DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Warmhearted

Prjónaður galli, prjónaður ofan frá og niður með norrænu mynstri og hringlaga berustykki úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 1-6 ára

DROPS Children 27-2
DROPS Design: Mynstur nr me-027-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 12/18 mán - 2 - 3/4 - 5/6 ára
Stærð í cm: 80/86 - 92 - 98/104 - 110/116
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
300-300-350-400 g nr 17, kirsuberjarauður
50-50-100-100 g nr 11, rauður
50-50-50-50 g nr 01, natur
50-50-50-50 g nr 08, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykki verði rétt þá er mikilvægt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA (rauð), NR 605: 6-6-7-7 st.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8316.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við kant að framan):
Í þeim umf þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur þá er prjónað í þeim lit í rönd eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, en skiptið um enda á milli kants að framan og fram- og bakstykkis (þetta er gert til að sleppa við að festa enda yst á kanti að framan).

ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fella af/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 84 l), mínus kant að framan (t.d. 10 l) og deilið þeim l sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,6. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er l fækkað með því að prjóna til skiptis ca í 9. og 10. hverja l og í 10. og 11. hverja l saman eða auka út til skiptis eftir ca í 10. og 11. hverja l með því að slá uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf svo að ekki myndist gat – ATH: Ekki er úrtaka/útaukning yfir kant að framan).

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um miðju undir ermi og innanverðu á skálm):
Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman, sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1½-2 cm í kanti á hálsmáli, síðan er fellt af fyrir næstu 5-5-6-6 hnappagötum með 7½-8-7½-8 cm millibili.
----------------------------------------------------------

HEILGALLI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Svo að auðveldara sé að stjórna lengd á ermum og skálmum er gallinn prjónaður ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á stutta hringprjóna nr 3 með rauður. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið með 2 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umf frá réttu (= kantur í hálsi). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem fækkað er um 7-5-4-1 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 l.
Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig:
Prjónið sl þar til 12-13-14-15 l eru eftir á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið br þar til 12-13-14-15 l eru eftir í hinni hliðinni.
Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl þar til 20-22-24-26 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið br þar til 20-22-24-26 l eru eftir í hinni hliðinni.
Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl þar til 28-31-34-37 l eru eftir á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið br, þar til 28-31-34-37 l eru eftir í hinni hliðinni.
Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf, prjónið síðan 1 umf br frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni).
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 6 l eru eftir á prjóni – ATH: Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar 6-6-7-7 l), prjónið fyrstu l í A.1 (svo að mynstrið byrji og endi eins innan við kant að framan í hvorri hlið – ATH: Ekki er aukið út í þessum l) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 l á prjóni. Prjónið síðan 0-1-0-1 cm með kirsuberjarauður. Stykkið mælist nú ca 13-14-15-16 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi). Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni með kirsuberjarauður. Í fyrstu umf frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 194-210-230-246 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 29-31-34-36 l eins og áður, setjið næstu 42-46-50-54 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 l (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l á prjóninn og prjónið 29-31-34-36 l sem eftir eru eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 122-130-142-150 l. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-39 l inn frá hvorri hlið (= 58-62-68-72 l á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm er aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm = 130-138-150-158 l. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá handvegi endar kantur við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 l í byrjun 2 næstu umf = 124-132-144-152 l eftir á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar l í ca 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handveg og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi). Nú skiptist stykkið upp í skálmar.

SKÁLM:
Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 l (hinar 62-66-72-76 l sem eru eftir eru geymdar á hringprjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= innan á skálm). Þegar skálmin mælist 2 cm frá skiptingunni er fækkað um 2 l innan á skálminni – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 2 l færri). Fækkið svona í 3.-4.-6.-7. hverri umf alls 10-10-11-11 sinnum = 42-46-50-54 l. Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 10 l jafnt yfir = 52-56-60-64 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 8-8-10-10 cm (eða að óskaðri lengd). Í næstu umf eru auknar út allar 2 l br til 3 l br = 65-70-75-80 l. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Setjið l frá hringprjóni yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið hina skálmina alveg eins.
Allur gallinn mælist ca 66-74-88-98 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi).

