DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 22264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 179-5
DROPS Design: Mynstur pu-015
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

MÁL:
Breidd með kanti: 96 cm.
Lengd með kanti: 140 cm.

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550 g litur 06, grár
200 g litur 05, dökk grå
200 g litur 07, ljós grár
150 g litur 01, natur
150 g litur 08, svartur
ATH. Ef teppið er heklað með einum lit þá þarf ca 1150 g Puna.

Eða notið:
DROPS SKY fra Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350 g litur 02, ljós grár
150 g litur 04, grár
150 g litur 03, perlugrár
100 g litur 01, hvítur
100 g litur 05, svartur
ATH: Ef teppið er heklað með einum lit þá þarf ca 700 g Sky.

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 ferningur = 11 x 11 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 22264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

LITIR (á við um hekluðu ferningana):
1. ferningur:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: svartur/svartur
UMFERÐ 2: natur/hvítur
UMFERÐ 3: grár/ljós grár
UMFERÐ 4: svartur/svartur
UMFERÐ 5: grár/ljós grár

2. ferningur:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: ljós grár/perlugrár
UMFERÐ 2: svartur/svartur
UMFERÐ 3: dökk grár/grár
UMFERÐ 4: ljós grár/perlugrár
UMFERÐ 5: grár/ljós grár

3. ferningur:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: natur/hvítur
UMFERÐ 2: dökk grár/grár
UMFERÐ 3: ljós grár/perlugrár
UMFERÐ 4: natur
UMFERÐ 5. grár.

4. ferningur:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: dökk grár/grár
UMFERÐ 2: svartur/svartur
UMFERÐ 3: grár/ljós grár
UMFERÐ 4: dökk grár/grár
UMFERÐ 5: grár/ljós grár

5. ferningur:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: grár/ljós grár
UMFERÐ 2: svartur/svartur
UMFERÐ 3: natur/hvítur
UMFERÐ 4: grár/ljós grár
UMFERÐ 5: grár/ljós grár

6. ferningur:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: grár/ljós grár
UMFERÐ 2: ljós grár/perlugrár
UMFERÐ 3: svartur/svartur
UMFERÐ 4: grár/ljós grár
UMFERÐ 5: grár/ljós grár

RENDUR (á við um kant):
UMFERÐ 1: dökk grár/grár
UMFERÐ 2: grár/ljós grár
UMFERÐ 3: natur/hvítur
UMFERÐ 4: dökk grár/grár
UMFERÐ 5: ljós grár/grár

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðir 16 ferningar í hverri litasamsetningu. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið.

FERNINGUR:
Byrjið með heklunál 4,5 og Puna eða Sky og heklið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 – heklið 16 ferninga í hverri litasamsetningu – sjá útskýringu að ofan = 96 ferningar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! 1 ferningur mælist 11 x 11 cm. Festið endana jafnóðum á bakhlið á stykki.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana með réttu númeri eins og útskýrt er á teikningu (8 ferningar á breidd og 12 ferningar á lengd). Númer á ferningum á teikningu sýna heklaða ferninga með sama númeri eins og útskýrt er í LITIR.
Ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á lengdina á öllu teppinu, síðan á breiddina.
Heklið ferningana saman þannig:
Leggið 2 ferninga saman með röngu á móti röngu.
Heklið í gegnum bæði stykkin með litnum grár: 1 fastalykkja um hornið, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju *. Heklið frá *-* fram að og í horn (= 7 loftlykkjubogar) og heklið 3 loftlykkjur (= skipting yfir í næstu 2 ferninga). Endurtakið alveg eins á næstu tveimur ferningum sem eiga að vera við hliðina.
Haldið síðan áfram alveg eins í hinum enda á teppinu, þar til allir ferningarnir á þessum tveimur röðum hafa verið heklaðir saman. Klippið frá. Heklið nú saman þessar tvær raðir við næstu röð alveg eins. Þegar allar raðirnar hafa verið heklaðar saman á lengdina hanga allir ferningarnir saman. Heklið nú alveg eins á breiddina.

KANTUR:
Heklið nú kant í kringum allt teppið sjá RENDUR – að ofan. Byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu (fyrsta umferð sýnir síðustu umferð sem er hekluð á hekluðum ferningunum).
Byrjið í einu horni á teppinu. Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). * Heklið A.3 meðfram hlið á heklaða ferningnum, A.4 í skiptingu á milli 2 heklaða ferninga *, heklið frá *-* þar til 1 ferningur er eftir á undan næsta horni, heklið A.3 meðfram hlið á þessum ferning, heklið A.5 um loftlykkjuboga í horni.
Heklið alveg eins meðfram næstu 3 hliðum og hornum á teppi. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhring/um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = 1 fastalykkja um bilið á milli 2 lykkja/um loftlykkjuboga/um loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 hálfur stuðull um bilið á milli 2 lykkja/um loftlykkjuboga
symbols = 1 loftlykkja
symbols = heklið 4 tvíbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um bilið á milli lykkja, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 3 tvíbrugðna stuðla alveg eins, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, er þráðurinn dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 1 hálfur stuðull í lykkju
symbols = heklið horn á ferningunum saman þannig: stingið heklunálinni utan um fyrsta loftlykkjubogann á fyrsta ferning, sækið þráðinn, stingið heklunálinni utan um loftlykkjubogann á næsta ferning, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 2 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 4 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Marisa wrote:

Creo que en el esquema está mal detallado el símbolo de punto doble. Dice punto bajo en lugar de punto doble

01.10.2022 - 22:21

country flag Rósa Sigvaldadóttir wrote:

Það eru villur í uppskriftinni. 1. Í uppgefnu magni stendur 50 gr af lit nr. 06 í Puna en á að vera 550 gr. 2. Í litasamsetningu nr. 3 vantar 2 síðustu umferðirnar.

