DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 190-25
DROPS Design: Mynstur e-276
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-400 g litur 13, kórall

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 stuðlar og 16 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum.
Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar):
Heklið þar til 1 stuðull er eftir á undan A.2, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið A.2 og 2 stuðla í næsta stuðul (= 2 stuðlar fleiri). Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 stuðlar fleiri í umferð).

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju að aftan):
Aukið út um 2 stuðla þannig:
Hekli þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, 1 stuðul í hvern og einn af 2 næstu stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla) og 2 stuðlar í næsta stuðul (= 2 stuðlar fleiri).
Aukið út um 4 stuðla þannig:
Heklið þar til 4 stuðlar eru efir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla) og 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul (= 4 stuðlar fleiri).

ÚTAUKNING-3:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður.

BUXUR:
Heklið 244-274-299-329-369-404 loftlykkjur með DROPS Safran með heklunál 2,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan).
Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju (= 1 fastalykkja) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 48-54-59-65-73-80 sinnum = 196-220-240-264-296-324 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist 2 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið nú í hring eftir mynsturteikningu A.1 þannig: Heklið A.1a (synir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.1b), heklið A.1b alls 49-55-60-66-74-81 sinnum á breidd. Haldið áfram þar til A.1a/b er lokið á hæðina.

Heklið síðan buxurnar hærri að aftan en að framan, það er gert þannig: Heklið 10-11-12-13-14-15 fastalykkjur fram hjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 19-21-23-25-27-29 fastalykkjum, snúið og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 29-31-35-38-41-44 lykkjum (einnig er heklað í keðjulykkjurnar). Haldið svona áfram með að hekla yfir 10-11-12-13-14-15 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til heklað hefur verið yfir alls 140-154-192-208-224-240 lykkjur. Snúið aftur við og heklið fram að prjónamerki við miðju að framan.

Heklið nú í hring þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 47-53-58-64-72-79 lykkjum (= hálft bakstykki), A.2 yfir næstu 5 fastalykkjur (= hlið), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 92-104-114-126-142-156 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir næstu 5 fastalykkjur (= hlið), heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 47-53-58-64-72-79 lykkjum (= hálft bakstykki).
Haldið svona áfram með mynstur (endurtakið síðan síðustu umferð í A.2) – JAFNFRAMT er auki út í hliðum og fyrir miðju að aftan þannig:
HLIÐAR:
Aukið út hvoru megin við A.1, í hvorri hlið þannig – lesið ÚTAUKNING-1! Aukið út svona í 3.-4.-4.-4.-4. hverri umferð alls 9-8-8-9-9-10 sinnum (= 36-32-32-36-36-40 stuðlar fleiri).
MIÐJA AÐ AFTAN:
Þegar stykkið mælist 15-16-17-19-20-22 cm (mælt við miðju að framan) aukið út við miðju að aftan – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2 stuðlum við miðju að aftan í hverri umferð alls 4-8-10-10-10-10 sinnum, síðan er aukið út um 4 stuðla í hverri umferð alls 5-3-3-3-3-3 sinnum (= 28-28-28-32-32-32 stuðlar fleiri).
Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 260-280-300-332-364-396 stuðlar í umferð. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm fyrir miðju að framan og 26-28-31-33-35-37 cm við miðju að aftan.

Nú skiptist stykkið upp í skálmar þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 5-5-6-6-6-7 stuðlum í umferð, snúið og heklið til baka yfir 10-10-12-12-12-14 fyrstu stuðla (þ.e.a.s. 5-5-6-6-6-7 stuðlar hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan). Þessir 10-10-12-12-12-14 stuðlar = op. Heklið stuðla fram og til baka yfir þessa stuðla í 10-11-12-13-14-15 cm, klippið frá. Saumið opið saman kant í kant við 10-10-12-12-12-14 lykkjur við miðju að framan. Heklið síðan aðra skálm.

SKÁLM:
Heklið 1 stuðul í hvern af 115-125-133-149-165-179 stuðlum í kringum aðra skálmina, að auki er heklað A.3 (= 7 stuðlar) yfir A.2 og það eru heklaðir 26-28-32-34-36-38 stuðlar meðfram opi = 148-160-172-190-208-224 stuðlar. Síðan eru heklaðar 2-2-3-3-4-4 umferðir með stuðlum – í síðustu umferð er aukið út um 8-8-8-2-8-4 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-3 = 156-168-180-192-216-228 stuðla.
Heklið nú í hringinn eftir mynstuteikningu A.4 þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.4b/c) og A.4b alls 77-83-89-95-107-113 sinnum, A.1d. Haldið áfram þar til A.4a/b/c er lokið á hæðina = 156-168-180-192-216-228 stuðlar.
Heklið nú í hring eftir mynsturteikningu A.5 þannig: Heklið A.5a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.5b/c/d) A.5b, A.5c alls 12-13-14-15-17-18 sinnum og A.5d. Haldið áfram þar til A.5a/b/c/d er lokið á hæðina. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina skálmina á sama hátt.

SNÚRA:
Heklið 120-140-150-160-170-180 cm með LAUSUM loftlykkjum, snúið og heklið til baka 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju. Þræðið snúruna inn i miðju gataumferð efst á buxum – byrjið við miðju að framan.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 7 loftlykkjur
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 2 stuðla í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.
symbols = 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 2 stuðla um loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni.
symbols = 4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af 4 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á öllum þessum stuðlum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjur á heklunálinni.
symbols = 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju
symbols = sýnir fyrri umferð, umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjið á næstu umferð!
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Jette wrote:

Ville det mon være muligt at få et foto af øverste kant af shortsene ?

