DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Radiant Darling

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með laskalínu og stroffi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS Extra 0-1323
DROPS Design: Mynstur nr bs-089
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
250-300-300-350-350-400 g nr 1306, púður
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 g nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 2 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, prjónamerki.
Aukið út um 2 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, prjónamerki.
Aukið út um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, prjónamerki.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, 1 l sl, 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PEYSA:
Byrjun umf = miðja að aftan. Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 l á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum Baby Alpaca Silk. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir í 1 þráð af hvorri tegund og prjónið 1 umf stroff. Skiptið yfir í hringprjóna nr 5 og prjónið eina umf sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 12-16-16-20-20-24 l jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 8-8-16-24-36-40 l jafnt yfir = 84-84-96-104-120-124 l.
Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið þannig: 16-16-18-20-23-23 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki (= hálft bakstykki), 10-10-12-12-14-16 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki (= ermi), 32-32-36-40-46-46 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki (= framstykki), 10-10-12-12-14-16 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki (= ermi), 16-16-18-20-23-23 l sléttprjón (= hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu – LESIÐ ÚTAUKNING – þannig: Aukið er út mismunandi á ermum og fram- og bakstykki.

LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Aukið út um 2 l í annarri hverri umf alls 2-4-5-7-8-10 sinnum, síðan 1 l í annarri hverri umf alls 17-16-16-15-15-14 sinnum = 74-80-88-98-108-114 l á framstykki og 37-40-44-49-54-57 l á hvoru hálfu bakstykki.

LASKALÍNA ERMI:
Aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (= 2 l fleiri á hvorri ermi) þannig: Aukið út um 1 l í annarri hverri umf alls 19-20-21-22-23-24 sinnum = 48-50-54-56-60-64 l á ermi.

Eftir alla útaukningu eru 244-260-284-308-336-356 l í umf.

Næsta umf er prjónuð þannig: 37-40-44-49-54-57 l sléttprjón, setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, 74-80-88-98-108-114 l sléttprjón, setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, 37-40-44-49-54-57 l sléttprjón = 164-176-192-212-232-244 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm er aukið út um 8 l jafnt yfir = 172-184-200-220-240-252 l. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Skiptið yfir í 2 þræði BabyAlpaca Silk og prjónið stroff þar til stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið til baka 48-50-54-56-60-64 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Fitjið upp 8 l í lok umf = 56-58-62-64-68-72 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 4½-4-3½-3-3-2½ cm millibili 8-9-10-11-12-13 sinnum til viðbótar = 38-38-40-40-42-44 l. Þegar stykkið mælist 41 cm, aukið út um 2-2-4-4-6-4 l jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 l. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 4, prjónið 1 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Skiptið yfir í 2 þræði BabyAlpaca Silk og prjónið síðan stroff þar til stykkið mælist 46 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1323

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Eliza wrote:

Kan ik ook een patroon krijgen/kopen zonder in een keer te breien. Breien met ronde breinaalden vind ik erg vervelend

09.01.2022 - 10:03

DROPS Design answered:

Dag Eliza,

Veel van onze patronen zijn inderdaad met de rondbreinaald gemaakt, maar ook een aantal (vooral wat oudere patronen) met recht naalden. Het is voor ons helaas niet mogelijk om een patroon aan te passen en uit te schrijven naar individuele wensen. Alle patronen die we hebben zijn op de site gepubliceerd. Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

10.01.2022 - 17:46

country flag Ineke wrote:

Goede middag, misschien een domme vraag, maar waar heb je de drops -Kids silk voor nodig..deze heb ik niet bij besteld nl ik dacht 10 bollen drops alpaca is genoeg ? Ik heb ook veel hulp nodig denk ik aangezien dit de eerste x is dat ik iets groots maak ;-)

07.07.2021 - 15:36

DROPS Design answered:

Dag Ineke,

Het hele werk wordt gebreid met 2 draden; 1 draad van elke kwaliteit, dus je breit met 1 draad BabyAlpacaSilk en met 1 draad Kid-Silk.

08.07.2021 - 18:56

country flag Anna Arrigoni wrote:

Buongiorno, si può realizzare il maglione con i ferri classici?

