DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 171-20
DROPS Design: Mynstur nr ne-212
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 g nr 0501, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l hvoru megin við mynstureiningu í sléttprjóni þannig:
Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 1 l sl.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við fyrstu og síðustu l í sléttprjóni, útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar í næstu umf til að koma í veg fyrir göt.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 222-238-254-286-302-318 l á hringprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan þannig: * 1 l br, stroff 2 l sl, 2 l br yfir fyrstu 12-16-20-28-32-36 l, 2 l sl, A.1 (= 10 l) A.2 (= 15 l), 2 l br, A.3 (= 27 l), 2 l br, A.2, A.1, 2 l sl, stroff 2 l br, 2 l sl yfir næstu 12-16-20-28-32-36 l, 1 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Endurtakið 2 fyrstu umf í A.1 – A.3 þar til stykkið mælist 8 cm, síðan eru prjónaðar 2 síðustu umf í A.1-A.3, JAFNRAMT er fækkað um 10-10-14-20-18-16 l jafnt yfir 30-38-46-62-70-78 l stroff í hvorri hlið = 172-188-196-216-236-256 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5.

Prjónið síðan þannig: * 10-14-16-21-26-31 l sl, 8 l br, A.4 (= 12 l), 2 l br, A.5 (= 22 l), 2 l br, A.6 (= 12 l), 8 l br, 10-14-16-21-26-31 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.

Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með 8 l br og fækkað er um 1 l hvoru megin við mynstureiningu í sléttprjóni – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri), fækkið l alveg eins með 4 cm millibili, alls 6 sinnum, fækkið l í annað hvert skipti í hægri og vinstri hlið við mynstureiningu með brugðið = 124-140-148-168-188-208 l. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu sem l var fækkað í og 1 l í hverri mynstureiningu í sléttprjóni (= 8 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm = 140-156-164-184-204-224 l. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm prjónið þannig – frá réttu: Fellið af fyrstu 2-3-3-3-3-3 l, prjónið næstu 66-72-76-86-96-106 l eins og áður, fellið af næstu 4-6-6-6-6-6 l, prjónið næstu 66-72-76-86-96-106 l eins og áður, fellið af síðstu 2-3-3-3-3-3 l. Stykkin eru nú prjónuð áfram fram og til baka hvort fyrir sig á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
= 66-72-76-86-96-106 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er haldið áfram með affellingu í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 0-1-1-2-3-4 sinnum og 1 l 0-0-1-3-5-7 sinnum = 66-68-70-72-74-76 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af 24-26-28-30-32-34 miðju l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við háls = 20 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

FRAMSTYKKI:
= 66-72-76-86-96-106 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 66-68-70-72-74-76 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm setjið miðju 18-20-22-24-26-28 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umf við hálsmál, 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 20 l eftir á öxl. Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 45-45-50-50-50-50 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umf sl, síðan er prjónað stroff 2 l sl, 3 l br. Prjónið stroff í 10 cm, síðan er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 11-9-12-10-10-8 l jafnt yfir = 34-36-38-40-40-42 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, aukið út með 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili alls 9-10-11-13-15-17 sinnum = 52-56-60-66-70-76 l. Þegar stykkið mælist 47-47-47-46-45-44 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af 6 l mitt undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki), stykkið er nú prjónað til loka fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3 sinnum, 1 l 0-1-1-2-3-5 sinnum, fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-53-54-54-54-55 cm, fellið síðan af 3 l í hvorri hlið og fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist alls 54-54-55-55-55-56 cm.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 64 til 86 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði) á stutta hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af.

LAUS KRAGI:
Fitjið upp 108 l á stutta hringprjóna nr 4,5 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff 2 l sl, 2 l br. Prjónið stroff í 25 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið ermar í.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = 2 l br saman
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Snow Tracks

Clare, United Kingdom

Snow Tracks

Elisabeth, France

Snow Tracks

Micha, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Annica Åkermark wrote:

Men ett så vansinnigt mönster 🤢

04.03.2024 - 22:29

country flag Jane Clarke wrote:

I asked about the decreasing of 50 stitches in the rib and you replied that " So you have A.1 4 times, A.2 4 times and A.3 twice. That is 2x4 +3 x4 + 2x5 = 30 decreases. “ However I can’t see where in A1, A.2 and A.3 where I put these 30 decreases in on rows 1 and 2 of these diagrams. I’m so confused

29.01.2024 - 07:59

DROPS Design answered:

Dear Jane, the decreases are in the last 2 rounds of A.1-A.3. As stated in the pattern: "Repeat the first 2 rounds in A.1 - A.3 until piece measures 8 cm, Then work the last 2 rounds in A.1 - A.3, AT THE SAME TIME dec 10-10-14-20-18-16 sts evenly over the 30-38-46-62-70-78 sts rib in each side = 172-188-196-216-236-256 sts." So the decreases are worked at the same time as you work the last 2 rounds in A.1-A.3. As shown above, A.1 to A.3, repeated as stated in the first row, will have 30 decreases (you can see the triangle/ purl 2 together symbol in these rows of the charts). So you will have 30 decreases + the decreases on each side = 50 decreases. Happy knitting!

