DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Queen of Hearts Socks

Prjónaðir sokkar með hjörtum úr DROPS Fabel, prjónaðir frá tá og upp. Stærð 35-43.

DROPS 183-24
DROPS Design: Mynstur fa-384
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43.
Lengd fótar: ca 22-24-27 cm
Hæð á sokk: ca 22 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-100 g litur 400, svartur
50-50-100 g litur 916, grand canyon

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 29 lykkjur og 38 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4, veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með mynstri eins og áður.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið við.
Haldið áfram með snúninga alveg eins þar til 17 lykkjur eru eftir mitt í umferð.
Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hverri umferð yfir hæl. Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum er lárétta þræðinum lyft á undan lykkju sem prjónuð er upp og sett snúin á prjóninn. Prjónið þráðinn saman við næstu lykkju (frá réttu er þráðurinn og lykkjan prjónað slétt saman og frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman).
Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá tá og upp.

SOKKAR:
Fitjið upp 28 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum svartur. Prjónið mynsturteikningu A.1, þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 56-60-64 lykkjur í umferð. Nú er prjónað áfram eftir mynsturteikningu A.2 yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 13-15-17 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af eftir einni heilli mynstureiningu af A.2 á hæðina (ef prjónfestan á hæðina passar ekki verður að aðlaga mynstrið þegar prjónað er áfram yfir hina mynsturteikninguna).

Prjónið mynsturteikningu A.3 yfir fyrstu 29-31-33 lykkjur, prjónið A.4 yfir síðustu 27-29-31 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 70-74-78 lykkjur í umferð. Setjið fyrstu 29-31-33 lykkjur á þráð, setjið næstu 7 lykkjur á annan þráð og setjið síðustu 7 lykkjur í lok umferðar á annan þráð (1 þráður með 29-31-33 lykkjur fyrir fót og 2 þræðir með 7 lykkjum fyrir hliðar á hæl).
Nú eru 27-29-31 lykkjur eftir á prjóni, prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan, yfir þessar lykkjur.

Eftir hælúrtöku á að prjóna áfram fram og til baka yfir hæl og lykkjur af þræði í hliðum þannig: Notið þráðinn með litnum svartur og prjónið lykkju í lok hverrar umferðar saman við síðustu lykkju við 7 lykkjur hvoru megin á hæl (frá réttu eru prjónaðar 2 lykkjur snúnar slétt saman og frá röngu eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman). Haldið áfram að prjóna svona þar til allar lykkjur í hliðum hafa verið prjónaðar saman við lykkjur frá hæl. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið til baka 29-31-33 lykkjur sem eru á eftir á þræði á prjóninn = 56-60-64 lykkjur. Prjónið nú áfram hringinn, prjónið A.2 yfir allar lykkjur eins og áður þar til stykkið mælist ca 10 cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu. Prjónið 3 umferðir slétt með litnum svartur og þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið uppfitjunarkantinn saman tvöfaldan, notið lykkjuspor til að sauma saman op framan á tá. Klippið frá og festið enda.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = svartur
symbols = grand canyon
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Schneider Svetlana wrote:

A.3 über die ersten 29-31-33 Maschen stricken, A.4 über die letzten 27-29-31 Maschen sricken. Wenn die Diagramme 1 x in der Höhe gestrickt wurden, sind 70-74-78 Maschen in der Runde. Die ersten 29-31-33 Maschen stilllegen, die nächsten 7 Maschen gesondert stilllegen und die letzten 7 Maschen nochmals gesondert stilllegen (29-31-33 stillgelegte Maschen für den Fuß und 2 x je 7 stillgelegte Maschen Bei Muster 3 und 4 Größe 38-40ergibt 7-29-7 und nicht 7-31-7 wo ist fehler? dankeschön

18.01.2023 - 17:15

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schneider, die ersten 31 Maschen (oberen Fuß) sind stillgelegt, die nächsten 7 Maschen sind für die Ferse stillgelegt, die nächsten 29 Maschen bleiben auf der Nadel und die 7 letzten Maschen der Runde sind für die Ferse stillgelegt, so sind es: 31+7+29+7=74 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

19.01.2023 - 10:05

country flag Anne Zinn wrote:

Hej, omslaget mellem to masker, hvilken farve skal det være i? Skal den matche næste pinds farve?

11.05.2021 - 22:27

DROPS Design answered:

Hej Anne, ja omslaget skal være samme farve som skal strikkes i den nye maske på næste pind. God fornøjelse!

