DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fair & Squares

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk með mynsturáferð, háum kraga, klauf í hliðum og stroffi. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-48
DROPS Design: Mynstur nr as-044
Garnflokkur C + C eða E
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
275-325-350-375-425-450 gr litur nr 13, gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9196.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 69-75-81-87-93-102 l á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff þannig: 1 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, 1 l sl, 1 l garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm er prjónað þannig: 1 l garðaprjón, 1 l sl, 2 l br, A.1 (= 3 l) þar til 5 l eru eftir, 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 1 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er sett eitt prjónamerki í hvora hlið (merkir klauf). Prjónið nú mynstur A.1 yfir allar l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Næst síðasta l í umf (frá réttu) er prjónuð í sléttprjóni! Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm fellið af 2 l í öllum stærðum í hvorri hlið fyrir handveg = 65-71-77-83-89-98 l. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af miðju 19-19-19-21-21-22 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 22-25-28-30-33-37 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l áður en fellt er af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 54-56-57-59-60-62 cm setjið miðju 11-11-11-13-13-14 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af l í hverri umf frá hálsi þannig: 2 l 2 sinnum og 1 l 1 sinni = 22-25-28-30-33-37 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af eftir bakstykki, prjónið 2 umf garðaprjón áður en fellt er af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 33-33-33-36-36-36 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk á hringprjóna nr 6. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, er mynstrið prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram til loka. Þegar stykkið mælist 10-10-9-9-10-10 cm byrjar útaukning innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Nýjar útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 12-9-7-6½-4½-3½ cm millibili 3-4-5-5-7-8 sinnum til viðbótar = 41-43-45-48-52-54 l. Þegar stykkið mælist 50-49-47-46-45-42 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, en skiljið eftir 12 cm op fyrir klauf neðst á fram- og bakstykki.

KRAGI.
Byrjið við miðju að aftan og prjónið upp frá réttu 1 l í hverja l í kringum allt hálsmálið á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 66-66-66-69-69-69 l. Prjónið síðan A.1 í 10 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-48

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Rene Gould wrote:

Can you take me through the a1=3 in this pattern I don't understand chart please get me through it I love the pattern but don't no about these 3 stitches thank you pattern is 166-48

19.09.2020 - 16:38

DROPS Design answered:

Dear Renee, HEREis a tutorial that helps you understand, how you can read knitting pattern-diagrams. If you are still having troubles, don't forget that you can always as for help - in person or over the phone, in the store, where you bought your DROPS yarn from. Happy knitting!

20.09.2020 - 02:14

country flag Saskia wrote:

Für die Armlängen, ist es richtig, dass für Größe S 50cm aber für Größe XXL nur 42cm Gesamtlänge gestrickt werden müssen?

23.04.2020 - 11:00

DROPS Design answered:

Liebe Saskia, ja genau, die Länge ist immer kürzer in den kleineren Grössen, weil die Schulter breiter in den grösseren Grösse sind. Sehen Sie die Maßskizze und damit können Sie anpassen wenn nötig ist. Viel Spaß beim stricken!

23.04.2020 - 14:55

country flag Lefebvre wrote:

Bonjour, Je viens de commander en ligne 9 pelotes du fil indiqué et je compte faire ce pull en S pour ma petite fille ! je m'aperçois que vous indiquez 11 pelotes ! puis-je le tricoter un peu plus court et réussir à le terminer ?

30.09.2019 - 12:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lefebvre, il faut effectivement 11 pelotes Brushed Alpaca Silk pour ce pull en taille S, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir vous dire quels ajustements vous devriez faire pour 9 pelotes seulement, il vaut mieux que vous regardiez avec votre magasin pour qu'ils vous en ajoutent 2. Bon tricot!

30.09.2019 - 13:19

country flag Sophia wrote:

In front piece pattern say slip the middle 11st on st holder.how can I make the decreases ? Isn't the same way with back piece to decrease for neck?thank you.

