Pink Moon |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, gatamynstri og tvegja lita klukkuprjóni.
DROPS 201-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (fram og til baka): UMFERÐ 1 frá réttunni: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki á prjóninn hér * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næsta uppslátt og fellið brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir (prjónamerki situr hér), prjónið 3 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, næsta umferð er prjónuð frá röngu. UMFERÐ 3 frá röngu: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næsta uppslátt og lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir (prjónamerki situr hér), prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt. Snúið ekki stykkinu við, næsta umferð er einnig prjónuð frá röngu (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 frá röngu: Prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr hér), * prjónið næsta uppslátt og fellið slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónamerki situr hér), prjónið 4 lykkjur slétt. Snúið stykkinu, næsta umferð er prjónuð frá réttu. Eftir umferð 1-4 hafa verið auknar út 4 lykkjur alls (2 lykkjur í hvorri hlið). Nú er hægt að prjóna þessar 2 lykkjur inn í klukkuprjóns mynstrið. UMFERÐ 5 frá réttu: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Nú eru 2 lykkjur að framan þar sem prjónamerkið situr, færið prjónamerkið þangað og prjónið þessar 2 lykkjur í klukkuprjóns mynstri þannig: prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjón. Prjónið svona yfir næstu lykkjur: * prjónið næsta uppslátt og fellið af slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir (prjónað hefur verið fram að prjónamerki). Takið frá prjónamerkið og prjónið inn fyrstu 2 lykkjur í klukkuprjóns mynstri þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og steypið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Nú eru 2 útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjón. Setjið nú prjónamerkið hér. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið síðan umferð 2-5 (= 4 lykkjur fleiri í hverri endurtekningu). FORMUN. Bleytið sjalið og leggið það varlega út í rétt form. Láið það þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur. Vegna mismunandi áferðar á sjalinu verður að forma það til þegar það hefur verið prjónað til loka – sjá FORMUN í útskýringu að ofan. SJAL: Fitjið upp 13 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið 1. og 2. umferð 3 sinnum til viðbótar (alls 4 sinnum) = 29 lykkjur í umferð. Prjónið síðan næstu umferð þannig: UMFERÐ 3 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 10 lykkjur fleiri) = 39 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 41 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið umferð 1-2 alls 10 sinnum = 81 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig: UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 83 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 85 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 29 lykkjur fleiri) = 114 lykkjur í umferð. UMFERÐ 8 (= ranga): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 116 lykkjur í umferð. UMFERÐ 9: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 118 lykkjur í umferð. UMFERÐ 10: Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 120 lykkjur í umferð. Nú á að prjóna tveggja lita klukkuprjón með litnum ljós bleikfjólublár og litnum natur frá réttu þannig: Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár, prjónið 1 umferð með TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= 2 lykkjur fleiri). * Skiptið yfir í litinn natur og prjónið umferð 2 af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið umferð 4 af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið umferð 5 af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (= 2 lykkjur fleiri) *. Prjónið frá *-* þar til umferð 2-5 hafa verið prjónaðar alls 8 sinnum á hæðina = 154 lykkjur í umferð. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð á einnig að prjóna frá réttu. UMFERÐ 11 (= rétta): Skiptið yfir í litinn natur og prjónið allar lykkjur slétt, allar lykkjur með uppslætti á að prjóna slétt saman með uppslætti. Snúið stykkinu. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið allar lykkjur slétt. Snúið stykkinu. Skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið þannig: UMFERÐ 13: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 155 lykkjur í umferð. UMFERÐ 14: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 156 lykkjur í umferð. UMFERÐ 15 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið 3 lykkjur slétt (= 31 lykkjur fleiri) = 187 lykkjur í umferð. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 21 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 188 lykkjur í umferð. UMFERÐ 17: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 189 lykkjur í umferð. UMFERÐ 18: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 190 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig: Prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið A.2 fram þar til 8 lykkjur eru eftir (29 mynstureiningar á breidd), prjónið A.3 yfir 8 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina, nú eru 206 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn bláfjólublár og prjónið þannig: UMFERÐ 19 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 207 lykkjur í umferð. UMFERÐ 20 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 208 lykkjur í umferð. UMFERÐ 21 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 69 lykkjur fleiri) = 227 lykkjur í umferð. UMFERÐ 22 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 278 lykkjur í umferð. UMFERÐ 23 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 279 lykkjur í umferð. UMFERÐ 24 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 280 lykkjur í umferð. Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón með litnum bleikfjólublár og litnum natur. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár, prjónið 1. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 2. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið 3. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 4. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið 5. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN *. Prjónið frá *-* þar til 2.-5. umferð hefur verið prjónuð alls 12 sinnum á hæðina (= 50 lykkjur fleiri) = 330 lykkjur í umferð. Snúið ekki stykkinu. Snúið ekki stykkinu, næsta umferð er einnig prjónuð frá réttu. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig: UMFERÐ 25 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 331 lykkjur í umferð. UMFERÐ 26 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 332 lykkjur í umferð. UMFERÐ 27 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt (= 1 lykkja fleiri) = 333 lykkjur í umferð. UMFERÐ 28 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 334 lykkjur í umferð. UMFERÐ 29 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 335 lykkjur í umferð. UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 336 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið umferð 29-30 10 sinnum (20 umferðir garðaprjón þar sem aukið er út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð = 20 lykkjur fleiri) = 336 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið þannig: UMFERÐ 31 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 357 lykkjur í umferð. UMFERÐ 32 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 358 lykkjur í umferð. UMFERÐ 33 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 1 lykkja fleiri) = 359 lykkjur í umferð. UMFERÐ 34 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 360 lykkjur í umferð. UMFERÐ 35: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 361 lykkjur í umferð. UMFERÐ 36: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 362 lykkjur í umferð. Prjónið nú tveggja lita klukkuprjón með litnum bláfjólublár og litnum ísblár. Skiptið yfir í litinn bláfjólublár, prjónið 1. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. * Skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið 2. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bláfjólublár og prjónið 3. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn ísblár og prjónið 4. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN. Skiptið yfir í litinn bláfjólublár og prjónið 5. umferð af TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN *. Prjónið frá *-* þar til 2.-5. umferð hefur verið prjónuð alls 8 sinnum á hæðina (34 lykkjur fleiri) = 396 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið þannig: UMFERÐ 37: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 397 lykkjur í umferð. UMFERÐ 38: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 398 lykkjur í umferð. UMFERÐ 39 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 1 lykkja fleiri) = 399 lykkjur í umferð. UMFERÐ 40 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 400 lykkjur í umferð. UMFERÐ 41: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 402 lykkjur í umferð. UMFERÐ 42: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 2 lykkjur fleiri) = 404 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn ljós bleikfjólublár og prjónið þannig: Prjónið A.4 yfir 4 lykkjur, prjónið A.5 fram þar til 4 lykkjur eru eftir (66 mynstureiningar á breidd), prjónið A.6 yfir 4 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina, nú eru 420 lykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár og prjónið þannig: UMFERÐ 43: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 421 lykkjur í umferð. UMFERÐ 44: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 422 lykkjur í umferð. UMFERÐ 45 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið þær slétt (= 1 lykkja fleiri) = 423 lykkjur í umferð. UMFERÐ 46 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 424 lykkjur í umferð. UMFERÐ 47: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 425 lykkjur í umferð. UMFERÐ 48: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri) = 426 lykkjur í umferð. AFFELLING: Í næstu umferð frá réttu er fellt af með i-cord affellingu. Mikilvægt er að fella laust af í kanti svo að sjalið fái fallegt form og fallega affellingu. Notið gjarna grófari prjón til að fella af með og passið uppá að prjóna lykkjurnar laust. Prjónið og fellið af þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt saman. Færið síðan 3 lykkjurnar til baka frá hægri prjón yfir á vinstri prjón (í sömu röð sem þær eru í) *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á vinstri prjóni hafa verið felldar af og eftir eru 3 lykkjur á hægri prjóni. Færið þessar 3 lykkjur yfir á vinstri prjón og fellið þær af slétt. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (27)
Nicole wrote:
Le rang 1 des côtes anglaises * 1 endroit, un jeté , glissé la maille suivante * répéter jusqu’à la fin du rang ???? Sûrement plus de deux mailles d’augmentation à la fin ?? À l’aide svp
19.03.2024 - 00:05DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, les jetés des côtes anglaises appartiennent aux mailles glissées et ne sont pas comptées comme des mailles, dans cette vidéo vous verrez comment tricoter ce type de côtes anglaises (sans augmentations dans la vidéo). Bon tricot!
