Lofoten |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,6. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. og 9. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum dökk blár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Neðst niðri á fram- og bakstykki skiptist stykkið og það myndast klauf, framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna, ofan frá og niður. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÁLSMÁL: Fitjið upp 104-108-116-124-128-136 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-96-100-108-112-120 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin hefur verið prjónuð til loka er A.1 prjónað hringinn (= 23-24-25-27-28-30 mynstureiningar 4 lykkjur). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 161-168-175-189-196-210 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru 31-36-47-51-56-60 lykkjur jafnt yfir (merkt með ör-1 í A.2) = 192-204-222-240-252-270 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.2 er aukið út um 28-36-38-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-280-300-320 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka A.3 prjónað hringinn (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar 20 lykkjur). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.3 eru 275-300-325-350-375-400 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-3 í A.3 er aukið út um 1-8-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir = 276-308-336-360-384-408 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 69-77-84-90-96-102 mynstureiningar 4 lykkjur). Í umferð merktri með ör-4 í A.4 er aukið út um 10-8-14-8-12-16 lykkjur jafnt yfir = 286-316-350-368-396-424 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 25-25-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðu að framan. Næsta umferð er prjónuð með litnum dökk blár þannig: 43-47-51-55-60-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= í hlið undir ermi), prjónið 85-94-101-110-120-130 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-47-50-55-60-65 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-204-222-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og byrjið umferð við eitt af prjónamerkjum. STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Prjónið A.5 hringinn (= 31-34-37-40-44-48 mynstureiningar 6 lykkjur). Í umferð merktri með ör-5 í A.5 er aukið út um 6-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (á við um S, M og L, passið uppá að aukið sé út um jafn margar lykkjur og á fram- og bakstykki) = 192-208-224-240-264 lykkjur í umferð (96-104-112-120-132 lykkjur á fram- og bakstykki). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn (= 24-26-28-30-33 mynstureiningar 8 lykkjur). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXXL = 288 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn (= 36 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er ekki prjónað A.5 þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. ALLAR STÆRÐIR: = 192-208-224-240-264-288 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-8-6-6-4-3 cm frá skiptingu við handveg. Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk blár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir A.6 er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 8-6-8-6-6-6 cm millibili alls 2-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 200-220-236-252-280-304 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu eru prjónaðar 6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (3 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir í garðaprjóni á hæðina skiptist stykkið við prjónamerkin fyrir klauf og framstykki og bakstykki eru prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl (ca 5 cm frá skiptingu fyrir klauf) prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 24-26-30-30-32-36 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið) = 124-136-148-156-172-188 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 kantlykkjur slétt í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjum með garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir 2 cm eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í hverri skiptingu á milli 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið = 153-168-183-193-213-233 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: = 100-110-118-126-140-152 lykkjur. Prjónið alveg eins og útskýrt er í FRAMSTYKKI. ERMI: Setjið 58-64-74-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur og byrjið umferðina við prjónamerki (= mitt undir ermi). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! STÆRÐ S, M, L, XL og XXL: Prjónið A.5 hringinn (= 11-12-14-14-15 mynstureiningar 6 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn, en passið uppá að A.6 gengur ekki jafnt upp mitt undir ermi í öllum stærðum. Þegar A.6 byrjar hefur fækkað um 1-1-2-2-0 sinum mitt undir ermi eins og útskýrt undir ALLAR STÆRÐIR = 64-70-80-80-90 lykkjur í umferð. Þ.e.a.s. í S, L og XL byrjar A.6 með fyrstu lykkju í mynsturteikningu og prjónaðar 8-10-10 mynstureiningar 8 lykkjur. Í stærð M byrjar A.6 með 2. lykkju í mynsturteikningu og í stærð XXL byrjar A.6 með 8. lykkju í mynsturteikningu. STÆRÐ XXXL: Prjónið A.6 hringinn (= 12 mynstureiningar 8 lykkjur – ATH: Í þessari stærð er A.5 ekki prjónað þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón síðan með litnum dökk blár, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu undir ermi er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-13-18-18-19-21 sinnum = 44-46-48-48-52-54 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 32-32-32-32-31-29 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 12-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 40-40-40-40-39-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (38)
Laura wrote:
Beautiful pattern and so happy it is top-down one! On my list!
25.07.2017 - 10:51Bianca Van Den Berg wrote:
Mooie trui en dan een bijpassend truitje voor de hond erbij maken
14.07.2017 - 11:29Judy wrote:
Absolutely gorgeous! Can't wait to make one!
02.07.2017 - 22:37KarenH wrote:
I can't wait for this to be published - going to make just for me! So stylish
30.06.2017 - 20:43Nancy Russell wrote:
Nice update on an oldie but goodie!
06.06.2017 - 23:11Manuela Glombitza wrote:
Einfach wunderschön!
04.06.2017 - 18:07Allison wrote:
Classic and stylish
03.06.2017 - 16:19Lola wrote:
Me encanta este jersey, perfecto para el otoño.
02.06.2017 - 23:20