Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= takið 2 lykkjur saman óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir | |
= í þessari umferð er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir | |
= í þessari umferð er fækkað um 12 lykkjur jafnt yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Serafina |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð 0-4 ára. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 31-17 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (fyrst A.2a, svo A.2b og A.2c) Veldu mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 168 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 28. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 27. og 28. hver lykkja saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur með garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 168-180-204-228 (252-276) lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 84-90-102-114 (126-138) lykkjur, prjónamerkin merkja hliðar á stykki. Prjónið A.1 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 14-15-17-19 (21-23) sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 8 cm. Prjónið síðan A.2 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 14-15-17-19 (21-23) sinnum á breidd). Í umferð merktri með ör er lykkjum fækkað jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1. Í hvert skipti sem fækkað hefur um 12 lykkjur er prjónuð 1 mynstureiningu færri af A.2 á breiddina. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 108-120-132-156 (156-180) lykkjur í umferð (= 54-60-66-78 (78-90) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! PRJÓNIÐ MYNSTUR JAFNFRAMT ÞVÍ SEM FELLT ER AF FYRIR HANDVEG ÞANNIG: MYNSTUR: Haldið áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er stykkið prjónað áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 27-27-33-33 (39-39) cm. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 24-26-31-36 (41-44) cm, prjónið þannig: Prjónið 9 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur/garðaprjón eins og áður, en fækkið um 4-4-4-8 (2-6) lykkjur jafnt yfir þar til eftir eru 9 lykkjur á undan næsta prjónamerki, prjónið 18 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur/garðaprjón eins og áður, en fækkið um 4-4-4-8 (2-6) lykkjur jafnt yfir þar til eftir eru 9 lykkjur í umferð, endið með 9 lykkjur garðaprjón = 100-112-124-140 (152-168) lykkjur alls (= 50-56-62-70 (76-84) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Prjónið svona áfram þar til stykkið mælist 25-27-32-37 (42-45) cm. Fækkið lykkjum fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur þar til eftir eru 9 lykkjur á undan næsta prjónamerki, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, fellið af næstu 12 lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur garðaprjón og fellið af síðustu 6 lykkjur. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: Stykkið er nú prjónað fram og til baka. = 38-44-50-58 (64-72) lykkjur. Haldið áfram með mynstur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir handveg innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – lesið ÚRTAKA-2! Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-4-5-4 (4-5) sinnum = 32-36-40-50 (56-62) lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-34-40-46 (52-56) cm fellið af miðju 16-18-22-24 (26-26) lykkjur fyrir hálsmáli = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð hvor fyrir sig. VINSTRI ÖXL: Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón út að handveg eins og áður þar til stykkið mælist alls 34-36-42-48 (54-58) cm. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Sauma á þessa öxl síðar saman við vinstri öxl á framstykki. HÆGRI ÖXL: Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur garðaprjón út að handveg eins og áður þar til stykkið mælist alls 34-36-42-48 (54-58) cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Í þessa öxl á að sauma síðar tölurnar í. FRAMSTYKKI: Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 30-32-37-42 (48-51) cm. Nú eru felldar af miðju 10-12-16-16 (18-18) lykkjurnar fyrir hálsmáli = 11-12-12-17 (19-22) lykkjur á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Fellið af 1 lykkju í hverri umferð frá hálsi alls 3-3-3-4 (4-4) sinnum = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-34-40-46 (52-56) cm prjónið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur í garðaprjóni út að handveg. Þegar stykkið mælist 34-36-42-48 (54-58) cm fellið af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig: Prjónið 1-1-1-2 (3-3) lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 hnappagat), prjónið 2-2-2-4 (5-8) lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 hnappagat), endið með 1-2-2-3 (3-3) lykkjum með garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð (= frá röngu). VINSTRI ÖXL: Fellið af 1 lykkju í hverri umferð frá hálsi alls 3-3-3-4 (4-4) sinnum = 8-9-9-13 (15-18) lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjum í garðaprjóni út að handveg eins og áður þar til stykkið mælist alls 34-36-42-48 (54-58) cm. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Sauma á þessa öxl síðar saman við vinstri öxl á bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið tölur í hægri öxl á bakstykki. Saumið saman vinstri öxl með lykkjuspori. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið við hægri öxl á bakstykki og prjónið upp 46-70 lykkjur í kringum háls, frá réttu. Prjónið 3 umferðir slétt, fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6925 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (101)
Nancy wrote:
Ich stricke “Serafina” in Grösse 92. In dem Diagramm A.2a 92-98/104 ist eine Reihe nach links versetzt. Wie wird das gestrickt damit die Rapports bleiben?
19.02.2024 - 15:05DROPS Design answered:
Liebe Nancy, am Anfang dieser Reihe heben Sie die 1. Masche ab (die wird erst am Ende der Runde gestrickt, dann stricken Sie das Diagram weiter: die 2 letzten Maschen von jedem Rapport werden zusammen mit der 1. Maschen von dem nächsten Rapport gestrickt, der letzte Umschlag in jedem Rapport wird dann die 1. Masche nächsten Rapport. Viel Spaß beim stricken!
