DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bridget Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk, prjónuð ofan frá og niður með áferðamynstri, V-hálsmáli og A-formi. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-3
DROPS Design: Mynstur nr z-766
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 g nr 9021, þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-200-200 g nr 07, ljós gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4-4-4-4-5-5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð á eftir/á undan prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-2:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

LEIÐBEININGAR:
Vegna formsins á flíkinni þá kemur peysan til með að vera lengri á hliðum en fyrir miðju að framan/að aftan. Til að koma í veg fyrir þetta þá eru prjónaðar stuttar umferðir yfir miðju stykkið þannig:
HÆGRA FRAMSTYKKI:
* Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá röngu fram að A.1, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá réttu eins og áður út umf *.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
* Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá réttu eins og áður fram að A.1, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá röngu eins og áður út umf *.
BAKSTYKKI:
* Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður fram að A.2, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá röngu fram að A.1, snúið við, herðið á þræði og prjónið frá réttu eins og áður út umf *.
ÖLL STYKKI: Endurtakið frá *-* ca í 7. hverjum cm.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir hnappagötum í lok umf frá réttu þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og prjónið síðustu l slétt. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaður hefur verið 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af næstu 3-3-3-3-4-4 hnappagötum með ca 8-8-8-7-7-7 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Byrjið á hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð), prjónið síðan vinstri öxl áður en fitjaðar eru upp l fyrir hálsmáli og síðan er prjónað yfir allar l – LESIÐ LEIÐBEININGAR!

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-18-18-19-19-20 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), 2 l br, aukið út um 1 l í hverja af 3 næstu l (prjónið 2 l í sömu l), 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 20-21-21-22-22-23 l á prjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, br yfir br og sl yfir sl. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 14 l, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 2 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú byrjar útaukning fyrir hálsmáli og fitjuð er upp 1 ný l í lok fyrstu umf frá röngu (útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 21-22-22-23-23-24 l. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl.

VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 17-18-18-19-19-20 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, aukið út um 1 l í hverja af 3 næstu l (prjónið 2 l í sömu l), 2 l br og 2 kantlykkjur í garðaprjóni við hálsmál = 20-21-21-22-22-23 l í umf. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 14 l og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til mynstrið mælist 2 cm. Nú byrjar útaukning fyrir hálsmáli og fitjaðar eru upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 1 sinni og síðan 26-26-28-28-30-30 l 1 sinni (útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni) = 47-48-50-51-53-54 l. Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman að bakstykki.

BAKSTYKKI:
Haldið eftir l á vinstri öxl á prjóninum og haldið síðan áfram með mynstur frá réttu yfir l frá hægri öxl = 68-70-72-74-76-78 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið br fram að A.2, haldið áfram með A.2 (= 14 l), prjónið sl yfir l á milli A.2 og A.1, haldið áfram með A.1 (= 14 l), prjónið br þar til eftir eru 3 l á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að A.1, haldið áfram með A.1, prjónið A.3 yfir l á milli A.1 og A.2, haldið áfram með A.2, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 3 l á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki í 1 l á undan A.1 (séð frá réttu) og 1 prjónamerki á eftir A.1 (= 15 l á milli prjónamerkja), að auki er sett 1 prjónamerki á undan A.2 og 1 prjónamerki á eftir A.2 (= 15 l á milli prjónamerkja). Nú byrjar tilfærsla á köðlum að miðju að aftan frá réttu þannig:

TILFÆRSLA Á A.1/A.2:
Aukið út um 1 l á undan A.1 og fækkið um 1 l á eftir A.1 að auki er fækkað um 1 l á undan A.2 og aukið út um 1 l á eftir A.2 – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA-1. Aukið út og fækkið l svona í 4.-6.-6.-8.-10. hverri umf alls 8-7-7-6-6-6 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-17-16-14-12 cm aukið út fyrir handveg í hvorri hlið þannig (frá réttu): Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.
Aukið svona út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 2-3-5-7-10-13 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-8 nýjar l í lok 2 næstu umf fyrir handveg = 78-84-92-100-110-120 l í umf.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með mynstur eins áður, en prjónið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). ATH: Í stærð XXL + XXXL halda tilfærslurnar áfram í A.1/A.2 eins og áður (í stærð S + M + L + XL er tilfærsla á lykkjum lokið ef prjónfestan hefur haldist á hæðina).

Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 l í hvorri hlið heldur mynstrið áfram eins og áður, en með 2-2-2-3-3-3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið til loka.
Þegar tilfærslan hefur verið gerð til loka í öllum stærðum eru 16-18-20-22-24-24 l mynstri eftir mynsturteikningu A.3 við miðju að aftan og 15-17-20-22-26-31 l sléttprjón innan við 2-2-2-3-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið síðan án tilfærslu þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá öxl (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu).
Nú byrjar útaukning í hliðum JAFNFRAMT þar sem kaðlarnir færast til að hliðum þannig:
ÚTAUKNING Í HLIÐUM:
Aukið út um 1 l innan við síðustu 5-5-5-6-6-6 l í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppáprjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. Aukið svona í 8. hverri umf alls 10 sinnum í hvorri hlið (eða að óskaðri lengd – ATH: Öll útaukning er gerð frá réttu).

TILFÆRSLA Í A.1/A.2:
Fækkið um 1 l á undan A.1 og aukið út um 1 l á eftir A.1, aukið út um 1 l á undan A.2 og fækkið um 1 l á eftir A.2 (útauknar l inn að miðju eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3 þannig að miðju einingin með A.3 verður nú stærri og stærri).
Fækkið l og aukið út svona í 8. hverri umf til loka.

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu) = ca 98-104-112-120-130-140 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l – JAFNFRAMT í fyrstu umf er l fækkað yfir hvorn kaðal með því að prjóna l í báðum köðlunum saman tvær og tvær (= 6 l færri) = ca 92-98-106-114-124-134 l. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 5 og fellið af (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur).

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið með einn kant með garðaprjóni sem síðar er saumaður við hálsmál aftan í hnakka. Fitjið upp 5 l á prjóna nr 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir) og prjónið garðaprjón fram og til baka í 9-9-10-10-11-11 cm, endið eftir 1 umf slétt frá röngu og látið lykkjurnar hvíla á prjóninum.

HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 17-18-18-19-19-20 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þráð Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, aukið út um 1 l í hverja af 3 næstu l, 2 l br, 2 l mynstur eftir A.3 og prjónið síðan 5 l garðaprjón frá kanti í garðaprjóni sem prjónaður var fyrst = 25-26-26-27-27-28 l á prjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón br yfir br og sl yfir sl. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.1 yfir næstu 14 l, haldið áfram með A.3 yfir næstu 2 l og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við hálsmál. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki 1 l á undan A.2 (séð frá réttu) og 1 prjónamerki á eftir A.1 (= 15 l á milli prjónamerkja). Nú byrjar tilfærslan á kaðli við miðju að framan JAFNFRAMT er aukið út til v-hálsmáls innan við 5 kantlykkjur við miðju að framan:

TILFÆRSLA Á A.1:
Aukið út um 1 l á undan A.1 og fækkið um 1 l á eftir A.1 – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA-1. Aukið út og fækkið l svona í 4.-6.-6.-8.-10.-10. hverri umf alls 8-7-7-6-6-6 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
V-HÁLSMÁL: Jafnframt í 1. umf frá réttu byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli og aukið er út um 1 l innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar l eru prjónaðar jafnóðum inni í A.3). Aukið svona út í 4. hverri umf alls 2-2-3-5-6-8 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 12-12-12-10-10-8 sinnum. ATH: Eftir síðustu útaukningu við miðju að framan eru prjónaðar 2 umf garðaprjón fram og til baka einungis yfir 5 kantlykkjur að framan (aðrar l eru ekki prjónaðar). Prjónið síðan eins og áður yfir allar l aftur (þetta er gert til að kanturinn að framan leggist vel). MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan.
HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 17-17-17-16-14-12 cm aukið síðan út fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út þannig: Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umf alls 2-3-5-7-10-13 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-8 nýjar l í lok umf frá röngu.
Eftir alla útaukningu fyrir v-hálsmáli og ermum eru 44-47-51-55-60-65 l í umf.
LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með mynstur eins og áður, en prjónið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 l í hlið við handveg (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). ATH: Í stærð XXL + XXXL heldur tilfærslan áfram í A.1/A.2 eins og áður (í stærð S + M + L + XL hefur tilfærsla á lykkjum verið gerð til loka ef prjónfestan hefur haldist á hæðina).
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6-7-8-9-10-11 l á hlið heldur mynstrið áfram eins og áður, en með 2-2-2-3-3-3 kantlykkjum í garðaprjóni til loka.
Þegar tilfærsla á lykkjum hefur verið gerð til loka í öllum stærðum eru 8-9-10-11-12-12 l mynstur eftir mynsturteikningu A.3 innan við kant við miðju að framan og 15-17-20-22-26-31 l sléttprjón innan við 2-2-2-3-3-3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið.
Prjónið áfram án tilfærslna á lykkjum þar til stykkið mælist 28-30-32-34-36-38 cm frá öxl (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu).
Nú byrjar útaukning á hlið JAFNFRAMT þar sem kaðallinn færist til út að hlið þannig:

ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Aukið út um 1 l innan við síðustu 5-5-5-6-6-6 l í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. Aukið svona út í 8. hverri umf alls 10 sinnum (eða að óskuðu máli – ATH: Öll útaukning er gerð frá réttu).
TILFÆRSLA AF A.1/A.2:
Fækkið um 1 l á undan A.1 og aukið út um 1 l á eftir A.1 (útauknar l við miðju að framan eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3 þannig að miðju einingin með A.3 verður nú stærri og stærri).
Fækkið l og aukið svona út í 8. hverri umf til loka.

Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður (passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu) = ca 54-57-61-65-70-75 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l – JAFNFRAMT í fyrstu umf er l fækkað yfir kaðal með því að prjóna l í kaðli slétt saman tvær og tvær (= 3 l færri) = ca 51-54-58-62-67-72 l í umf. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 5 og fellið af. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 5 og fellið af (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Byrjið með kant með garðaprjóni eins og á hægra framstykki. Fitjið upp 5 l á prjóna nr 4 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 10-10-11-11-12-12 cm, endið eftir 1 umf slétt frá röngu, skiptið yfir á hringprjóna nr 5.

VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN:
Prjónið sl yfir 5 l garðaprjón frá kanti í hálsmáli og fitjið að auki upp 17-18-18-19-19-20 l á prjóninn
= 22-23-23-24-24-25 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l mynstur eftir mynsturteikningu A.3, 2 l br, aukið út um 1 l í hverja af 3 næstu l, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 25-26-26-27-27-28 l á prjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, br yfir br og sl yfir sl. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með A.3 yfir næstu 2 l, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 14 l, prjónið 1-2-2-3-3-4 l sléttprjón og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 4 cm. Setjið 1 prjónamerki á undan A.2 (séð frá réttu) og 1 prjónamerki 1 l á eftir A.1 (= 15 l á milli prjónamerkja). Nú byrjar tilfærslan á kaðli við miðju að framan JAFNFRAMT er aukið út fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur við miðju að framan:

TILFÆRSLA AF A.2:
Fækkið um 1 l á undan A.2 og aukið út um 1 l á eftir A.2 – LESIÐ ÚRTAKA og ÚTAUKNING-1. Aukið út og fækkið l svona í 4.-6.-6.-8.-10.-10. hverri umf alls 8-7-7-6-6-6 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni).
V-HÁLSMÁL: Jafnframt í 1. umf frá réttu byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli og aukið er út um 1 l innan við 5 kantlykkju að framan í garðaprjóni alveg eins og á hægra framstykki.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-17-17-16-14-12 cm byrjar útaukning fyrir handveg og afgangur af vinstra framstykki er prjónaður á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd (ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan).