12.02.2019 - 10:10

DROPS Design answered:

Dear Sophia, on front piece work each shoulder separately while slipping the middle 11 sts on a thread instead of casting them off (as on back piece), then continue each shoulder separately back and forth casting off at the beg of every row from neck 2 sts 2 times and 1 st 1 time. you will then later slip sts from thread back on needle and pick up sts around neck for neck edge. Happy knitting!

12.02.2019 - 11:39

country flag Sophia wrote:

What do you mean in NoTE:work next to last st.on row seen fromRs In stocking st?thank you.

03.02.2019 - 22:12

DROPS Design answered:

Dear Sophia, the next to last stitch will be worked in stocking stitch, ie K from RS and P from WS. Happy knitting!

04.02.2019 - 13:53

country flag Majbrith Havn Christensem wrote:

Hej Jeg kan ikke få ærmerne til st passe. Det er som om det er for få masker. Strikker i medium og ærmet bliver simpelthen for smalt, hvis jeg strikker efter opskriften. Jeg tror heller ikke længden af ærmerne passer, da ærmet er længere i str. Small i forhold til xl. Er der mon en fejl? Mvh Majbrith

25.12.2017 - 17:38

DROPS Design answered:

Hej Majbrith, Jo hvis du har 43 masker til sidst som der står i opskriften, så måler det 33 cm hvis du overholder strikkefastheden (43/1,3= 33cm). Luk LØST af! Strikker du med 2 tråde Brushed Alpaca Silk?

02.01.2018 - 11:42

country flag Asma wrote:

Bonjour, comment se tricote les 5 premières et les 5 dernières mailles du dos après les 5 cm de côtes sur les rangées envers? Merci!

29.10.2016 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Asma, on commence par 1 m point mousse, 1 m end, 2 m env, on répète A.1 et on termine par 1 m end, 2 m env, 1 m end et 1 m point mousse. Sur l'envers, on tricote: 1 m point mousse, 1 m env, 2 m end, 1 m env, on tricote A.1 et on termine par 2 m end, 1 m env, 1 m point mousse. Bon tricot!

31.10.2016 - 10:06

country flag Lisa Szkotak Jensen wrote:

Jeg vil stikke denne model (166-48) str. Large. Kan jeg bruge garn Melody med 1 tråd og tilpasse pinde efter opskriftens strikkeprøve. Kan du regne det ud for mig. Regner med at købe 400 gr Melody fv 14. På forhånd tak. Venlig hilsen Lisa

28.01.2016 - 15:03

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Du kan sagtens strikke denne med 1 traad Melody og du skal holde strikkefastheden som angivet i mönstret. Saa strik en pröve först og brug den pind som du skal bruge for at faa 13 m x 17 p glatstrik paa 10 x 10 cm.

01.02.2016 - 16:04

country flag Brummer wrote:

Wie muss man für den Arm zunehmen? Ich sehe dazu nichts in der Anleitung.

15.01.2016 - 09:02

DROPS Design answered:

Unter Ärmel steht, wie Sie zunehmen müssen: "Bei einer Gesamtlänge von 10-10-9-9-10-10 cm beidseitig neben der Rand-M mit den Zunahmen beginnen - ZUNAHMETIPP lesen!" - Sie müssen also zusätzlich noch oben am Beginn der Anleitung den Zunahmetipp lesen. Und weiter: "Diese Zunahmen alle 12-9-7-6½-4½-3½ cm noch weitere 3-4-5-5-7-8 x wdh".

23.01.2016 - 18:07

country flag Dilianne wrote:

Inderdaad zeg, dan wordt de trui wel erg zwaar en heb ik heel veel nodig. Het is dus niet mogelijk om deze met 1 draad te breien in plaats van met een dubbele draad Paris (ik vind die brushed alpaca wel mooi maar het is zo warm)?

17.12.2015 - 18:53

DROPS Design answered:

Hoi Dilianne. Ik denk dat het wel kan, wel wordt de steek wat losser. Dus brei eerst een proeflapje met de juiste stekenverhouding en beslis of je het mooi vindt.

18.12.2015 - 15:44