DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Lothlorien

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, garðaprjóni og sjalkraga. Stærð S-XXXL.

DROPS 166-43
DROPS Design: Mynstur nr bs-085
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-400-450 gr litur nr 8465, milligrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-175-175 gr litur nr 10, grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm. (+ 1 auka hringprjónn fyrir byrjun á stykki).
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón á kraga.
DROPS PERLUTALA BOGALAGA (hvít), NR 522: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.8. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þ.e.a.s. fyrstu 4 l garðaprjón séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S/M: 29, 37 og 45 cm.
STÆRÐ L/XL: 28, 36 og 44 cm.
STÆRÐ XXL: 27, 35 og 43 cm.
STÆRÐ XXXL: 27, 35 og 43 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er á 2 st hringprjóna 80 cm til að fá pláss fyrir allar l í byrjun á stykki.
Byrjað er neðst niðri á bakstykki og framstykki, lykkjum fækkað í hvorri hlið og haldið er síðan áfram á bakstykki, sjalkraginn er prjónaður áður en stykkið er saumað saman.

PEYSA:
Fitjið upp 429-489-529-549 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið mynstur frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðustu l í A.1, A.1 (= 20 l) 21-24-26-27 sinnum á breiddina, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þær 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina eru 261-297-321-333 l á prjóni. Endurtakið A.X 1 sinni til viðbótar á hæðina. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið 2 síðustu umf í A.X 11-10-9-9 sinnum til viðbótar á hæðina. Stykkið mælist ca 38-37-36-36 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið nú þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (= 6 l), A.3 (= 12 l) 20-23-25-26 sinnum á breiddina, A.4 (= 7 l), 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina er haldið áfram með A.5 innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið. ATH: Í 7. hverri umf er síðasta l á undan kantlykkjum að framan prjónuð slétt og í 10. hverri umf er aukið út um 2-1-2-1 l = 263-298-323-334 l. Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í byrjun á þessum 2 umf eru felldar af 77-91-100-102 l = 109-116-123-130 l. Haldið nú áfram þannig: 4 l garðaprjón, A.6 (= 6 l), A.7 (= 7 l) þar til 8 l eru eftir, A.8 (= 4 l), 4 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 84-92-96-97 cm – stillið af að endað sé á umf 6 eða 12 í A.6-A.8 – skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og haldið áfram í garðaprjóni til loka. Prjónið fyrstu 45-48-50-53 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l, prjónið 4-4-5-5 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l, prjónið 7-8-9-10 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l, prjónið 4-4-5-5 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l, prjónið næstu 45-48-50-53 l (= 4 prjónamerki). Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l á undan 4 l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING, (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki í 4. hverri umf 4 sinnum til viðbótar (= 20 l fleiri) = 129-136-143-150 l. Í næstu umf í garðaprjóni er ekki prjónað yfir síðust 10-14-16-18 l í hvorri hlið, síðan í næstu 16 umf í garðaprjóni er prjónað yfir 4 l færri í hverri umf. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 12-16-20-24 l jafnt yfir = 141-152-163-174 l. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saum A og B saman (sjá mynsturteikningu). Saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Handvegur = 20-22-23-24 cm. Endurtakið í hinni hliðinni. Þ.e.a.s. saumið saum C og D saman alveg eins. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður br. Það eiga að myndast göt!
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = útauknings umferð - sjá skýringu í uppskrift
symbols = 2 síðustu umf í mynstri eru endurteknar - sjá skýringu í uppskrift
symbols = prjónastefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Chris wrote:

Hello, I see at the very bottom of lothlorien/166-43 a border that looks like a garter stitch band. I don't see it in the written instructions. Do I start with this border or is it added at the finishing of the poncho? Thank you, Chris

08.08.2022 - 04:46

DROPS Design answered:

Dear Chris, the 2 ridges visible at the bottom of the jacket are the 4 first rows worked at the bottom of A.1 (= knit 1 row from RS with decreases, knit 1 row from WS, knit 1 row from RS with decreases, knit 1 row from WS). Happy knitting!

08.08.2022 - 07:54

country flag Patricia wrote:

Re bonjour, j'ai compris pas la peine de me répondre à ma question . Le fait de l'écrire je viens de comprendre. Il ne faut pas tricoter trop tard le soir on n'a pas les idées claires. Merci, bonne journée.

09.03.2020 - 09:06

country flag Patricia wrote:

Bonjour, je viens de finir A1, si j'ai bien compris je dois tricoter A2 A3 A4 puis de nouveau A2 A3 A4 et ainsi de suite sur tout le rang. Je si fais cela au bout d'un moment je suis décalée et les diminutions et les jetés se retrouvent au milieu des 12 mailles de A1. ça ne cadre plus . Je ne sais pas si j'arrive à me faire comprendre, je suis perdue. Merci de votre aide.

09.03.2020 - 08:47

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, vous allez répéter A.3 seulement, autrement dit, vous tricotez vos 4 m de bordure devant au point mousse, puis les 6 m de A.2, puis vous répétez les 12 mailles de A.3 jusqu'à ce qu'il reste 11 mailles, et vous terminez par les 7 m de A.4 et 4 m au point mousse. Sur l'envers, tricotez A.4, répétez A.3 et terminez par A.2 en lisant les diagrammes de gauche à droite. Bon tricot!

