DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stonehenge

Prjónuð peysa með klaufum í hlið úr DROPS Cotton Merino með laskalínu og berustykki með rönguna út, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-40
DROPS Design: Mynstur nr cm-053.
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
350-400-450-500-500-550 g nr 18, milligrár
100-150-150-150-150-200 g nr 20, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 3,5 fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LASKALÍNA:
ATH! Allir uppslættir eru prjónaðir br í næstu umf svo það myndist gat!
Aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki þannig:
Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri).
Á undan prjónamerki: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br.
Aukið út um 2 l á eftir/á undan prjónamerki þannig:
Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 2 l br í næstu l (= 1 l fleiri).
Á undan prjónamerki: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, 2 l br í næstu l (= 1 l fleiri), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br.
Þegar aukið er út í 4. hverri umf er áfram prjónuð göt í annarri hverri umf, en götin eru prjónuð án þess að aukið sé út, þ.e.a.s. prjónað er þannig:
Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir.
Á undan prjónamerki: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br.

ÚTAUKNING (á við um útaukningar á hliðum á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið l mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Fyrst er prjónað brugðið, síðan er prjónað í sléttprjóni.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 104-108-112-118-122-128 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum milligrár. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í litinn ljós grár og hringprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf br þar sem aukið er út um 20-20-24-22-22-24 l jafnt yfir = 124-128-136-140-144-152 l. Í næstu umf er prjónað brugðið og 4 prjónamerki sett í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, prjónið fyrstu 50-52-56-54-56-60 l (= bakstykki), setjið næsta prjónamerki, prjónið næstu 12-12-12-16-16-16 l, setjið næsta prjónamerki (= ermi), prjónið næstu 50-52-56-54-56-60 l (= framstykki), setjið síðasta, prjónamerkið, prjónið 12-12-12-16-16-16 l sem eftir eru (= ermi). Haldið síðan áfram með br.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu. ATH: Misjafnt er aukið út fyrir ermar og fram- og bakstykki – LESIÐ LASKALÍNA!
Aukið út þannig:
FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf alls 8-12-12-23-28-32 sinnum, síðan er aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í 4. hverri umf alls 7-6-7-2-1-0 sinnum.
ERMAR: Aukið út um 2 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf alls 2-4-5-4-2-1 sinnum. Aukið síðan út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf alls 16-16-17-19-24-27 sinnum og 1 l á eftir/á undan prjónamerki í 4. hverri umf alls 2 sinnum í öllum stærðum.
JAFNFRAMT – þegar stykkið mælist 19-21-21-22-23-23 cm (frá uppfitjunarkanti), skiptið yfir í milligrátt og prjónið síðan áfram með sléttprjóni – ATH: Þær 2 l í laskalínu (1 l hvoru megin við hvert prjónamerki) halda áfram í br, hinar l (og uppslátturinn) eru prjónaðar slétt.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Eftir alla útaukningu eru 272-304-328-356-380-404 l í umf. Stykkið mælist ca 22-24-25-27-29-31 cm frá öxl (19-21-22-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti). Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 80-88-94-104-114-124 l (= bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýrra lykkja), prjónið næstu 80-88-94-104-114-124 l (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýrra lykkja). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-208-228-252-276 l. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er aukið út í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3-3½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 204-220-236-256-280-304 l. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-21-21 cm prjónið þannig: Prjónið fyrstu 102-110-118-128-140-152 l (= bakstykki) og setjið þær á þráð, prjónið þær 102-110-118-128-140-152 l sem eftir eru (= framstykki).

FRAMSTYKKI:
= 102-110-118-128-140-152 l. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjóna. Fyrsta umf er prjónuð frá röngu: 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm. Skiptið yfir í ljós grár og hringprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
= 102-110-118-128-140-152 l. Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring.
Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 4,5 og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi = 64-72-80-84-88-92 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra l undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjóna/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-16-19-20-21-22 sinnum = 38-40-42-44-46-48 l. Þegar stykkið mælist 39-38-37-36-35-33 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir í litinn ljós grár og sokkaprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Charlotte wrote:

Wie Teresa schon vor einigen Jahren, stolpere auch ich über die Angabe"Die Arbeit hat eine Gesamt länge von ca 22-24-... ab der Schulter (19-21-... ab dem Anschlagrand)." Wie kann die Länge ab Anschlagrand kürzer sein?

17.05.2020 - 23:06

DROPS Design answered:

Liebe Charlotte, wegen Schulter wird die Arbeit länger wenn sie flach liegt als wenn sie von der Anschlagskante gemessen wird - siehe auch Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

18.05.2020 - 08:43

country flag Birgitta Lööf wrote:

Hej! I rubriken står det att oket är med avigsidan ut. På bilden ser det också ut som att ok och ”kropp” är olika struktur. Men det står att allt ska var rätstickning - det ser inte randigt ur på det sätt som rätstickning brukar se ut. Förstår inte riktigt...? Är möjligen bild och mönster inte överensstämmande vad gäller detta? Ser ut som avigstickat (eller rätstickat) ok och slätstickad kropp. Tacksam för svar :-)

28.04.2020 - 00:46

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, Jo du börjar oket med 6 v rätstickning, sedan stickas det med avigsidan ut. Lycka till :)

28.04.2020 - 15:20

country flag Laura Kruus wrote:

Voisiko tähän malliin tehdä niskaan korotuksen?

