DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Honey Blossom

Peysa með gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður með 3/4 löngum ermum úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-5
DROPS Design: Mynstur me-101
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 24, ljós gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

LASKALÍNA:
ERMI:
Útaukningar á ermi eru einn hluti af mynsturteikningu A.1, A.2 og A.4. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermi í annarri hverri umferð, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á framstykki og 1 lykkju í hvorri hlið á bakstykki þannig (= alls 4 lykkjur fleiri):
Aukið út þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.1: sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir brugðið, það eiga að myndast göt.

Þegar aukið er út í 4. hverri umferð er aukið út þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið 2 lykkjum á undan A.1: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1.
UMFERÐ 2: Uppslættirnir eru prjónaðir slétt, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 3: Byrjið 4 lykkjum á undan A.1: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð – ekki er aukin út nein lykkja, en gataumferðin heldur áfram eins og áður. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1.
UMFERÐ 4: Uppslættirnir eru prjónaðir slétt, það eiga að myndast göt.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslættirnir eru prjónaðir snúnir brugðið í næstu umferð.

ÚRTAKA:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstur mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 94-98-102-106-110-114 lykkjur á hringprjóna 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir = 114-118-122-126-130-134 lykkjur. Prjónið síðan þannig: Prjónið 19-20-21-22-23-24 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= 17 lykkjur) (= hægri ermi), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 38-40-42-44-46-48 lykkjur sléttprjón ( = framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, A.1 (= vinstri ermi), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 19-20-21-22-23-24 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA er nú lokið. Haldið áfram með þessa skiptingu með mynstur og sléttprjóni.
Aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan. Á ermi er aukið út í annarri hverri umferð 22-26-29-31-32-33 sinnum, á fram- og bakstykki er aukið út í hverri umferð 0-0-0-0-0-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 14-16-17-25-32-30 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 4-5-6-3-0-0 sinnum.

ATH! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram þannig (yfir lykkjur á ermum): A.2 (= 8 lykkjur), A.3 (= 12 lykkjur), A.4 (= 7 lykkjur). Þegar A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: A.2, A.3 yfir næstu 36 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.4. fyrir hvert skipti sem A.2 til A.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli A.2 og A.4. Endið A.2, A.3 og A.4 þegar aukið hefur verið út alls 22-26-29-31-32-33 sinnum á ermum og alls 18-21-23-28-32-36 sinnum á framstykki og bakstykki.

Eftir alla útaukningu eru 61-69-75-79-81-83 lykkjur á hvorri ermi, 76-84-90-102-112-122 lykkjur á framstykki og bakstykki = 274-306-330-362-386-410 lykkjur alls. Næsta umferð er prjónuð þannig:

Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 61-69-75-79-81-83 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 61-69-75-79-81-83 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið síðustu 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 168-184-200-224-248-272 lykkjur á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri), aukið út með 7 cm millibili alls 4 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING! = 184-200-216-240-264-288 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-26-26-26-27-29 cm prjónið A.5 yfir allar lykkjur, fellið síðan af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur frá þræði á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-77-85-89-93-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur = mitt undir ermi. Haldið áfram með A.3, þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 3-3-3-5-5-5 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, fækkið lykkjum með 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 9-12-15-16-17-18 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 51-53-55-57-59-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-30-29-28-28-28 cm prjónið A.5 yfir allar lykkjur. Fellið af þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, ermin mælist ca 36-33-32-31-31-31 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.09.2017
PEYSA:..Aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan. Á ermi er aukið út í annarri hverri umferð 22-26-29-31-32-33 sinnum, á fram- og bakstykki er aukið út í hverri umferð 0-0-0-0-0-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 14-16-17-25-32-30 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 4-5-6-3-0-0 sinnum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Marie-Pierre Gosselin wrote:

J'ai encore une question à propos des manches car si je regarde mon tricot j'ai l'impression que j'ai décalé. Sur un rang, a quel moment dois-je commencer le point ajouré? Je tricote 4 mailles en jersey et je commence? Dois toujours conserver ces 4 mailles jersey en debut et fin de rang? car quand je fais les diminutions j'ai l'impression que je decale ensuite le depart de mon point ajouré. Là je tricote mais je ne suis pas du tout sûre de faire de la bonne manière.

10.09.2022 - 12:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gosselin, quand vous tricotez les manches (après la séparation), tricotez autant de mailles que possible en point ajouré A.3 - adaptez en fonction du dernier tour tricoté sur l'empiècement pour commencer joliment sous la manche - si vous ne pouvez tomber juste, tricotez ces mailles supplémentaires au début et à la fin du tour tout simplement en jersey, tant que le point fantaisie A.3 de l'empiècement continue comme avant. Bon tricot!

12.09.2022 - 09:32

country flag Marie-Pierre Gosselin wrote:

Bonjour, je ne comprends pas les explications concernant les manches. Je fais le modele en taille M donc j'ai 69 mailles + les 8 mailles que je reprends sous la manche. Il faut continuer avec A3. Mais si je prends mes 69 mailles, cela me fait 5 A3 entiers + un A3 avec juste 9 mailles et mes 8 mailles en jersey. Ma question est pour le A3 incomplet: je tricote ces mailles- là quand même en A3 ou en jersey? Et il faut toujours que j\'ai 8 mailles en jersey au milieu?

