DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12584.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Misty Mountain Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Puna með röndum, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-38
DROPS Design: Mynstur nr pu-006
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio
500-550-600-650-700-750 g litur nr 07, ljós grár
50-50-50-50-100-100 g litur nr 01, natur
100 g í allar stærðir litur nr 04, grábrúnn

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 8 umf verði 10 x 10 cm eða 12 umf mynstur verði 10 cm á hæðina.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12584.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allar umf með st = rétta. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar þú heklar fram og til baka:
Hver umf með st byrjar með 3 ll (koma ekki í stað fyrsta st).
Hver umf með fl byrjar með 1 ll (koma ekki í stað fyrstu fl).
Í lok hverrar umf með st/fl er heklað þannig: Áður en þráðurinn er dreginn í gegn í lokin á síðasta st/fl er skipt um lit þannig: Takið næsta lit, þ.e.a.s. 2 umf niður (1 st umf og 1 fl umf), með nýja litnum er hekluð 1 kl um umf sem var hekluð (þ.e.a.s. um síðasta st/fl), 4 ll, dragið síðan þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Þetta er gert til að þráðurinn dragi ekki stykkið saman.

Þegar þú heklar í hring:
Hver umf með fl byrjar með 1 ll (kemur í stað fyrstu fl) og endar með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
Hver umf með st byrjar með 3 ll (kemur í stað fyrsta st) og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

RENDUR:
RÖND 1: 1 umf með natur.
RÖND 2: 1 umf með ljós grár.
RÖND 3: 1 umf með grábrúnn.

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. Heklið eins og áður þar til 1 ll er eftir á undan prjónamerki, * heklið 1 st um næstu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sömu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* um næstu ll (þ.e.a.s. hinum megin við prjónamerki) = 2 st færri við hvort prjónamerki (= alls 4 st). Í hvert skipti sem l er fækkað, endurtakið A.1b alls 2 sinnum færra á breiddina.

ÚTAUKNING:
Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. Heklið eins og áður þar til 1 ll er eftir á undan prjónamerki, heklið 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum = 2 st fleiri við prjónamerki, endurtakið við bæði prjónamerki (= alls 4 st fleiri). Í hvert skipti sem auka á út, endurtakið A.1b alls 2 sinnum oftar á breiddina.

ÚRTAKA-1 (á við um ermi):
Passið uppá að næsta umf sé 1 umf með st. * Heklið 1 st um fyrstu/næstu ll í umf, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri) *, endurtakið frá *-* um næstu ll = 2 st færri. Í hvert skipti sem l er fækkað, endurtakið A.1b alls 1 sinni færra á breiddina. Fækkið l til skiptis í byrjun og í lok umf (þ.e.a.s. þegar fækka á l í lokin er heklað eins og áður þar til 2 ll eru eftir í umf).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður, fram og til baka. Kantur að framan er heklaður í lokin.

BERUSTYKKI:
Heklið 100-103-107-114-117-124 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum grábrúnn. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 5-1-5-5-1-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 84-86-90-96-98-104 st.

Heklið umf 2 í mynstri þannig (= frá röngu með fl/ll) í RENDUR – sjá útskýringu að ofan: Heklið A.1c yfir næstu 2 st, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 st (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 st (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 st (= 10-11-11-12-13-14 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 st (= 3-3-3-4-4-4 sinnum á breidd), A.2 yfir næstu 8 st (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 st (= 4-4-5-5-5-6 sinnum á breidd), endið með A.1a yfir síðustu 2 st.

Endurtakið A.1a til A.1c á hæðina og aukið út eins og útskýrt er í A.2 JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig:

Heklið umf 3 í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1a yfir fyrstu 2 l, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 l og aukið út um 0-2-2-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breidd), A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 l og aukið út um 0-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 20-22-22-24-26-28 l og aukið út um 0-4-4-6-6-8 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-6-6-8-8-8 l og aukið út um 0-4-4-4-4-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 8-8-10-10-10-12 l og aukið út um 0-2-2-4-4-4 st jafnt yfir, endið með A.1c yfir síðustu 2 l = 100-118-122-134-136-144 st (meðtalin útaukning í A.2). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Heklið umf 4 í mynstri þannig (= frá röngu): Heklið A.1c yfir fyrstu 2 st, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 st, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 st, endið með A.1a yfir síðustu 2 st.

