DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-24
DROPS Design: Mynstur nr ne-234
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: ca 90 cm þar sem það er breiðast.
Lengd: ca 125 cm þar sem það er lengst.

Garn:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150 g litur nr 0500, ljós grár
150 g litur nr 0501, grár
150 g litur nr 0517, milligrár
150 g litur nr 0206, ljós beige
150 g litur nr 0300, beige
150 g litur nr 0618, camel
Og einnig:
300 g litur nr 0506, dökk grár (þessi litur er einungis notaður í síðustu umf í öllum sexhyrningunum + frágang).

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st x 7 umf verði 10 x 10 cm eða 1 sexhyrningur verði 12 cm að þvermáli mælt frá hlið að hlið (þ.e.a.s. þvert yfir sexhyrning).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ATH: A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. A.3a og A.3b sýnir frágang á teppi.

LITIR:
Heklið 6 sexhyrninga – sjá LITUR 1-6:

LITUR 1:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2 og 3: ljós grár.
UMFERÐ 4: dökk grár.

LITUR 2:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2 og 3: grár.
UMFERÐ 4: dökk grár.

LITUR 3:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2 og 3: milligrár.
UMFERÐ 4: dökk grár.

LITUR 4:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2 og 3: ljós beige.
UMFERÐ 4: dökk grár.

LITUR 5:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2 og 3: beige.
UMFERÐ 4: dökk grár.

LITUR 6:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár
UMFERÐ 2 og 3: camel.
UMFERÐ 4: dökk grár.

Heklið síðan 6 sexhyrninga alveg eins, nema byrjun + 1. umf er skipt út með litnum grár.
Haldið svona áfram og skiptið út byrjun + 1. umf með næsta lit á listanum undir «garn» þar til heklaðir hafa verið 6 mismunandi sexhyrningar með hverjum lit í byrjun + 1. umf. Þ.e.a.s. það verða 6 x 6 = 36 sexhyrningar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Teppið er heklað í sexhyrningum sem saumaðir eru saman í lokin.
Heklið alls 84 sexhyrninga með mismunandi litaskiptingum.

SEXHYRNINGUR:
Byrjið með Nepal með heklunál nr 6 og heklið LITIR – sjá útskýringu að ofan og MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 alls 3 sinnum í umf. A.2 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Skiljið eftir smá enda ca 20 cm í síðustu umf fyrir frágang. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Þegar búið er að hekla 1 sexhyrning í hverjum lit eins og útskýrt er frá að ofan (= 36 sexhyrningar) endurtakið 1 sinni til viðbótar = 72 sexhyrningar (= 2 alveg eins sexhyrningar í hverjum lit).

Heklið síðan 12 sexhyrninga til viðbótar alveg eins þannig:

Heklið 2 sexhyrninga þannig:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós grár.
UMFERÐ 2 og 3: grár.
UMFERÐ 4: dökk grár.
Heklið síðan 6 sexhyrninga til viðbótar alveg eins en umf 2 og 3 er skipt út fyrir beige, camel og milligrár = 8 sexhyrningar.

Heklið 1 sexhyrning þannig:
Byrjun + UMFERÐ 1: ljós beige.
UMFERÐ 2 og 3: grár.
UMFERÐ 4: dökk grár.
Heklið 3 sexhyrninga til viðbótar alveg eins nema umf 1 og 3 er skipt út fyrir beige, camel og milligráum = 4 sexhyrningar.

Nú eru alls 84 sexhyrningar.

FORMUN:
Ef ll í ll-bogum í síðustu umf hafa verið heklaðar of stífar getur hvert horn orðið rúnað og erfiðara er að tengja teppið.
Leggið sexhyrningana í volgt vatn þar til þeir eru orðnir blautir í gegn. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Rúllið síðan sexhyrningunum í handklæði og pressið til að fá enn meira vatn úr – nú eiga þeir að vera aðeins rakir.
Leggið sexhyrningana á dýnu og festið með nálum yst í ll-bogann í hvert horn (= 6 nálar). Færið nálarnar til þannig að hvert og eitt af 6 hornunum spennist aðeins út á við. Festið fleiri sexhyrninga á hæðina með sömu nálum. Látið þorna. Gangið síðan frá sexhyrningunum eins og útskýrt er að neðan.

FRÁGANGUR:
Blandið sexhyrningunum með ljós grár og ljós beige í 2. umf (= 24 sexhyrningar).
Blandið sexhyrningunum með grár og beige í 2. umf (= 30 sexhyrningar).
Blandið sexhyrningunum með milligrár og camel í 2. umf (= 30 sexhyrningar).

