Mists of Time |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með köðlum og áferð. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-28 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 3,75. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning A.2 og A.8 á einungis við um stærð XXL og XXXL. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (fækkið lykkjum yfir brugðnu einingarnar). ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-96-102-110-120-130 lykkjur á hringprjón 5 með Alaska. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 3 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok 2 næstu umferða (merkir klauf) = 90-98-104-112-122-132 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 18-19-19-20-20-21 cm – stillið af eftir umferð frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón – í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 24-22-22-26-34-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 114-120-126-138-156-162 lykkjur. STÆRÐ S-M-L-XL: Skiptið til baka yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= 3 lykkjur) alls 3-4-5-7 sinnum, A.3 (= 26 lykkjur), A.4 (= 5 lykkjur), A.5 (= 30 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.7 (= 26 lykkjur), A.9 (= 3 lykkjur) alls 3-4-5-7 sinnum, 1 lykkja sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. STÆRÐ XXL-XXXL: Skiptið til baka yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= 3 lykkjur) alls 7-8 sinnum, A.2 (= 4 lykkjur), A.4 (= 5 lykkjur), A.3 (= 26 lykkjur), A.4 (= 5 lykkjur), A.5 (= 30 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.7 (= 26 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), A.8 (= 4 lykkjur), A.9 (= 3 lykkjur) alls 7-8 sinnum, 1 lykkja sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram með þetta mynstur og endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm fellið af 3-3-3-3-3-3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 108-114-120-132-150-156 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir miðju 22 lykkjur – sjá ÚRTAKA = 104-110-116-128-146-152 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um miðju 20-20-22-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 42-45-47-53-61-64 lykkjur. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 41-44-46-52-60-63 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu. Prjónið síðan 2 umferðir garðaprjón þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð í garðaprjóni = 37-40-42-48-56-59 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fellið af með sléttum lykkjum frá röngu – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 57-59-61-62-64-66 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið fyrstu 47-50-52-58-67-70 lykkjur eins og áður, prjónið næstu 14-14-16-16-16-16 lykkjur – jafnframt er fækkað um 4 lykkjur brugðið jafnt yfir og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (= 10-10-12-12-12-12 lykkjur á þræði), prjónið 47-50-52-58-67-70 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 41-44-46-52-60-63 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu. Prjónið síðan 2 umferðir garðaprjón þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð í garðaprjóni = 37-40-42-48-56-59 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 38-38-41-41-44-44 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með Alaska. Prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út 4-6-5-5-4-6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2-3-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón, A.4 (= 5 lykkjur), A.10 (= 26 lykkjur), A.6 (= 5 lykkjur), 2-3-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.10 er lokið á hæðina eru 46-48-50-50-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.5 (= 30 lykkjur) yfir A.10, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Endurtakið síðan A.5 á hæðina. Þegar stykkið mælist 7-8-8-7-6-7 cm aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 12-13-13-15-15-16 sinnum = 70-74-76-80-82-86 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-46-44-42-40 cm setjið 1 prjónamerki í báðar hliðar á stykki. Prjónamerkin merkja hvar sauma á ermina við handveg á peysu (prjónamerki = hliðarsaumur á peysu). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 49-48-47-45-43-41 cm. Fækkið síðan um 4 lykkjur brugðið jafnt yfir A.5 frá réttu = 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Fellið af í næstu umferð frá réttu. Stykkið mælist ca 50-49-48-46-44-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í og saumið botninn á handveg (prjónamerki á ermi á að passa við hliðarsauma á fram- og bakstykki). Saumið saum undir ermi og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju þar sem fitjuð var upp 1 kantlykkja á framstykki/bakstykki (= ca 14 cm klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Byrjið frá réttu og prjónið upp 60-60-63-66-69-69 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Renata wrote:
Ik heb deze trui gebreid en ben er blij mee. Naar om hem goed passend te krijgen voor mij heb ik het patroon in S aangehouden, maat wel lengte van de maat L aan moeten houden. Normaal gebruik ik meestal patroon in maat L.
02.05.2023 - 08:13Pat Miller wrote:
I've just completed the 2nd sleeve (without looking at the 1st sleeve or photo) and realised I've knitted the stitches in underarm section in garter stitch instead of stocking stitch - aargh! I have to re-do the 2nd sleeve now. It would help if there was a clearer photo of the underside of the arms. Also, I'm puzzled as to why the section at the side of ' ... A.4 (= 5 stitches), ...' doesn't have any garter stitch at all on the photo (I have a column of 3 garter stitches at side of A.4)?
29.12.2022 - 14:04DROPS Design answered:
Dear Mrs Miller, there was a mistake in the English pattern sorry for that, you should work stocking stitch instead of garter stitch inside the edge stitches in garter stitch - pattern has now been fixed, thanks for noticing. Happy knitting!
