DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lofoten

Peysa fyrir herra úr DROPS Lima með hringlaga berustykki og marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 185-3
DROPS Design: Mynstur li-091
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-750-800-900-1000 g litur 4305, dökk blár
150-150-150-200-200-200 g litur 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8,6.
Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis ca 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 8. og 9. hverja lykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því.

LEIÐBEININGAR-2 (á við um berustykki á peysu):
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og það verða fleiri umferðir á hæðina en 10 cm eins og gefið er upp í uppskrift, þá verður berustykkið allt of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð í sléttprjóni í umferð með einum lit með jöfnu millibili í berustykki.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.4, A.5 og A.6). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verði aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun neðar í uppskrift. Eftir berustykkið er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 104-108-112-120-124-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk blár Lima.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-96-100-108-112-120 lykkjur.
Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka eða farið áfram í að prjóna berustykki ef ekki á að prjóna upphækkunina.

UPPHÆKKUN:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki á að prjóna upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum dökk blár og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan berstykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú A.1 hringinn (= 23-24-25-27-28-30 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 er lokið eru 161-168-175-189-196-210 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 31-36-47-51-56-60 lykkjur jafnt yfir (merkt með ör-1 í A.2) = 192-204-222-240-252-270 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 í A.2 er aukið út um 28-36-38-40-48-50 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-280-300-320 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er A.3 prjónað hringinn (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar með 20 lykkjum). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Eftir síðustu útaukningu í A.3 eru 275-300-325-350-375-400 lykkjur í umferð. Í umferð merktri með ör-3 í A.3 er aukið út um 1-8-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir = 276-308-336-360-384-408 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka A.4 prjónað hringinn (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 69-77-84-90-96-102 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í umferð merktri með ör-4 í A.4 er aukið út um 22-20-26-26-24-34 lykkjur jafnt yfir = 298-328-362-386-408-442 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 25-25-26-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð með litnum dökk blár þannig: 45-50-53-59-63-69 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 lykkjur (= í hlið undir ermi) prjónið 91-100-107-119-126-139 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-74-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-50-54-60-63-70 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 198-216-234-258-276-306 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið og byrjið umferðina við eitt af prjónamerkjunum.
STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Prjónið A.5 (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð) hringinn (= 33-36-39-43-46-51 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í umferð merktri með ör-5 í A.5 er lykkjufjöldinn jafnaður til þannig að það verða = 200-216-232-256-280 lykkjur í umferð (á við um S, L, XL og XXL – passið uppá að auka/fækka jafn mörgum lykkjum á fram- og bakstykki) (= 100-108-116-128-140 lykkjur á fram- og bakstykki).
Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn (= 25-27-29-32-35 mynstureiningar með 8 lykkjum). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Prjónið síðan eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR.
STÆRÐ XXXL = 306 lykkjur. Prjónið A.6 hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 304 lykkjur (= 38 mynstureiningar með 8 lykkjum – ATH: Í þessum stærðum er ekki prjónað A.5 þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4). Haldið áfram með mynstur þar til A.6 hefur verið prjónað til loka.

ALLAR STÆRÐIR:
= 200-216-232-256-280-304 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-8-6-6-4-3 cm frá skiptingu við handveg. Prjónið síðan sléttprjón með litnum dökk blár. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir A.6 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6 -11-12-8-9-14 cm millibili alls 4-3-3-4-4-3 sinnum í hvorri hlið = 184-204-220-240-264-292 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 29-31-32-33-33-33 cm frá skiptingu er aukið út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 220-244-264-288-316-348 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Öll peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-64-74-74-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-84-84-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur og byrjið umferð við prjónamerki (= mitt undir ermi).
STÆRÐ S, M, L, XL og XXL:
Prjónið A.5 hringinn (= 11-12-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). Í síðustu umferð í A.5 er fækkað um 2-0-4-4-2 lykkjur jafnt yfir = 64-72-80-80-88 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er A.6 prjónað hringinn.
STÆRÐ XXXL: Prjónið A.6 hringinn (= 12 mynstureiningar með 8 lykkjum – ATH: Í þessari stærð er ekki prjónað A.5 þar sem mynstureiningin er prjónuð í A.4).

