DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Talvik Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 197-11
DROPS Design: Mynstur z-832
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 618, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 607, ljós brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 2020, ljós kamel
50-50-50-50-50-50 g litur 403, millibrúnn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón /norrænt mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 7,1.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan.
Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 7. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-8½-8½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 132-136-140-144-152-160 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið viðmiðju að framan) á hringprjón 2,5 með lintum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar storffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-17-13-13-13-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 115-119-127-131-139-143 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið mynstur frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 1 lykkja), prjónið A.2 (= 4 lykkjur) alls 26-27-29-30-32-33 sinnum á breidd, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í umferð með svartri stjörnu í A.2 er aukið út um 20-24-20-24-32-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 239-251-263-275-299-311 lykkjur (meðtaldar 4 lykkjur sem auknar hafa verið út í mynstureiningu A.2).
Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 (= 1 lykkja), A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
JAFNFRAMT í umferð með ör er auki út jafnt yfir þannig:
ÖR-1: Aukið út 24-36-36-36-36-36 lykkjur = 263-287-299-311-335-347 lykkjur.
ÖR-2: Aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur = 287-311-335-347-371-383 lykkjur.
ÖR-3: Aukið út 12-24-24-36-36-36 lykkjur = 299-335-359-383-407-419 lykkjur.
ÖR-4: Aukið út 28-28-28-28-28-28 lykkjur = 327-363-387-411-435-447 lykkjur.
Þegar allt A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 20 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stykkið prjónað áfram með ljós beige til loka. Haldið áfram með uppfitjunarkanti og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 10-8-8-10-12-13 lykkjur jafnt yfir.
Aukið svona í 4.-4.-4.-6.-8.-8. hverri umferð alls 1-2-3-3-3-4 sinnum = 337-379-411-441-471-499 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 55-60-64-70-75-81 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-129-141-151 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-64-70-75-81 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 229-249-269-293-319-345 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-82-89 lykkjur inn frá hvorri hlið = 109-119-129-141-155-167 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 9 sinnum = 265-285-305-329-355-381 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 83-87-95-107-117-123 lykkjur jafnt yfir = 348-372-400-436-472-504 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-75-83-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-85-95-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 10.-8.-6.-6.-6.-4. hverri umferð 7-3-9-5-1-18 sinnum og í 8.-6.-4.-4.-4.-2. hverri umferð 4-12-10-14-20-4 sinnum = 52-55-57-60-62-65 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-19-20-18-19 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þega stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2022
BERUSTYKKI:... (meðtaldar lykkjur sem auknar eru út í mynstureiningu A.2).

Mynstur

symbols = natur
symbols = natur
symbols = ljós kamel
symbols = ljós beige
symbols = ljós brúnn
symbols = millibrúnn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Talvik Jacket

Jette, Denmark

197-11 Talvik Jacket

Jette, Denmark

Sabrina Talvik Jacket

Dorothee, Germany

Talvik Jacket

Marie, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Véronique wrote:

Bonjour. Juste une petite remarque concernant l'arrêt de la couleur 403. C'est bien dommage, parce que le dégradé était parfait avec les autres coloris. J'ai acheté les 2 autres couleurs proposées dans les commentaires et elles jurent trop avec ce beau camaieu. Pour l'automne, ce brun se mariait bien avec d'autres coloris.

20.10.2021 - 19:33

country flag Tanya wrote:

Hi, I was not able to find Drops Alpaca in shade 403, medium brown, required for Talvik Jacket. I did find all four other shades listed in the pattern. Was this shade, 403, discontinued or is this a mistake and a different shade/number should be used? Thank you. Tania

27.06.2021 - 15:34

DROPS Design answered:

Dear Tanya, the 403 medium brown is not available at the moment, but you can try the pattern witheither the 3969 red/purple, or the 5565 light maroon, or the 9025 hazelnut color. Happy Stitching!

28.06.2021 - 03:35

country flag Eli Hægland wrote:

Lurer på om jeg kan strikke denne uten mønster med samme antall masker i str M f eks 136 m?

09.03.2021 - 13:20

DROPS Design answered:

Hei Eli, Ja, siden hele jakken er strikket i glattstrikk, blir det det samme antall masker selv om du ikke strikker mønster. God fornøyelse!

