DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bali Blue

Prjónuð síð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og gatamynstri frá miðju og út í ferning. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-31
DROPS Design: Mynstur w-749
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-650-750-800-850-1000 g litur 29, ísblár

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
Ca 15,5 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með mynstri A.1 = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5: fyrir mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm eða 60 cm fyrir sléttprjón á ermum.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÆLING (á við um ferning):
Til að auðveldara sé að mæla ferninginn er hægt að setja helming af lykkjum á auka hringprjón þannig að mögulegt sé að draga stykkið út í ferning.
Stykkið á að mælast ca 28 cm mælt frá miðju og út í prjónstefnu fyrir miðju (ferningur mælist ca 56 cm x 56 cm).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 103 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi til skiptis 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fyrst í hring frá miðju á fram-/bakstykki og út í ferning. Síðan er afgangur af peysunni prjónaður fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. ATH: Vegna þyngdar á garninu og áferðinni kemur stykkið til að teygjast nokkuð við notkun. Uppskriftin er skrifuð eftir máli þannig að mögulegt sé að stilla mynstrið af í ferningi með heilu blaði á hæðina.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 8 lykkjur með Paris og skiptið lykkjunum á 4 sokkaprjóna nr 5 (= 2 lykkjur á hverjum prjóni). Prjónið mynstur A.1 (= 2 lykkjur í fyrstu umferð) alls 4 sinnum í umferð. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli hverra mynstureininga A.1. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu til loka og það á að nota þau síðar til að skipta lykkjum rétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 184 lykkjur í umferð. Nú heldur mynstur áfram alveg eins þannig: * Prjónið A.2a yfir fyrstu/næstu 9 lykkjurnar, A.2b yfir næstu 28 lykkjur (= 2 mynstureiningar), A.2c yfir næstu 9 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum í umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina er haldið áfram hringinn með mynstri alveg eins, en í hvert skipti sem mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina er pláss fyrir 1 mynsturteikningu fleiri af A.2b á breiddina á milli A.2a og A.2c meðfram hverri hlið á ferningi. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 28 cm frá miðju og út í annarri hliðinni – sjá MÆLING og stillið af að endað sé eftir heila mynstureining á hæðina. Ef prjónfestan passar hefur nú verið prjónuð 1 mynstureining A.1 og 3 mynstureiningar A.2a – A.2c á hæðina, ef prjónaðar hafa verið færri eða fleiri mynstureiningar A.2a – A.2c á hæðina kemur lykkjufjöldinn í framhaldinu á uppskrift ekki að passa. Nú eru 88 lykkjur meðfram hverri og einni af hliðum á ferningi. Prjónið nú áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S og M:
Ferningurinn hefur nú verið prjónaður til loka. Fellið af lykkjur meðfram fyrstu hlið á ferningi þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki – sjá AFFELLING, prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka yfir næstu lykkju (= lykkja á undan prjónamerki) og lykkjurnar fram að næsta prjónamerki (= neðst niðri á framstykki), síðan eru þessar lykkjur felldar af, klippið frá. Fellið lykkjur af meðfram næstu hlið á ferningi fram þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki – munið eftir AFFELLING. Þær lykkjur sem eru eftir í umferð eru upp að hálsi og öxlum. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

Stærð L og XL:
Prjónið nú mynstur fram og til baka meðfram 3 af hliðum á ferningi þannig:
Prjónið A.3a yfir næstu 9 lykkjur, A.2b þar til 9 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, A.2c, A.2a, A.2b þar til 9 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, A.2c, A.2a, A.2b þar til eftir eru 9 lykkjur á undan næsta horni, A.3b. Setjið þær lykkjur sem eftir eru í umferð á band (án þess að prjóna). Snúið og haldið svona áfram fram og til baka með mynstur þar til öll mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina.
Snúið og fellið af lykkjur meðfram fyrstu hlið á ferningi þar til eftir er 1 lykkja á undan prjónamerki – sjá AFFELLING, prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka yfir næstu lykkju (= lykkja á undan prjónamerki) og lykkjur fram að næsta prjónamerki (= neðst niðri á framstykki), fellið síðan þessar lykkjur af, klippið frá. Fellið af lykkjur meðfram næstu hlið á ferningi fram þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki – munið eftir AFFELLING. Þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru upp að hálsmáli og öxlum. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