13.01.2019 - 06:15

country flag Francien wrote:

Beste Drops, Hartelijk dank voor het snelle antwoord! Klopt het dat dan deze zin in het patroon moet worden aangepast: ‘Ga verder met lichtgrijs en rondbreinld 4,5 mm en brei 1 nld av en meerder 20-20-24-22-22-24 st gelijkmatig‘ ipv av moet daar dan recht staan toch?

01.01.2019 - 19:29

DROPS Design answered:

Dag Francien,

Dat klopt inderdaad, ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling, maar het kan zijn dat dit effect bij het ontwerp hoort.

01.01.2019 - 19:40

country flag Fran wrote:

Beste Drops, Bedankt voor het antwoord, ik begrijp het. Ik snap in het eerste stukje nog niet hoe de ribbels in grijs netjes overlopen in lichtgrijs. Als ik namelijk de eerste pen na de ribbels in av doe, krijg je een lelijke kleurwisseling omdat de helft van de ribbel grijs is en de andere helft lichtgrijs. Dat zie ik niet op de afbeelding. Is het de bedoeling eerst nog een naald recht te doen om dit te voorkomen? Zo ja, in welke naald moet dan gemeerderd worden? Alvast dank.

30.12.2018 - 13:06

DROPS Design answered:

Dag Fran,

De eerste pen na de ribbels en dus de eerste pen in medium grijs, brei je recht, op die manier krijg je een mooie overgang.

01.01.2019 - 19:07

Evelyn wrote:

Thank you for your reply. I can understand that part but after the first round (body) increase of sleeve and body, I get 128+12 stitches for size M, is that correct?

21.12.2018 - 09:39

DROPS Design answered:

Dear Evelyn, the increase for raglan are then different on body and on sleeves, on body you increase 1 stitch at the beg of front/back piece + 1 st at the end of front/back piece 12 times every 2nd round + 6 times every 4th round while on sleeve you will increase 2 sts at the beg of sleeve + 2 sts at the end of sleeve 4 times every 2nd round then only 1 st at the beg + end of sleeve 16 times every 2nd round then 2 times every 4th round. ie when inc on body (2 sts) and sleeves (4 sts) you should have 12 more sts after 1st inc round. Happy knitting!

21.12.2018 - 13:26

Evelyn wrote:

Hi, for the first round of increase for the body and sleeves, how many stitches in total have been added? I am a bit confused as I am a new knitter. Many thanks

21.12.2018 - 05:39

DROPS Design answered:

Dear Evelyn, jumper is worked top down from neck. Choose your size and follow the indications to this size (ex. 1st size = 1st number, 2nd size = 2nd number and so on). So that after the ridges on yoke you will inc 20 sts in size S and M, 24 sts in size L and XXXL and 22 sts in size XL and XXL. Happy knitting!

21.12.2018 - 08:10

country flag Francien wrote:

Beste Drops, In de benodigdheden staat rondbreinaald én gewone naald zonder knop, zijn deze beide nodig of is het ook mogelijk alles op de rondbreinaald te doen? Ik zie in het patroon nog niet zo duidelijk waarvoor de gewone naald gebruikt wordt. Alvast hartelijk dank.

16.12.2018 - 19:47

DROPS Design answered:

Dag Francien,

De naalden zonder knop worden gebruikt voor de mouw, maar als daar handig in bent kun je ook de magic loop gebruiken, zodat je alleen rondbreinaalden nodig hebt. Zie deze video

17.12.2018 - 22:43

country flag Martine Lavoie wrote:

Bonjour, Je suis bloqué quand on augmente tous les 4 rangs et que nous continuons à faire des jours tous les 2 tours sans augmenter. Je ne sais pas comment le faire .. Pouvez-vous me donner plus d\'explication car j\'ai encore des tours au 2 tours pour les manches. Merci de me répondre.

04.07.2018 - 19:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lavoie, les augmentations du raglan se font à un rythme différent sur le dos/le devant et sur les manches, ainsi vous allez augmenter soit 8 mailles (= 2 m sur chaque manche, 2 sur le devant et 2 sur le dos) ou seulement 4 mailles (2 m par manche ou 2 m sur le dos + 2 m sur le devant). Pour les tours sans augmentations, augmentez comme indiqué sous "RAGLAN": Quand on augmente tous les 4 rangs... Bon tricot!

05.07.2018 - 07:33

country flag Saskia wrote:

Heerlijk zacht garen. Heb de trui in blauw met rose gebreid. Het ribbel randje aan de onderzijde was een ramp. Bleef maar omkrullen naar buiten. Heb die uiteindelijk weer afgehaald en een gewoon een boordsteek gebreid. Dan is het van boven naar onderbreien wel handig.

11.06.2018 - 10:21