DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lydia

Prjónuð peysa með gatamynstri og öldumynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat.

DROPS 188-24
DROPS Design: Mynstur r-716
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-750-850-900-1000 g litur 05, púðurbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir kant með garðaprjóni - eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 45 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (ljós bleikur) NR 618: 8 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við um berustykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.5 og A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 4 lykkjur á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan á hægra framstykki mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af 7 næstu með ca 7-7-7-7-7½-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Hvor öxl er prjónuð fyrst hvor fyrir sig, áður en stykkið er sett saman. Ermar eru prjónaðar fyrst fram og til baka á hringprjón síðan í hring á sokkaprjón, ofan frá og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið fyrst 2 axlir, fitjið upp lykkjur fyrir hálsmál, axlirnar eru settar saman og síðan er prjónað fram og til baka niður að handvegi.

VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að handveg).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 (= 10 lykkjur) yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd), endið með 5-0-9-4-3-8 lykkjur sléttprjón (= að hálsi). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 2 cm er stykkið lagt til hliðar og hægri öxl er prjónuð (stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu).

HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= að handveg), prjónið brugðnar lykkjur út umferðina.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (= frá hálsmáli): Prjónið 6-1-10-5-4-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 2 cm, stillið af mál með vinstri öxl, nú eiga að hafa verið prjónaðar jafn margar umferðir og á vinstri öxl (þ.e.a.s. síðasta umferð er prjónuð frá réttu), fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli á milli hægri öxl og vinstri öxl frá röngu þannig: Prjónið yfir hægri öxl þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru, fitjið upp 39-39-41-41-43-43 nýjar lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir vinstri öxl þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

