DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wintry Set

Prjónuð húfa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað með köðlum og áferðamynstri. Prjónað hálsskjól úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað með áferðamynstri.

DROPS 192-5
DROPS Design: Mynstur ne-297
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300 g litur 8907, þoka

GARN Í HÚFU:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150 g litur 8907, þoka

GARN Í HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Mál: Ummál efst: 41 - 57 cm. Hæð: 26 - 30 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150 g litur 8907, þoka

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Mynstur A.8: 20 lykkjur = 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

HÁLSSKJÓL:

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Mynstur A.14: 20 lykkjur = 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 40 cm fyrir kraga.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.12).
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.13 til A.16.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (jafnt yfir – á við um hálsskjól):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 43 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 5,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 107-113 lykkjur á hringprjón 4 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið stroff þannig: A.1 (= 13 lykkjur), A.2 (= 26 lykkjur), A.3 (= 14 lykkjur), A.4 yfir síðustu 54-60 lykkjurnar (= 18-20 mynstureiningar með 3 lykkjum). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið A.5 (= 13 lykkjur) yfir A.1, A.6 (= 26 lykkjur) yfir A.2 – byrjið A.6 í umferð merktri fyrir þína stærð, A.7 (= 14 lykkjur) yfir A.3 og A.8 yfir A.4 (= 18-20 mynstureiningar með 3 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er allt mynstur A.6 endurtekið 1 sinni til viðbótar á hæðina í báðum stærðum, þær lykkjur sem eftir eru halda áfram eins og áður. Haldið áfram þar til A.6 er lokið á hæðina.
Stykkið mælist ca 21-22 cm.
Fækkið nú lykkjum í mynstri, þ.e.a.s. prjónið áfram þannig: Prjónið A.9 (= 13 lykkjur) yfir A.5, A.10 (= 26 lykkjur) yfir A.6, A.11 (= 14 lykkjur) yfir A.7 og A.12 (= 6-5 mynstureiningar með 9-12 lykkjum) yfir A.8. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar mynsturteikning A.9 til A.12 hefur verið prjónað til loka eru 27-30 lykkjur í síðustu umferð.
Næsta umferð er prjónuð 1-0 lykkja slétt, síðan eru lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 =14-15 lykkjur. Prjónið 0-1 lykkju slétt, síðan eru lykkjurnar prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 7-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 27-28 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í 2 stykkjum, neðan frá og upp að klauf. Síðan eru stykkin sett saman og prjónað er áfram í hring á hringprjóna.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 43-48 lykkjur á hringprjón 4 með Nepal. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 51-57 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: A.13 (= 6 lykkjur), endurtakið A.14 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 13-15 mynstureiningar með 3 lykkjum) og A.15 (= 6 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 15-17 cm. Nú er klaufin tilbúin. Geymið stykkið og prjónið annað stykki á sama hátt – passið uppá að endað sé í sömu umferð á mynstri.
Setjið bæði stykkin á sama hringprjón = 102-114 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan í hring, prjónið A.14 yfir allar lykkjur (= 34-38 mynstureiningar með 3 lykkjum) – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 23-27 cm – stillið af eftir umferð prjónaðri í sléttprjóni. Prjónið síðan A.16 yfir allar lykkjur (= 34-38 mynstureiningar með 3 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur í 3 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem þessi lykkja hefur verið felld af, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Luigina wrote:

Buongiorno, nel frattempo ho risolto il problema.. mi sono accorta che leggevo il diagramma sbagliato! 🙈 Vi ringrazio per la vostra serietà e disponibilità Buona giornata

07.01.2024 - 14:15

country flag Luigina wrote:

Devo fare il bordo del cappello, ma non mi trovo con il diagramma A12,forse è sbagliato il disegno?

05.01.2024 - 20:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Luigina, al momento non sono segnalati errori nei diagrammi: può indicarci in modo specifico il suo problema? Buon lavoro!

07.01.2024 - 12:59

country flag Anna Zofia Sartanowicz wrote:

Dzień dobry, Czy jest możliwość otrzymania wzoru czapki i komina DROPS-192-5 na mojego emaila? Z góry dziękuję i pozdrawiam Anna Sartanowicz

11.12.2022 - 11:45

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, klikając na ikonę drukarki we wzorze (pod materiałami) otrzymasz możliwość zapisania wzoru jako pdf na swoim komputerze. Pozdrawiamy!

12.12.2022 - 08:38

country flag Karina Larsson wrote:

När jag har stickat mönster A5, A7 och A8 är det då meningen att man ska börja från början eller på varv 2? Annars blir ju varvantalen mellan fläta och hålvarv olika!