Stærð XXL og XXXL:
Prjónið nú mynstur fram og til baka meðfram 3 af hliðum á ferningi þannig:
Prjónið A.3a yfir næstu 9 lykkjur, A.2b þar til 9 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, A.2c, A.2a, A.2b þar til 9 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, A.2c, A.2a, A.2b þar til 9 lykkjur eru eftir á undan næsta horni, A.3b. Setjið þær lykkjur sem eftir eru í umferð á þráð (án þess að prjóna). Snúið og haldið svona áfram fram og til baka með mynstur þar til öll mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Prjónið síðan eina mynstureiningu til viðbótar alveg eins, en nú er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri af A.2b meðfram hverri og einni af 3 hliðum sem prjónað er yfir.
Snúið og fellið af lykkjur meðfram fyrstu hliðinni á ferningi þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki – sjá AFFELLING, prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka yfir næstu lykkju (= lykkja á undan prjónamerki) og lykkjur fram að næsta prjónamerki (= neðst niðri á framstykki), síðan eru þessar lykkjur felldar af, klippið frá. Fellið af lykkjur meðfram næstu hlið á ferningi fram þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki – munið eftir AFFELLING. Þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru upp að hálsmáli og öxlum. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan.

Allar stærðir:
Prjónið nú áfram fram og til baka meðfram síðustu hlið á ferningi (= upp að öxlum og hálsmáli) þannig: Byrjið frá réttu og prjónið upp 0-0-8-8-14-14 lykkjur meðfram kanti á A.3b sem prjónast út í hlið í stærð L, XL, XXL og XXXL (á við um stærð S og M), prjónið inn lykkjur meðfram hlið á ferningi á sama hringprjón (= 89 lykkjur í öllum stærðum) og prjónið upp 0-0-8-8-14-14 lykkjur meðfram kanti á A.3a sem prjónast út í hlið í stærð L, XL, XXL og XXXL (á ekki við um stærð S og M) = ca 89-89-105-105-117-117 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu – ef lykkjufjöldinn er ekki 89-89-105-105-117-117 lykkjur er fækkað/aukið út jafnt yfir í þessari umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA).
Í næstu umferð eru felldar af miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjurnar í umferð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 3 lykkjur garðaprjón að hálsi. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum = ca 30-30-37-37-42-42 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm frá ferningi er fellt af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina öxlina alveg eins. Framstykki mælist ca 64-65-70-71-75-76 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og á framstykki. Stillið mynstur eftir framstykki, þannig að prjónaðar séu jafn margar umferðir og það séu jafn margar lykkjur á bakstykki og framstykki. Þegar prjónað er garðaprjón upp að hálsi og öxlum er prjónað þannig: Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 3-4-4-5-5-6 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 27-27-29-29-31-31 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju innan við 3 lykkjur garðaprjón við háls = ca 30-30-37-37-42-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-7-7-8-8-9 cm fellið lykkjurnar af. Prjónið hina öxlina alveg eins. Peysan mælist ca 64-65-70-71-75-76 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið 17-18-19-20-21-22 cm niður frá axlasaumi (= merkir handveg). Endurtakið í hinni hliðinni.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður.
Prjónið upp frá réttu 56-60-63-66-69-72 lykkjur á milli 2 prjónamerkja sem sett eru í handveg á annarri hlið á stykki á hringprjón 5,5 með Paris. Prjónið sléttprjón með rönguna út með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Fækkið lykkjum svona í mismunandi stærðum þannig:
Stærð S: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 11 sinnum.
Stærð M: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 12 sinnum.
Stærð L: Fækkið lykkjum svona til skiptis með 1 og 2 cm millibili alls 13 sinnum.
Stærð XL: Fækkið lykkjum svona til skiptis með 1 og 3 cm millibili alls 14 sinnum.
Stærð XXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 14 sinnum.
Stærð XXXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 15 sinnum.
Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 34-36-37-38-41-42 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 27-28-24-25-22-23 cm eru eftir 10 cm á ermi. Mátið e.t.v. flíkina til að stilla af lengd á ermum (stykkið kemur til með að teygjast aðeins yfir öxlum). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið mynstur svona: Prjónið 9-10-11-11-13-13 lykkjur garðaprjón, A.4 yfir næstu 15 lykkjur, 10-11-11-12-13-14 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.4 hefur verið prjónað til loka. Ermin mælist ca 37-38-34-35-32-33 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum og áfram niður yfir hliðarsaum þar til ca 15 cm eru eftir fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni. Þræðið þráð upp og niður meðfram gati í byrjun á ferningi og herðið saman þannig að gatið verði ekki of stórt. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Elly Osephius wrote:

