DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Steingard Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 195-7
DROPS Design: Mynstur pu-028
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 05, dökk grár
100-100-100-100-150-150 g litur 01, natur
100-100-100-100-100-150 g litur 07, ljós grár
50-50-100-100-100-100 g litur 08, svartur
50-50-50-50-50-50 g litur 06, grár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS STÁLTALA, (ójöfn) NR 534: 5-5-5-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið að 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferð (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan):
Í umferð þar sem mynsturborði er með 2 litum er einnig prjónað með grunnlit í mynsturborða yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 29) = 3,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ekki er aukið út yfir kanta að framan.
ATH: Við ör-2 og ör-5 er aukið út í flestum stærðum í umferð með mynstri, hér er mikilvægt að stilla útaukningarnar af þannig að aukið er út í grunnlit í mynsturborða.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT (ofan frá og niður):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þegar flíkin er mátuð: 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu og prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsi mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8-8-9-7-7-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-116-119-122-128-134 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með litnum grár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn ljós grár og haldið áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 29-31-36-41-43-45 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 139-147-155-163-171-179 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).
Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – prjónið UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI:

BERUSTYKKI:
Sjá LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 16-17-18-19-20-21 mynstureiningar A.1A með 8 lykkjum), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1A er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í umferð merktri með ör-1 er aukið út um 24-24-32-32-32-32 lykkjur jafnt yfir = 163-171-187-195-203-211 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-22-23-24-25 mynstureiningar A.1A með 8 lykkjum).
Í umferð með ör-2 aukið út um 40-48-56-56-64-72 lykkjur jafnt yfir = 203-219-243-251-267-283 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-29-30-32-34 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum).
Í umferð með ör-3 er aukið út um 32-40-40-48-48-56 lykkjur jafnt yfir = 235-259-283-299-315-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-31-34-36-38-41 mynstureiningar með A.1A með 8 lykkjum).
Í umferð með ör-4 er aukið út um 28-34-34-42-50-50 lykkjur jafnt yfir = 263-293-317-341-365-389 lykkjur (nú er pláss fyrir 42-47-51-55-59-63 mynstureiningar með A.1A með 6 lykkjum).
Í umferð með ör-5 er aukið út um 22-22-20-26-36-40 lykkjur jafnt yfir = 285-315-337-367-401-429 lykkjur.
Þegar síðasta umferð í A.1 er eftir mælist stykkið ca 23-23-25-27-29-30 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna áfram með grár (í S, M, L, XL og XXL) eða dökk gráum (í XXXL) að réttu máli.
Síðasta umferð í A.1 er prjónuð frá röngu: Prjónið 45-49-53-57-64-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 79-89-95-105-117-127 lykkjur brugðið (= bakstykki), setjið næstu 58-64-68-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-53-57-64-69 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 185-203-221-239-269-293 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 29-32-35-38-43-47 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.2B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-6 í A.2A er aukið út um 24 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 209-227-245-263-293-317 lykkjur (nú er pláss fyrir 33-36-39-42-47-51 mynstureiningar A.2A með 6 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum dökk grár og 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 30-32-32-32-32-33 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 48-54-60-66-72-78 lykkjur jafnt yfir = 257-281-305-329-365-395 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið síðan laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-64-68-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-84-90-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið á að nota síðar þegar úrtaka byrjar undir ermum.
Prjónið síðustu umferð í A.1a þannig að A.1 endar alveg eins á ermi og á fram- og bakstykki. Prjónið A.2A hringinn (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.2A hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað sléttprjón með litnum dökk grár.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 0-0-0-5-8-8 sinnum, fækkið lykkjum síðan með 2 cm millibili alls 3-5-7-0-0-0 sinnum og fækkið að lokum með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-8-8-12-11-13 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 36-36-35-33-31-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-8-9-7-8-9 lykkjur jafnt yfir = 51-54-57-57-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 42-42-41-39-37-37 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = dökk grár
symbols = svartur
symbols = natur
symbols = grár
symbols = útauknings umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Megan wrote:

Hi there, I am completing the sleeves and when I start decreasing every 2cm after the division whilst completing the A.2A pattern there are no longer increments of 6 stitches to complete the chart. Will the patten not be impacted by this? Please could you explain, many thanks Megan

19.08.2022 - 16:19

DROPS Design answered:

Dear Megan, in the center under the sleeve, whether working top down or bottom up, there will be an interruption in the pattern, due to increases or decreases. However, this doesn't create a bad visual effect, since it's worked in a barely visible part of the garment. Happy knitting!