19.03.2024 - 11:37Mokrima wrote:
Hat dieses Modell Randmaschen? 2?
24.05.2020 - 18:06DROPS Design answered:
Liebe Mokrima, wenn man Patentmuster strickt, gibt es 1 Randmasche auf beiden Seite, aber sonnst stricken Sie keine - und beginnen die Reihen mit 1 Umschlag wie in diesem Video. Viel Spaß beim stricken!
25.05.2020 - 10:05Karin wrote:
Vielen. lieben Dank für die schnelle Beantwortung meiner Frage.
11.12.2019 - 15:14Karin wrote:
Reihe 3 und 4 habe ich gestrickt. Danach steht "Die 1.-2. Reihe insgesamt 10 x arbeiten ....." Nun meine Frage: 1. und 2. Reihe - kraus re. oder 3. und 4. Reihe mit Loch?
11.12.2019 - 10:56DROPS Design answered:
Liebe Karin, Sie wiederholen die 1. -2. REIHE (= die 2 Reihen die Sie am Anfang gestrickt haben, und schon 4 x wiederholt). Viel Spaß beim stricken!
11.12.2019 - 13:01Dea wrote:
Si alla fine ho fatto il FERRO 33. Grazie. :)
27.09.2019 - 17:23Dea wrote:
Si ho fatto il FERRO 33 e viene giusto. Grazie ^_^
27.09.2019 - 17:21Dea wrote:
Scusate lavorando il FERRO 27 rimangono 3 magli e non va bene nemmno lavorare comeil FERRO 21 perchè è un'altra cosa, comunque dove sta l'errore? Grazie
27.09.2019 - 15:57DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Inoltreremo la sua segnalazione al settore design. Provi a verificare se il ferro 27 deve essere lavorato come il ferro 33. La correzione verrà inserita nel testo online. Buon lavoro!
27.09.2019 - 17:00Dea wrote:
Buongiorno, sto lavorando la RIGA 27, ma seguendo ciò che è scritto non rimangono 2 maglie, per otternerle devo lavorare come la RIGA 21...c'è qualche errore? Grazie.
27.09.2019 - 15:39Claudia wrote:
Spett.le Drops, grazie mille per tutti i modelli fantastici; avrei una domanda, per i gomitoli dei primi tre colori: 100 g colore 3250, rosa antico chiaro 100 g colore 0100, panna 100 g colore 4088, erica .... si usano completamente o si usa parte dei 100 gr... ??? Perché vorrei fare questo scialle con vari avanzi di altri progetti... GRAZIE MILLE DI NUOVO.
17.06.2019 - 16:45DROPS Design answered:
Buongiorno Claudia. Le consigliamo di prevedere la quantità di filato indicata nel modello. Il suo rivenditore Drops di fiducia è a sua disposizione per ulteriori consigli. Buon lavoro!
19.06.2019 - 08:59Astrid wrote:
Mir ist nicht klar, wie ich die Umschläge in der folgenden Reihe stricken muss. Verschränkt, so dass kein Loch ensteht oder rechts, dann entsteht ja ein Loch
25.05.2019 - 11:45DROPS Design answered:
Liebe Astrid, die Umschläge werden "normal" gestrickt, dh nicht verschränkt. Viel Spaß beim stricken!
27.05.2019 - 09:57