02.01.2023 - 11:56Mª José Alberto Cantizano wrote:
Buenas tardes, hay dos simbolos que se repiten, hay que corregirlo= colocar 2 puntos en la aguja para trenzar detrás de la labor, 2 derechos, 2 derechos desde la aguja para trenzar. Además en el tip para los aumentos de las mangas los aumentos se trabajan en punto jersey, cuando los puntos junto al punto de orillo son en punto musgo, ¿está correcto? o se trabajan en punto musgo los aumentos?
03.12.2022 - 19:25Anne BERNARD wrote:
Merci pour votre réponse mais je laisse tomber car je ne comprends pas.
17.10.2022 - 12:30DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bernard, utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles et la nouvelle quantité, si vous voulez vraiment réaliser un pull en DROPS Sky, retrouvez ici tous les pulls que vous pouvez réaliser (utilisez le convertisseur si besoin pour remplacer Karisma, Puna, Merino Extra Fine, etc.. par Sky). Bon tricot!
17.10.2022 - 16:59Anne BERNARD wrote:
Bonjour Merci pour votre réponse mais je ne comprends pas les histoires de groupe pour les fils.Il faut multiplier le nombre de pelotes par le métrage de la première qualité et diviser par le nombre de métrage de la 2ème ? Désolé
17.10.2022 - 10:50DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bernard, tous nos fils à tricoter sont classés par "groupes" - retrouvez-les ici, ainsi, vous pouvez changer la laine à l'intérieur d'un même groupe (ou jouer avec les groupes comme indiqué), et donc vous pourrez utiliser ici soit un fil du même groupe qu'Alaska = groupe C ou 2 fils du groupe A - utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles. Bon tricot!
17.10.2022 - 11:22Anne BERNARD wrote:
Bonjour si je commande de la laine sky pour ce modèle en xl ou xxl combien de pelotes me faut-il ? Merci
16.10.2022 - 12:12DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bernard, Sky appartient au groupe B de nos laines alors que ce modèle se tricote en Alaska, laine du groupe E; utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles ainsi que la nouvelle quantité correspondante. Bon tricot!
17.10.2022 - 09:58Debra wrote:
Hi I'm doing this pattern in Drops ALPACA BOUCLÉ GROUP C I would like to know if it is possible to use 2 threads together to make the jumper thicker I would like to say thankyou for all your patterns and also thankyou in advance for your time and effort in answering this 😊
21.09.2022 - 12:11DROPS Design answered:
Dear Debra, this pattern is worked with a yarn group C: Alaska, and you can use Alpaca Bouclé instead, but if you work with double strands, you will loose the tension 16 sts x 20 rows in stocking stitch = 10 x10 cm. You might have to re-calculate the pattern to match your new tension. Or maybe rather search for a pattern worked in yarn group E where you can use 2 strands yarn group C. Happy knitting!
21.09.2022 - 17:09Pat wrote:
Can you tell me if a 'ridge' on the front shoulder piece is all garter stitch or is still following the pattern stitch diagram please? The text I'm referring to is: 'Then work 1 ridge where you decrease 4 stitches evenly spaced on the first row = 37-40-42-48-56-59 stitches.' I can't really tell from looking at the photographs of the jumper. Many thanks, Pat
27.08.2022 - 19:23DROPS Design answered:
Dear Pat, a ridge is just 2 knitted rows (in garter stitch). You need to decrease the 4 stitches in the first one of the two knitted rows. Happy knitting!
27.08.2022 - 20:13Marianne wrote:
Hei.\r\nVil gjerne strikke denne, men det er ikke diagrammer på nett siden. Kan dere hjelpe meg?\r\nMvh\r\nMarianne
01.04.2021 - 09:50Suzie wrote:
Bonjour, Je suis rendue aux emmanchures du dos en taille L et je n'arrive pas à trouver le nombre de mailles qu'il faut tricoter en A.1 et A.9. Aussi faut-il faire une maille jersey après la maille lisière? Merci à l'avance.
23.02.2021 - 23:23DROPS Design answered:
Bonjour Suzie, quand vous avez rabattu 3 m de chaque côté (= 1 m lis, 1 m jersey, la 1ère m du premier A.1/la dernière m du dernier A.9 vu sur l'endroit), continuez avec 1 m lis au point mousse et tricotez les mailles de A.1 et A.9 restantes comme avant = il reste 2 m dans le 1er A.1/le dernier A.9, mais vous tricotez la 1ère et la dernière m du rang au point mousse (mailles lisières), il reste la 3ème m de A.1 = 1 m jersey endroit et la 1ère m de A.9 (vu sur l'endroit): 1 m jersey. Vous aurez donc: 1 m point mousse, 1 m jersey, 3 x A.1 ... et terminez par 3 x A.9, 1 m jersey, 1 m point mousse. Bon tricot!
24.02.2021 - 07:51