14.03.2021 - 18:20

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, il maglione è lavorato in tondo, ma se preferisce può lavorarlo con i ferri dritti in piano aggiungendo 1 maglia di vivagno a ogni lato per la cucitura. Buon lavoro!

14.03.2021 - 19:50

country flag Lone Beck wrote:

Goddag, Samtidig med at der tages 12-16-16-20-20-24 m ind jævnt fordelt = 76-76-80-80-84-84 m. HUSK PÅ STRIKKEFASTHEDEN! Fortsæt i glatstrik - Samtidig med at der på næste omg tages 8-8-16-24-36-40 m ud jævnt fordelt = 84-84-96-104-120-124 m Hvorfor skal der tages ind på omgangen, når man allerede på næste omgang skal tage ud igen? Venlig hilsen Lone Beck

27.01.2021 - 12:16

country flag Carole wrote:

I don't understand the increases on the sleeve caps. It says to do “2 sts inc. on each sleeve” by “inc 1 st every other round” 19 times. .?? Alternate one edge of the sleeve then the other edge of the sleeve? So 76rows with 1 st increase per sleeve every other row?

13.06.2020 - 00:06

DROPS Design answered:

Dear Carole, the raglan increases on body and sleeves will not be worked all at the same time/rythmus, ie on body you increase 2 sts 2 times every 2 round (= 4 rounds) and 1 stitch 17times on every 2 rounds (= 34 rounds) - on sleeve you increase on every 2 rounds a total of 19 times (= 38 rounds). On some round you will increase 12 sts (4 sts on front/back piece + 2 sts on each sleeve)), or 8 sts (2 sts on each piece). Happy knitting!

15.06.2020 - 08:15

country flag Patricia wrote:

Hi again, Another question...in the raglan body...if my size is , for example M. The first I have to inc 2 sts every other round 4 times in total. "In total" means 4 rounds ( 1 normal, 1 inc, 1 normal, 1 inc); or 4 rounds where you do the inc??

18.03.2020 - 15:28

DROPS Design answered:

Dear Patricia, when you read in a pattern that you shoud do something "in total" a given number of times, it always means that thenumber includes the first time you did it (this time the first increases included. So you increase in one round, knit three rounds without increase, you increase in one round, knit three rounds without increase, you increase in one round, knit three rounds without increase, you increase in one round, knit three rounds without increase. Happy Knitting!

22.03.2020 - 11:28

country flag Patricia wrote:

Hi, I already put the markers, and now...DoI have to do first all the inc from the raglan body?and when I finish I should start with the raglan sleeve inc?? Thanks in advance

17.03.2020 - 14:43

DROPS Design answered:

Dear Patricia, you will increase for the body and for sleeves at the same time but maybe not always on same rounds - see increases for your size. This means you might have to increase only 12 sts (= 4 sts on front piece + 4 sts on back piece + 2 sts on each sleeve) or 8 sts (= 2 sts on each piece front/back piece and sleeves). Happy knitting!

17.03.2020 - 15:07

country flag Simone Moosmayr wrote:

Wieso wird bei diesem Modell am Anfang am Raglan erst abgenommen u. in der nächsten Reihe wieder zugenommen?

20.08.2019 - 18:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Moosmayr, es wird hier zuerst nach der Halsblende abgenommen und dann zugenommen um den Hals zu betonen. Viel Spaß beim stricken!

21.08.2019 - 08:18

country flag Michelle Poirier wrote:

J’aimerais tricoter ce modèle mais je me demande où est utilisé la Drops Kid-silk demandée. J’ai lu les instructions mais je ne trouve pas.

15.06.2019 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Poirier, on commence les côtes du col avec 2 fils BabyAlpaca Silk et on continue avec 1 fil de chaque qualité = 1 fil BabyAlpacaSilk + 1 fil Kid-Silk. On tricote ensuite les côtes du bas du pull (et du bas des manches) de nouveau avec 2 fils BabyAlpaca Silk. Bon tricot!

24.06.2019 - 14:09

country flag Kathy wrote:

For the finished size of jumper is the diagram numbers in cm or inches

15.12.2018 - 00:35

DROPS Design answered:

Hi Kathy, If you are following an American pattern, the measurements are in inches. If you are following a European pattern they are in cm. Happy knitting!

15.12.2018 - 13:01