13.12.2021 - 17:40

DROPS Design answered:

Hei Karina. Når du har strikket ferdig varv 1 på diagrammene, starter du på varv 2, deretter varv 3 osv. mvh DROPS Design

14.12.2021 - 11:44

country flag Marysia wrote:

Hi I am in the process of knitting this and there is an error in the textured pattern at the back of the hat. There is a knit row missing. I will make this again as it's easy but looks complicated. Next time I will reverse the purl and knit stitches at the back because I prefer the effect on the wrong side!

23.11.2021 - 11:41

country flag Rosi wrote:

Hallo Drops Team. Mit Hilfe von Ihnen ist die Mütze fertig. Nun der Kragenschal. Habe 43 M. angeschlagen und habe jetzt mit Zunahme 51 Maschen. 1. Wie stricke ich beim Diagramm dir Rückreife oder nehme ich gleich vom Diagramm die nächste Reihe. 2. A13=6M., A14=39M und A15=6M. Wie können da 6 M. übrig bleiben. Danke schon mal.

04.03.2021 - 17:15

DROPS Design answered:

Liebe Rosi, Sie können ja entweder die Rückreihe rechts stricken oder dann die erste Rückreihe bei den Diagrammen schon stricken (bei den Rückreihen stricken Sie: A.15, dann A.14 wiederholen (lesen Sie links nach rechts) und mit A.13 enden. Bei den Hinreihen stricken Sie: A.13 = 6 M, 13 x die 3 M in A.14 (= 39 M) und die 6 M in A.15 = 6+39+6=51 M; Viel Spaß beim stricken!

05.03.2021 - 07:03

country flag Rosi wrote:

Danke für die Info. Aber ich verstehe dieses Wort "über" immer nicht, denn dann komme ich auf mehr Maschen. Muss ich A5, (13 M), A6 (26M), A7 (14 M) und dann die rstlichen 54 M stricken. Wie ist es mit dem Rapport. Dann habe ich ja wieder zuviel M. Danke, aber ich möchte nicht aufgeben.

09.02.2021 - 18:25

DROPS Design answered:

Liebe Rosi, es passt dann doch genau mit den Maschen. Sie haben anfangs 107 Maschen angeschlagen. Wenn Sie dann A.5 (=13 M), A.6 (= 26 M), A.7 (= 14 M) und 18x A.8 (= 18 x 3 M = 54 M), dann haben Sie 13 M + 26 M + 14 M + 54 M = 107 M. Ganz am Anfang hatten Sie A.1 (= 13 M), A.2 (= 26 M), A.3 (= 14 M) und 18x A.4 (= 18x 3 M = 54 M) gestrickt (also auch 107 Maschen) - die neuen Muster (A.5 bis A.8) passen also genau über die zuerst gestrickten Muster. Das bedeutet hier "über". Gutes Gelingen!

09.02.2021 - 23:18

country flag Rosi wrote:

Hallo Drops Team. Bin gekommen bis zu Rundnadel Nr. 5 wechseln. Bei der Mütze. Scha, dass ich nicht weierkomme. Können Sie helfen. Danke.

08.02.2021 - 18:08

DROPS Design answered:

Liebe Rosi, lesen Sie die Antwort unten, und sagen Sie uns Bescheid, ob es Ihnen weiterhelfen könnte, oder dann was Sie nicht richtig verstehen, damit wir Ihnen weiterhelfen können. Viel Spaß beim stricken!

09.02.2021 - 08:30

country flag Rosi wrote:

Hallo Drops Team. Möchte mit Nepalwolle die Mütze 192-5 stricken. Komme leider nicht weiter. Bin bis zu Rundnadel Nr. 5 wechseln. Danke schon mal. Bis dann.

08.02.2021 - 17:53

DROPS Design answered:

Liebe Rosi, jetzt stricken Sie neue Diagramme: A.5 über die 13 M von A.1, dann stricken Sie die nächste 26 Maschen wie im A.6 (= über die Maschen von A.1, beachten Sie, daß Sie A.6 mit der richtigen Reihe für Ihre Größe beginnen, danns stricken Sie die nächsten 14 Maschen wie im A.7 (= über die Maschen von A.3) und beenden Sie die Runde mit die letzten 54-60 Maschen wie beim A.8 (über die Maschen von A.4). Kann es Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

09.02.2021 - 08:29

country flag Smilee wrote:

Wow, very nice pattern. I was really interested in the pattern but I found your pattern sooooooooooo confusing to understand in the end I no longer wanted to follow through. Sometimes patterns are tough to explain clearly

05.11.2020 - 19:12