DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1364.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Berry Wrap

Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og hálsklút fyrir börn með köðlum. Stærð 2-10 ára. Settið er prjónað úr DROPS Air.

DROPS Children 30-16
DROPS Design: Mynstur ai-006-bn
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------
Í allt settið þarf ca 150-150-200-200 g DROPS Air.
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 2 - 3/4 - 5/8 - 9/12 ára
Höfuðmál: ca 48/50 - 50/52 - 52/54 - 54/56
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tileyrir garnflokki C)
50-50-100-100 g litur 14, bleikfjólublár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur C)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
-----------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Mál: Breidd: ca 15 cm. Lengd: ca 120-135-150 cm.
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150-150 g litur 14, bleikfjólublár

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur C)" – sjá tengil að neðan.

DROPS PRJÓNAR NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1364.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Hálsklútur: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 80-80-96-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur í 4 cm (= 5-5-6-6 mynstureiningar með 16 lykkjum). Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 6 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út um 2 lykkjur yfir þessar 10 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 5-5-6-6 sinnum = 90-90-108-108 lykkjur. Prjónið síðan þannig: * Prjónið 6 lykkjur brugðið, A.2 (= 12 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 5-5-6-6 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-17-18 cm fækkið um 1 lykkju í byrjun hverrar brugðinnar einingar, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (= 5-5-6-6 lykkjur færri, A.2 heldur áfram eins og áður). Endurtakið úrtöku í hverjum cm, en fækkið lykkjum til skiptis í lokin og í byrjun á brugðinni einingu, alls 5 sinnum = 65-65-78-78 lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur yfir hverri einingu A.2 = 45-45-54-54 lykkjur eftir í umferð. Í 2 næstu umferðum eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12-12-14-14 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 21-22-23-24 cm ofan frá og niður.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 4-6 cm að þvermáli og festið dúskinn efst á húfuna.
----------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 38 lykkjur á prjón 5,5 með Air. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.3 (= 34 lykkjur), 2 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, A.2 (= 12 lykkjur), 6 lykkjur brugðið, A.2, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 116-131-146 cm eða að óskaðri lengd. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, A.3 (= 34 lykkjur), 2 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm, hálsklúturinn mælist alls 120-135-150 cm. Fellið af, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.10.2019
HÁLSKLÚTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 38 lykkjur á prjón 5,5 með Air.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Zdenka wrote:

Dobry den, mozno hlupa otazka, ale co znamena v navode "Následující kruhovou řadu pleteme takto: *6 ok obrace, následujících 10 ok upleteme hladce a SOUČASNĚ nad nimi přidáme 2 oka" to nad nimi pridame? Dakujem....

31.03.2022 - 06:31

DROPS Design answered:

Dobrý den, Zdenko, jde o to, že budeme přidávat 2 oka jen nad (resp. mezi) těmi 10 oky, která pleteme hladce (tedy ne v celé řadě, ale pouze mezi zmíněnými 10 oky). Hodně zdaru! Hana

06.04.2022 - 18:51

country flag Karen Pryal wrote:

Hi there I don't understand what it means by saying only 2 stitches to start the scarf then the rib for 4cm. I knit two stitches and for how many rows and I don't understand this rib.

11.04.2021 - 00:13

DROPS Design answered:

Dear Karen, the scarf is knitted on 38 stitches, You knit the two edge stitches on both side with garter stitch and between those knit the ribbing according to the diagram. Happy Knitting!

11.04.2021 - 03:39

country flag Undine wrote:

Gilt die Korrektur von Nadelstärke 5 auf 5,5mm beim Schal für alle Wolloptionen aus der Gruppe C oder nur für Drops Air? Ich möchte den Schal in Nepal stricken.

17.11.2020 - 12:50

DROPS Design answered:

Liebe Undine, die Korrektur bezieht sich nur auf dieses Modell, dh der Schal wird mit Nadeln Nr 5,5 gestrickt - Nadelgröße anpassen damit Maschenprobe stimmt, ob Sie mit Air oder Nepal stricken, muss die Maschenprobe dieselbe sein, nur Struktur wird -wegen unterschiedlichen Garne - unterschiedlich. Viel Spaß beim stricken!

