Frambuesa Sweater |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og perluprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-16 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Þegar berustykkið er tilbúið, prjónið smá laskalínu áður en stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-76-80-80-84-88 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-34-30-40-48-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 100-110-110-120-132-132 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan), það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið A.1 hringinn (= 10-11-11-10-11-11 mynstureiningar með 10-10-10-12-12-12 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, en í hverri umferð merktri með stjörnu í A.1 færist byrjun á umferð til um 1 lykkju til vinstri, þ.e.a.s. lyftið fyrstu lykkjunni yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, prjónið síðan A.1 hringinn. Lykkjan sem lyft var af yfir á hægri prjón kemur til með að prjónast í síðustu endurtekningu með A.1. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt. Prjónið síðan næstu umferð eins og venjulega. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1. Ör-1: Aukið út 40-40-40-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 140-150-150-168-180-180 lykkjur. Ör-2: Aukið út 40-40-40-48-48-48 lykkjur jafnt yfir = 180-190-190-216-228-228 lykkjur. Ör-3: Aukið út 30-30-30-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 210-220-220-252-264-264 lykkjur. Ör-4: Aukið út 4-6-6-10-2-14 lykkjur jafnt yfir = 214-226-226-262-266-278 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 16-16-16-20-20-20 cm frá prjónamerki í hálsi. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón hringinn að réttu máli. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir smá laskalínu eins og útskýrt er að neðan. LASKALÍNA: Setjið 4 prjónamerki í stykkið til að merkja hvar auka á út fyrir laskalínu. Prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að lykkjurnar séu prjónaðar. 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 33-34-34-40-42-45 lykkjurnar (= ½ bakstykki), 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-44-44-50-48-48 lykkjur (= ermi), 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 67-69-69-81-85-91 lykkjum (= framstykki) og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 40-44-44-50-48-48 lykkjum (= ermi). Nú eru 34-35-35-41-43-46 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð, aukið út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-4-6-4-6-8 sinnum = 230-258-274-294-314-342 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-38-40-44-48-53 lykkjur í sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-77-81-89-97-107 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-52-56-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 36-39-41-45-49-54 lykkjur í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-178-194-214-234 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau aðeins síðar þegar auka á út lykkjum í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 10 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 166-178-190-206-226-246 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 34-37-35-39-44-49 lykkjur jafnt yfir = 200-215-225-245-270-295 lykkjur. Aukið út til að koma í veg fyrir að kanturinn sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið A.2 hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 44-52-56-58-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-58-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og aukið út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-2-2--2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 4-7-9-9-10-11 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 6-7-5-6-3-3½ cm millibili alls 4-3-4-3-5-4 sinnum = 50-50-54-54-60-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-34-32-31 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-1-1-0-0 lykkjur = 50-50-55-55-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið A.2 hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-37-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Theresa Hitchman wrote:
The A1 chart does not have the increasing for increased sts no1,2,3,&4 drawn into the chart so you can't incorporate the extra sts in the A1 pattern. Why is this? Its confusing and wrong?
19.04.2021 - 00:02DROPS Design answered:
Dear Theresa, because the smaller pattern units between the arrows (rows with increases) are kind of independent from each other. If you look closely at the picture, you can see that the V's od the lace pattern are not directly above each other. Happy Knitting!
19.04.2021 - 00:32Nicole Vena wrote:
I also am confused on the star rows. How would that be written out, are those yarn overs?
22.03.2020 - 18:49DROPS Design answered:
Dear Nicole, we are sorry, but there is no written out pattern for this piece. However it is well worth the effort to learn how to make sense of diagrams, as they not only show you the very next step, but also that how the other stitches and rows relate to each other. we do have a lesson on how to read crochet patterns here, and don't forget, you can always ask for help either in person or over the phone in teh store where you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!
22.03.2020 - 20:03Nicole Vena wrote:
Do we start the rows in the back where we joined or at the new marker in the front for the yoke?
22.03.2020 - 03:01DROPS Design answered:
Dear Mrs Vena, start the round on mid back as before, the marker on mid front is just to measure from. Happy knitting!
23.03.2020 - 09:54Sandrine GREKOV wrote:
Au rang 6 (flèche 1) je dois faire 40 aug (taille M). Au rang suivant lorsque le jeté de l'augmentation se trouve à l'emplacement de la maille entre les 2 YO, si je la tricote torse pour éviter un trou je n'ai pas une maille endroit normale, j'ai plutôt une sorte de maille ''twistée''. Comment faire pour que toutes les mailles soient identiques que ce soit des jetés tricotés torses ou des mailles régulières endroit ? Merci.
03.03.2020 - 04:15DROPS Design answered:
Bonjour Mme Grekov, vous pouvez décaler les jetés concernés quelques mailles avant ou après le rang ajouré, ainsi la maille endroit entre les 2 jetés ne sera pas une augmentation du tour précédent. Bon tricot!
03.03.2020 - 09:58Azam wrote:
سلام .من ۱۰ ساله که سایت شما را دنبال میکنم خیلی مدلهای زیبای گذاشتید .چون به زبانهای دیگر آشنایی ندارم نمیتونم از قسمتهای آموزشی آن استفاده کنم .چرا به زبان فارسی آموزش نمی دهید ..ممنون می شوم که توجه بفرمایید
28.01.2020 - 16:25Christine wrote:
Hi, On row 7 of A1 am I supposed to - K2, K2tog, 1yarn over, k1, 1yarn over, S1K1 pass ss over, K3. This will leave 2gaps instead of 1 at the top of the lace points. Help please.
03.10.2019 - 11:09DROPS Design answered:
Dear Christine, in A.1 size S, M, L, on row 7 you work *K2, K2 tog, YO, K1, YO, slip 1, K1, psso, K3* and repeat from *-*, ie you will have 5 stitches (= 3 sts from previous repeat + 2 sts from next repeat) between the decrease, yo, decrease in the middle of each lace pattern. Happy knitting!
03.10.2019 - 11:36Ellis wrote:
Ne 315 +ne316 same pattern but apart this time, together a twinset.
09.06.2019 - 20:44