BERUSTYKKI AÐ AFTAN:
= 73-83-83-93-93-103 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 70-80-80-90-90-100 lykkjur (= 7-8-8-9-9-10 sinnum á breidd), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 14-15-15-16-13-14 cm.
Aukið nú um 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING – fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umferð frá réttu (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 81-91-95-105-115-125 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Fitjið upp 5-4-6-6-8-9 lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu og 6-5-7-7-9-10 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 92-100-108-118-132-144 lykkjur.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu (= frá handveg) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 5-0-9-4-3-8 lykkjur sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig:
Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum og 15-15-16-16-17-17 lykkjur 1 sinni = 42-47-47-52-52-57 lykkjur.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu lykkju, A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur, A.3 (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 15-16-16-17-14-15 cm (stillið af mál með bakstykki og að næsta umferð sé frá réttu, nú eru eftir 8-8-12-12-22-22 umferðir þar til stykkið er sett saman) aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á hverri umferð frá réttu. Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 46-51-53-58-63-68 lykkjur. Fitjið síðan upp 5-4-6-6-8-9 lykkjur í lok næstu umferðar frá röngu = 51-55-59-64-71-77 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 17-22-21-26-25-30 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja) á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= að handveg), prjónið brugðnar lykkjur út umferðina.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (= frá hálsi): Prjónið 6-1-10-5-4-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 yfir næstu 10-20-10-20-20-20 lykkjur (= 1-2-1-2-2-2 sinnum á breidd) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig:
Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 3 sinnum og 15-15-16-16-17-17 lykkjur 1 sinni = 42-47-47-52-52-57 lykkjur.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 0-1-1-0-0-1 lykkja, A.4 (= 6 lykkjur) yfir næstu 6-0-0-6-6-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur (= 3-4-4-4-4-5 sinnum á breidd), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 14-15-15-16-13-14 cm (stillið af mál með bakstykki og að næsta umferð sé frá réttu, nú eru eftir 10-10-14-14-24-24 umferðir þar til stykkið er sett saman) aukið út um 1 lykkju fyrir handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok hverrar umferðar frá réttu. Aukið svona út alls 4-4-6-6-11-11 sinnum = 46-51-53-58-63-68 lykkjur. Fitjið síðan upp 6-5-7-7-9-10 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 52-56-60-65-72-78 lykkjur.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú öll stykkin saman frá réttu þannig:
Prjónið fyrst yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 0-1-1-0-0-1 lykkja, A.4 yfir næstu 6-0-0-6-6-0 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur, 11-10-14-14-21-22 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki.
Prjónið síðan yfir bakstykki þannig: Prjónið 10-9-13-13-20-21 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 70-80-80-90-90-100 lykkjur eins og áður (= 7-8-8-9-9-10 sinnum á breidd), 11-10-14-14-21-22 lykkjur sléttprjón.
Prjónið síðan yfir hægra framstykki þannig: Setjið 1 prjónamerki, prjónið 10-9-13-13-20-21 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu lykkju, prjónið A.2 yfir næstu 30-40-40-40-40-50 lykkjur, A.3 yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Nú eru 195-211-227-247-275-299 lykkjur í umferð og alls 21-19-27-27-41-43 lykkjur sléttprjón á milli framstykkja og bakstykkis.
Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-3-3-2-9 cm millibili alls 6-5-4-4-6-2 sinnum = 171-191-211-231-251-291 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið eru eftir 9-9-19-19-29-39 lykkjur sléttprjón á milli framstykkja og bakstykkis.
Þegar stykkið mælist 11-12-13-14-15-16 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé með heilli mynstureiningu af A.2, prjónið áfram frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a (= 1 lykkja) yfir næstu 0-1-1-0-0-1 lykkju, A.6a yfir næstu 6-0-0-6-6-0 lykkjur, prjónið A.7a yfir næstu 150-180-200-210-230-280 lykkjur (= 15-18-20-21-23-28 mynstureiningar á breidd), A.8a (= 5 lykkjur) yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Aukið út um lykkjur í A.6a til A.8a. Þegar A.5a til A.8a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 267-299-331-363-395-459 lykkjur í umferð. Prjónið A.5b yfir A.5a, A.6b yfir A.6a, A.7b yfir A.7a og A.8b yfir A.8a.
Þegar allar lykkjur í A.6b til A.8b hafa verið auknar út til 347-353-371-407-443-459 lykkjur í umferð. Þegar eftir eru 4 umferðir í A.5b til A.8b er skipt yfir á hringprjón 3,5. Í síðustu umferð í A.5b til A.8b er fellt af þannig: Fellið af 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, fellið af A.5b til A.8b eins og útskýrt er í mynsturteikningu, fellið af síðustu 5 kantlykkjur að framan, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Stykkið mælist alls ca 62-64-66-68-70-72 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður.
Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er ermin prjónuð í hring á stokkaprjóna til loka.
Fitjið upp 23-25-27-31-33-37 lykkjur á hringprjón 4 með Muskat.
Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1-1-2-5-4-3 sinnum, 2 lykkjur 7-8-6-1-1-0 sinnum, 1 lykkja 4-3-5-7-9-14 sinnum og 2-2-3-3-5-7 lykkjur 1 sinni = 69-73-79-85-89-97 lykkjur (stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-13 cm).
Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka er skipt yfir á sokkaprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-16 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 9-11-14-12-14-18 sinnum = 51-51-51-61-61-61 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-35-36-35-36-35 cm prjónið A.2 yfir allar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju (þ.e.a.s. A.2 er prjónað alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á breidd) = 50-50-50-60-60-60 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er skipt yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónaðar 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Stykkið mælist ca 44-42-43-42-43-42 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 100-124 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið síðan af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = fellið af 1 lykkju
symbols = fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af, þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Angelika Romanski wrote:

Hallo, soll die linke und rechte Schulter jeweils getrennt gestrickt werden ... soviel Rundstricknadeln in den vorgegebenen Größe habe ich nicht. In der Anleitung steht nicht, ob die Maschen dann stillgelegt werden sollen .... für die Passe auch wieder neu anschlagen oder wie? HG Angelika

20.08.2022 - 00:26

DROPS Design answered:

Liebe Angelika, ja die beiden Schulter beim Rückenteil werden separat gestrickt, dh die linke Schulter zuerst stricken und zur Seite legen, dann die rechte Schulter stricken. Danach stricken Sie die rechte Schulter, schlagen Sie neue Maschen für den Halsausschnitt und stricken Sie die linke Schulter. Sie können die Maschen auf einen Faden stilllegen (siehe Video), so brauchen Sie keine zusätzliche Rundnadel. Viel Spaß beim stricken!

