DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Irish Plaits Cardigan

Prjónuð peysa með laskalínu og köðlum í hliðum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-3
DROPS Design: Mynstur nr u-794
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
600-650-700-800-850-950 g litur nr 77, ljós eik

Eða notið:
DROPS SKY fra Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-450-500 g litur nr 03, perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir garðaprjón/stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

DROPS MÁLM TALA (ójöfn) NR 534: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð) og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu á undan prjónamerki og 2 l sl.
Aukið er út fyrir laskalínu á eftir prjónamerki og 2 l sl.
AUKIÐ ÚT FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
AUKIÐ ÚT FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan A.2a/A.2b, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl, prjónið A.2a/A.2b, prjónið 2 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 115 l), mínus kant að fram (t.d. 10 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11 l) = 9,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l til skiptis ca 9. og 10. hverri l (ekki er aukið út yfir kant að framan).

ÚTAUKNING-2:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan A.2b, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, A.2b, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið útaukningu í hinni hliðinni (= 4 l fleiri í umf). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju l slétt.

STUTTAR UMFERÐIR:
Í 10. hverri umf eru prjónaðar stuttar umf yfir 5 l með garðaprjóni á kant að framan þannig (byrjið frá réttu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sl til baka, snúið stykkinu og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið stykkinu, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sl til baka. Með þessu þá kemur kanturinn að framan í garðaprjóni að dragast minna saman.

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur þá er fellt af með ½ nr grófari prjónum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. Þ.e.a.s. kantur að framan í lok umf séð frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti og meðfram kanti að framan):
STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 51 cm.
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 35, 44 og 53 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 19, 27, 36, 45 og 54 cm.
STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 48 og 58 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 39, 49 og 59 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 115-119-123-130-134-140 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Karisma eða Sky. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan 1 umf sléttprjón þar sem auknar eru út 11-15-27-32-32-38 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1, innan við 5 kantlykkju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið = 126-134-150-162-166-178 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf til baka. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka í sléttprjóni með byrjun frá réttu þannig: Prjónið þar til eftir eru 41-43-45-48-49-50 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 41-43-45-48-49-50 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 36-38-40-43-44-45 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 36-38-40-43-44-45 l, snúið við. Haldið síðan áfram fram og til baka yfir 5 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umf með upphækkun, prjónið út umf frá röngu. Munið eftir HNAPPAGAT og STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 16-18-20-23-24-25 l (= vinstra framstykki), setjið eitt prjónamerki, 2 l sléttprjón, prjónið A.1a yfir næstu 22-22-26-26-26-30 l – sjá mynstur fyrir rétta stærð, 2 l sléttprjón (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir næstu 32-36-40-46-48-50 l (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, 2 l sléttprjón, prjónið A.1a yfir næstu 22-22-26-26-26-30 l, 2 l sléttprjón (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir næstu 16-18-20-23-24-25 l (= hægra framstykki), prjónið 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar 2 umf í A.1a hafa verið prjónaðar til loka er endurtekið A.1b yfir A.1a, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við hvert prjónamerki. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum:

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið svona út í hverri umf 0-0-0-2-2-6 sinnum og í annarri hverri umf 24-26-28-28-32-32 sinnum. Nýjar l eru prjónaðar slétt.

