Cherelyn |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðum toppi með gatamynstri, picotkanti og A-formi. Stærð S – XXXL. Prjónuðu eyrnabandi með gatamynstri og picotkanti. Settið er prjónað úr DROPS Belle.
DROPS 191-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Toppur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við A.2/A.3 í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan A.3 þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan A.3: Prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Fækkið lykkjum á eftir A.2: Byrjið á eftir A.2, prjónið 1 lykkju slétt, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 194-214-230-250-274-302 lykkjur á hringprjón 4 með Belle. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið), * prjónið 36-41-45-48-54-61 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), 36-41-45-48-54-61 lykkjur sléttprjón *, setjið 1 prjónamerki (= í hlið) og prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 170-190-206-226-250-278 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm prjónið garðaprjón yfir 20-22-26-28-30-32 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s.10-11-13-14-15-16 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin), aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni og A.1 eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-4-6-7-8-9 lykkjur í byrjun á umferð fyrir handveg, prjónið næstu 79-87-91-99-109-121 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 6-8-12-14-16-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 79-87-91-99-109-121 lykkjur eins og áður og fellið af síðustu 3-4-6-7-8-9 lykkjur fyrir handveg. Klippið frá. Bakstykki og framstykki eru nú prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 79-87-91-99-109-121 lykkjur. Prjónið síðan þannig, þ.e.a.s. fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu: Prjónið A.3 (= 7 lykkjur – ATH: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og lesið mynsturteikningu frá vinstri til hægri), prjónið 20-24-26-28-33-39 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), 20-24-26-28-33-39 lykkjur sléttprjón og endið með A.2 (= 7 lykkjur – ATH: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og lesið mynsturteikningu frá vinstri til hægri). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg innan við A.2 og A.3 – lesið ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í S, M, L og XL: Í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 2-5-6-9 sinnum í hvorri hlið og í XXL og XXXL: Í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 13-18 sinnum í hvorri hlið = 75-77-79-81-83-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm (úrtöku fyrir handveg er nú lokið), fellið af miðju 35-35-37-37-39-39 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 18-19-19-20-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 79-87-91-99-109-121 lykkjur. Prjónið síðan þannig, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið A.3 (= 7 lykkjur – ATH: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og lesið mynsturteikningu frá vinstri til hægri), prjónið 20-24-26-28-33-39 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), 20-24-26-28-33-39 lykkjur sléttprjón og endið með A.2 (= 7 lykkjur – ATH: Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu og lesið mynsturteikningu frá vinstri til hægri). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg innan við A.2 og A.3 – lesið ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið svona í S, M, L og XL: Í 4. hverri umferð alls 2-5-6-9 sinnum á hvorri hlið og í XXL og XXXL: Í annarri hverri umferð alls 13-18 sinnum í hvorri hlið = 75-77-79-81-83-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-56-58 cm setjið miðju 25-25-23-23-23-23 lykkjur á þráð fyrir hálmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-3-4-4 sinnum = 18-19-19-20-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 96 til 114 lykkjur í kringum hálmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn, fellið síðan af með sléttum lykkjum. ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka að óskaðri lengd og er saumað saman við miðju að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 21 lykkjur á prjón 3 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2 (= 7 lykkjur), A.4 (= 7 lykkjur) og A.3 (= 7 lykkjur). Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 48 cm (eða að óskaðri lengd – dragið frá ca 6-8 cm miðað við ummál höfuðs), prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saum við miðju að aftan innan við affellingarkant. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Genevieve wrote:
Hi. I am starting to knit the back piece. However, my starting row on the WS is the 5th row of A1. Can advise, for the Slip 1 knitwise, knit 1, passed slip stitch over worked stitch, do i slip 1 purl wise, purl 1, passed slip stitch over on the WS?
10.12.2019 - 15:20DROPS Design answered:
Dear Genevieve, when dividing piece make sure the lace rows will always be the RS rows, if the first row you have to work on back piece is a row with pattern (dec and yarn overs), work this row from RS and not from WS. Happy knitting!
10.12.2019 - 16:05Genevieve Foo wrote:
Hi. Can i check for the blouse, after cast on, join in the round to knit garter stitch?
23.10.2019 - 05:28DROPS Design answered:
Hi Genevieve, exactly. At the beginning you have to do 2 ridges in GARTER STITCH (1 ridge = 2 rounds. Knit 1 round and purl 1 round). Happy knitting!
23.10.2019 - 08:16Catrine Norr wrote:
Varför finns det ingen svensk förklaring till diagrammet till detta mönster.
04.02.2019 - 22:15Irena wrote:
Cudowny! Elegancja i klasyka w jednym!
28.12.2017 - 15:30Monica wrote:
Un taglio che mette in evidenza le spalle. Il mio preferito!!
23.12.2017 - 07:58Linda VORSTER wrote:
So lovely. Tbd
18.12.2017 - 17:45MARTY Guénaël wrote:
J'adore !!! hâte de le faire impérativement !!!!!!
18.12.2017 - 17:33DIVIN Corinne wrote:
Magnifique ! le classique chic
18.12.2017 - 17:30