DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sheep Happens!

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine eða Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í norrænu mynstri með kindum. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-2
DROPS Design: Mynstur li-159
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 05, ljós grár
100-100-100-100-100-100 g litur 19, gráblár
50-50-50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 02, svartur

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 9015, grár
100-100-100-100-100-100 g litur 6235, gráblár
50-50-50-50-50-50 g litur 0100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 8903, svartur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning er prjónuð með sléttprjóni.
Þar sem það eru löng hopp á milli litaskipta, verður að tvinna þræðina saman við hvern annan eftir ca 7. hverja lykkju, svo að ekki verði eins langir lausir endar á bakhliðinni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 2,9.
Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Berustykkið skiptist við ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 92-96-100-104-112-120 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós gráblár.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Prjónið stroff í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 28-24-32-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 120-120-132-134-144-154 lykkjur.
Prjónið síðan mynstur þannig (umferðin byrjar við miðju að aftan):
Prjónið A.1 (= 6-6-6-5-5-5 lykkjur) yfir næstu 12-12-12-10-10-10 lykkjur (= alls 2 sinnum), A.2 (= 12 lykkjur), A.1 yfir næstu 42-42-48-50-55-60 lykkjur (= alls 7-7-8-10-11-12 sinnum), A.2 yfir næstu 12 lykkjur, A.1 yfir síðustu 42-42-48-50-55-60 lykkjur (= alls 7-7-8-10-11-12 sinnum).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 244-244-270-322-348-374 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 16 cm (meðtalið stroff).
Prjónið með ljós grár 1 umferð slétt og aukið út um 11-11-15-8-12-1 lykkjur jafnt yfir = 255-255-285-330-360-375 lykkjur.
Prjónið A.3 (= 15 lykkjur) yfir allar lykkjur (= alls 17-17-19-22-24-25 sinnum á breidd).
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 306-340-361-396-432-450 lykkjur í umferð.
Stykkið er prjónað með litnum ljós grár til loka.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm (meðtalið stroff).
Síðan skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig:
Prjónið 44-48-50-56-62-67 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 64-72-79-84-90-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi, prjónið 89-99-102-115-127-135 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 64-72-79-84-90-90 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi, 45-49-51-57-63-68 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki) = 194-212-223-248-272-298 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 26-26-26-27-27-27 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 26-32-33-32-40-42 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 220-244-256-280-312-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm (þ.e.a.s. stykkið mælist ca 30-30-30-31-31-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum). Peysan mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm, mælt frá öxl.

ERMI:
Setjið 64-72-79-84-90-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-89-94-100-104 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-10-14 lykkja undir ermi. Prjónið í hring í sléttprjóni með grár. Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem ermarnar skiptu fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 11-15-18-19-22-23 sinnum = 50-50-53-56-56-58 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 40-38-37-36-35-33 cm frá þar sem ermar skiptu fram- og bakstykki, aukið út um 2-2-3-0-4-2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 52-52-56-56-60-60 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 44-42-41-40-39-37 cm frá þar sem ermin skipti fram- og bakstykki (= ca 4 cm stroff).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.07.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1 í stærð XL-XXL-XXXL.
Yfirfarið á vefsvæði: 06.08.2018
BERUSTYKKI:Fitjið upp 92-96-100-104-112-120 lykkjur á hringprjón 3 með ljós gráblár.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar).
Prjónið stroff í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 28-24-32-30-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 120-120-132-134-144-154 lykkjur.

Mynstur

symbols = ljós gráblár
symbols = natur
symbols = svartur
symbols = ljós grár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sheep Happens!

Eimantė

Sheep Happens!

Stefanie Altenhofer, Germany

Sheep Happens!

Dominique, France

Sheep Happens!

Gillian Johnstone, Cyprus

Sheep Happens!

Guinevere, Greece

Sheep Happens!

rawgreenbeans, United States

Sheep Happens!

Lin, United States

Sheep Happens!

Karo, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (126)

country flag Marlies Merk wrote:

Ik snap het kopje meerderen niet ik wil de xxxl maat maken die staat onder A1 ,maar dan lees ik iets onder het kopje meerderen waar ik echt niks van snap bijv. Brei A1 is 5steken over de eerste 10 st.en dan staat er =in totaal 2x enz maar ik heb geen idee wat er hier bedoelt wordt. De teltekening is geen probleem maar de geschreven tekst snap ik helemaal niks van.☹️ Help AUB

14.03.2024 - 22:12

DROPS Design answered:

Dag Marlies,

Je leest het telpatroon van onder naar boven, dus A.1 begint voor jou met 5 steken. Je breit A.1 over de eerste 10 steken. Dat betekent dus 2 herhalingen in de breedte van A.1.