29.01.2024 - 23:16

country flag Jane Clarke wrote:

I have knitted to the last two rows of the rib of the body where I did cast on 238 stitches. I am now to decrease to 188 stitches so a decrease of 50 stitches. 20 decreases to be made over A1 - A3 and 10 stitches decreased evenly over the 38 rib stitches on each side. This only comes to a decrease of 40 stitches not 50, unless my interpretation is wrong. Can you help me please? Thank you

28.01.2024 - 22:28

DROPS Design answered:

Dear Jane, there are 30 decreases in A.1-A.3: "* P 1, rib K 2/P 2 over the first 12-16-20-28-32-36 sts, K 2, A.1 (= 10 sts) A.2 (= 15 sts), P 2, A.3 (= 27 sts), P 2, A.2, A.1, K 2, rib P 2/K 2 over the next 12-16-20-28-32-36 sts, P 1 *, repeat from *-* 1 more time. " So you have A.1 4 times, A.2 4 times and A.3 twice. That is 2x4 +3 x4 + 2x5 = 30 decreases. Then decrease 10 sts over the rib stitches on each side (so 10+10). In total, you should have 50 decreases. Happy knitting!

28.01.2024 - 23:30

country flag Katinka wrote:

Ik kom niet uit de halsmindering van het achterpand. Na de armsgatminderingen heb ik voor de kleinste maat 66 steken. Dan kant ik voor de hals 20 steken af, over 46 steken dus 23 aan elke schouder. Vervolgens zou ik in de volgende naald 1 steek aan elke kant af moeten kanten, dan heb ik dus 22 steken aan elke kant over niet 20. Bij het voorpand kom ik wel op 20 steken aan iedere kant uit.

05.11.2023 - 09:32

DROPS Design answered:

Dag Katinka,

Het aantal steken dat je af moet kanten voor de hals aan de achterkant klopte niet. Dit is nu aangepast en het zou nu wel moeten kloppen.

05.11.2023 - 19:26

country flag Katrien wrote:

Bij de beschrijving van de mouw staat... brei tot een hoogte van 11cm,meerder 1 st aan elke kant van de markeerder....is het 11 cm van in het begin, met de boord erbij ,of na de 10 cm van de boord,op een totaal van 21 cm beginnen met meerderen?Groetjes,Katrien.

28.07.2023 - 17:26

DROPS Design answered:

Dag Katrien,

De 11 cm wordt gemeten vanaf het begin, dus vanaf het opzetten.

01.08.2023 - 20:50

country flag Christine wrote:

C'est toujours moi, désolée. A4, A5 et A6 : au rang suivant, doit-on tricoter le jeté en maille torse (en fait, je ne l'avais pas vu sur le diagramme) ? Sur la photo du modèle, on voit nettement un trou, bien ouvert. Merci

24.03.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, les jetés de A.4, A.5 et A.6 se tricotent normalement (dans le brin avant) = à l'endroit sur l'endroit (quand on tricote en rond) et à l'envers sur l'envers (quand on tricote en allers et retours). Bon tricot!

27.03.2023 - 08:41

country flag Christine wrote:

Merci beaucoup. Le petit signe de la troisième maille sur le diagramme ressemble à un petit trait et non un petit rond, alors j'avais peur de me tromper. Je voyais un petit trait, "env sur end ou end sur env", pas "jeté", ça n'avait pas de sens... :-)

24.03.2023 - 16:28

country flag Christine wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas A4 et A6 : la troisième maille ne doit-elle pas être un jeté ? Merci

24.03.2023 - 13:08

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, si tout à fait, ainsi, on tricote le 1er rang de A.4 et de A.6 ainsi: glisser 1 m à l'end, 1 m end, passer la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 jeté, 1 m env, 6 m end, 1 m env, 1 jeté, 2 m ens à l'end (= 12 m). Bon tricot!

24.03.2023 - 13:34

country flag Anneli Mäkelä wrote:

Hej! Jag försöker sticka model 170-20. Resåren gick bra, men sedan sa det stopp: det sägs att jag skall sticka de två sista varven av A1-A3 och samtidigt minska 10 maskor över de 30 maskorna resor. Men det sägs inget hur dessa resormaskor nu skall stickas? Och mellan A1 -A3 finns det några extra maskor. Hur skall de stickas. Jag har stickat en hel del, över 200 tröjor, men jag har svårt med denna modells förklaringar. Kan ni hjälpa mig? Anneli

19.12.2022 - 13:48

DROPS Design answered:

Hej Anneli, når du har strikket resåren og har minskat de 10 masker i hver side fortsætter du så här: * 10-14-16-21-26-31 rm, 8 am, A.4 (= 12 m), 2 am, A.5 (= 22 m), 2 am, A.6 (= 12 m), 8 am, 10-14-16-21-26-31 rm *, upprepa *-* 1 gång till.

20.12.2022 - 09:24

country flag Ans Schouten wrote:

Misschien een idee om de omslagen in A4 en A6 wat duidelijker weer te geven!? Ze zijn nauwelijks zichtbaar, wat verwarrend kan werken. Zou je ze nl niet meenemen , minder je in maat M ook 48 st. (188-140) en wordt het verhaal van minderingen onduidelijk. Alleen iemand die kabels kan breien, begrijpt dan dat hier iets niet klopt.

05.09.2022 - 14:23