DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1892.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 27-11
DROPS Design: Mynstur nr cm-009-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 - 24 mán
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92
Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
100-150-150-200 g nr 18, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít) NR 521: 2 st í allar stærðir
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1892.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

ÚRTAKA-1:
Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki og fækkið l þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 l á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
----------------------------------------------------------

GALLI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum neðan frá og upp eftir opi fyrir fætur. Síðan er stykkið prjónað í hring áður en það skiptist aftur upp í mitti og framstykki er prjónað til loka fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18-20 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino og prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok hverrar umf alls 9-9-9-10 sinnum í hvorri hlið = 50-52-54-60 l á prjóni og stykkið mælist ca 6-6-6-7 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 14-16-18-20 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino og prjónið sléttprjón fram og til baka í 5-5-5-6 cm.
STÆRÐ 1/3 mán - 6/9 mán - 12/18 mán: Fitjið upp 6 nýjar l í lok hverrar umf alls 3 sinnum í hvorri hlið.
STÆRÐ 24 mán: Fitjið upp 6 nýjar l í hvorri hlið í lok hverrar umf 2 sinnum, síðan 8 nýjar l í hvorri hlið 1 sinni = 50-52-54-60 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-7-8 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið l af fram- og bakstykki á sama hringprjón = 100-104-108-120 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 50-52-54-60 l á milli prjónamerkja) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn – byrjun umf = hlið.
Þegar stykkið mælist 2-3-5-7 cm fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 84-88-92-104 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 10-11-14-16 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 17-18-21-24 cm frá uppfitjunarkanti) prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið sl eins og áður yfir fyrstu 42-44-46-52 l, þ.e.a.s. fram að 2. prjónamerki (= framstykki – ATH: Ekki er prjónuð upphækkun yfir þessar l), prjónið sl þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í byrjun umf, snúið stykkinu við og prjónið br til baka þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu við. Prjónið sl þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu við og prjónið br til baka þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu við. Prjónið sl þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu við og prjónið br til baka þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerkinu á hinni hliðinni. Snúið stykkinu við og prjónið sl til baka að byrjun umf (= hlið).
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 80-88-96-104 l – ATH: Til að koma í veg fyrir göt í hvert sinn sem snúið er við þá er lykkjan tekin upp á milli 2 l og hún prjónuð snúin slétt saman með næstu l á prjóni.
Prjónið síðan stroff hringinn þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið með 2 l br og 1 l sl. Þegar stroffið mælist 1½ cm prjónið gatakant þannig: 1 l sl, * 2 l br saman, sláið uppá prjóninn, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið með 2 l br saman, sláið uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir þar til stroffið mælist 3 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 40-44-48-52 l (= framstykki), fellið LAUST af næstu 40-44-48-52 l með sl yfir sl og br yfir br (= bakstykki).

FRAMSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fyrstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 34-38-42-46 l sléttprjón, 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram fram og til baka. JAFNFRAMT eftir 1-0-0-1 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í 2.-4.-6.-6. hverri umf alls 7-7-6-6 sinnum = 26-30-36-40 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 7-9-11-12 cm frá prjónamerki – passið að næsta umf sé frá réttu, prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 l sl og setjið þessar l á þráð fyrir axlaband, fellið af næstu 10-14-20-24 l og prjónið sl yfir síðustu 8 l (= axlaband).

AXLABAND:
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til axlabandið mælist ca 18-24 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af og endurtakið alveg eins í hinni hliðinni.

FRÁGANGUR:

STROFF KANTUR:
Prjónið upp frá réttu ca 50 til 58 l meðfram annarri skálminni á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 58-62-66-70 l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar kanturinn mælist 2-4 cm fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.
Endurtakið með hinni skálminni.

Saumið saman op á milli skálma innan við 1 kantlykkju – þ.e.a.s. saumið saman annan stroff kantinn, síðan er saumað saman í klofi og að lokum hinn stroff kantinn.