19.02.2024 - 15:27Jola wrote:
Witam, mam problem z sukienką Serafina - Drops Baby 31-17, druty 3, włóczka yarn art jeans kolor 65, ponieważ robię rozmiar 56/62cm i po przerobieniu całego schematu A1 na szerokość wychodzi mi 42cm a nie jak w opisie 38. Wcześniej robiłam na rozmiar 80/86, ale była jeszcze większa. Ile oczek powinnam mieć na początku, aby była dla dziewczynki wiek 12miesięcy?
22.03.2023 - 19:29DROPS Design answered:
Witaj Jolu, koniecznie zobacz kurs TUTAJ. Najważniejsza jest próbka-aby finalne rozmiary były takie jak na schemacie, Twoja próbka musi być zgodna z próbką we wzorze. Czasami trzeba będzie wziąć mniejsze/większe druty, aby to osiągnąć. Pamiętaj, że model jest zaprojektowany na konkretną włóczkę DROPS. Jeżeli używasz innej włóczki (inna grubość, faktura, splot...) próbka może się nie zgadzać. Pozdrawiamy!
23.03.2023 - 08:24Sonja Lindholm wrote:
Milloin tehdään kaavion A.2a ja milloin A.2b mukaan? Ohjeessa lukee vain neulo kaavion a2 mukaan.
01.03.2023 - 21:49DROPS Design answered:
Aluksi neulotaan piirroksen A.2a mukaan, sitten piirroksen A.2b mukaan ja lopuksi piirroksen A.2c mukaan.
06.03.2023 - 16:45Gabi Nickel wrote:
Hallo liebes Team, ich stricke das Kleid in Gr. 56/62. Ich habe 180 Maschen aufgenommen und bin beim Ende von A2. Nach den Abnahmen sollte ich 120 Maschen haben. Ich habe aber 156 Maschen. Ich habe bei A2 insgesamt 24 Maschen abgenommen. Wo liegt bei mir der Fehler vor? Vielen Dank für die wirklich tollen Anleitungen. Ich habe schon viel nachgestrickt. Viele Grüße aus Bayern Gabi Nickel
21.01.2023 - 16:44DROPS Design answered:
Liebe Frau Nickel, wenn A.2a gestrickt war, dann haben Sie 156 Maschen auf der Nadel, dann stricken Sie A.2b und gleichzeitig nehmen Sie 12 Maschen 3 Mal ab = 120 Maschen sind noch übrig. Viel Spaß beim stricken!
23.01.2023 - 09:09Dorothy Chu wrote:
In the pattern under Decrease Tip 1 - work 1 repetition less of A.2 in width. What does this mean? Thank you for the beautiful pattern.
16.10.2022 - 07:46DROPS Design answered:
Dear Dorothy, in width usually means on the round. So, after decreasing, you will need to work 1 less repeat of A.2 on the round (if you work A.2 14 times on the round before decreasing, you will only have enough stitches to repeat A.2 13 times in the round after decreasing 12 stitches). Happy knitting!
16.10.2022 - 23:58Dorothy Chu wrote:
My question is, in Decrease Tip 1 - work 1 repetition less of A.2 in width. What does this mean? Thank you for the beautiful pattern.
16.10.2022 - 07:44DROPS Design answered:
Dear Dorothy, please see the answer above. Happy knitting!
16.10.2022 - 23:59Emily Kim wrote:
Hello, I am a bit confused at the ARMHOLE part where I have decreased one round but then the next part says to ‘Continue like this until piece measures 25-27-32-37 (42-45) cm. ‘ So how many stitches should I be left with on each side of the markers?
29.09.2022 - 23:25DROPS Design answered:
Dear Kim, you have to continue pattern as before with 18 stitches in garter stitch on each side of piece (= 9 sts in garter stitch on each side of each marker) for armhole until piece measures 25-27-32-37 (42-45) cm, then you will cast off the middle 12 sts of these 18 sts and continue each piece spearately with 3 sts in garter stitch on each side. Happy knitting!
30.09.2022 - 08:14Laura Hammel wrote:
Liebes Drops Team, ich habe eine Frage zum Diagramm A.2: Werden die Diagramme A.2a, A.2b und ggf. A.2c nacheinander in die Höhe gestrickt oder werden in einer Reihe nacheinander A.2a, A.2b und ggf. A.2c nacheinander gestrickt?
14.09.2022 - 13:18DROPS Design answered:
Liebe Frau Hammel, zuerst stricken Sie A.1a, dann stricken Sie A.1b und endlich A.1c also jeweils nach einander in der Höhe und nicht nacheinander in der Breite/Runde (wir habe das Diagram in 3 Teilen geschnitten damit jedes einfacher zu lesen wird). Viel Spaß beim stricken!
14.09.2022 - 16:31Liisa Rossi wrote:
Kädenteiden ohjeessa on epätarkkuus. Ensin neuvotaan neulomaan kerros, jossa kerroksen alussa ja keskellä neulotaan 18 s aina oikeaa ja väleissä kavennetaan molemmin puolin neljä. Sitten sanotaan "jatka tähän tapaan", mikä antaa ymmärtää, että kavennukset toistuvat. Seuraavan osion silmukkamäärästä kuitenkin näkee, että kavennukset kuuluu tehdä vain kerran. Kannattaisi tarkentaa ohjeeseen, ettei muutkin joudu purkamaan.
23.08.2022 - 10:44Liz wrote:
Hi, good morning, I've slept on it and looked with fresh eyes and it's all clear now. Sorry to have bothered you. Beautiful pattern by the way and an absolute joy to knit, I'm using flora
22.07.2022 - 08:07