05.09.2022 - 14:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gosselin, le plus important est de continuer A.3 sur le maximum de mailles, au début et à la fin du tour, tricotez en jersey les mailles que vous ne pouvez pas tricoter en suivant le point fantaisie. Vous allez ensuite diminuer au milieu sous la manche, tricotez aussi en jersey les mailles que vous ne pouvez pas tricoter dans le point ajouré (veillez toujours à ce que tout jeté de chaque A.3 soit bien compensé par 1 diminution pour ne pas fausser le nombre de mailles). Bon tricot!

05.09.2022 - 15:21

country flag Daniela wrote:

Buongiorno,per gli aumenti del corpo non riesco a capire se prima e dopo di A1 bisogna fare un gettato e una maglia a maglia rasata come scritto in "MAGLIONE:",oppure se bisogna fare un gettato e due maglie a maglia rasata come scritto in "CORPO:". Potreste aiutarmi per favore? Grazie

10.08.2022 - 15:36

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, per il 1° aumento del raglan lavora come indicato nel paragrafo "maglione", poi può seguire le spiegazioni riportate nel paragrafo raglan. Buon lavoro!

10.08.2022 - 22:18

country flag Grace Strøm wrote:

Spørsmål: mønster honey blossom modell me-101 Etter st A2,A3&A4 er strikket 1 gang i høyden trenger jeg forklaring på hvordan A2&A3 (3 rapporter) så A4 går opp i maskeantallet på ermdelen

12.08.2021 - 21:51

country flag Kirsten wrote:

Hej. Kan ikke finde videoen....vil du give mig et link? Bygger man ikke harlekinmønsteret op langs raglan?.... Mit maskeantal passer ikke, når jeg strikker A2 mønsterrække 3....indtil da er alt ok. Giver det mening? Mvh Kirsten

04.05.2021 - 09:48

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, her finder du en video med samme mønster Hulmønster ifølge diagram

04.05.2021 - 15:51

country flag Kirsten wrote:

Hej igen. 3. Mønsterpind i A2: slå om, strik 2 ret, strik 2 sammen, slå om, strik 3 ret, slå om, tag 1 løs af, strik 2 sammen og løft den løse over, slå om.....og hvad så..? Er det bare i starten at man strikker 2 sammen og ellers følger sit mønster? Jeg kan ikke få det til at passe og giver snart op. Er ellers en go’ strikker 😊....tak for svar og go’ dag....Kirsten

03.05.2021 - 16:08

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, 3.mønsterpind A.2(nedefra i højre side) strikker du således: 1r, slå om, 2r, 2r sm, slå om, 1r, slå om, 1 løs af p, 1r, løft den løse over, 1 ret. Nu starter du på A.3 og gentager A.3 til du har 8 m tilbage hvor du strikker A.4. God fornøjelse!

04.05.2021 - 15:58

country flag Kirsten wrote:

Hej. Jeg forstår ikke, hvordan jeg strikker 3. og 5. mønsterrække i A.2? Mvh og tak for svar Kirsten

02.05.2021 - 23:11

DROPS Design answered:

Hei Kristen. Hva er det du ikke forstår? Over diagrammen finner du tekstforklaring på hvordan de ulike diagram ikonene skal strikkes. Du finner også hjelpevideo til oppskriften nederst på siden. mvh DROPS design

03.05.2021 - 15:10

country flag Marta Neumärker wrote:

Grüss Gott. Ich möchte gerne diesen Pullover stricken. Nun komme ich nicht ganz klar mit den Raglanzunahmen. Es heisst in jeder 2. Runde an den Aermeln z.B. 29 x zunehmen , dann am Rumpfteil 17 x zunehmen . Nun bin ich unsicher ob ich zuerst nur am Aermel die Zunahmen stricken muss und anschliessend auch an Vorder und Rückenteil. Danke für die Antwort. M. Neumärker

28.03.2021 - 11:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Neumärker, Sie beginnen die Zunahmen gleichzeitig, wobei die Zunahmen an den Ärmeln im Diagramm eingezeichnet sind. Beachten Sie, dass Sie an den Ärmeln durchweg in jeder 2. Runde zunehmen, an Vorder- und Rückenteil jedoch erst 17x in jeder 2. Runde und dann 6x in jeder 4. Runde. Der Beginn ist aber, wie gesagt, gleichzeitig an Ärmeln und Vorder- und Rückenteil. Gutes Gelingen!

05.04.2021 - 00:05

country flag Gertraud Stift BSC wrote:

Es gibt mehrere Anweisungen wie die Löcher in der folgenden Reihe entstehen: Rumpfteil: Im ersten Teil der Beschreibung zur Raglanzunahme da sind sie links zu stricken damit Löcher entstehen. In jeder 2.+4. Runde: ....Umschläge rechts stricken. Beim Zunahmetipp: ....die Umschläge rechts verschränkt stricken. Was ist richtig?

11.05.2020 - 07:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stift, ja genau, die unterschiedlichen Zunahmen werden auch unterschiedlich gestrickt, beim Raglan werden die Umschläge Löcher bilden aber beim Rumpfteil sollen die Umschläge keine Löcher bilden - hier gilt das ZUNAHMETIPP. Viel Spaß beim stricken!

11.05.2020 - 10:47

country flag Alix wrote:

Bonjour DROPS, et merci pour ces magnifiques modèles! Je prépare ce modèle en taille L, et j\'ai tricoté A1. Je m\'apprête à tricoter A2/A4 pour terminer les augmentations. Cependant, si je tricote A2/A4 une fois dans la hauteur, j\'aurai déjà 75 mailles par manches (1xA2+3xA3+1xA4), alors qu\'il reste encore 12 augmentations à faire. Mais si je continue avec plus d\'augmentations, j\'aurais trop de mailles. Pourriez vous m\'éclairer? Merci!

04.04.2020 - 14:03