Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= br frá réttu, sl frá röngu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Hold Me Close |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Polaris með stroffi, garðaprjóni og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-29 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= 15-15-15-19-19-19 l). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Vegna þyngdar á garninu kemur flíkin til með að teygjast um ca 5-10 cm á lengdina á fram- og bakstykki og ca 10 cm á hvorri ermi ef miðað er við mál í mynsturteikningu. Öll mál í útskýringu eru mælt þegar stykkið liggur flatt. Ef ekki er óskað eftir að flíkin verði ekki lengri en mælingar eru gefnar upp þá er hægt að mæla lengd þegar flíkin hangir uppi (lengd á ermum teygist áfram um ca 10 cm á hvorri ermi). SKIPT UM ÞRÁÐ: Þegar skipt er um dokku af Polaris þá er endanum skipt í tvo hluta á garninu sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan svo að þykktin verði sú sama og áður. Prjónið áfram. Með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan – LESIÐ MÆLING og SKIPT UM ÞRÁÐ! PEYSA: Fitjið upp 83-87-95-107-115-123 l (meðtaldar 2 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 15 með Polaris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, 10-11-13-13-15-17 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hlið), 10-11-13-13-15-17 l sléttprjón, A.1 (= 15-15-15-19-19-19 l), 10-11-13-13-15-17 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hlið), 10-11-13-13-15-17 l sléttprjón, * 3 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum og endið á 2 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm í öllum stærðum – lesið MÆLING, fækkið um 4-4-4-6-6-6 l (1-1-1-2-2-2 l í hvorri hlið að framan og 2-2-2-2-2-2 l fyrir miðju að aftan) með að prjóna 2 l br saman í annarri hverri br mynstureiningu (3 l br verða 2 l br) = 79-83-91-101-109-117 l. Þegar stykkið mælist 36 cm í allar stærðir er fækkað um þær 3 l br sem eftir eru til 2 l br = 73-77-85-94-102-110 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm er stykkinu skipt við prjónamerkin í hvorri hlið og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 21-22-24-27-29-31 l. Prjónið nú garðaprjón yfir 11-11-11-14-14-14 síðustu l við miðju að framan (í stað stroffs), l sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 12-12-11-10-8-7 nýjar l fyrir ermi í lok fyrstu umf í hlið = 33-34-35-37-37-38 l. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm – stillið af að næsta umf sé frá röngu og munið eftir MÆLING. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf (= ranga) eru felldar af fyrstu 23-24-25-24-24-25 l á öxl LAUST af = 10-10-10-13-13-13 l eftir á prjóni fyrir sjalkraga. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón og stuttar umf fram og til baka yfir 10-10-10-13-13-13 sjalkragalykkjur þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 7-7-7-10-10-10 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist ca 8-8-8-10-10-10 cm frá öxl – mælt lengst inn þar sem stykkið er minnst (þá kemur það til með að mælast ca 16-16-16-20-20-20 cm lengst út þar sem stykkið er breiðast). Setjið l á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 21-22-24-27-29-31 l. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. þar sem fellt var af fyrir öxl er þetta frá umf frá réttu eftir 1 umf frá röngu. Sjalkraginn er prjónaður með byrjun frá röngu. BAKSTYKKI: = 31-33-37-40-44-48 l. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 11-11-11-14-14-14 l stroffi við miðju að aftan og fitjið JAFNFRAMT upp 12-12-11-10-8-7 nýjar l fyrir ermar í lok 2 fyrstu umf = 55-57-59-60-60-62 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú 1 umf sl frá röngu og miðju 9-9-9-12-12-12 l eru felldar af fyrir hálsmáli = 23-24-25-24-24-25 l eftir á hvorri öxl, hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Snúið við og prjónið 1 umf sl frá réttu, fellið síðan LAUST. Endurtakið í hinni hliðinni, stykkið mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið saman sjalkragann við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið sjalkragann við hálsmálið aftan við hnakka – saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið sauminn undir ermum. Saumið 2-2-2-3-3-3 tölur í vinstra framstykki. Efsta talan á að vera staðsett ca 2 cm neðan við þar sem garðaprjón byrjar á kanti að framan og saumið í 11.-11.-11.-15.-15.-15. l frá miðju að framan. Staðsetjið næstu 1-1-1-2-2-2 tölur neðan við þessa með ca 10 cm bili á milli talna. Tölum er hneppt í gegnum l á hægra framstykki. KANTUR Á ERMUM: Prjónið upp 30-30-33-33-36-36 l frá réttu innan við 1 kantlykkju neðst í kringum aðra ermina á sokkaprjóna nr 12 með Polaris. Prjónið stroff hringinn (= 1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 22 cm í öllum stærðum (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið neðst í kringum hina ermina. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6925 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (32)
Acebo Raíz wrote:
Greetings. When using the substitute yarns I want to be sure that I do not need to double the total amount. For example, for 1400 g for Polaris, the calculator says l need 1008g of Snow with two threads. So purchase 1008g or 2016g? Thank you.
17.08.2023 - 13:31DROPS Design answered:
Dear Mrs Raiz, you should then get 1008 g DROPS Snow and work with 2 strands - just remember, as always, to check and keep the tension. Happy knitting!
17.08.2023 - 14:20Veronica wrote:
Ik wil van dit patroon graag een jas (10 cm onder de knie) maken van brushed alpaca silk, hoeveel garen heb ik nodig en met hoeveel draden kan ik het beste breien?