20.03.2024 - 12:48

country flag Lecomte wrote:

Bonjour , j ai acheté le fils flora pour la réalisation de ce modèle. ce modèle est-il tricoté en fils double ? Le fils Flora est à tricoter avec des aiguilles plus fines .

28.02.2024 - 00:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lecomte, en fait Flora appartient au groupe de fils A alors que ce pull a été réalisé dans un fil du groupe B, autrement dit, pour utiliser Flora ici il faudrait entièrement recalculer les explications pour la tension correspondante; retrouvez ici tous les pulls que vous pouvez réaliser en ou avec Flora, ou bien utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives possibles. Bon tricot!

28.02.2024 - 09:28

country flag Mable wrote:

Can I sell items made from any of your patterns, not commercially just for a Charity Craft Sale. Many thanks

23.02.2024 - 10:57

DROPS Design answered:

Dear Mable, "The sale of garments based on DROPS patterns is permitted as long as they are sold as single items or per order. Further commercial use of the patterns is not permitted. It has to be clearly stated that the garment is made based on a design from DROPS DESIGN. " For further details, please see the framed text ("small print" ) below the pattern. Happy Knitting!

07.03.2024 - 22:47

country flag Ute wrote:

Maßtabelle.\r\nIch kann in der Anleitung die Maßtabelle nicht finden und weiß deshalb nicht, welche Größe für mich richtig wäre. Welchem Brustumfang entspricht Größe L?

11.10.2023 - 01:38

DROPS Design answered:

Liebe Ute, messen Sie einen ähnlichen Pullover, den Sie gerne tragen und vergleichen Sie die Maßen mit den in der Skizze, so finden Sie die passende Größe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

11.10.2023 - 08:41

country flag Amber Sarno wrote:

Hello, I would love to have this Sheep Happens pattern in crochet. Is it possible to convert it? Thanks!

14.03.2023 - 09:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sarno, it might be possible, but we unfortunately are not able to adapt every pattern to every request, please contact your yarn store or any crochet forum for any individual assistance. Thanks for your comprehension.

14.03.2023 - 10:14

country flag Eva Callaghan wrote:

The sheep happens pattern in cm or inches what size is XXXL

16.02.2023 - 01:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Callaghan, all measurements in the chart are taken in cm - convert into inches here if needed - and read more about charts and how to choose a size here. Happy knitting!

16.02.2023 - 12:15

country flag Marie Louise wrote:

Bonjour Je cherche le chauffe épaules avec l intégration des moutons est-ce que vous pouvez me référer le numéro, serait grandement apprécié merci

01.01.2023 - 20:04

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Louise, nous n'avons pas ce type de modèles, si vous l'avez vu réalisé, contactez directement la personne qui l'a tricoté, elle pourra probablement vous aider. Bon tricot!

02.01.2023 - 15:57

country flag Margitta wrote:

Liebest Drops Team, ich stricke eure Anleitungen unheimlich gerne vor allem weil man wirklich immer Hilfe bekommt. Dafür möchte ich euch danken. Ich wünsche euch ein schönes Weihnachtsfest und alles gute fürs neue Jahr 🥂viele Grüße Margitta

17.12.2022 - 06:02

country flag Margitta wrote:

Liebes Drops Team,wenn die Diagramme 2x bzw 8 x hintereinander gestrickt werden .wie hier z.b. A1 .werden dann auch jeweils die Zunahmen jeweils wiederholt.wenn es also heißt 8x ,dann werden auch 8 Zunahmen gemacht? Ich Danke euch im vorraus und liebe Grüße

16.12.2022 - 16:15

DROPS Design answered:

Liebe Margitta, die Diagramme sollen Sie genau wie beschrieben stricken und wiederholen, dh wenn A.1 2 Mal gestrickt wird, stricken Sie jedes A.1 mit den jeweilgen Zunahmen und wenn A.2 8 x wiederholt muss, dann stricken Sie das Diagram genau wie beschrieben und 8x (dh mit den jeweiligen Zunahmen), bei jedem Diagram sollen Sie dieselbe Maschenanzahl bei jeder Runde haben. Viel Spaß beim stricken!

16.12.2022 - 16:21

country flag Mo wrote:

Thanks for your quick reply. Can you advise if there is a comparable pattern (top-down with round yoke) with an elevated back that I can use as guidance? I have tried searching but haven’t found anything, and there are so many patterns. Thanks

28.11.2022 - 11:05

DROPS Design answered:

Dear Mo, please find all our jumpers worked top down with a yarn group B (such as this one) here - including jumpers with or without elevation (and yarn group B). Happy knitting!

28.11.2022 - 11:28