DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1400
DROPS Design: Mynstur e-267
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál: Breidd: ca 17 cm. Hæð: ca 15 cm.

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 19, rauður

Eitt hjarta er ca 20 g.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 stuðlar verði 10 cm á breidd. A.1 mælist ca 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HJARTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er heklaður ferningur, með byrjun frá miðju á ferning. Síðan er heklaður hálfur ferningur fram og til baka meðfram annarri hlið á ferning. Síðan er heklaður hálfur hringur fram og til baka meðfram annarri hlið á ferning, þ.e.a.s. við hlið á fyrri hálfhring.

HJARTA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju (= miðja á ferning). Haldið síðan áfram hringinn eftir mynsturteikningu A.1 – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið (ekki klippa frá) heklið síðan hálfan hring fram og til baka eftir mynsturteikningu A.2 meðfram fyrstu hlið á A.1. Þegar A.2 er lokið klippið frá og festið enda.
Heklið síðan hálfan hring eftir mynsturteikningu A.2 alveg eins meðfram næstu hlið á A.1 – sjá stjörnu í mynsturteikningu (byrjið frá réttu). Þegar A.2 hefur verið heklað til loka er endað mitt á milli 2 hálfa hringja – klippið ekki frá!
Heklið síðan kant í kringum allt hjartað þannig:
Heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram öllum hálfa hringnum, heklið síðan meðfram hlið á ferning þannig: Heklið 1 fastalykkju um hornbogann, 2 loftlykkjur, * 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram báðum hliðum á ferningi, heklið síðan meðfram síðasta hálfhring þannig: Hekli 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* meðfram öllum hálfa hringnum, endið með 30 loftlykkjur (= lykkja) og festið með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.
Til þess að hjartað hangi fallega og verði aðeins stíft – er hægt að dýfa því í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og leggja það flatt til þerris.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga/loftlykkjuhring
symbols = stuðull í lykkju
symbols = 4 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 4 tvíbrugðna stuðla um næstu loftlykkju, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin í hvern af þessum tvíbrugðnum stuðlum, bregðið bandi um heklunálina og dragið það í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með að hekluð er keðjulykkja fram að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, síðan er hekluð 1 loftlykkja. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar

symbols = héðan er nú heklað fram og til baka
symbols = keðjulykkja um loftlykkjuboga/í stuðul
symbols = 4 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – sjá punkt í hring, umferðin byrjar og endar hér
symbols = hér byrjar síðasti hálfi hringurinn – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1400

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Susan Farrell wrote:

Is this available in English? Thank you!

11.02.2024 - 12:39

country flag Susan wrote:

In the picture of the red heart shown finished, on the left semi-circle there are seven 4 treble crochets together, and on the right side there are only six. Is this intentional?

04.02.2024 - 08:21

DROPS Design answered:

Dear Susan, it should be 7 (4 treble crochets together) in each semi-circle; there was a mistake in the photo. Please follow the instructions in the written pattern and only use the photo as a visual general guide. Happy crochetting!

04.02.2024 - 23:22

country flag Sofie wrote:

To spørgsmål 1. Kan det passe at den første Hjertebue a2, kommer til at vende vrang i forhold til a1? 2. A2 viser 7 dobbeltstgm, men jeres viste hjerte har 6 på den ene side og 7 på den anden? Mvh Sofie

10.06.2022 - 19:53

DROPS Design answered:

Hei Sofie. Når du hekler den første hjertebuen vil 1. og 3. rad hekles fra "retten", mens 2. og 4. rad hekles fra "vrangen". Det samme gjelder også når 2. hjertebue skal hekles. Se gjerne hjelpevideoen til dette hjertet. Det skal være 7 dobbeltstgm, som du ser på diagrammet, på begge hjertebuene. mvh DROPS Design

13.06.2022 - 09:27

country flag Arachna wrote:

Part 3: R3: 3ch, sl in dc, 3ch, turn, * st in 3ch sp, 5ch * 5x st, 3ch, sl in dc, R4: 3ch, sl in 4ch sp, turn, ch, dc,ch,dc,ch in 3ch sp, *dc,ch,dc,ch,dc* 6x in every ch (both 3 and 5 ch) sp, sl in 4ch sp Please feel free to correct if I made mistake. Hope it helps, best regards! Arachna

23.02.2022 - 21:21

country flag Arachna wrote:

Part 2: R4: 3ch, *ch, st in 4ch sp, 5ch, st in 4ch sp, ch, 5dc in 6 ch sp, 3ch, 5dc in the same 6 ch sp*4x end w sl to first 3ch R5: 3ch, * 3ch, dc in 5ch sp, 3ch, dc in 1ch sp, 5ch, dc in 3ch sp, 4ch, dc in the same 3ch sp, 5ch above 5 dcs, dc in 1ch sp *4x end w last dc as sl into the first 3ch A2 Back and forth R1: sl in ch sp, *ch, dc in st*6x ch, sl in 3ch sp, turn R2: 3ch, sl in 5ch sp, *4trtog, 3ch*5x, 4trtog, sl in 5ch sp

23.02.2022 - 21:20

country flag Arachna wrote:

Hello Dear Crocheters, I tried to write down the instructions first part: Start: 4 chain stitches, form them to a ring with 1 slip stitch in first chain stitch R1: 3ch, *ch, dc* 12x end w ch into 3ch R2: 3ch, *4trtog in ch sp, 3ch* end w sl in first 3ch R3:sl into ch sp, ch, *st in ch sp, 4ch, st in ch sp, 4ch, st in ch sp,6ch* 4x (12st, 8x4ch, 4x6ch) end w sl to first ch

23.02.2022 - 21:19

country flag Lennel Davenport wrote:

On the heart pattern I got through the A1 part but it was like totally confusing trying to go to A2. The video didn't help at all, you couldn't even tell where she was crocheting. All you could see was the needle & the stitch being made. I need to know where to go to start A2 & what the instructions mean. The written instructions were terrible.

24.05.2020 - 03:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Davenport, A.2 is worked the first time just after A.1 (see arrow for beg of row in A.2 and time code 13:47 in the video). You work A.2 after the last sl st on last row in A.1 and continue back and forth joining each row in the last row of A.1 - when first A.2 is worked, cut the yarn and work 2nd A.2 starting where there is a black star on last row in A.1. Hope this helps. Happy crocheting!

25.05.2020 - 09:31

country flag Oddrun Hovsengen wrote:

Har hekla denne, med små justeringer (picoter rundt + bakstykke=korg). Tenkte å legge inn bilder her, men får det ikkje til. Kan eg leggje inn på FB, men kva for gruppe?

10.03.2020 - 13:03

DROPS Design answered:

Hej Oddrun, Den vil vi glæde os til at se. Du kan lægge den ind på DROPS Workshop på Facebook. Og på Instagram #dropsfan - tusind tak :)

10.03.2020 - 13:17

country flag Marie wrote:

Bonjour, Est-ce possible d'utiliser ce modèle pour fabriquer des décorations de Noël vendues par une association ? Il s'agit d'une association à but non lucratif qui organise des cours d'éveil artistique pour les jeunes en milieu rural avec des professionnels qualifiés et des bénévoles, ainsi qu'une galerie d'exposition pour soutenir les artistes locaux et animer le village, avec une boutique éphémère pour les fêtes. Merci d'avance pour votre réponse !

15.11.2019 - 09:32

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vous trouverez toutes les conditions d'utilisation de nos modèles sous la mention copyright en bas de page de chacun de nos modèles. Bon crochet!

15.11.2019 - 11:31

country flag Rachel wrote:

Thanks for the clear and slow video. This got me started with the chart. Then I worked happily and I'm thrilled with the Heart. I made mine using scraps of Alize Batik cotton and a 3 mm hook.

31.07.2019 - 21:26