12.05.2021 - 10:38

country flag Sam wrote:

Hallo, wäre es möglich, dass die charts besser zum ausdrucken wären? ich habe jetzt einiges versucht, aber sie sind sehr klein und man kann kaum die leeren kästchen sehen, von den zunahmen mal ganz abgesehen. danke.

21.11.2020 - 17:21

DROPS Design answered:

Liebe Sam, leider können wir aus technischen Gründen die Diagramme nicht größer haben, aber sicher können Sie sie über Fotokopierer vergrößern. Viel Spaß beim stricken!

23.11.2020 - 08:42

country flag Elisa wrote:

Is it possible to knit on circular needles. I have only knitted cuff down using circulars or magic loop.

13.06.2020 - 13:39

DROPS Design answered:

Dear Elisa, you can use magic loop technique to work the socks if you like to. Happy knitting!

15.06.2020 - 08:36

country flag Sylvie Gingras wrote:

Bonjour, j'aimerais savour pourquoi les bas ne font pas même avec des aiguilles 3mm. Fait avec 64 mailles. Tres serré.

16.12.2019 - 01:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gingras, aviez-vous bien la bonne tension? Autrement dit 26 m x 34 rangs en jersey avec les aiguilles 2,5 = 10 x 10 cm. Vous trouverez ici plus d'infos sur l'échantillon et la tension. Bon tricot!

16.12.2019 - 09:09

country flag Sylvie Gingras wrote:

Bonjour, quand je termine le diagramme A4 je glisse les 33 mailles (devant) et les 7 mailles etc. Mais mon fil se retrouve à la fin des 7 mailles sur arrêt et avant les 33 mailles du devant. On fait quoi pour commencer à faire les diminutions du talon sur endroit. Merci

19.11.2019 - 15:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gingras, vous pouvez couper votre fil et le joindre pour tricoter les diminutions du talon ou bien, tricoter ces 7 mailles sur l'envers, les mettre en attente, tricoter les mailles du talon sur l'envers, tourner et tricoter les diminutions du talon. Pour éviter un trou aux transition, n'hésitez pas à relever le fil entre 2 mailles comme indiqué à la fin des diminutions du talon. Bon tricot!

19.11.2019 - 16:31

country flag Sylvie Gingras wrote:

Bonjour combien aiguilles doubles pointes pour ce modèle et combien de mailles sur chaque aiguille car il y'a toujours un jeté qu'onne peut pas faire entre 2mailles merci

09.11.2019 - 01:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gingras, vous pouvez répartir les mailles sur 4 aiguilles doubles pointes (et tricoter avec la 5ème), vous aurez ainsi 7 m sur chaque aiguille (soit 28 m au total). Tricotez et augmentez simplement comme indiqué dans les diagrammes. Bon tricot!

11.11.2019 - 10:17

country flag Shawn wrote:

Is it possible to knit these Magic Loop style?

08.03.2019 - 02:56

DROPS Design answered:

Dear Shawn, yes sure, you always can work small projects like socks, mittens etc... with the magic loop technique. Happy knitting!

08.03.2019 - 08:13

country flag Sue Buckley wrote:

I found this pattern in \\\"Simply Knitting\\\" and loved it (although I have never knit socks in the toe-up style) - I bought the Drops wool today but on reading the pattern I am deeply confused about starting the socks from the chart as the instructions say cast on 28...could someone help me? Is the \\\"Simply Knitting\\\" pattern (& chart) complete/correct?

06.04.2018 - 22:09

DROPS Design answered:

Dear Sue, yes, the pattern is correct. You cast on 28 stitches, and knit the pattern in which you will increase enough stitches that will accomondate your foot. The 28 stitches should be put on 4 double pointed needles, and you knit with the fifth. The toe will be folded in half and sewn up at the end. You can find tutorial videos to help you on the left side of teh page just below the model's picture. Also do not forget you can always ask for help in person in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!

07.04.2018 - 07:01

country flag Jane Watt wrote:

I have made this pattern and I like it, but wonder if you would ever make it a top down pattern. I find it hard to get a heel and gusset with no holes when I make as you suggest.

04.04.2018 - 21:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Watt, this video shows how to knit the diagonal heel and how to avoid holes, should you have some holes left, you can also sew some sts afterwards. Happy knitting!

05.04.2018 - 08:33