DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Nymph Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-5
DROPS Design: Mynstur nr r-690
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 g nr 20, ljós mynta

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni og 17 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít), NR 521: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu í réttri stærð.

LASKALÍNA:
Aukið er út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig:
Aukið út um 4 l á bakstykki, 2 l á hvoru framstykki og 2 l á hvorri ermi (= alls 12 l fleiri, útaukningarnar á ermi eru með í mynstri) – byrjið 3 l á undan hverju A.2 og prjónið þannig: sláið uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), A.2, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn næst prjónamerki er prjónaður brugðið næstu umf svo það myndist gat, uppslátturinn við bakstykki/framstykki er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Aukið út um 12 l svona 0-2-3-7-10-14 sinnum til viðbótar. (= 1-3-4-8-11-15 sinnum alls, fyrsta útaukning er útskýrð í uppskrift).

Aukið síðan út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig:
Aukið út um 2 l á bakstykki, 2 l á framstykki og 2 l á hvorri ermi (= alls 8 l fleiri, útaukningar á ermi eru með í mynstri) – byrjið 2 l á undan hverju A.2 og prjónið þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), A.2, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umf svo það myndist gat. Aukið út um 8 l svona alls 16-15-16-13-12-9 sinnum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir einu hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti):
STÆRÐ:
S: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm.
M: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm.
L: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm.
XL: 2, 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.
XXL: 2, 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.
XXXL: 2, 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 97-101-105-109-113-117 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, prjónið síðan A.1 (1. umf = frá röngu) með 5 l garðaprjón í hvorri hlið, í síðustu umf í A.1 er aukið út um 15 l jafnt yfir = 112-116-120-124-128-132 l. Prjónið síðan svona og aukið út fyrir laskalínu – frá miðju að framan og frá réttu: 5 l garðaprjón, prjónið 17-18-19-20-21-22 l sléttprjón, sláið uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), A.2 (= 11 l), 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 34-36-38-40-42-44 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), A.2, 2 l sléttprjón (setjið eitt prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-18-19-20-21-22 l sléttprjón, 5 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýrt er frá að ofan. Fyrsta útaukning er nú lokið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina (sjá merkingu fyrir rétta stærð) eru 252-272-296-324-356-384 l í umf, útaukning er nú lokið. Næsta umf er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið 43-47-51-57-63-69 l (= hægra framstykki), setjið næstu 45-47-51-53-57-59 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið næstu 76-84-92-104-116-128 l (= bakstykki), setjið næstu 45-47-51-53-57-59 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið síðustu 43-47-51-57-63-69 l (= vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 178-194-210-234-258-282 l á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8 nýjar l sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 4-4-4-5-5-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 162-178-194-218-242-266 l. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 5 sinnum til viðbótar = 186-202-218-242-266-290 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Fellið af með 1 l sl, 1 l br (svo að affellingarkanturinn verði ekki bylgjulaga), stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring. Setjið til baka l frá ermi á sokkaprjóna nr 4, prjónið upp 1 l í hverja af 8 l undir ermi = 53-55-59-61-65-67 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi = umf byrjar hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan þannig: 6-7-1-2-4-6 l sléttprjón, A.3 yfir næstu 40-40-56-56-56-56 l (byrjið A.3 þar sem A.2 endaði í þinni stærð), 7-8-2-3-5-7 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni, passið uppá að þær passi við fjölda úrtöku og útaukningu í mynstri.
Endurtakið úrtöku með 7-7-5-5-3-3 cm millibili 2-2-3-3-4-4 sinnum til viðbótar = 47-49-51-53-55-57 l. Þegar stykkið mælist 24-23-23-22-22-21 cm prjónið A.1 yfir allar l, fellið síðan af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Teri wrote:

Follow up on my previous question- I now am on the k2tog, yo row of A1. When I set aside 5 first and 5 last st for garter st, there are 87 st left to do the k2tog which leaves 1 odd st at the end. What do I do with it?

02.04.2021 - 06:00

DROPS Design answered:

Dear Teri, leave the very last stitch before the garter stitch band as a knit stitch, thus the two sides will be almost symmetric (have a stitch beside the garter stitch band before the "hole" created by the pattern). Happy Knitting!

02.04.2021 - 09:56

country flag Teri wrote:

Hi, What are the “band st” mentioned at the start of the jacket instruction? Also, I have knitted 4 rows of A1 and so far no differences between the 5 st at either ends and the rest of the work. Am I reading the chart correctly ? Thank you

02.04.2021 - 05:13

DROPS Design answered:

Dear Teri, the band stotches are the first and last 5 stitches on the rows, these will form the button- and buttonhole bands later. You are right, in the first rows of A.1, there is no difference between the band and the pattern, the fifference will show up in the 5th row. Happy Knitting!

02.04.2021 - 09:53

country flag Karin Hansen wrote:

Bluse model 689 str 36 Jeg har hele tiden 4ekstra masker når jeg strikker raglan , håber du kan give mig en forklaring Jeg tager 4masker ud som der står men de 2m til ærmet er jo i mønsteret jeg tror det er der jeg gør forkert . Med venlig hilsen

24.01.2021 - 16:41

DROPS Design answered:

Hej Karin, vi er ikke helt sikker på at vi forstår dit spørgsmål, vi har ikke den model eller størrelse du henviser til. Men i denne opskrift DROPS 169-5 på nettet er alle udtagninger til raglan er tegnet ind i diagrammet. Læs også gerne stykket "RAGLAN" igen, det kan være du får svar på dit spørgsmål her.

