DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Orabel Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino með hálfu klukkuprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1112
DROPS Design: Mynstur nr cm-019
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur 09, ísblár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón.
DROPSA PERUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 9, 17, 25, 33 og 41 cm.
STÆRÐ M: 11, 19, 27, 35 og 43 cm.
STÆRÐ L: 10, 19, 28, 36 og 44 cm.
STÆRÐ XL: 9, 17, 25, 32, 39 og 46 cm.
STÆRÐ XXL: 9, 17, 25, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ XXXL: 9, 17, 25, 33, 41 og 49 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 119-127-137-146-158-173 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 17-21-26-23-29-29 l sléttprjón, * A.2 (= 11-11-11-14-14-17 l), A.1 (= 7 l) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, A.2, 17-21-26-23-29-29 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með þetta mynstur til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2-3-4-4-4-6 sinnum, 1 l 2-2-3-5-5-5 sinnum = 101-105-109-114-120-127 l á prjóni.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Setjið miðju 35-35-37-38-40-41 l (= 33-35-36-38-40-43 l í hvorri hlið) á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er fækkað um 1 l = 32-34-35-37-39-42 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 65-69-74-78-84-92 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.3 (= 6-6-6-7-7-9 l), * A.1, A.2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 17-21-26-23-29-29 l sléttprjón, 1 kantlykkja að framan. Kantlykkjan að framan og kantlykkja eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með mynstur til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá röngu þannig: Fellið af 3 l 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2-3-4-4-4-6 sinnum, 1 l 2-2-3-5-5-5 sinnum = 56-58-60-62-65-69 l. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm setjið fyrstu 7-7-7-7-8-8 l á band fyrir hálsmál, fellið síðan af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 2 sinnum, 2 l 3 sinnum, 1 l 5-5-6-6-6-7 sinnum = 32-34-35-37-39-42 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Prjónið A.4 í stað A.3. Þegar fellt er af fyrir handveg er fellt af í byrjun umf frá réttu. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 6-10-8-6-10-9 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju á hvorri hlið á stykki, endurtakið útaukningu með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili 15-16-17-18-19-20 sinnum til viðbótar = 78-82-86-90-94-98 l. Þegar stykkið mælist 38-37-36-35-32-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 3-3-3-3-2-2 l í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 42-42-42-42-41-41 cm, fellið síðan af þær l sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki, saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Hálsmálið er prjónað í hring á hringprjóna.
Prjónið upp 105-125 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði) á stutta hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt
symbols = prjónið fyrri uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna saman (séð frá röngu), sleppið hinum uppslættinum niður af prjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1112

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Eva Persson wrote:

Jag förstår inte storleksguiden. Jag har normalt L och jag jämför med bystmåttet på en kofta jag redan har (ca 48) verkar det helt fel. Vänligen tydliggör!

02.03.2023 - 16:43

DROPS Design answered:

Hej Eva, den her kofta er lidt mere oversize. Omkredsen på den mindste størrelse er 56x2=112 cm. Vælg den størrelse som passer dig (vi beskriver nede under lektioner hvordan du læser måttskissen :) )

07.03.2023 - 15:41

country flag Heidi Wu wrote:

I knitted several projects in size M from Garnstudio patterns and they fit me very well. But for this project, I found that size M has a width of 60cm, even size S has a width of 56cm, it sounds too wide fir me. Also from the picture of the model, this pattern is not a loose fitting one. Why?

30.10.2021 - 17:36

country flag Cristina Puigdollers wrote:

Ya he visto el video, ¿ però como se tejer a2 si como la habrá de lana con la mano derecha? Al estilo inglces no continental....muchas gracias

23.02.2021 - 18:45

DROPS Design answered:

Hola Cristina, lo siento pero no lo se. Unirte al DROPS Workshop en Facebook para obtener ayuda.Saludos cordiales!

23.02.2021 - 19:33

country flag Cristina wrote:

Como se tejer al estilo ingles A2?Muchas gracias

21.02.2021 - 16:34

DROPS Design answered:

Hola Cristina, mira el video tutorial AQUI. Buen trabajo!

23.02.2021 - 18:39

country flag Irina Krajewski wrote:

Goedendag! Allereerst wat hebben jullie veel en prachtige patronen!! Nu mijn vraag over dit vest. Ik heb voor truien en vesten kledingmaat 40. Mijn borstomvang is 96 cm. Als ik mij de maat neem en dit wat ruim aanhoud, is maat S hier nog steeds enorm wijd. Op de foto ziet het vestje er niet strak uit maar ook zeker niet zo wijd. Wat doe ik mogelijk verkeerd?

06.09.2020 - 09:22

DROPS Design answered:

Dag Irina,

Je doet niets verkeerd. De maten kloppen zoals ze zijn aangegeven in de maattekening onderaan het patroon. Hier zijn de maten aangegeven van het uiteindelijke vest. Dit vest zit inderdaad vrij ruim, op de foto zie je maat S.

11.09.2020 - 13:53

country flag Luciana wrote:

Buonasera, sto lavorando il cardigan con i ferri dritti, fatto il primo ferro del diagramma m2 ora devo continuare con il rovescio, ma come lavoro le maglie gettate? Grazie in anticipo per la risposta

18.07.2018 - 18:35

DROPS Design answered:

Buonasera Luciana. Nel diagramma A2, sul rovescio del lavoro, deve lavorare insieme a rov la prima gettata e la maglia passata e far cadere dal ferro la seconda gettata. Buon lavoro!

18.07.2018 - 21:18

country flag Numbercruncher wrote:

I've rechecked the tension on the stocking stitch part of the pattern and it is correct. According to the calculation I should need 475g of the Merino ExtraFine. However knitting the right front, I've had to start a new ball less than half way up the piece. There is no way that 10 balls will be enough for the whole garment. What have I done wrong - or is there a problem with the yarn or the pattern? I'm an experienced knitter and am very confused.

05.07.2017 - 11:04

DROPS Design answered:

Dear Numbercruncher, it's quite difficult to answer there, do not hesitate to bring your work to your Store or show them a picture of your work per mail, they should be able to help you. Happy knitting!

05.07.2017 - 12:12

country flag Numbercruncher wrote:

I've been knitting Pattern no cm-019 using Drops merino extra fine, which seems to be equivalent in tension/yardage to Drops cotton merino. I've checked the tension carefully and it's correct, but halfway up the first side it's clear I won't have nearly enough yarn, even though I bought 500g instead of the 450g specified. Any thought or ideas? Many thanks

04.07.2017 - 12:32

DROPS Design answered:

Dear Numbercruncher, did you kept same tension as for your swatch? Did you calculate new amount of yarn for Merino Extra Fine following this calculation? Happy knitting!

04.07.2017 - 15:41

country flag Biegit Christensen wrote:

Jeg skal strikke en trøje på rundpind 3 og skal strikke rundt i falsk patent! hvordan gør jeg?

31.10.2016 - 08:40

DROPS Design answered:

Hej Biegit. Er det mon et andet DROPS mönster? Spörg paa det tilhörende DROPS mönster, saa kan vi hjaelpe dig videre der.

31.10.2016 - 15:19

Angela wrote:

I made this pattern and found it well written and easy to follow. Very happy with the results! Thank you!

09.01.2016 - 21:07