DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Allie Woof the Dog

Prjónaður leikfangahundur í garðaprjóni og perluprjóni með hálsól. Stykkið er prjónað úr DROPS Big Merino.

DROPS Children 30-24
DROPS Design: Mynstur mb-001-bn
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál: Lengd: ca 41 cm (án skotts). Ummál: ca 29 cm (án fyllingar).

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tiheyrir garnflokki C)
150 g litur 06, gleym-mér-ei
50 g litur 05, mokka
+ afgangur fyrir blóm og augu í þessum litum:
01 natur, 04 svartur, 10 dökk fjólublár, 11 plóma

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – fyrir blóm.

FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Byrjið 2 lykkjur á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HUNDUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hundurinn er prjónaður í stykkjum fram og til baka sem saumuð eru saman í lokin.

NEF OG HÖFUÐ:
Fitjið upp 8 lykkjur á prjón 4,5 með litnum gleym-mér-ei og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 1 lykkju slétt = 15 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, 13 lykkjur brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat), 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta): * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 14 sinnum og endið með 1 lykkju slétt = 29 lykkjur.
UMFERÐ 4 (= ranga): 1 lykkja slétt, 27 lykkjur brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 5 (= rétta): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 13 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 44 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið þar til nefið mælist ca 4 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið 2 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Fyrra prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 19 lykkjur í umferð, seinna prjónamerkið er sett á eftir næstu 6 lykkjur í umferð (á eftir seinna prjónamerki eru 19 lykkjur á prjóni).
Prjónið síðan sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju á undan fyrra prjónamerki og 1 lykkja á eftir seinna prjónamerki – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í næstu umferð frá réttu = 48 lykkjur í umferð. Haldið áfram í garðaprjón þar til höfuðið mælist 11 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (prjónið 5. og 6. hverja lykkju slétt saman) = 40 lykkjur. Prjónið 5 umferðir slétt (síðasta umferðin er frá röngu). Prjónið síðan búk eins og útskýrt er að neðan (án þess að klippa þráðinn frá).

BÚKUR:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 12 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju á eftir ca 3. hverja lykkju) = 52 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 sléttri kantlykkju í hvorri hlið.
Prjónið síðan A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.1 mælist 9 cm (allt stykkið mælist ca 22 cm), prjónið A.2 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 mælist 15 cm (allt stykkið mælist ca 37 cm), setjið 6 prjónamerki frá réttu þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 10 lykkjurnar í umferð, prjónið setjið síðan 5 næstu prjónamerki með 8 lykkja millibili (á eftir síðasta prjónamerki eru 2 lykkjur á prjóni).
Haldið áfram með A.2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – lesið ÚTAUKNING (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 5 sinnum = 22 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11 lykkjur eftir í umferð. Hundurinn mælist ca 41 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan skott eins og útskýrt er að neðan (án þess að klippa þráðinn frá).

SKOTT:
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 11 lykkjur þar til skottið mælist ca 8 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í lok hverrar umferðar með því að prjóna 2 síðustu lykkjurnar slétt saman þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (skottið mælist ca 11 cm). Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Allur hundurinn mælist ca 52 cm með skotti.

EYRA:
Fitjið upp 7 lykkjur á prjón 4,5 með litnum gleym-mér-ei og prjónið garðaprjón. JAFNFRAMT eftir 2 umferðir í garðaprjóni er aukið út um 1 lykkju hvoru megin innanverðri 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 15 lykkjur.
Haldið áfram í garðaprjóni þar til eyrað mælist 6 cm. Fækkið nú um 1 lykkju í byrjun og 1 lykkju í lok umferðar með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu lykkjurnar í umferð slétt saman (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir. Fækkið nú lykkjum alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2 sinnum = 7 lykkjur eftir í umferð. Fellið af. Klippið þráðinn nægilega langt frá til að geta saumað eyrað niður.
Prjónið hitt eyrað á sama hátt.

FÓTUR:
Fitjið upp 12 lykkjur á prjón 4,5 með litnum gleym-mér-ei.
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 18 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja slétt, 16 lykkjur brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat), 1 lykkja slétt.
Prjónið síðan A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið. Fellið af þegar fóturinn mælist ca 6 cm. Klippið þráðinn nægilega langt frá til að geta saumað fótinn við búkinn. Þræðið þrá upp og niður í gegnum lykkjurnar meðfram uppfitjunarkanti neðst niðri á fæti, herðið á þræði þannig að opið lokist og festið þráðinn vel.
Prjónið annan fót á sama hátt.
Prjónið síðan 2 fætur alveg eins, en prjónið A.2 í stað A.1 (= alls 4 fætur, 2 með A.1 og 2 með A.2).

FRÁGANGUR:
Saumið hundinn saman alla leið frá nefi, síðan meðfram búk og aftast á skotti – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir smá op við miðju að neðan til að geta fyllt með vatti.
Fyllið hundinn með vatti og saumið saman opið saman.
Saumið út 2 augu með litnum svartur mitt á höfuðið á hundinum og nef með litnum mokka framan á trýni – sjá ljósmynd.
Saumið eyru hvoru megin á höfði (það eiga að vera ca 5 cm á milli eyrna efst á höfði).
Fyllið hvern fót með vatti og saumið fæturna undir búk á hundinum – sjá ljósmynd fyrir staðsetningu.

HÁLSÓL:
ATH: Vegna lengdar á hálsól má einungis gera ólina fyrir börn yfir 3 ára að aldri:
Fitjið upp 160 lykkjur á prjón 4,5 með litnum mokka.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Brjótið uppá annan endann á hálsólinni tvöfalt saman þannig að það myndist lítil lykkja (nægilega stór fyrir hönd sem á að halda í ólina) og saumið niður með smáu spori. Leggið hinn endann á ólinn í kringum hálsinn á hundinum og saumið niður með nokkrum smáum sporum.