LASKALÍNA Á ERMUM:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið svona út í annarri hverri umf 16-24-25-27-25-23 sinnum og í 4. hverri umf 4-1-1-1-4-6 sinnum. Í stærð S-XXL prjónið nýjar útauknar l jafnóðum inn í mynstur A.1b þar til nóg pláss er fyrir allt mynstrið (= 30 l). Prjónið síðan nýjar útauknar l slétt. Í stærð XXXL eru allar nýjar l prjónaðar slétt.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 302-338-366-394-418-446 l í umf. Stykkið mælist 17-19-20-21-24-25 cm meðfram kanti að framan. Prjónið nú næstu umf frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 45-49-53-58-63-68 l, setjið næstu 66-76-82-86-88-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið næstu 80-88-96-106-116-126 l, setjið næstu 66-76-82-86-88-92 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið næstu 45-49-53-58-63-68 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 186-202-222-242-266-290 l fyrir fram- og bakstykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú mynstur þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 38-42-47-52-58-64 l sléttprjón, prjónið A.2a (= 12 l), prjónið 76-84-94-104-116-128 l sléttprjón, prjónið A.2a, prjónið 38-42-47-52-58-64 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.2b endurtekið á hæðina yfir A.2a. Þegar stykkið mælist 4 cm er l fækkað hvoru megin við hverja mynstureiningu A.2a – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona í 6.-6.-4.-4.-6.-6. hverri umf alls 4-4-5-5-4-4 sinnum = 170-186-202-222-250-274 l. Þegar stykkið mælist 13 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við A.2b – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í annarri hverri umf alls 23 sinnum í öllum stærðum = 262-278-294-314-342-366 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-34-34-35-34-34 cm – stillið af þannig að ein heil mynstureining A.2b hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Aukið nú út jafnt yfir í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir næstu 57-61-65-170-77-83 l þar sem auknar eru út 10-11-12-12-15-14 l jafnt yfir, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 12 l, prjónið sléttprjón yfir næstu 114-122-130-140-154-166 l þar sem auknar eru út 18-15-17-17-18-16 l jafnt yfir, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 12 l, prjónið sléttprjón yfir næstu 57-61-65-70-77-83 l þar sem auknar eru út 10-11-12-12-15-14 l jafnt yfir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 300-315-335-355-390-410 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf til baka. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, (2 l sl, 3 l br) yfir næstu 65-70-75-80-90-95 l, 2 l sl. Prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 12 l, prjónið (2 l sl, 3 l br) yfir næstu 130-135-145-155-170-180 l, prjónið 2 l sl, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 12 l, prjónið (2 l sl, 3 l br) yfir næstu 65-70-75-80-90-95 l, 2 l sl, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm. Aukið nú út um 1 l br í hverri einingu með 3 l br = 356-374-398-422-464-488 l. Haldið síðan áfram með stroff þar til stroffið mælist alls 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING! Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið til baka 66-76-82-86-88-92 l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og takið upp 1 l í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-84-92-96-100-106 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 4-4-5-5-6-7 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). Haldið síðan áfram hringinn með mynstur A.1b yfir 30 l mitt á ermi og prjónið A.2a (= 12 l) mitt undir ermi (þ.e.a.s. það eru 6 l af mynstri A.2a hvoru megin við prjónamerki). Aðrar l eru prjónaðar slétt. Þegar A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.2b endurtekið á hæðina yfir A.2a. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við A.2b undir ermi – munið eftir úrtaka! Fækkið l svona í 7.-5.-4.-4.-4.-3. hverri umf alls 14-18-21-22-23-25 sinnum = 46-48-50-52-54-56 l. Þegar A.1b hefur verið prjónað alls 6 sinnum á hæðina (meðtalið mynstur á berustykki) er haldið áfram með A.1c (- sjá mynstur fyrir rétta stærð). Þegar allt A.1c hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br yfir þessar l. Þegar stykkið mælist 44-42-42-42-40 cm – stillið af að A.2b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið nú stroff með byrjun frá 12 l í A.2b mitt undir ermi: Prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir fyrstu 12 l (= A.2b), 0-0-0-1-1-2 l br, 2-3-4-3-4-3 l sl, 0-0-0-1-1-2 l br, prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 30 l, prjónið 0-0-0-1-1-2 l br, 2-3-4-3-4-3 l sl, 0-0-0-1-1-2 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og festið enda.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.10.2016
Nýtt mynstur A.2a/A.2b
Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2017
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.2b.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 l brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag MarieM wrote:

POMOC! Nevím si rady s raglánovým zkosením! můžete nějak jednoduše vysvětlit, jak se přidává u trupu a jak u rukávů? Nevím si rady s tímto: rukávy - "..Přidáváme 16-24-25-27-25-23x v každé 2. řadě a 4-1-1-1-4-6x v každé 4. řadě.."; trup - "...Přidáváme 0-0-0-2-2-6x v každé řadě a 24-26-28-28-32-32x v každé 2. řadě...."

03.11.2022 - 19:28

country flag Tessa Kiewiet wrote:

Excuses ik keek verkeerd maar in a1b zit wel een fout er zit op 1 plek geen -boven-

28.08.2022 - 22:44

country flag Tessa Kiewiet wrote:

Moet je de steken in de patronen op de terug gaande nld niet breien zoal ze voorkomen dus recht waar recht is en averechts waar averechts is? Zoals ik het patroon bekijk worden er recht waar averechts moet en andersom. Dit klopt volgens mij niet

28.08.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Dag Tessa,

Voor alle steken staat aangegeven hoe je ze breit. De lege hokjes brei je recht aan de goede kant en averecht aan de verkeerde kant. De hokjes met de horizontale streepjes brei je averecht aan de goede kant en recht aan de verkeerde kant. In het telpatroon zijn alle naalden aangegeven, dus zowel de heengaande als de teruggaande naalden.