ERMI:
Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 l í hverja og eina af 6 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 l = miðja undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með kirsuberjarauður. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm fækkið um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið l í 3.-3.-4.-4. hverri umf alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 l. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-8 l jafnt yfir = 40-40-44-44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 8-8-10-10 cm (eða óskaða lengd). Í næstu umf eru allar 2 l br auknar út til 3 l br = 50-50-55-55 l. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant og saumið niður neðst með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1

Mynstur

symbols = rauður
symbols = ljós beige
symbols = natur
symbols = kirsuberjarauður
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l í grunnlit í mynsturrönd, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet winter

Marta i Karolina, Poland

Warmhearted

Ella, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Lena Ericsson wrote:

Hej, Det finns ett fel i diagrammet för den större storleken 3/4 + 5/6 år. Det saknas en markering, svart plupp för röd på varv 26 längst till vänster ovanför föregående varvs plupp. Mvh Lena

23.02.2022 - 20:59

country flag Rosannagh Duffin wrote:

Can this be made as a Cardigan (without the legs) and at what point would it stop for size 3/4? Or do you have this as a pattern already?

07.11.2021 - 15:12

DROPS Design answered:

Dear Rosannagh, yes, this can be worked as a Cardigan, the total approx. length would be 40 cm for size 3/4. Don't forget to work the last few cm in length in rib. Happy knitting!

07.11.2021 - 17:35

country flag Karen wrote:

En la sección de la elevación de la espalda cuando dice hasta que resten 14 puntos se incluyen los 5 en punto musgo?

05.12.2020 - 20:16

DROPS Design answered:

Hola Karen, sí, se incluyen los 5 puntos en punto musgo; es decir, es hasta que queden 14 puntos en total.

06.12.2020 - 16:45

country flag Tine wrote:

Hallo, leider komme ich mit den Farbwechseln nach der Blende nicht klar. Es sind ja nicht von jeder Farbe 2 Reihen, so dass die Blenden dann ja unterschiedlich aussehen. Ist das beabsichtigt oder habe ich einen Denkfehler?

29.07.2018 - 22:19

DROPS Design answered:

Liebe Tine, die Blenden sind immer mit der Farben den Strifen oder Musterborten gestrickt - siehe STRICKTIPP. Viel Spaß beim stricken!

31.07.2018 - 09:28

country flag Martine wrote:

Stemmer antall oppleggsmasker?

04.08.2017 - 11:27

DROPS Design answered:

Hei Martine. Ja, det stemmer. Er det noen grunn for at du mener noe annet?

07.08.2017 - 13:50

country flag Renata wrote:

Opis do zrobienia kombinezonu jest nie zrozumialy i zagmatwany. Prosze o przeslanie prostszego i prawidlowego opisu. Dzieki

03.12.2016 - 19:50

country flag Helene Paulsen wrote:

Hei. Holder på å strikke denne heldressen. Jeg kunne godt tenke meg at oppskriften hadde presisert hvor mange masker jeg skal ha på pinnen etter hver økning. Syns det er vanskelig å følge med på om jeg har øket helt riktig.

23.09.2016 - 13:57

country flag Liisa Virtanen wrote:

Hei, en onnistunut tulostamaan kuviomallin piirrosta. Tekstit tulostuvat mutta kuviomalli ei. Missä vika? Minussa, tulostimessa vai jossain muuallla? Vastauksesta kiittäen Liisa

04.09.2016 - 14:14

DROPS Design answered:

Hei! Piirroksen tulisi tulostua. Olethan tarkistanut, että tulostin on säädetty tulostamaan kaikkia sivuja?

19.09.2016 - 13:34