22.08.2022 - 09:20

country flag Elfa wrote:

Góðan dag, er að velta fyrir mér hvort það passar eða hvort það er prentvilla að handvegsútaukning hefst eftir færri cm á stóru númerunum en þeim minni, eins og handvegurinn verði víðari á minni númerunum?

03.07.2021 - 11:21

DROPS Design answered:

Blessuð Elfa. Ermin er styttri í heildina í stærri stærðum. Þar sem breiddin á líkamanum / öxlinni er stærri í stærri stærðum þannig að þá verður ermin styttri í stærri stærðunum en í þeim minni.

18.08.2021 - 11:45

country flag Dorthe Sørby wrote:

Hej DROPS jeg er ved at strikke modellen 188-24. str. xxxl jeg er kommet til side 5 .hvor der står at arbejdet måler 16 cm. og kan simpelthen ikke forstå det næste. jeg har nu 291 m på pinden . jeg skal dernæst få 459 m. men forstår ikke hvordan jeg får taget ud (hvilket mønster jeg skal bruge, til at få de 459 m.) jeg forstår heller ikke hvilket mønster jeg skal bruge EFTER jeg har fået 459 m. på en str. xxxl venlig hilsen Dorthe

25.08.2020 - 13:32

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, jo når arbejdet måler 16 cm følger du og tager ud ifølge diagram A.7a (i din størrelse). På 7.pind tager du 2m ud (1 i hver side af diagrammet) for hver gang du strikker A.7a i bredden. God fornøjelse!

27.08.2020 - 15:42

country flag Cornelia wrote:

Na de eerste meerdering kom ik er niet uit hoe ik verder moet

20.09.2019 - 16:13

DROPS Design answered:

Dag Cornelia,

Bedoel je de meerderingen voor de armsgaten op de pas aan de achterkant? Je meerdert daar 4-4-6-6-11-11 in totaal aan beide kanten, aan de goede kant van het werk en deze steken brei je in tricotsteek.

23.09.2019 - 09:46

country flag Schuitemaker Cornelia wrote:

Hoe moet ik verder na de eerste meerdering

20.09.2019 - 16:12

country flag Helle Petersen wrote:

Er der en fejl i diagram forklaring. Kan ikke forstå at der er 2 der er ens

24.05.2019 - 12:40

DROPS Design answered:

Hei Helle. Ja, symbol nummer 2 (x) skal strikkes vrang fra rettsiden, rett fra vrangen. Vi skal få rettet dette i oppskriften. Takk for beskjed og god fornøyelse

24.05.2019 - 13:17

country flag Øygunn Leite Kallevik wrote:

Hei! Jeg prøver å få starte på denne, men klarer ikke å få det til å passe. På bakstykket: skal jeg fortsette på A2 fra der jeg har kommet før jeg la opp til hals?

08.02.2019 - 18:52

DROPS Design answered:

Hei Øygunn. Ja, du strikker som før over maskene på skulderen, fortsett med A.2 (på samme omgang som der du nå er) over maskene på bakstykket, og strikker som før over maskene på den andre skulderen. God fornøyelse

13.02.2019 - 11:44

country flag Jose wrote:

Wat wordt er bedoeld met "als het kledingstuk gedragen wordt"?

08.12.2018 - 12:19

DROPS Design answered:

Dag Jose,

Hiermee wordt bedoeld dat als je het kledingstuk draagt, dat dan de knoopsgaten in de rechter voorbies moeten zitten. Dit geldt eveneens voor de rechter- en linkerschouder, dus gezien zoals het kledingstruk gedragen wordt.

09.12.2018 - 16:38

country flag Mari Iris wrote:

Hei, dette er en veldig fin modell, men dessverre er oppskriften ovenfra og ned og veldig lang og tungvint. Dette måtte det da være mye greierer å ta nedenfra og opp!? Jeg skjønner ikke hvorfor dere nå har så mange oppskrifter ovenfra og ned; det blir tungt og krøkkete å strikke ermene på den måten. Men dette virket spesielt knotete!

19.02.2018 - 16:21

country flag Amy wrote:

Wow. You used my name suggestion. Thank you!

05.02.2018 - 23:05