LÍTIÐ HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum plóma og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
UMFERÐ 1: * Heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um hringinn *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið 3 loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju um hringinn = 5 blöð. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni.
Saumið blómið niður sem skraut á hálsólina við lykkju fyrir hönd.

STÓRT HEKLAÐ BLÓM:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með litnum natur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
UMFERÐ 1: Hekli 1 loftlykkju, heklið 5 fastalykkjur um hringinn, skiptið yfir í litinn dökk fjólublár og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Heklið með litnu m dökk fjólublár í hverja fastalykkju frá fyrri umferð þannig: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 1 stuðull, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem var hekluð í byrjun umferðar = 5 blöð.
Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni.
Saumið blómið niður sem skraut á hálsólina við lykkju fyrir hönd.
Heklið annað blóm á sama hátt og saumið niður á hálsólina.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 30-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Dorota wrote:

Super przepisy i poradniki Pozdrawiam

26.08.2022 - 10:03

country flag Soledad wrote:

Muchas gracias por compartir su s patrones

05.02.2022 - 02:41

country flag Sylvia Lipnick wrote:

I don't see how to purl the yarn-overs twisted, as the pattern calls for. I've tried it several ways, and each way there are huge holes!

07.11.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Hi Sylvia, To purl a yarn over twisted you purl in the back of the loop (the same applies to knitting twisted). Happy knitting!

08.11.2021 - 07:20

country flag June Schrader wrote:

I would love to download this pattern (Allie Woof) plus other animal patterns as I am 80years old and do knitting for as many underpriveliged children as possible Can you help Thankimg you JUNE

05.07.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear June, to download the pattern, click on the "print this pattern" button, then "go to pattern" and then save as PDF. Happy Stitching!

05.07.2021 - 21:42

country flag Sue Burt wrote:

I am trying to purchase several patterns from your website , which i have saved to favs.. I go to Purple sheep yarn site and I am transfered back to our website but can find nowhere to purchase the patterns which are available as Don loads. Please advise, Thank you Sue

26.04.2021 - 13:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Burt, our patterns are free and can only be printed - by choosing a virtual printer, you will also be able to save them as a .pdf file. Happy knitting!

26.04.2021 - 14:44

country flag Vivi wrote:

Good morning, I have abundant Andes yarn left. Can I use them instead of Big Merino? Thank you.

11.10.2020 - 01:35

DROPS Design answered:

Dear Vivi, yes, you can substitute the yarn, however please make a swatch, check your gauge and if they do not match what is given in the pattern, your little dog will be smaller (or bigger. Also, be aware that while the Big Merino is superwash, Andes is not, so it might felt when thrown into a washing machine (or get chewed on). I hope this helps! Happy Crafting!

11.10.2020 - 06:35

country flag Saroj wrote:

I would like to make this pattern in crochet. Would like your help if I can. Can I work this pattern With the seams. Can it be made with velvet yarn., the main body.

19.07.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear Saroj, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request - please contact the store where you bought the yarn for any individual assistance. Happy crocheting!

20.07.2020 - 09:55

country flag Sara wrote:

Vad betyder detta "Sätt 2 markörer i arbetet utan att sticka maskorna"? Betyder det att man helt enkelt trär på markören på stickan och flyttar över den varje varv så att den alltid är mellan samma maskor men alltid på det nya varvet? Jag har försökt klura ut varför man behöver dem för Nos & Huvud, men blir inte riktigt klok på det. Man ser ju på nästa varv att man gjort en ökning genom omslag eftersom ökningen inte ser ut som en vanlig rät maska. Tack på förhand! :)

02.03.2020 - 17:03

DROPS Design answered:

Hej Ja då sätter du bara markörer i arbetet utan att sticka ett varv när du gör det (det är bara för att nästa förklarade varv i texten ska vara från avigsidan). Markörerna flyttar du bara med upp i kommande varv och du ser i texten att de markerar var du ska göra ökningar på de nästa 2 varven. Lycka till!

03.03.2020 - 14:38

country flag Johanna wrote:

Hallo! Ich wollte diesen tollen Hund stricken, da ein Familienmitglied jetzt schwanger ist. Aber ich denke, dass 50 cm vielleicht ein bisschen zu gross für das Baby wird, auch wenn das Baby 1-2 Jahre alt ist... Könnte ich die Beschreibung einfach halbieren, oder wird das nicht funktionieren? Müsste ich dann auch was anderes beachten, zB dünnere Wolle und Nadeln? Vielen Dank im Voraus!

02.03.2020 - 16:56

DROPS Design answered:

Liebe Johanna, wenn Sie eine dünnere Wolle stricken, dann wird die Maschenprobe unterschiedlich und der Hund kleiner - Siehe FAQ, Maschenprobe hier - Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne weiter helfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

03.03.2020 - 09:33

country flag Johanna wrote:

Hej! Tänkte sticka denna fina hund då en familjemedlem väntar barn. Tänker att 50 cm blir väldigt stort för en liten bebis, även när bebisen är några år gammalt. Kan man halvera beskrivningen rätt av eller kommer det att bli konstigt? Måste jag tänka på något annat i sådana fall, typ att använda tunnare garn och stickor? Tack så mycket på förhand!

02.03.2020 - 16:54

DROPS Design answered:

Hej Johanna, tycker inte den är för stor ;) Men du kan ju också sticka Arnie the Caterpillar fast lite kortare

03.03.2020 - 15:29