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á stutta hringprjóna, ofan frá og niður þar til ermakúpa hefur verið prjónuð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna til loka.
Fitjið upp 24-24-26-24-24-24 l á stutta hringprjóna nr 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermakúpu í lok hverrar umf frá hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 l 1 sinni í öllum stærðum, 2 l 2-3-3-3-3-3 sinnum, 1 l 3-3-3-3-5-7 sinnum, 2 l 2-2-3-3-3-3 sinnum og 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum = 58-62-68-72-76-80 l í umf (stykkið mælist nú ca 8-9-10-11-13-15 cm). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón í hring. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fækkið l svona alls 12-13-15-17-18-19 sinnum í stærð S: Til skiptis í 5. og 6. hverri umf, í stærð M: Í 5. hverri umf, í stærð L: Í 4. hverri umf, í stærð XL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf, í stærð XXL: Í 3. hverri umf og í stærð XXXL: Til skiptis í 2. og 3. hverri umf= 34-36-38-38-40-42 l. Þegar stykkið mælist 31-30-30-29-28-26 cm frá prjónamerki (öll ermin mælist ca 39-39-40-40-41-41 cm og úrtöku á nú að vera lokið), prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 26-24-22-22-32-30 l jafnt yfir = 60-60-60-60-72-72 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4 í 15 cm (= 5-5-5-5-6-6 mynstureiningar 12 l). Prjónið 1 umf slétt þar sem l í hverjum kaðli eru prjónaðar saman tvær og tvær (= 15-15-15-15-18-18 l færri) = 45-45-45-45-54-54 l. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br. Ermin mælist ca 55-55-56-56-57-57 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkant. Saumið saman kantinn í garðaprjóni við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka með smáu, fíngerðu spori. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Leggið aðra ermina undir kant í garðaprjóni í handvegi og saumið niður með fínu spori (kantur í garðaprjóni á að liggja utan á ermi – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur). Saumið hina ermina í á sama hátt. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l slétt, steypið fyrstu l sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að hún liggi utan um 2 síðustu l sem voru prjónaðar (= 1 l færri)
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Ginette wrote:

For pattern 171-3 Bridget how much yarn in group c - Puna would I require to make this in the large size?

19.11.2020 - 17:09

DROPS Design answered:

Dear Ginette, DROPS Puna is yarn group B you cannot use to replace 2 strands yarn group A - you should use instead a yarn group C as Air for example - read more about alternatives here. Happy knitting!

20.11.2020 - 08:14

country flag Jorunn wrote:

Jeg finner ikke hvor jeg skal begynne med første knapphull

09.05.2020 - 11:30

DROPS Design answered:

Hei Jorunn, På toppen av oppskriften, under Instruksjoner og deretter under Knapphull, har du plassering for alle knapphull. God fornøyelse!

11.05.2020 - 07:20

country flag Simone wrote:

I'm not clear how the left and right Front pieces are attached - how is the 10cm section of garter stitch (5 stitches wide) stitched into the neckline? A diagram would help me!

17.12.2019 - 14:22

DROPS Design answered:

Dear Simone, the 10 cm garter stitch worked over the 5 stitches at the beg of front piece will be then sewn along neckline on back piece - could this video help you to visualize how it should be - the video is showing a bottom -up pattern ie ending with shawl collar while here you start with shawl collar. Happy knitting!