Heklið umf 5 í mynstri JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir þannig (= frá réttu): Heklið A.1a yfir fyrstu 2 l, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 l og aukið út um 0-0-0-0-2-4 st jafnt yfir, A.2 eins og áður (= 2 sinnum á breiddina), A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 l og aukið út um 0-2-4-4-0-0 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 20-26-26-30-32-36 l og aukið út um 0-0-2-4-4-8 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 6-10-10-12-12-12 l og aukið út um 0-2-4-4-0-0 st jafnt yfir, A.2 eins og áður, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-14-16 l og aukið út um 0-0-0-0-2-4 st yfir síðustu 2 l = 116-138-148-162-160-176 st (meðtalin útaukning í A.2).

Haldið áfram með mynstur og útaukningu í A.2. Þegar síðasta umf er eftir í A.2 mælist stykkið ca 18-18-19-19-21-21 cm frá kanti í hálsi (= 212-234-260-274-304-320 st).

Heklið síðustu umf í A.2 frá röngu þannig: Heklið A.1c yfir fyrstu 2 st, A.1b yfir næstu 8-10-12-14-16-20 st, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), 8-8-8-10-10-12 ll, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 st (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 st A.2, 6-12-14-16-12-12 st A.1b og 20-20-22-22-26-26 st A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), A.1b yfir næstu 20-26-28-34-36-44 st, A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), 8-8-8-10-10-12 ll, hoppið yfir næstu 46-52-58-60-64-64 st (þ.e.a.s. 20-20-22-22-26-26 st A.2, 6-12-14-16-12-12 st A.1b og 20-20-22-22-26-26 st A.2 fyrir ermi), A.2 yfir næstu 20-20-22-22-26-26 st (= 1 sinni á breidd), A.1b yfir næstu 8-10-12-14-16-20 st, endið með A.1a yfir síðustu 2 st = 137-147-161-175-197-217 l. Stykkið er nú heklað áfram með litnum ljós grár.

Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 2 l, A.1b yfir næstu 28-30-34-36-42-46 l, 1 st í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 ll undir ermi, setjið 1 prjónamerki í þessa l, A.1b yfir næstu 60-66-72-78-88-96 l, 1 st í hverja og eina af 8-8-8-10-10-12 ll undir ermi, setjið 1 prjónamerki í þessa l, A.1b yfir næstu 28-30-34-36-42-46 l, endið með A.1c yfir síðustu 3 l.
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Næsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c yfir fyrstu 2 st eins og áður, endurtakið A.1b yfir næstu 132-142-156-170-192-212 st, endið með A.1a yfir síðustu 2 st. Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið l svona með 4-4-4½-4½-5½ cm millibili alls 3 sinnum = 124-134-148-162-184-204 st.

Þegar stykkið mælist 14-16-16-17-17-19 cm frá prjónamerki, aukið út um 2 st við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING!

Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum = 148-158-172-186-208-228 st. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 35-37-37-38-38-40 cm frá prjónamerki (= 54-56-58-59-61-63 cm frá kanti í hálsi), passið að endað sé með umferð með st. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
= 46-52-58-60-64-64 st. Fyrsta umf á ermi er hekluð með sama lit og síðasta röndin í fl á fram- og bakstykki. Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5.-5.-5.-5.-5.-6. ll af þeim 8-8-8-10-10-12 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 1 ll (= 1 fl), heklið 1 fl í hverja af næstu 3-3-3-5-5-6 ll, A.1b (þ.e.a.s. 1 umf með fl og ll) yfir 46-52-58-60-64-64 st yfir ermi, endið með 1 fl í hverja af þeim 4-4-4-4-4-5 ll sem eftir eru undir ermi = 54-60-66-70-74-76 l. Stykkið er nú heklað áfram með litnum ljós grár. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið A.1b hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 st undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið l svona með 3- 2½-2-2-2-2 cm millibili alls 11-13-15-17-18-18 sinnum = 32-34-36-36-38-40 l. Þegar stykkið mælist 42-44-43-45-45-47 cm frá prjónamerki, stillið af að endað sé með 1 umf með st. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið neðst niðri á peysu frá röngu. Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið með litnum ljós grár þannig: Heklið 1 kl um fyrsta st, 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-* jafnt yfir upp yfir kant á peysu, passið uppá að endað sé með 1 fl í síðasta st í hálsi. Í næstu umf eru heklaðir 2 st um hvern ll-boga. Heklið síðan A.1a yfir fyrstu 2 st, endurtakið A.1b þar til 2 st eru eftir, endið með A.1c yfir síðustu 2 st. Heklið alls 3 umf af A.1 (= síðasta umf er umf með fl og ll). Klippið frá og festið enda.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið eins og sá vinstri, nema nú er heklað efst uppi á peysunni niður meðfram kanti á peysu frá röngu.

