið A.6 yfir 9 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 16 lykkjur. Nú eru 381 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36 fyrir miðju. Næsta umferð er prjónuð frá réttu.

SJÖTTA EINING:
Prjónið 4 umferðir í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð (= 1 lykkja fleiri í hverri umferð), uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu og slétt frá réttu, það eiga að myndast göt. Nú eru 385 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju, en aukið út til viðbótar 32 lykkjur jafnt yfir = 418 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju.
Nú eru 419 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 38 cm fyrir miðju.
Nú á að prjóna KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI. Prjónið 16 umferðir klukkuprjón (þ.e.a.s. það eru 8 lykkjur sýnilegar frá réttu). Klukkuprjóns einingin mælist ca 4 cm. Nú hafa verið auknar út 16 lykkjur = 435 lykkjur í hverri umferð og stykkið mælist ca 42 cm fyrir miðju. Næsta umferð er frá réttu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur, fellið af á meðan prjónað er slétt þannig: Fellið af hverja lykkju og hvern uppslátt fyrir sig. Ef kanturinn er enn of stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.09.2020
Leiðrétting: Útskýring fyrir KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI hefur verið uppfærð.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
symbols = í lykkjunni undir næstu lykkju er prjónuð 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur færri)
symbols = prjónið 3 lykkjur sléttprjón (= brugðin lykkja frá röngu)
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Dea wrote:

Buonasera, manca un pezzo dove parla della 4° sezione. Nell\'ultima frase dove dice < sono state aumentate 16 maglie ..> manca il totale ...323 maglie.

03.01.2024 - 21:59

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, grazie per la sua segnalazione: l'abbiamo inoltrata al settore design e aggiunto il numero di maglie alla traduzione italiana. Buon lavoro!

17.03.2024 - 17:38

country flag Dea wrote:

Buonasera, ho notato una mancanza. Nelle sezioni dalla seconda in poi, in tutte le frasi dove dice di aumentare " anche 32 in modo uniforme" (2 sezione) , anche 30 in modo uniforme (3 sezione) ,anche 32 in modo uniforme (4 sezione) , anche 36 in modo uniforme (5 sezione) e anche 32 in modo uniforme (6 sezione), in tutte manca la parola "maglie" dopo il numero. Ho verificato che sia in norvegese che in lingua inglese esiste.

19.10.2023 - 21:11

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

19.10.2023 - 23:28

country flag Dea wrote:

Buonasera, ho bisogno un chiarimento. Mi trovo alla 2° sezione e devo fare i 4 ferri a m rasata. Mi dice di fare una m di vivagno ad ogni lato, come devo comportarmi visto che devo fare anche i due aumenti ad ogni ferro? Dove rimane il vivagno? E' la maglia dopo il primo gettato e dall'altro lato? Grazie

18.10.2023 - 18:29

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, le maglie di vivagno rimangono esterne ai lati, gli aumenti sono all'interno delle maglie di vivagno. Buon lavoro!

29.10.2023 - 23:16

country flag Dea wrote:

Ciao , ne ho trovato un'altro. C'è scritto "4° FERRO (= rovescio del lavoro): lavorare 1 ferro diritto e aumentare 2 maglie come Ci sono 91 maglie sul ferro." ...tra le parole "come" e Ci" manca qualcosa....

26.09.2023 - 20:46

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, abbiamo corretto il testo: grazie per la segnalazione. Buon lavoro!

26.09.2023 - 23:24

country flag Dea wrote:

Buonasera. Ho trovato una refuso , c'è scritto "2° ROW (= rovescio del lavoro): 1 gettato, 1 maglia diritto....." meglio corregge "ROW". Ciao e grazie

25.09.2023 - 20:53

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il refuso. Buon lavoro!

25.09.2023 - 22:59

country flag Strickoma wrote:

Hallo, kann ich den Schal problemlos vergrößern, indem ich die beiden Muster - Vollpatent und Lochmuster - wiederhole?

19.10.2022 - 12:35

DROPS Design answered:

Liebe Strickoma, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, es kann so passen aber beachten Sie, daß je länger, je auch breiter er wird. Viel Spaß beim stricken!

19.10.2022 - 13:12

country flag Grietje De Weerd wrote:

Hoe maak je een omslag aan het begin van de naald? Ik heb nu een kantsteek gebreid en dan kan het wel. Maar bij de instructies en in het eerste deel wordt geen kantsteek genoemd. Wel opeens in het tweede deel. Daar is de kantsteek een ribbelsteek... Hopelijk kunnen jullie me helpen. Alvast dank. Grietje.

20.09.2022 - 08:47

DROPS Design answered:

Dag Grietje,

Je maakt een omslag aan het begin van de naald door de draad om de naald te slaan. Dat kan dus ook gewoon aan het begin van de naald. Je breit in het eerste deel inderdaad nog geen kantsteek.

21.09.2022 - 19:46

country flag Louise wrote:

Combien de laine qu’il nous faut

15.04.2022 - 03:59

DROPS Design answered:

Bonjour Louise, il vous faut 200 g de DROPS Alpaca, cela veut dire 4 pelotes. Bon tricot!

15.04.2022 - 09:21

country flag Youma wrote:

Bonjour, je tricote les côtes anglaises. J'ai 183 m et j'entame le rang 5. Je répète la partie "tricoter ensemble la m. end et son jeté - 1 jeté - glisser une m." Et là j'ai toujours le même problème, il me reste 6 m., à savoir 1 jeté, 1 m. glissée et 4 m. end. Pouvez-vous m'aider svp ? Merci d'avance

27.01.2022 - 22:50

DROPS Design answered:

Bonjour Youma, vous devez tricoter jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles et alors tricotez les 4 dernières mailles (= tricotées à l'endroit au rang 4) comme indiqué: 1 jeté, glissez 1 m à l'envers, 1 m end, puis 1 m end, 1 jeté, 1 m end. Bon tricot!

28.01.2022 - 09:15

country flag Youma wrote:

Bonjour, dans la 3ème partie, il est noté qu'il faut tricoter ensemble les mailles endroit et leur jeté (rang 1). En faisant cela, je n'ai plus les 195 mailles. Pouvez-vous m'aider à comprendre svp ? Merci d'avance.

26.01.2022 - 21:20

DROPS Design answered:

Bonjour Youma, quand on compte les mailles en côtes anglaises, on ne compte pas le jeté comme une maille car le jeté appartient à la maille glissée, à la fin de la 2èime partie, vous devez avoir 195 mailles; au rang suivant (1er de la 3ème partie), tricotez toutes les mailles à l'endroit en augmentant comme avant = vous aurez 195 m + 2 au 1er rang = 197 mailles. Après les 4 rangs jersey, vous aurez augmenté 8 mailles au total soit 203 mailles. Bon tricot!

27.01.2022 - 08:49