Night Shade |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Sett með: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Húfa með marglitu norrænu mynstri. Stærð S - XXXL Settið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 184-26 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ÚRTAKA/ÚTAUKNING (á við um peysu): Öll úrtaka/útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8. Í þessu dæmi eru prjónaðar ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. MYNSTUR: Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Húfa: Sjá mynsturteikningu A.4. Veljið rétta mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Byrjið frá röngu með litnum svartur og prjónið brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur fram hjá prjónamerki í byrjun umferðar. Snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka. Snúið og prjónið brugðnar lykkjur til baka að byrjun umferðar. ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi á peysu): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-1 (á við um stroff á peysu): Aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið, takið upp þráðinn í bilinu á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-2 (á við um húfu): Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-100-108-112-120 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 78-84-90-96-102-108 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Til þess að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð) = 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 234-252-270-304-323-342 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm mælt við miðju að aftan frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt með litnum svartur þar sem aukið er út um 2-8-6-0-9-14 lykkjur jafnt yfir = 236-260-276-304-332-356 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður með litnum svartur yfir fyrstu 35-38-40-44-49-53 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-54-58-64-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 70-76-80-88-98-106 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-54-58-64-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 35-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-192-216-236 lykkjur. Nú er A.2 prjónað umferðina hringinn (= 38-41-44-48-54-59 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-1 í mynsturteikningu er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 148-160-172-188-212-232 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað alveg eins. A.3 er endurtekið til loka. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-2 í mynsturteikningu er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 140-152-164-180-204-224 lykkjur. Síðan er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð með ör-3, ör-4, ör-5 og ör-6 (munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING) = 164-176-188-204-228-248 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð með litnum svartur þar sem aukið er út um 52-56-60-68-76-80 lykkjur jafnt yfir = 216-232-248-272-304-328 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – lesið ÚTAUKNING-1= 270-290-310-340-380-410 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8 cm (öll peysan mælist 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl) fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 48-54-58-64-68-72 lykkjur af þræði á sokkaprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum mitt undir ermi = 54-60-66-72-78-84 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi (= 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið A.2 hringinn og fækkið jafnframt um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 52-60-64-72-76-84 lykkjur (13-15-16-18-19-21 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón með litnum svartur til loka. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkju mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið alls 7-11-12-16-17-20 sinnum þannig: S: Í 10. hverri umferð, M: Í 6. hverri umferð, L: Í 5. hverri umferð, XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, XXL: Í 3. hverri umferð, XXXL: Til skiptis í annarri og hverri og 3. hverri umferð. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar eru 38-38-40-40-42-44 lykkjur eftir – ATH: Þegar lykkjum er fækkað kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en passið uppá að “doppurnar” í A.3 komi beint yfir hverja aðra í afgang af ermi). Þegar ermin mælist 36-34-32-30-29-27 cm frá prjónamerki (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 60-60-65-65-70-75 lykkjur (þetta er gert til þess að ermin verði ekki of þröng neðst niðri). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist nú ca 44-42-40-38-37-35 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96 lykkjur á hringprjón 4 með litnum svartur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12 lykkjur jafnt yfir (prjónið 7. og 8. hverja lykkju slétt saman) = 84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið A.4 hringinn (= 7 mynstureiningar með 12 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 17 cm. Prjónið síðan sléttprjón með litnum svartur. Þegar stykkið mælist 19 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 14 lykkju millibili á milli prjónamerkja. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – lesið ÚRTAKA-2 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 48 lykkjur eftir í umferð. * Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2, prjónið 1 umferð slétt án úrtöku *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar = 12 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm ofan frá og niður. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Sabine wrote:
Vielen, vielen Dank für diese leicht verständliche Anleitung. Den Night Shade habe ich in nur 10 Tagen (ich arbeite nicht mehr) in Größe L (ich habe eine 38/40 Figur) gestrickt und er passt perfekt. Und das, nachdem ich Jahrzehnte lang nur Accessoires und Socken gestrickt habe. Aus der restlichen Wolle habe ich noch die passende Mütze und gefilzte Fäustlinge gefertigt.
08.02.2022 - 16:23Liesbeth Van Besouw wrote:
Bij de mouw staat dat telpatroon A2 gevolgd moet worden, maar ik heb geen idee waar A2 te vinden is! HELP!!
05.10.2020 - 13:44DROPS Design answered:
Dag Liesbeth,
Deze staat inderdaad een beetje 'verstopt', namelijk onder de mouw van de maattekening onderaan het patroon.
10.10.2020 - 11:23Ekaterina wrote:
Im Deutschen scheint dieser Satz nicht komplett zu sein: "96 Maschen auf Rundnadel Nr. 4 mit schwarz anschlagen (= 2 Maschen rechts / 2 Maschen links)." Es sollte vielleicht wie folgt sein: "96 Maschen auf Rundnadel Nr. 4 mit schwarz anschlagen. Dann im Rippenmuster (= 2 Maschen rechts / 2 Maschen links) stricken."
21.01.2018 - 09:17Ekaterina wrote:
Im Deutschen "Bei einer Länge des Rippenmusters in jeder Linksrippe 1 Masche zunehmen" ist die Laenge des Rippenmusters nicht angegeben. Im Englischen steht es 4 cm.
18.01.2018 - 05:32Ekaterina wrote:
"300-350-350-400-450-500 g Farbe 06, sort" - sollte eher nicht "sort", sondern "schwarz" sein :)
18.01.2018 - 05:12Helle Gottenborg wrote:
Har netop set denne opskrift og er helt vild med den 😊 Blot en servicemeddelelse: Kan se, at I under DIAGRAM har glemt at lave tegn for farverne perlegrå og mellemgrå. Sort og tåge er ok. Kan dog godt selv “regne det ud”, så jeg skal i gang 😉 De bedste hilsener og en god dag til jer
08.11.2017 - 09:26