Leggið síðan sexhyrningana eins og útskýrt er í A.3a og A.3b.
Saumið sexhyrningana saman með dökk grár. Notið endann á sexhyrningunum til að sauma þá saman á breiddina þannig að það verða 12 lengjur. Saumið saman l eina og eina í hverja og eina af 2 sexhyrningunum meðfram öðrum kantinum. Festið enda.
Leggið síðan lengjurnar við hlið á hverri annarri frá númer 1-12 – sjá A.3. Saumið síðan lengjurnar saman eina og eina með því að sauma í hverja l. Festið enda.

Mynstur

symbols = heklið 4 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkjju í 3. loftlykkju, eftir það er hekluð 1 keðjulykkja í hvern af næstu 2 stuðlum.
symbols = umferðin byrjar með 3 loftlykkjur og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju
symbols = 1 lofltykkja
symbols = 1 hálfur stuðull í lykkju
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga / loftlykkjuhringur
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull á milli stuðlahópa í 3. umferð
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = sexhyrningar með ljós grár og ljós beige í 2. umferð
symbols = sexhyrningar með grár og beige í 2. umferð
symbols = sexhyrningar með milligrár og camel í 2. umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Christine Horsell wrote:

Hello, is it possible to receive the pattern written out instead of having to try and read the symbols please. I love your patterns but do prefer them written out.

28.12.2019 - 05:19

DROPS Design answered:

Dear Christine, we are sorry, but we don't have this pattern in written out version, as the pattern is available in several language, and diagrams are not only showing you the very next step, but also show ho stitches and rows relate to each other in the "bigger picture+. We do have a lesson on how to read diagrams here, and don't forget, you can always get help making sense of our patterns in teh store you got your DROPS yarn from. Happy Crafting!

28.12.2019 - 07:17

country flag Veronica wrote:

Skal de første tre lm på omg erstatte første stav?

29.03.2019 - 11:51

DROPS Design answered:

Hei Veronica. Når du hekler etter diagram skal alle symbolene hekles slik de står. Altså, du hekler de 3 luftmaskene i A.2 og går direkte videre til neste symbol (første stav i A.1). God fornøyelse.

03.04.2019 - 09:40

country flag Andrea Schimmel wrote:

Hallo! Habe die Decke in andern Farben nachgearbeitet sie ist wunderschön geworden. Ich würde jedoch gerne die seitlich fehlenden halben Sechsecke ausfüllen. Gibt es eventuell eine Anleitung dafür. Würde mich über eine Antwort sehr freuen.

07.02.2019 - 19:25

DROPS Design answered:

Liebe Schimmel, die Decke wurde so gehäkelt, damit die Seiten nicht "gerade" aussehen. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen, auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim häkeln!

08.02.2019 - 09:02

country flag Maria wrote:

Salve ,ma lo schema è a metà? Non so come continuare.grazie

10.08.2018 - 08:07

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria, il diagramma A.1 mostra 1/3 dell'esagono, va ripetuto 3 volte sul giro. Buon lavoro!

10.08.2018 - 09:11

country flag MARIA ADRIANA FRISCIONI wrote:

Buongiorno, vorrei sapere quanto filato devo ordinare per realizzare una coperta matrimoniale delle dimensioni seguenti: 260 cmx 280 cm. grazie

05.12.2017 - 12:34

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Adriana. Le consigliamo di chiedere aiuto al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

24.12.2017 - 11:36

country flag Maria De Lurdes Alves Vieira Dos Santos Da Silva wrote:

Hi, Can you mail it to Portugal? How is the payment? Have a great year. Maria

08.01.2017 - 23:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dos Santos Da Silva, please find here the list of our Retailers in Portugal, should you have more questions for them, please feel free to contact them either per mail or telephone. Happy crocheting!

09.01.2017 - 09:36

Beth Williams wrote:

Lovely design, however can you supply pattern for doing a half hexagon. Thank you beth

21.11.2016 - 09:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Williams, this pattern only require whole hexagon, you can then adjust working only half pattern back and forth to have just the half. Your DROPS store will help you if required, even per mail or telephone. Happy crocheting!

21.11.2016 - 10:45

country flag Marga wrote:

Una de las mantas más bonitas que vi!!!

26.07.2016 - 11:02

country flag Maria wrote:

Denna bara måste ni ta med, helt underbar.

16.07.2016 - 10:12

country flag Maria wrote:

Denna bara måste ni ta med, helt underbar.

16.07.2016 - 10:11