Saumið eina tölu neðst niðri á hvoru axlabandi. Tölunum er hneppt í gegnum götin í gataumferð á stroffi.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina í stroffi í mitt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

The Little Lumberjack

Věra, Czech Republic

Lumberjack Ethan

Laily, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Uschi wrote:

Hallo, warum passen das Titelbild und die technische Zeichnung nicht zusammen ? Ersteres zeigt deutlich Beine , letztere ist ein Body ohne Beine...? Danke für die Antworten Uschi

22.07.2019 - 10:13

DROPS Design answered:

Liebe Uschi, die Zeichnung soll schematisch verdeutlichen, wie hoch die Beinöffnung ist, es ergibt sich aber dadurch kein hoch ausgeschnittener Body. Die Beine, die Sie auf dem Foto sehen, ergeben sich aus der Art, wie zugenommen wird. Zuletzt wird ja noch das Rippenmuster um die Beinöffnungen gestrickt, was in der Zeichnung nicht enthalten ist. Gutes Gelingen und viel Spaß beim Stricken!

22.07.2019 - 23:19

country flag Lisa wrote:

Fikk også som mange andre annerledes bein enn ønsket. Synes allikevel det ser bra ut! Laget ekstra lang vrangbord:) det er dessverre en veldig irriterende feil i oppskriften som jeg er veldig lei meg for at jeg ikke oppdaget før etterpå. Stusset på at det var litt liten rillekant øverst på sidene av forstykket men fulgte oppskriften. Det er jo nødt til å skulle være 8 kantmasker .. så forstykket krøller seg og ser ikke riktig ut. Men alt i alt fin bukse!:)

28.04.2018 - 08:55

country flag Christiane wrote:

Hallo meine Lieben, Ich versteh leider nicht wie die Beine an den "Trägerbody" kommen, die Hosenbeine bestehen ja nicht nur aus dem Rippenmusterrand, oder? Danke für die schöne Anleitung

02.04.2018 - 22:09

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, am Anfang stricken Sie Rücken und Vorderteil (siehe Skizze), dann wird es Bündchen an der beiden Beinöffnungen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

03.04.2018 - 09:52

country flag Caty wrote:

Se corresponde la foto del peto con el patrón en si ? es que estoy empezando a tejerlo y me da la sensación que las piernas del peto no son para nada tan largas como en la foto. Gracias

26.02.2018 - 09:45

DROPS Design answered:

Hola Caty. La foto corresponde al patrón. La largura de las piernas de peto puede ser engañoso debido a cómo está puesto el peto, pero en realidad son bastante cortas.

04.03.2018 - 17:41

country flag Mariana wrote:

Wie kann ich dieses Strickmuster vergrößern? Ich hätte es gern für 98/104? Liebe Grüße Mariana

22.02.2018 - 21:23

DROPS Design answered:

Liebe Mariana, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuelle Anfrage anpassen. Gerne bekommen Sie Hilfe von Ihrem DROPS Laden oder Strickforum. Viel Spaß beim stricken!

23.02.2018 - 09:03

country flag Therese wrote:

Bildet i oppskriften samsvarer ikke med selve oppskriften. På bildet er det shorts-ben, mens i oppskrifta blir det mer som en romper. Dette er kjedelig for de som ønsker å strikke "snekkerbuksen" som er på bildet.

22.02.2017 - 08:16

country flag Silje Finsrud wrote:

Hei. Sitter å strikker denne nydelige lekedressen nå. Men lurer på en ting, på bilde Er det shortsben på dressen, men i oppskriften er det rett fra truse til vrangbord. Har jeg misforstått noe?

29.01.2017 - 10:51

DROPS Design answered:

Hej Silje. Du gaar direkte til vrangbord efter du har delt op.

30.01.2017 - 16:04

country flag ALLAIN Cindy wrote:

Hoooo troop mignon !!! j'adore ! une fois mon pull fini je me lance dans la réalisation de cette combinaison !

02.09.2016 - 14:55