30.09.2022 - 19:37

DROPS Design answered:

Blessuð Rósa. Takk fyrir ábendinguna þetta hefur verið lagfært.

06.10.2022 - 11:34

country flag Anne wrote:

I love this pattern and am interested in a different colour combination in Drops Sky. Have you this pattern in a different colour combination? Thank you.

10.09.2021 - 23:50

DROPS Design answered:

Dear Anne, please feel free to contact your DROPS store, even per mail or telephone, they will help you to choose the best colours matching your wishes. Happy crocheting!

13.09.2021 - 08:20

country flag Claartje wrote:

Ik heb een vraag over het haken van de rand. Klopt het dat je over 1 zijkant van de deken patroon a2, a3, A4 heen en weer haakt, voordat je a5 de hoek om gaat? Ik snap het namelijk niet helemaal. Alvast bedankt voor het antwoord.

20.11.2020 - 09:09

DROPS Design answered:

Dag Claartje,

Nee, je haakt het telpatroon volledig rondom de deken. A.4 wordt steeds tussen 2 vierkanten gehaakt, A.3 wordt over een vierkant gehaakt (dit herhaal je dus steeds op de korte en lange zijde), A.5 op alle 4 hoeken en A.2 laat zien hoe de toer begint en eindigt.

21.11.2020 - 14:42

country flag Eva Christensen wrote:

Hej Jeg kunne godt tænke mig at hækle dette kludetæppe til min datter men hun bryder sig ikke om uld/alpacka garn. Jeg ville hækle det i akryl garn. Kan I hjælpe mig med et garnmærke, hvor jeg kan få alle 3 nuancer af grå? Venlig hilsen Eva

12.07.2020 - 20:45

DROPS Design answered:

Hei Eva. Dette teppet er heklet i DROPS Puna som tilhører garngruppe B. Om du går til GARN - Garngruppe A-F og så ser på de garnkvalitetene vi har under garngruppe B, kan du velge bomullskvalitet, blandingskvalitet eller ullkvalitet. Se også under hver enkel kvalitet om hvilken gråfarger de har og hva du selv ønsker. Når du har funent hvilken kvalitet og farger du ønsker, kan du bruke vår garnkalkulator til å finne ut av hvor mye garn du trenger av de ulike fargene. God Fornøyelse!

13.07.2020 - 14:32

country flag Margarita Rufino wrote:

Muy bien explicado

25.06.2020 - 13:38

country flag Lin Harvey wrote:

This person is selling your pattern on ebay , i tried to post link but it wouldnt allow me

24.02.2019 - 10:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Harvey, thanks for the information, please report on Ebay, as we do. Happy crocheting!

25.02.2019 - 12:29

country flag Vanrenterghem Lutgart wrote:

Wol geeft dikwijls een prikkerig onaangenaam gevoel. Is dit ook zo met dit soort garen? Zo ja, heb je dan een anders soort garen om eem deken mee te haken? Dank bij voorbaat.

28.12.2018 - 13:43

DROPS Design answered:

Dag Vanrenterghem Lutgart,

De garens in dit patroon zijn van alpaca en dat kan inderdaad kriebelen als je daar gevoelig voor bent. Een goed alternatief is DROPS Karisma, die kriebelt niet, maar als je helemaal niet tegen wol kan (allergie) kun je beter DROPS Merino Extra Fine gebruiken. Beide garens vallen in dezelfde categorie, dus met ongeveer dezelfde stekenverhouding.

01.01.2019 - 19:51

country flag Chantal Bonneton wrote:

Bonjour, Ma question concerne l'assemblage : vous dites : "continuer jusqu'à l'autre extrémité de la couverture jusqu'à ce que tous les carrés de ces 2 rangs aient été crochetés ensemble" jusque là ça va, mais après Crochetez maintenant ce double rang avec le rang suivant de la même façon. Faut-il refaire un rang d'arceaux ? Merci d'avance pour votre réponse. Chantal

23.05.2018 - 11:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bonneton, quand vous avez fait une bande en assemblant les carrés 2 par 2, vous obtenez une bande de 2 carrés en largeur, assemblez maintenant cette bande avec la rangée suivante de carrés comme vous avez fait auparavant en suivant l'ordre des carrés du schéma. Les carrés seront ensuite assemblés dans l'autre sens (= en largeur). Bon assemblage!

23.05.2018 - 14:34

country flag Eleonora Grant wrote:

Dit is zo een mooi patroon dat ik er gelijk 2 heb gemaakt. Ze worden dagelijks gebruikt.

25.02.2018 - 17:04