10.03.2021 - 07:30

country flag Janice Kernaghan wrote:

Please help I do not understand the charts A1 and A2 . Do I begin with A1 as it would be stocking stitch off white and then light camel. But that does not look like the pattern. Could you please expand what it is I do. I have knitted the perfect du nord jumper but find this one very confusing!

18.01.2021 - 20:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kernaghan, you will work A.1 and A.2 on the same row as follows: work 5 front band sts in garter stitch, work then the stitch in A.1, repeat the 4 sts in A.2 width until 5 sts remain on row and work the 5 sts in garter stitch. From wrong side work: 5 sts in garter stitch, repeat the 4 sts in A.2 in width (read now diagram from the left towards the right), until 6 sts remain, work A.1 and 5 sts in garter stitch. That way pattern will be symetrical on each side. Read more about diagrams here. Happy knitting!

19.01.2021 - 07:10

country flag Carin Gullberg wrote:

Hej! Jag stickar storlek XL. Efter halskanten ska jag ha 131 maskor. (Då.är 10 framkanten)Hur ska jag få 30 upprepningar av mönstret som är 5 maskor ( A1+A2)på 121 maskor??? Jag fick dit 24 upprepningar

28.11.2020 - 22:16

DROPS Design answered:

Hej Carin, du strikker 5 kantmasker, A.1=1 maske, A.2x30=120m, 5 kantmasker = ialt 131 masker. God fornøjelse!

07.12.2020 - 10:55

country flag Isabella Qvarnström wrote:

Hej! Jag ska precis börja sticks halsresåren.. Jag undrar om kantmaskorna är inräknade i storlekens maskantal eller ska jaglägga till 10 vid upplägg? Jag ska sticka storlek M och ska jag då lägga upp136 maskor eller136 + 10? Mvh Isabella

20.06.2020 - 12:18

DROPS Design answered:

Hej Isabella. Kantmaskorna är inräknade så du lägger upp 136 maskor i strl M. Mvh DROPS Design

22.06.2020 - 07:37

country flag Teston wrote:

Je ne comprends pas comment on monte des mailles sous la manche

17.05.2020 - 12:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Teston, on monte les mailles sous la manche en utilisant cette technique - retrouvez dans cette leçon - image 11) comment monter les mailles sous les manches. Bon tricot!

18.05.2020 - 08:38

country flag Amica wrote:

Hola a todos! Estoy empezando este modelo y no entiendo porque despues de tejer el cuello se ha de DISMINUIR 17p repartidos. Gracias

09.05.2020 - 23:01

DROPS Design answered:

Hola Amica. Las disminuciones se necesitan para pasar de punto elástico a punto jersey sin que que se forme un aumento del tejido

15.05.2020 - 11:50

country flag Clare wrote:

Hi, I have started the 2nd row after the rib on the neck. I am confused by the static count on row 3 being 263 (for the 3rd size) I cannot see in the instructions or chart where any instructions to make increases are. It states...A.1, work A.2 29 times in total. This refers to the chart. The chart key only refer to the colour used and not any increases until the * on row 3 or the.... Are charts read from the bottom up?

23.02.2020 - 00:43

DROPS Design answered:

Dear Clare, when you start yoke you have 127 stitches on needle and work: 5 front band sts, A.1 (= 1 st), A.2 (= 29 x 4 sts), 5 front band sts = 127 sts. You will then increase a total of 4 stitches in A.2 (see yarn overs) so that there will be: 5 band sts, A.1 (= 1 st), A.2 (= 29 x 8 sts), 5 band sts = 243 sts when all increased in A.2 are done. Then on the row with the star you will increase 20 sts evenly = there are now 263 sts. Read more about diagrams here. Happy knitting!

24.02.2020 - 08:56

country flag Torsten Grabow wrote:

Hallo werden die Maschen bei A4 dann auf der Rückseite zugenommen oder ist das falsch eingezeichnet?

13.02.2020 - 10:07

DROPS Design answered:

Lieber Herr Grabow, wenn Sie bei einer Rückreihe zunehmen, dann stricken Sie die Umschläge rechts verschränkt bei der nächsten Reihe. Viel Spaß beim stricken!

13.02.2020 - 12:16