17.12.2019 - 15:08

country flag Perrot.isabelle wrote:

Bonjour, en tricotant ce (très joli) cardigan, j'ai du inverser A1 et A2 pour avoir les torsades près de la bordure (sur le devant)…. N'y aurait-il pas une erreur dans les explication? Il est en effet dit A1 pour le devant droit et A2 pour le devant gauche, ce qui place la diminution sur les trois mailles près de la bordure. Cordialement, Isabelle Perrot

10.02.2019 - 12:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Perrot, on tricote bien A.1 pour le devant droit et A.2 pour le devant gauche, vu sur l'endroit, on commence par la torsade ajourée pour terminer par la torsade sur 6 m et la bordure devant pour le devant droit, et, pour le devant gauche, vu sur l'endroit , après la bordure devant, on tricote d'abord la torsade puis la torsade ajourée de A.2. Bon tricot!

11.02.2019 - 09:55

country flag Nicole wrote:

Bjr.je tricote la 1ere taille et le cote droit.je suis arrivee apres les 4 cm .augmenter 1 m avant A1....je ne comprends pas le decalage

13.02.2018 - 23:43

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, en même temps que le décalage de A.2, on augmente pour l'encolure avant les 5 m point mousse de la bordure devant:: 2x tous les 4 rangs et 12x tous les 2 rangs. En même temps, vous décalez A.1 vers A.3 8 x tous les 4 rangs. Le nombre de mailles augmentant après A.1 vous pouvez ainsi décaler A.1 vers la gauche. Bon tricot

14.02.2018 - 09:10

country flag Genay wrote:

Merci pour votre reponse. J'ai bien compris la facon de faire les decalage mais je ne peux pas diminuer 8 fois 1 m apres A1 piusque je n'ai que 2 m. Je suis vraiment bloquee à cet endroit.

12.02.2018 - 19:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Genay, pouvez-vous préciser la taille tricotée et l'endroit exact où vous êtes arrivée? Ces informations peuvent être utile pour vous aider.

13.02.2018 - 08:40

country flag N8cole wrote:

Bonjour. Pour le côté droit comment diminuer 1 m. Après A1 8 fois au total puisqu'il n'y aura pas assez de mailles. Il n'y en a que 2.

24.01.2018 - 18:43

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, A.1 se tricote en début de rang sur l'endroit et on augmente 1 m avant A.1 (on diminue 1 m après A.1). Les diminutions et les augmentations sont expliquées sous DÉCALAGE DE A.1/A.2 sous le DOS et DÉCALAGE DE A.1 sous le devant. Bon tricot!

25.01.2018 - 08:50

country flag Nicole Genay wrote:

Re bonjour Et que veut dire :15 m jersey à 2 m point mousse du bord de chaque côté. Après les emmanchures du dos.

22.12.2017 - 17:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Genay, quand le décalage est terminé, vous avez 16 m de A.3 au milieu dos, et l'ouvrage commence par 2 m point mousse, 15 m jersey et se termine par 15 m jersey et 2 m point mousse. Bon tricot!

02.01.2018 - 08:01

country flag Nicole Genay wrote:

Bonjour Je ne comprends pas la côte mousse au dessus des 6 m de chaque côté dans les explications du dos

22.12.2017 - 16:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Genay, on tricote 1 côte mousse (= 2 rangs endroit) sur les 6 mailles montées pour les emmanchures de chaque côté (les autres mailles se tricotent comme indiqué), on a ainsi une petite bordure au point mousse sous la manche, puis on continue comme avant mais avec seulement 2 mailles point mousse de chaque côté. Bon tricot!

22.12.2017 - 16:26

country flag Genay Nicole wrote:

Si je diminue d'une maille avant a2 qui est en début de rang, alors que je n'ai que 6 mailles avant le dessin soit 3 m.end,1m.jersey et 2m.env. je serai très vite sans aucune maille

10.12.2017 - 20:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Genay, le décalage se fait sur l'endroit, or sur l'endroit, on commence par A.1 en début de rang (épaule gauche) et on termine par A.2 (épaule droite) à la fin du rang. le nombre de mailles entre les 3 m point mousse des bords et le diagramme (A.1 ou A.2) va augmenter, et le nombre de mailles entre A.1 et A.2 va diminuer. Bon tricot!

11.12.2017 - 10:13