Sea Shell |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað pils með pufflykkjum og sólfjaðra kanti. Stykkið er heklað ofan frá og niður úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-41 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 fastalykkju í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.X sýnir pufflykkjur. Þegar útaukningarnar byrja, aukið út utan við A.X. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 13. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla saman í 13. hverja fastalykkju. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 stuðul í hverri einingu með A.1 með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul, en til að útaukningin verði eins falleg og mögulegt er og sjáist sem minnst er útaukningin gerð þannig: Í fyrsta skipti sem aukið er út í hverri einingu með A.1 er aukið út í síðasta stuðul á undan A.X. Í næsta skipti þegar auka á út í hverri einingu með A.1 er aukið út í fyrsta stuðul á eftir A.1. Þ.e.a.s. aukið er út til skiptis á undan og á eftir A.X niður yfir pilsið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður til loka. Hliðarsaumur er saumaður. Að lokum er heklaður kantur efst á pilsinu og heklaður er faldur fyrir tölur meðfram opi efst á pilsi. PILS: Heklið 156-173-190-212-238-264 loftlykkjur með heklunál 4 með Muskat. Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4-3-2-0-2-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 130-144-158-176-198-220 fastalykkjur. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umferð með stuðlum (heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju) og aukið jafnframt út um 10-10-10-20-12-18 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 140-154-168-196-210-238 stuðlar. Heklið A.1 fram og til baka (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar með 14 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 stuðul í hverri mynstureiningu – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út til skiptis á undan og á eftir A.X með 3 cm millibili alls 4 sinnum og síðan með 8-8-9-10-10-10 cm millibili alls 2 sinnum = 200-220-240-280-300-340 lykkjur í umferð og 20 lykkjur í hverri mynstureiningu (þ.e.a.s. það verða fleiri stuðlar hvoru megin við A.X þegar aukið er út). Heklið áfram þar til stykkið mælist ca 36-38-40-42-44-46 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 10 cm að loka máli). Stillið af þannig að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Heklið A.2 fram og til baka (= 10-11-12-14-15-17 mynstureiningar með 20 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 46-48-50-52-54-56 cm þar sem það er styst. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman pils í hlið – byrjið neðst niðri og saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið þegar ca 10 cm eru eftir efst á pilsi (hér á að hekla hneslur og fald fyrir tölur). Klippið frá og festið enda. KANTUR EFST Á PILSI: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju sem fastalykkjur voru heklaðar í fyrstu umferð á pilsi = 130-144-158-176-198-220 fastalykkjur. Heklið 2 umferðir til viðbótar með fastalykkjum fram og til baka. Kanturinn mælist ca 2 cm. Klippið frá og festið enda. HNESLUR: Meðfram hlið á opi sem situr á framstykki eru heklaðar hneslur þannig (byrjið neðst niðri): 2 fastalykkjur um umferð með stuðlum, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 fastalykkjur um næstu stuðla umferð, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið með 1 fastalykkju um hverja og eina af 2 síðustu fastalykkju umferðum efst á pilsi (= alls 5 lykkjur fyrir hnappagöt). Snúið og heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Klippið frá og festið enda. FALDUR FYRIR TÖLUR: Meðfram hinni hlið á opi eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum fram og til baka (í 1. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð og 1 fastalykkja um hverja fastalykkju umferð), klippið frá. Saumið tölur í faldinn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Zdenka wrote:
Hello, I just started this pattern and I do it in size L. The pattern says to do 12 repetition of 14 stitches but on my 168 stitches the repetitions is more then 12. It came out 15 repetition. I can't find out what I am doing wrong.....?
17.05.2022 - 02:56DROPS Design answered:
Dear Zdenka, A.1 is worked over 14 sts (= 1 dc (US-crochet terminology) in the next 4 sts, skip 2 sts, 1 ch, in the next st work 1 puff st + 2 ch + 1 puff st, 1 ch, skip 2 sts, 1 dc in the next 5 sts (= 4+2+1+2+5=14 sts worked). Happy crocheting!
17.05.2022 - 09:13Jeanine Tondu wrote:
Bonjour j'adore vos modeles mais houlala les explications pourtant experte impossible de faire un de vos medeles bien dommage....
14.05.2020 - 14:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Tondu, Les modèles DROPS sont réalisés par des milliers de personnes dans le monde entier. Nous comprenons toutefois qu’en fonction du pays, les explications puissent être formulées différemment. Nous faisons naturellement en sorte que nos modèles soient compréhensibles. Vous pouvez volontiers poser votre question ici, et pour toute assistance individuelle, vous adresser à votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone. Bon crochet!
14.05.2020 - 14:54Ágnes wrote:
Szuper ! ☺Nagyon jól használható minta és méretleirások. Gratulálok, nagyon profi. További sikeres jó munkát kívánok.
19.05.2019 - 12:13Fatma Şahin wrote:
It's a beautiful skirt. I will try.
29.04.2019 - 23:01Insisto Martinez Salas wrote:
Me gusta su página por todas las cosas hermosas que puede uno hacer y me encanta que den pratrones gratis excelente y felicidades
24.04.2019 - 14:36Elsje Fokkelman wrote:
Me encanta
16.12.2018 - 08:14Pilar Gonzalez wrote:
Muy juvenil
15.12.2018 - 22:16Anneli wrote:
Ilus värv ja ilus seelik.
14.12.2018 - 12:08