21.08.2022 - 21:11

country flag Megan wrote:

Hi there, when I decrease every 2cm on the sleeves after the division, there will no longer repeats of 6 stitches for completing the A.2A pattern. How does the pattern then not get interrupted? Many thanks Megan

19.08.2022 - 16:16

DROPS Design answered:

Dear Megan, please see answer above.

21.08.2022 - 21:12

country flag Malva Hilda Mejia Arregui wrote:

1. A que se refiere la descripción de elevación en la parte posterior del cuello. 2.Envian lanas a México y cual sería el procedimiento

19.01.2022 - 05:29

DROPS Design answered:

Hola Malva, 1. Esta elevación es opcional, para que se asiente mejor la prenda. En este caso, el canesú es más alto en la espalda. Si prefieres que quede de la misma altura por ambos lados puedes pasar directamente al canesú. 2. A continuación, en el siguiente enlace, puedes encontrar las tiendas con envío internacional, incluyendo México: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=19&w=1&cid=19

23.01.2022 - 20:04

country flag Lajoie wrote:

J e ne comprend pas pourquoi il est indiqué pour ce cardigan d'utiliser des aiguilles circulaires

12.12.2020 - 12:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lajoie, on utilise une aiguille circulaire pour avoir suffisamment de placer pour y loger les 285-315-337-367-401-429 mailles de l'empiècement quand toutes les augmentations sont faites. Bon tricot!

14.12.2020 - 07:44

country flag Marianne Helland wrote:

Kan man istedet for og strikke jakka frem og tilbake legge opp noen oppklipp masker foran som kan klippes opp til slutt og strikke stolper og sy på?Marianne Helland

03.02.2019 - 12:18

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Ja, om du heller vil strikke rundt kan du legge til oppklippsmasker midt foran. Følg ellers oppskriften som anvist. God fornøyelse

07.02.2019 - 08:28

country flag Susanne Løvheim wrote:

Mange tak for hurtigt svar, men det var ikke det jeg mente. Jeg tænkte på de lange LODRETTE kanter, der er i spesielt mønsterA2A. Jeg er nervøs for at strikketøjet ikke hænger sammen, når man skifter farve, det samme sted på hver pind Med venlig hilsen Susanne Løvheim

03.02.2019 - 11:34

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Du gjentar A.2a rundt hele omgangen slik at du hele tiden strikker med mørk grå og natur samtidig. For eksempel, rad 19 i A.2a for S-M-L (der den første loddrette raden med grå begynner), strikkes slik: 1 maske grå, 5 masker natur, 1 maske grå, 5 masker natur osv. Det har ikke noe å si at de samme fargene er på samme sted oppover, begge trådene vil jo følge med hele veien rundt. Jeg vil anbefale deg å tvinne den grå tråden på baksiden slik at du ikke får lange løse tråder. Dette vil også gjøre at strikketøyet ditt holder seg jevnt og fast. God fornøyelse

08.02.2019 - 07:44

country flag Susanne Løvheim wrote:

Jeg kan se i mønstret, at der skal strikkes lange lige kanter, bl.a. mønster A.2A. Har I en instruksvideo eller et trick til at strikke disse lodrette kanter i mønster, så det også bliver pænt på bagsiden? Eller vil det ikke have nogen bestydning? Skal jeg bare strikke løs og se, hvad som sker?

27.01.2019 - 12:45

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Om du tenker på triks til å strikke med flerfarget mønster uten å få lange tråder på baksiden kan du se på denne videoen her. Ca 5 minutter uti videoen demonstres det hvordan å tvinne tråden det ikke strikkes med på baksiden av arbeidet. God fornøyelse.

29.01.2019 - 13:40

country flag Inga Berit Hovde wrote:

Hyggelig at Qompis ble valgt.

10.07.2018 - 12:48

country flag Elisabeth wrote:

Super dejlige farver

06.06.2018 - 08:16