Ik heb aluminium pennen. Maar nu glijden iedere keer de steken eraf. Hoe voorkom ik dit.

21.01.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Misschien brei je iets te los waardoor de steken ervan af glijden?

24.01.2022 - 20:30

country flag Elly Osephius wrote:

Vraag over patroon A1. Na dat je 8 steken verdeeld heb over 4 naalden. Maar volgens patroon A1 moet je in de 2de toer 4 steken hebben en een lus tussen 2 steken. Hoe dan. Meerder je meteen in 1ste toer 2 steken en daar tussen 1 lus. Ook glijden de steken van de pen. Ik heb metalen naalden van 20 cm. Kan ik wel 184 steken over deze korte pennen krijgen zonder dat ze eraf glijden

19.01.2022 - 21:43

DROPS Design answered:

Dag Elly,

Na het opzetten van 8 steken begin je met de eerste naald in A.1. Op de eerste naald in A.1 zijn er 2 steken en je meerdert voor de eerste steek en na de eerste steek. Dan heb je na de eerste naald met 4 keer A.1 in de breedte, dus 16 steken op de naald (8 steken en 8 omslagen.)

21.01.2022 - 08:53

country flag Annie-Claude POULARD wrote:

Merci beaucoup j ai mal lu je faisais des mailles croisées comme pour une torsade au lieu de diminution🤪

17.11.2020 - 20:46

country flag Annie-Claude POULARD wrote:

Bonjour difficultés rang 6 et 7 logiquement 8 mailles +4 jetés rang 6 devraient faire 12 mailles au rang 7. L erreur vient de moi ou du schéma A1? Merci pour votre réponse

17.11.2020 - 08:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Poulard, on rang 6 de A.1, vous n'augmentez que 2 mailles (il y a bien 4 jetés mais 2 diminutions = on augmente 2 mailles), autrement dit, tricotez A.1 ainsi au rang 6: 1 m end, 1 jeté, 2 m ens à l'end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 jeté, 2 m end = 10 m. Bon tricot!

17.11.2020 - 10:50

country flag Oksana wrote:

For the back piece it says: work in the same way as for the front piece... When working garter stitch up towards the neck and shoulders, work as follows: Work garter stitch back and forth until the piece measures 3-4-4-5-5-6 cm. Question: where exactly this garter stich starts from the pattern general for both: front and back piece?

26.04.2019 - 14:26

DROPS Design answered:

Dear Oksana, shoulders and neckline are described under Front/ All sizes: Now work back and forth along the last side of the square (= up towards the neck and shoulders) as follows, ie after you have worked ridges/pattern depending on the size, after A.2 has been worked. Happy knitting!

26.04.2019 - 15:44

country flag Janne Kulseth wrote:

Kan ikke finne hele oppskriften, bare diagrammet.

01.02.2019 - 15:26

DROPS Design answered:

Hei Janne. Dette skal nå være endret så hele oppskrften er tilgjengelig. Takk for beskjed og god fornøyelse

04.02.2019 - 15:11

country flag Anne-griet Leupen wrote:

What a delicate and light looking tunic. Lovely!

19.12.2018 - 01:43