09.03.2020 - 12:46

country flag Henna Oron wrote:

Ik vind het vermoeiend om lange tijd naar het beeldscherm te kijken, zijn uw patronen ook als PDF te printen?

21.01.2020 - 22:32

DROPS Design answered:

Dag Henna,

Jazeker! Onder de materialenlijst staat een knop 'Patroon'. Klik hierop en klik dan op afdrukken, om een print te maken van het patroon.

26.01.2020 - 14:51

country flag RossWildflower wrote:

The first row instructions say: Cast on 429-489-529-549 sts on circular needle size 5 mm / US 8 with 1 strand BabyAlpaca Silk and 1 strand Kid-Silk (= 2 strands). Work pattern as follows from RS: 4 band sts in GARTER ST - see explanation above, work last st in A.1, A.1 (= 20 sts) 21-24-26-27 times in width, 4 band sts in garter st. Does this mean I should work the first stitch in ALL RS rows and last stitch in ALL WS rows as the last st in A.1? For how many rows?

27.06.2019 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs RossWildflower, from RS you will always work the last stitch in A.1 after the front band sts and before repeating A.1 (read diagrams from the right towards the left). From WS work the front band sts, then repeat A.1 (read diagrams from the left towards the right) then work the last st in A.1 and finish with the front band sts. That way pattern will be symetrical on each side. Read more about diagrams here. Happy knitting!

28.06.2019 - 06:27

country flag Pauline wrote:

Hallo, ich würde allzu gerne dieses Modelll stricken, vertrage aber keine Mohair-Garne auf meiner Haut. Kann ich Kid-Silk einfach weglassen? Falls ja, reicht Baby Alpaca Silk 2-fädig für dieses Modell aus oder benötige ich das Garn dann 3-fädig? Welche Nadelstärke ist für Alpaca Silk 2-fädig oder 3-fädig am Besten?

20.06.2019 - 20:52

DROPS Design answered:

Liebe Pauline, Sie können 1 Faden Kid-Silk durch 1 Faden BabyAlpaca Silk ersetzen, so stricken Sie mit 2 Fäden BabyAlpaca Silk - beide gehören der Garngruppe A - benutzen Sie unseren Garnumrechner um die neue Menge zu kalkulieren (die Garnmenge in BabyAlpaca Silk für Ihre Größe kommt noch dazu). Viel Spaß beim stricken!

21.06.2019 - 06:56

country flag Susanne wrote:

Hallo, ich verstehe nicht, was mit „A.X“ gemeint ist? „Wenn A.1 1 x in der Höhe gestr wurde, sind 261-297-321-333 M auf der Nadel. A.X noch 1 x in der Höhe arb. Die KNOPFLÖCHER nicht vergessen - siehe oben. Dann die 2 letzten R von A.X noch 11-10-9-9 x in der Höhe arb. Die Arb hat eine Gesamtlänge von ca. 38-37-36-36 cm ab dem Anschlagrand.“ Nochmal A1???? Danke und Gruß!

18.05.2019 - 14:36

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, wenn A.1 1x in der Höhe gestrickt wird, stricken Sie die mit A.X markierten Reihen = die letzten 18 Reihen in A.1 - dann wiederholen Sie nur die 2 letzten Reihen (siehe Pfeil und schwarzer Punkt). Viel Spaß beim stricken!

20.05.2019 - 10:11

country flag Valérie P. wrote:

Bonjour, Je viens de recommencer l'ouvrage car je ne sais pas si il faut commencer le A1 par la dernière maille du motif sur toute la hauteur du A1? ou simplement sur les 3 premiers rangs ? merci de votre réponse

26.08.2018 - 09:58

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, quand vous tricotez A.1, vous tricotez ainsi: 4 m point mousse, la dernière m de A.1, puis vous répétez A.1 en largeur et terminez par 4 m point mousse, et ce, jusqu'à ce que A.1 soit terminé en hauteur: le motif est ainsi symétrique de chaque côté. Bon tricot!

05.09.2018 - 14:37

country flag Valérie P. wrote:

Bonjour, Je voudrais savoir si vous avez une vidéo qui montre comment monter les 429 mailles avec 2 jeux d'aiguilles circulaires pour ce modèle. Merci

10.08.2018 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie P., nous n'avons pas de vidéo de ce type, montez simplement la moitié des mailles sur une aiguille circulaire, et montez l'autre moité des mailles sur l'autre aiguille à suivre simplement. Bon tricot!

10.08.2018 - 10:56

Marilyn wrote:

I am on row 10, having made the yarnovers in row 9. I don't know how I can purl the yarnovers without creating a new stitch. Row 11 does not show additional stitches. Please help!

09.02.2018 - 03:15

DROPS Design answered:

Hi Marilyn, All the yarn overs are accompanied by either K2 together or slip 1 stitch, knit 1 and pass the slipped stitch over. So the number of stitches stays the same and the pattern gives the lace effect. On the next row purl the yarn overs to leave a hole. Happy knitting!

09.02.2018 - 07:06