17.11.2020 - 13:59

country flag Adél wrote:

Dobrý den, ráda bych se zeptala, zda správně chápu návod A2, na vzorníku je zobrazen líc a znamená to, že zpátky pak pletu celou řadu obrace? Děkuji za radu. Adéla

08.11.2020 - 16:25

DROPS Design answered:

Dobrý den, Adélo, ano je to tak - lícové řady pleteme hladce, rubové obrace. Hodně zdaru! Hana

15.11.2020 - 20:21

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, Comme dans ce modèle, dans le modèle Warmhearted Hat, il y avait un pompon de 4 cm de diamètre, mais il est vraiment petit. Ne s'agirait-il pas plutôt de 4cm de rayon ? Merci Fabienne

13.03.2020 - 10:09

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, en fonction de la taille, vous pouvez le faire de 4 à 6 cm de diamètre, ou même plus grand si vous préférez. Bon tricot!

13.03.2020 - 10:30

country flag Kaj wrote:

Hoe maak ik ren vlecht middels A.2 1e naald aan de goede kant brei ik: 2 st r, 2 av, A.2= 12 recht, 6 av, A.2=12 recht, 2av en 2 r. 2e naald is verkeerde kant: 2st r, 2 av, A.2=12av, 6av, A.2=12 av 2av,2r. 3e naald: 2 r, 2 av, 4 op kabelnld voor, 4 r, kabelnld r breien en dan 6 av en dit herhalen. Dan kom ik op 2 sliertjes van iedere vlecht en niet 3. Ik begrijp het niet. Wat lees/ doe ik verkeerd. Alvast bedankt. Groeten

07.12.2019 - 22:15

DROPS Design answered:

Dag Kaj,

Om de vlecht te maken van A.2 (12 st.) zet je in de 3e naald van A.2 eerst 4 steken op een kabelnaald voor het werk, dan brei je 4 recht, 4 recht van de kabelnaald en tot slot de laatste 4 steken recht van A.2. In de 7e naald brei je eerst 4 steken recht, dan zet je 4 steken op een kabelnaald achter het werk, brei je 4 steken recht en tot slot de 4 steken recht van de kabelnaald.

In A.2 brei je dus geen averecht aan de goede kant.

16.12.2019 - 13:35

country flag Katarina wrote:

V ceskom navode je chyba vo vysvetlivkach Schema: - mate tam = 4 oka odložíme na pomocnou jehlici ZA práci, 4 oka hladce, 4 oka z pom.jehlice hladce - spravne ma byt = 4 oka hladce, 4 oka odložíme na pomocnou jehlici ZA práci, 4 oka z pom.jehlice hladce - inak z toho nebude "copanek"

29.10.2019 - 13:10

DROPS Design answered:

Dobrý den, Kataríno, díky za zprávu! Vysvětlivky jsou v pořádku - postup, který popisujete, nedává smysl: proč bychom oka odkládali, když bychom je měli hned plést? Správný postup je ten, který je uveden u vysvětlivek, tj. dopleteme k místu, kde se kříží copánek, 4 oka odložíme ZA práci, upleteme 4 oka dál v řadě hladce a po nich odložená oka z pomocné jehlice - jedině tak vyměníme pořadí ok (zkřížíme je) a vytvoříme copánek. Hodně zdaru! Hana

03.11.2019 - 18:58

country flag Francine wrote:

(suite) Je parle de l’écharpe.

12.08.2019 - 22:14

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, si vous pensiez aux 4 m de chaque côté de l'écharpe, vous allez les tricoter ainsi: 2 m au point mousse (= à l'endroit tous les rangs), 2 m jersey envers (= envers sur l'envers, endroit sur l'endroit), puis A.2, 6 m jersey envers (= à l'endroit sur l'envers), A.2, 2 m jersey envers (= à l'endroit sur l'envers) et 2 m point mousse (= à l'endroit tous les rangs). Bon tricot!

13.08.2019 - 08:17

country flag Francine wrote:

Bonjour, est-ce que les 4 mailles en début et la fin sont tricotées comme elles se présentent lorsque je tricote À.2? Merci!

12.08.2019 - 21:18

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, toutes les mailles de A.2 se tricotent à l'endroit sur l'endroit et à l'envers sur l'envers, aux rangs avec les torsades, vous tricotez les 4 dernières m du rang 3 à l'endroit et les 4 premières m du rang 7 à l'endroit. Bon tricot!

13.08.2019 - 08:14

FANI wrote:

I FIND THIS PATTERN NICE AND EASY TO MAKE! IT TAKES ME LITTLE MORE THAN 50 gr, FOR 3-4 YEARS,WITH BIG MERINOS! BUT I AM GREEK ! PLEASE TRANSLATE TO MY LANGUAGE, AND I DON'T WANT TO WRITE "other" TO COUNTRIES!

16.12.2018 - 11:52