03.07.2022 - 18:42

DROPS Design answered:

Hei Jette. Takk for din tilbakemelding, vi skal se igjennom vårt bildearkiv og se om vi har et bilde som viser hullraden / A.1b. mvh DROPS Design

04.07.2022 - 14:42

country flag Agnieszka wrote:

Hello, I bet there is a single crochet missing on the A5 schema. A single crochet should be worked between 3 and 2 chain loops on row 5 of the diagram, correct? Otherwise it makes a 7 chain stiches loop, which doesn't make sense... I saw the question asked before, but didn't find a clear reply.

21.06.2022 - 11:52

country flag Karin Neumann wrote:

Liebe Frau Neumann, also ja stimmt schon, vor A.1 haben Sie feste Maschen gehäkelt, aber A.1 wird genauso gehäkelt, dh mit 4 Reihen Stäbchen + 1 Reihe feste Maschen (die Reihe mit dem Sternchen zeigt nur die Maschen der vorrigen Runde). Viel Spaß beim häkeln! 20.06.2022 kl. 10:31 Antwort: Die Reihe mit dem Sternchen zeigt eben nicht die Maschen der vorigen Runde, denn die vorige Runde sind feste Maschen und nicht Stäbchen

20.06.2022 - 17:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Neumann, ja ich meinte die Maschen von der vorrigen Runde, unser Design Team wurde unterrichtet. So bis eine Korrektur erfolgt lesen Sie jedes Stäbchen bei der Reihe mit den Sternchen als 1 Masche der vorrigen Reihe, dh also 1 feste Masche bei A.1. Viel Spaß beim häkeln!

21.06.2022 - 08:32

country flag Karin Neumann wrote:

Hallo, Diagramm A. 1a u. 1b erste Reihe:“ *=zeigt die vorherige Runde, die Runde wurde bereits gehäkelt. Mit der nächsten Runde beginnen!“ Laut Anleitung sind aber die letzte Runde feste Maschen und nicht Stäbchen ?!?! Soll nach den 2cm fester Maschen vor Beginn von A.1a und A.1b noch eine Runde mit Stäbchen gehäkelt werden? Dann ergäbe das Diagramm A1 Sinn.

20.06.2022 - 10:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Neumann, also ja stimmt schon, vor A.1 haben Sie feste Maschen gehäkelt, aber A.1 wird genauso gehäkelt, dh mit 4 Reihen Stäbchen + 1 Reihe feste Maschen (die Reihe mit dem Sternchen zeigt nur die Maschen der vorrigen Runde). Viel Spaß beim häkeln!

20.06.2022 - 10:31

country flag Sim wrote:

Hi, are there any row by row instructions on how to crochet this pair of shorts. Diagrams too confusing. Thank you

12.04.2022 - 23:20

DROPS Design answered:

Dear Sim, this pattern is only available as published. You may check our lesson on how to read crochet diagrams; this way they may seem less confusing to work https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19 . Happy crochetting

14.04.2022 - 18:41

country flag Noemie wrote:

Bonjour je ne comprends pas les dimensions du short. Vous dites que 26 brides correspondent à 10 cm de large. Si pour la taille S le tour de taille est de 76cm (38cm×2) pourquoi faut il commencer l'ouvrage par 244 mailles en l'air ? En calculant (244÷26)×10=93 donc un tour de taille de 93cm au total. Est ce que c'est normal ?

06.12.2021 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Noemie, comme la chaînette de base est souvent trop serrée et finit par resserrer l'ouvrage, on crochète ici plus de mailles en l'air (= 244 ) que l'on a besoin de brides (= 196 au 1er rang) et on va sauter des mailles en l'air au 1er rang pour donner la souplesse nécessaire, autrement dit, vous devez avoir à la fin du 1er rang: 196 ms soit environ 75 cm. Bon crochet!

07.12.2021 - 07:16

country flag Irene Ritter wrote:

Hallo, laut Chart 1b soll ich in der letzten Runde in jeden Luftmaschenbogen je 1 fM häkeln. So nehme ich ja 81 M ab. Muss ich nicht in jeden Bogen 2 fM häkeln?

07.10.2021 - 18:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ritter, bei A.1b häkeln Sie nur 1 fM um jedem Luftmaschenbogen, so haben Sie immer noch 4 Maschen in jedem A.1b (Maschenanzahl bleibt die gleiche). Viel Spaß beim häkeln!

08.10.2021 - 07:40

country flag Eli wrote:

Ich überlege mir, diese Hose LANG zu häkeln, kann allerdings nicht abschätzen, wieviel Wolle ich dazu brauchen würde. Leider finde ich keine Anleitung bei euch für lange Hosen, um meinen Bedarf an Wolle abschätzen zu können. Was wäre eure Empfehlung?

04.08.2021 - 18:07

DROPS Design answered:

Liebe Eli, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim häkeln!

05.08.2021 - 09:02

country flag Ute wrote:

Hallo Drops! In meiner Anleitung steht nicht, wann A.3 gehäkelt werden muss? Auch steht darin, dass an den Seiten A.1 zugenommen werden muss. Ich nehme an, das muss A.2 heißen?

31.07.2021 - 09:40

DROPS Design answered:

Liebe Ute, A.3 wird erst bei den Beinen gehäkelt - es wird and beiden Seiten zugenommen, wie unter ZUNAHMETIPP-2 erklärt, dh in A.1 vor A.2 und in A.1 nach A.2. Viel Spaß beim häkeln!

02.08.2021 - 07:14

country flag Allene wrote:

Perhaps it is row 4, then, of figure A5? The way I initially read it (US terms), was ch4, 2dc in loop, ch3, ch2, ch3, 5dc in loop - just the same as Anjana asked about back in February. If that ch2 is actually a sc in the previous sc, however, it looks much more like the model - but it doesn't seem to match the diagram based on the key.

02.07.2021 - 14:49