KANTUR Í HÁLSI:
Heklið með litnum ljós grár frá réttu þannig: Byrjið að hekla 1 kl í fyrsta st í kant að framan, 1 ll (= 1 fl), heklið 1 fl um sama st, 2 fl um hvern af næstu st á kanti að framan, 1 fl í hverja ll sem st var heklaður í fyrstu umf (= 84-88-88-96-100-104 fl), endið með 2 fl um hvern st yfir kant að framan. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Fyrsta talan er saumuð ca 2 cm frá kanti í hálsi, síðan eru hinar saumaðar með ca 8 cm millibili. Tölunum er hneppt á milli 2 st í hægri kant að framan.

Mynstur

symbols = stuðull í loftlykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = fastalykkja í stuðul
symbols = fastalykkja á milli 2 stuðla
symbols = loftlykkja
symbols = fyrsta umferð er útskýrð í uppskrift, byrjið á 2. umferð (= ranga)
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Amalie wrote:

Jeg har d. 24/3-2019 stillet et spørgsmål, som jeg desværre endnu ikke har fået svar på, håber snart at jeg får et svar.

01.04.2019 - 09:53

DROPS Design answered:

Hei Amalie. Beklager sent svar, men se svar under.

02.04.2019 - 13:25

country flag Amalie wrote:

Hej Drops 😊 jeg er lige blevet færdig med diagrammet og skal til at tage ud til ærmer. Jeg har dog det problem, at jeg er ved at hækle str. XL, og ifølge opskriften skal stykket, som jeg har hæklet, være ca. 19 cm, jeg har dog kun ca. 17 cm 😔 jeg vil derfor spørge om man godt kan hækle et par cm mere på, dog uden at jeg tager ud, eller vil dette ikke komme til at fungere? 😉 Mvh Amalie 😊

27.03.2019 - 09:36

DROPS Design answered:

Hei Amalie. Se svar under :)

02.04.2019 - 13:25

country flag Amalie wrote:

Hej Drops 😊 jeg ved lige blevet færdig med diagrammet og skal til at tage ud til ærmer. Jeg har dog det problem, at jeg er ved at hækle str. XL, og ifølge opskriften skal stykket, som jeg har hæklet, være ca. 19 cm, jeg har dog kun ca. 17 cm 😔 jeg vil derfor spørge om man godt kan hækle et par cm mere på, dog uden at jeg tager ud, eller vil dette ikke komme til at fungere? 😉 Mvh Amalie 😊

24.03.2019 - 14:48

DROPS Design answered:

Hei Amalie. Ja, det kan gjerne hekle et par cm uten økning for å få den korrekte lengden på bærestykket. God fornøyelse

02.04.2019 - 09:21

country flag Judith Opitz wrote:

Hallo, die Jacke sieht wunderschön aus, weshalb ich mich nun daran gemacht habe, sie zu häkeln. Könnten sie bitte Angaben zu der Maschenanzahl in den Reihen 8,10,12,14,16 usw. (Feste M. und LM im Wechsel) machen ? In Größe M soll man ja am Schluss 234 Maschen haben-aber ich komme mit den Zunahmen nicht klar. Laut Anleitung hätte ich nach Reihe 12 schon über 300 Maschen. Grüße, Judith

09.12.2018 - 15:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Opitz, nach 5. Reihe haben Sie 138 M; dann wird es nur in A.2 (wie im Diagram gezeigt) zugenommen - diese Zunahmen entstehen mit den Stb-Reihen - die Reihen mit Feste M. und Lm im Wechsel häkeln sie wie am Anfang A.2. Viel Spaß beim häkeln!