29.01.2021 - 13:16

country flag Maja wrote:

Hallo. Ich verstehe die 5. Reihe in A.1 leider nicht. In meiner Größe L habe ich 105 Maschen angeschlagen, Minus die zweimal 5 Maschen für die Blenden, ergibt das 95 Maschen für das Muster. Dafür braucht man doch aber eigentlich eine gerade Anzahl von Maschen oder? So sind jetzt 6 Maschen in meiner Blende am Ende der Reihe. Da wäre das muster auch nicht symmetrisch zur Blende.

11.06.2020 - 22:30

DROPS Design answered:

Liebe Maja, A.1 beginnt mit 2 M re zusammen, und wird dann mit 1 Masche recht enden, so dass das Muster symetrisch wird: 5 Blende Maschen, 47 Mal (2 M re zs, 1 Umschlag), 1 M re, 5 Blende Maschen = 105 - und so haben Sie 5 Blendemaschen + 1 M recht innenfor den 1. Umschlag beidseitig. Viel Spaß beim stricken!

12.06.2020 - 07:55

country flag Eva wrote:

Bei den Raglan-Zunahmen sollen Markierer angebracht werden... Habe ich gemacht. Okay. In der nächsten Hinreihe schon stimmen die Markierer nicht mehr, da im Muster doch zugenommen wird. Wofür braucht man dann die Markierer? Schon in der 1. Musterreihe (Lochmuster über 13 M)komme ich mit den Angaben nicht mehr klar.

03.03.2019 - 11:35

DROPS Design answered:

Liebe Eva, die Markierer werden in den Raglanmaschen eingesetzt - siehe RAGLANZUNAHMEN. Viel Spaß beim stricken!

04.03.2019 - 10:05

country flag Eva wrote:

Ich habe eine Frage zu den "Raglanzunahmen": Muss ich am Rücken- und Vorderteil noch zusätzlich zu den Umschlägen zunehmen? Nach meiner "Rechnung" müsste ich so in jeder 2. Reihe im Rückenteil 2 Maschen und im Vorderteil je 1 Masche zunehmen, damit die Zunahme 12 Maschen beträgt. Ich bitte dringend um Hilfe und bedanke mich für Ihre Mühe.

01.03.2019 - 13:57

DROPS Design answered:

Liebe Eva, je nach der Größe sollen Sie zuerst 4 M am Rückenteil + je 2 M an jedem Vorderteil + 2 M an jedem Ärmel (=12 M) 1-3-4-8-11-15 x insgesamt zunehmen und dann 2 M am Rückenteil + 1 M an jedem Vorderteil + 2 M an jedem Ärmel (= 8 M) insgesamt 16-15-16-13-12-9 x zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

01.03.2019 - 14:56

country flag Eija wrote:

Kysymys raglan lisäyksistä: "Aloita 3 s:n päässä piirroksen A.2 jokaisesta mallikerrasta ja neulo näin: 1 langankierto, 1 o, 1 langankierto, 2 s oikein (merkkilanka on näiden silmukoiden keskellä), A.2, 2 o (merkkilanka on näiden silmukoiden keskellä), 1 langankierto, 1 o, 1 langankierto. " Onko tässä virhe, kun eihän tässä muodostu lisäykset samalla tavalla kuin kuvassa, eli silmukan molemmin puolin reijät?

27.07.2018 - 14:20

country flag Crocus wrote:

Encore moi. Une photo en plan rapproché du fameux raglan aurait été une aide très précieuse. Je me suis rarement sentie aussi nulle devant des explications. Je me suis même demandé si ma tête fonctionnait correctement. c'est dire ! :-)

04.06.2018 - 09:26

country flag Crocus wrote:

Les explications des premiers rangs du raglan/motif ajouré sont complexes et j'ai déjà détricoté plusieurs fois. Ce qui me rassure quant à mes capacités de tricoteuse et de compréhension, c'est que je ne suis apparemment pas la seule. Beaucoup de personnes ont séché devant le texte.

04.06.2018 - 09:22

DROPS Design answered:

Bonjour Crocus, on augmente pour le raglan d'abord 12 mailles (4 m pour le dos et 2 m pour les devants soit 2 m avant/après A.2 et seulement 2 m pour les manches soit 1 m après A.2 au début de la manche et 1 m avant A.2 à la fin de la manche) 1-15 fois au total en fonction de la taille, puis on va augmenter seulement 8 m (= 1 m avant/après chaque A.2) 16-9 fois au total. Bon tricot!

04.06.2018 - 09:49

country flag MARCEAU wrote:

Bonjour Je ne comprends pas comment faire le raglan au niveau des manches, pour faire les diagrammes ( et agrandir les dessins )

10.02.2018 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marceau, les augmentations du raglan des manches figurent dans le diagramme A.2, tricotez A.2 le nombre de rangs indiqué pour votre taille et augmentez en même temps pour le dos et les devants comme indiqué dans les explications pour votre taille. Bon tricot!

12.02.2018 - 08:41