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað sléttprjón með litnum dökk blár.
JAFNFRAMT í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi. Fækkið lykkjum svona í ca 10.-7.-6.-6.-5.-4. hverri umferð alls 9-12-15-15-17-20 sinnum = 46-48-50-50-54-56 lykkjur.
Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 38-38-39-38-36-35 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 46-46-47-46-44-43 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.02.2019
Nýtt efnismagn: DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B) 650-750-750-800-900-1000 g litur 4305, dökk blár

Mynstur

symbols = dökk blár
symbols = natur
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með grunnlit (dökk bláum) í mynsturbekk, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = útaukningsumferð - sjá útskýringu í uppskrift!
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Marit Furuseth wrote:

Hvor mange nøster av lima garn medium størrelse trenger jeg til en enkel langermet genser?

15.08.2023 - 16:21

DROPS Design answered:

Hej Marit, Du kan søge på herre - genser - Lima og vælge hvilken model. Garnforbruget er afhængig af hvilken model du vælger :)

16.08.2023 - 11:25

country flag Ingegerd Mattsson wrote:

Jag fattar inte. Diagram A1 ska jag öka 25 maskor på först varvet., 25 maskor på 2:a varvet . 25 maskor på 3:e varvet ELLER Ska jag sticka hela diagramet A1 12 varv med 3 st ökningar på 5:e,9:e, 11:e varvet 25gånger

10.02.2023 - 18:05

DROPS Design answered:

Hei Ingegerd. Om du strikker i str. L skal A.1 strikkes 25 ganger = 100 masker. På 5. omgang øker du med 1 maske hver gang A.1 strikkes = 25 økte masker = 100 + 25 = 125 masker. På 9. omgang skal det igjen økes med 1 maske hver gang A.1 strikkes = 125 + 25 = 150 masker og på 11. omgang økes det også 1 maske hver gang A.1 strikkes = 150 + 25 = 175 masker. Så når A.1 er ferdigstrikket i høyden skal du ha 175 masker. mvh DROPS Design

13.02.2023 - 10:51

country flag Ingegerd wrote:

Drops mönster185-3 Large. oket diagram A.1 ska jag sticka hela diagramet 25ggr för att få rätt antal maskor eller vad

10.02.2023 - 06:41

DROPS Design answered:

Hej Ingegerd, ja du har 100 masker, gentager A.1 som består af 4 masker 25 gange på omgangen = 100 masker. Husk at tage ud på 5.omgang i A.1 :)

10.02.2023 - 11:56

country flag Marianne wrote:

Bonjour ! Je voudrais tricoter ce beau modèle mais je lis dans les commentaires que certaines tricoteuses ont 7 pelotes en trop . Qu' en est-il ? Merci de votre réponse .

17.06.2021 - 08:51

DROPS Design answered:

Bonjour Marianne, la quantité a été corrigée depuis à 750 g en taille L (au lieu des 850 à l'époque). Pensez à toujours bien vérifier votre échantillon en largeur et en hauteur - cette quantité correspond à l'échantillon et aux mesures du schéma. Bon tricot!

17.06.2021 - 13:13

country flag Chiara wrote:

Hi, I started to knit it a few times but everytime the neck curls up and folds out (like pointing towards the shoulders) I get to the A.3. Schemes, the husband tries it around is neck, stretches It but it doesn't straighten up. I am following the pattern to the dot, using lima yarn, right needles, knitting not too tight... is it normal? What can I do? It doesnt look like the one in the picture at all...

21.10.2019 - 22:41

DROPS Design answered:

Dear Chiara, it's a bit tricky to have an idea without seing your work, please show it to your store (even per mail), it might be just a matter of length (when you will have finished yoke and divide piece for sleeve, this may disappear), but your DROPS store should be able to help you when seing it. Happy knitting!

22.10.2019 - 10:50

country flag FOUERE Christiane wrote:

Je viens de terminer ce pull en taille L = 850 g coloris 4305 soit 17 pelotes. Rien à dire sur le pull qui est de taille impeccable et qui est Magnifique mais...... j'ai 7 pelotes en trop !!! Comment cela se fait il ? Il faut rectifier les quantités sur les explications.

25.01.2019 - 15:04

country flag Judi wrote:

I usually wear a female sweater size large. What size would I knit this sweater for me??

19.07.2018 - 18:49

DROPS Design answered:

Hi Judy, The diagram right at the bottom of the pattern gives you the measurements for each size. Happy knitting!

20.07.2018 - 08:01

country flag Wally wrote:

Bei mir sind auch 7 Knäuel Blau übrig, bei Größe L. (Bei 850 gr. Blau)

28.03.2018 - 17:14

country flag Annette Tünker wrote:

Ich habe dieses Model in Gr. M genau nach Anleitung gestrickt. Alles passte genau und der Pullover ist sehr schön. Aber ich habe 7 (!) Knäuel dunkelblau übrig. Kann es sein, dass die Mengenangabe nicht stimmt?

08.02.2018 - 15:03