10.12.2018 - 09:41

country flag Vic wrote:

Bonjour, Si j'ai bien compris les explications que vous donnez à Béatrice à propos du changement de couleur, on obtient en fin de rang, une hauteur de ml d'une autre couleur. N'est-ce pas gênant au montage et est-ce qu'on parvient à le dissimuler totalement ? Merci pour la réponse.

08.12.2018 - 11:59

DROPS Design answered:

Bonjour Vic, ce changement de couleur ne se verra pas, car on va crocheter les bordures le long des devants. Pour les manches, veillez à ce que le changement de couleur reste bien sur l'envers. Bon crochet!

10.12.2018 - 08:44

country flag Vic wrote:

Bonjour, J'ai un problème dés le début ! à savoir que je n'ai pas le même rapport mailles/rangs: quand je fais un échantillon avec un crochet n°5, j'obtiens 14 m pour 8.5 rgs et si je prends un crochet n°4.5 comme préconisé, j'obtiens 15/16 m mais 9 rgs au lieu des 8. Du coup, je ne sais pas trop que faire. Merci pour vous suggestions.

02.12.2018 - 11:39

DROPS Design answered:

Bonjour Vic, nous n'avons pas toute la même façon de crocheter, il semble que le crochet 4,5 convient le mieux en largeur, pour que la hauteur convienne également, essayez de tirer les mailles un peu plus en hauteur pour que les 8 rangs fassent bien 10 cm - et pensez à toujours bien conserver vos 16 m = 10 cm. Pensez également à laver votre échantillon terminé, laissez-le sécher bien à plat et vérifiez ensuite vos mesures. Bon crochet!

03.12.2018 - 09:36

country flag Beatrice wrote:

À la fin de chaque rang de B/ms crocheter ainsi: changer de couleur avant le dernier jeté de la dernière B/ms ainsi: attraper la couleur suivante qui se trouve 2 rangs (= 1 rang de B et 1 rang de ms) plus bas, et avec cette couleur, faire 1 mc autour de ce rang (c'est-à-dire autour la dernière B/ms), 4 ml, écouler le dernier jeté de la dernière m. On procède ainsi pour éviter que les fils ne soient trop serrés sur le côté. Bonsoir je me comprend pas très bien cette phrase

19.06.2018 - 22:34

DROPS Design answered:

Bonjour Béatrice, on change de couleur lorsque l'on fait la dernière maille du rang, au moment de faire le dernier jeté de la bride ou de la ms (la dernière fois que l'on écoule les boucles ensemble), on le fait avec le fil de la couleur suivante de la rayure (pas avec celle du rang que l'on termine) dont le fil est 2 rangs plus bas: quand il reste les 2 dernières boucles sur le crochet, on prend le fil 2 rangs plus bas, on fait 1 mc autour de ce rang, puis 4 ml (pour avoir la bonne hauteur et terminer la m sur le crochet), 1 jeté, et on écoule les 2 dernières boucles sur le crochet. Bon crochet!

20.06.2018 - 08:17

country flag Beatrice wrote:

Commencer tous les rangs de B par 3 ml (ne remplacent pas la 1ère B).\r\nJe me comprend pas cette phrase

18.06.2018 - 18:27

DROPS Design answered:

Bonjour Béatrice, au début d'un nouveau rang quand vous venez juste de tourner, crochetez 3 mailles en l'air, puis 1 bride dans la 1ère bride (= la dernière du rang précédent), ces 3 ml servent à commencer avec la bonne hauteur pour la 1ère bride mais ne comptent pas comme étant la 1ère bride du rang. Bon crochet!

19.06.2018 - 08:05

country flag Chris wrote:

Ik ben net begonnen met het patroon en heb nu 5 rijen gehaakt.\r\nHet is de eerste keer dat ik met zo een telpatroon werk, het is dus effen zoeken.\r\nMoet ik vanaf rij 6 nog de A1 patronen volgen (dus herhalen) of enkel A2 verder volgen?

16.06.2018 - 19:35

country flag Olivia wrote:

Hej Jeg er forvirret over, hvor jeg skal sætte mærketrådene, i midten af de 8 stangmasker under ærmerne eller efter de 8 stangmasker? På forhånd tak

29.05.2018 - 20:55

DROPS Design answered:

Hej Olivia, mærket sætter du imellem de 8 masker under ærmet, det skal markere midten af hver side. God fornøjelse!

30.05.2018 - 12:29