29.05.2021 - 11:31DROPS Design answered:
Dag Veronica,
Polaris valt in garengroep F en Brushed Alpaca Silk valt in garengroep C. Je zou dan 4 draden van Brushed Alpaca Silk nodig hebben. Op basis van de looplengte zou je de benodigde hoeveelheid uit kunnen rekenen voor jouw maat. Via deze link vind je meer informatie over het vervangen van garens.
31.05.2021 - 09:33BÉRAIL Martine wrote:
Bonjour, quand je commence à tricoter mon premier rang de 7 mailles pour le col châle qu'est-ce que je fait des 3 mailles restantes ? Et faut-il bien continuer avec 7 mailles jusqu'au bout. Merci pour votre réponse.
18.10.2020 - 17:38DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bérail, vous tricotez des rangs raccourcis pour le col, autrement dit, vous n'allez tricoter qu'une partie de ces mailles = vous tricotez 7 mailles, laissez les 3 dernières m sur l'aiguille gauche, tournez et tricotez les 7 m. Tournez et tricotez maintenant les 10 m = toutes les mailles, tournez et tricotez ces 10 mailles à nouveau. Répétez ces 4 rangs - vous trouverez ici comment tricoter des rangs raccourcis. Bon tricot!
19.10.2020 - 09:19Kati wrote:
Where do you actually start the left front? On the RS or on the WS? I don't really understand what you mean by reversed - correct reversed would mean to start it from the RS and mirror the right front. If you start it on the WS as the front side, you have 1 row less, and you cannot add the stitches for the sleeve on the first row. On the back also - since you cannot cast on for both sleeves on the same row, even with grafting it will look weird on the shoulders because of the garter rows.
17.02.2020 - 03:58DROPS Design answered:
Dear Kati, reversed means that everything that was done on the left side will be worked now on the right side and everything that was done on the right side will be worked now on the left side. If you divided piece after a RS row, then first row on left front piece will be worked from WS (= as on right front piece and as on back piece). Happy knitting!
17.02.2020 - 10:29Marie-France wrote:
Bonjour, au niveau des rangs raccourcis le coté le plus long c'est la ou il y a les 7 mailles ? Merci.
28.07.2019 - 09:44DROPS Design answered:
Bonjour Marie-France! Oui, cette piece est plus longue du cote du milieu devant/de l'encoulure. Bon tricot!
28.07.2019 - 10:22Mindy wrote:
I can’t get started with this because of the instructions “2 band stitches in garter stitch”. What does that mean?
17.01.2019 - 22:34DROPS Design answered:
Dear Mindy, this means to work these 2 stitches K from RS and K from WS. The video below is showing how to work 1 edge st in garter stitch, remember to work 2 sts in garter st as in pattern. Happy knitting!
18.01.2019 - 09:10Ann-May Törnqvist wrote:
Kan jag sticka tröjan Hold me close i Drops Alpaca?
27.11.2018 - 21:07DROPS Design answered:
Hei Ann-May. Denne genseren er strikket i vårt tykkeste garn (fra garngruppe F), mens Alpaca er et av våre tynneste garn (fra garngruppe A). Du kan selvfølgelig strikke den med 8 tråder Alpaca, men jeg vil anbefale deg å bruke et tykkere garn, eller velge en annen oppskrift om du helst vil strikke i Alpaca. Du kan for eksempel strikke med 4 tråder Air (som er 65% alpaca) eller 2 tråder Andes (som er en blanding av alpaca og ull). God fornøyelse
29.11.2018 - 14:19Stefania wrote:
Buongiorno, ma se io volessi usare dei ferri dritti che misura devo prendere? Grazie
06.11.2018 - 07:57DROPS Design answered:
Buongiorno Stefania. Deve usare la misura che le consente di ottenere il campione indicato nelle spiegazioni. Buon lavoro!
06.11.2018 - 08:37Lelletta wrote:
Buonasera! Chiedo scusa, ma il numero dei ferri è 15????? Tale misura credo corrisponda al diametro in mm degli stessi e ciò mi sembra improbabile... tra l'altro, almeno qui in Italia, penso che non si trovino proprio! Attendo un Vostro riscontro e Vi saluto con cordialità!
13.11.2017 - 23:01DROPS Design answered:
Buongiorno Lelletta, il numero dei ferri corrisponde al diametro, ma questo vale per tutti i numeri. Può trovare i ferri da 15 mm presso i nostri rivenditori DROPS. Buon lavoro
14.11.2017 - 08:09Mimi wrote:
I am at the shawl collar now. When pattern says " 1 ridge over all sts, 1 ridge only over the outermost 10 sts toward mid front", does it mean you bind off on 3 sts, leaving only 10 on the needles to work them? and then work the 10 sts for 10 cm? OR is it 1 ridge over all sts and then slip 3 sts and working only 10 sts on two rows, going back to working all 13 sts again? I am doing the XL size. Thanks!
15.01.2017 - 05:06DROPS Design answered:
Dear Mimi, you are here working short rows starting from RS: *work 2 rows over all sts, 2 rows over the first 10 sts* (= there will be 4 rows over the first sts towards mid front and only 2 rows towards shoulder). Repeat these 4 rows until the shorter side measures approx. 10 cm (from shoulder). Happy knitting!
16.01.2017 - 09:43