31.08.2022 - 13:47

country flag Connie wrote:

Hallo :-)\r\nich stricke gern und viel, aber ich muss sagen.......diese Anleitung ist so kompliziert geschrieben,\r\ndass es Mühe macht, sich da durchzulesen. Sie nimmt einfach kein Ende, 10 Seiten und ein ständiges\r\nhin und her blättern sind für mich nicht motivierend.\r\ntrotz alledem, ein sehr schönes Modell und ich werde mich da \" durchbeissen\"

24.07.2021 - 10:57

country flag Eliana wrote:

Thank you again. I was confused because the pattern states that this is an "elevation in back of neck" but the turns are worked in the shoulder stitches. This makes a band of stocking stitch in the shoulders before A1 starts. Is this correct? I can't see it in the photos.

04.02.2021 - 11:50

DROPS Design answered:

Dear Eliana, that's correct, that way the neck on back piece will be somewhat higher than the neck on front pieces - you can skip the elevation if you like to, both neck with then have same height. Happy knitting!

04.02.2021 - 13:10

country flag Eliana wrote:

Thank you for answering my previous question so quickly. Do the 48 stitches include the 5 for the garter stitch band? Thank you again.

04.02.2021 - 08:11

DROPS Design answered:

Dear Eliana, the 5 front band sts are always included in the number of sts, except when stated, ie on the first short row for elevation you work until 48 sts remain on needle (= including the 5 front band sts), turn and work until 48 sts remain on the other side (= including the 5 front band sts) etc. Happy knitting!

04.02.2021 - 09:45

country flag Eliana Sullivan wrote:

Please help. I do not understand the instructions for the neck elevation. Where do I start working the 48 stitches ( size XL) before turning? I tried starting at the 1st stitch of the row until 48 stitches remained on my left hand needle but after working all 8 short rows there is a band of stocking stitch between the neck and A1. The markers for the body and sleeves are not inserted until AFTER the short rows. Please explain this more clearly. Thank you very much!

03.02.2021 - 18:47

DROPS Design answered:

Hi Eliana, Starting at the beginning of the row, work until you have 48 stitches left on the row, turn and work back until you have 48 stitches left on the row, turn and work until you have 43 stitches left on the row, turn and work back until you have 43 stitches left on the row. Continue like this for 8 short rows, reducing the number of stitches left by 5 each time you work from the right side and the same number working back. After the elevation, you begin the pattern and insert the markers. Hope this helps and happy knitting!

04.02.2021 - 07:25

country flag Nathalie wrote:

Bonjour je tricote ce modèle en "merino extra fine" je n'ai plus que les manches à tricoter je trouve que l'encolure s'enroule sur elle même est-ce que cela va s'arranger au lavage ou au repassage ou dois-je défaire et modifier l'encolure ?

01.05.2017 - 13:53

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, vous pouvez bloquer votre gilet à la fin (laver et sécher, avec des épingles si besoin). Si le souci persiste, vous pouvez ajouter une petite bordure au crochet pour la maintenir. Bon tricot!

02.05.2017 - 11:32

country flag Tina Borup wrote:

Hej, Angående mønster A.2b. Er det korrekt at mønster kun går over 9 pinde.

13.02.2017 - 22:16

DROPS Design answered:

Hej Tina. Ja, A.2b gaar over 9 p i alt.

14.02.2017 - 09:44

country flag Julia wrote:

Ich finde eure Seite einfach nur super! Habe gerade mit den Stricken und Häkeln angefangen und eure Seite ist eine tolle Motivation mehr auszuprobieren. Kann man eure Produkte (Strickjacken etc.) auch kaufen? Habe so viele schöne Pullover oder Ponchos gesehen 😊 Liebe Grüße, Julia

13.12.2016 - 01:33

DROPS Design answered:

Liebe Julia, wir haben in unseren Seiten nur Anleitungen, aber gerne können Sie Ihren DROPS Laden mal fragen, ob sowas möglich wäre. Viel Spaß beim stricken!

13.12.2016 - 08:58