DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 158-38
DROPS Design: Mynstur nr ne-152
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
900-1000-1050-1200-1300-1450 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st og 8,5 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 20 – fyrir mynstur.
DROPS PERLUTALA NR 522: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12672.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig:
Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 2 st í 1 st.

MYNSTUR-1:
Heklið 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st í hverri umf frá réttu og í fremri lykkjubogann á hverjum st í hverri umf frá röngu.

KÚSTSKAFTSMYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Setjið fyrstu ll á prjón nr 20, * takið upp 1 l með heklunál nr 5 í gegnum fremri lykkjubogann á næstu l og setjið l laust á prjóna nr 20 *, endurtakið frá *-* alla umf. Notið 2 prjóna nr 20 ef þörf er á. Allar l í umf liggja nú laust á prjónum nr 20.
UMFERÐ 2 (= rétta):
* Stingið heklunálinni í gegnum 5 fyrstu l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 5 l saman), takið l af prjóni og heklið 1 ll, 5 fl í gegnum 5 lykkjurnar, heklið 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir á prjóni, stingið nú heklunálinni í gegnum 5 l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 5 l saman), heklið 1 ll, takið l af prjóni og heklið 5 fl í gegnum 5 l.
UMFERÐ 3 (= ranga): 3 ll – sjá HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, 1 st framan í lykkjubogann í hverja fl frá fyrri umf (þ.e.a.s. ekki er heklað í ll og kl frá fyrri umf).
UMFERÐ 4 (= rétta): 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st frá fyrri umf.
Endurtakið umf 1-4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:

----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.
Heklið 203-212-235-250-277-296 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Heklið næstu umf þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 st í hverja og eina af næstu 1-4-3-0-3-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 167-175-194-206-229-245 st (3 fyrstu ll = 1 st).
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 1 prjónamerki eftir 48-50-56-59-66-70 st inn frá hvorri hlið (= 71-75-82-88-97-105 st á milli prjónamerkja á bakstykki). Heklið síðan MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar 6 umf hafa verið heklaðar, heklið nú áfram með mynstur-1 yfir síðustu 10 l í hvorri hlið á stykki og st í gegnum báða lykkjubogana á l yfir þær l sem eftir eru. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Síðustu 10 st í hvorri hlið á stykki eru heklaðar með mynstur-1 til loka. Þegar stykkið mælist ca 13 cm er felldur af 1 st hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri) – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 13-7-6-4-3½-2½ cm millibili 2-4-5-8-10-14 sinnum til viðbótar. Eftir alla úrtöku eru 155-155-170-170-185-185 st eftir í umf, þ.e.a.s. nú eru 45-45-50-50-55-55 st á hvoru framstykki og 65-65-70-70-75-75 st á bakstykki. Heklið st saman þar til stykkið mælist ca 42-45-47-50-51-53 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu. Heklið nú KÚSTSKAFTSMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Þegar stykkið mælist 51-54-56-59-60-62 cm, stillið af að næsta umf sé umf 4 (= rétta) í kústskaftsmynstri, heklið nú hvort framstykki og bakstykki til loka hvert fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið kústskaftsmynstur eins og áður þar til 5 st eru eftir á undan prjónamerki = 40-40-45-45-50-50 st (5 st = handvegur). Haldið áfram eins og áður yfir þessar l. Heklið þar til stykkið mælist 71-74-77-80-83-85 cm – passið að endað sé á umf 3 eða 4 í kústskaftsmynstri. Síðustu 20-20-22-22-24-24 l við handveg = öxl, ekki er lengur heklað yfir þessar. Heklið nú mynstur-1 yfir 20-20-23-23-26-26 l við miðju að framan (= kragi). Heklið 4 eða 5 umf, stillið af að næsta umf sé frá réttu. Heklið nú stuttar umferðir frá miðju að framan þannig: 1 st í hverja af 12-12-15-15-18-18 fyrstu st, * 1 hst í næsta st, 1 fl í næsta st og 1 kl í næsta st, snúið við með 1 ll. Hoppið yfir kl og heklið 1 kl í fl, 1 fl í hst, 1 hst í fyrsta st og st út umf *. Snúið við og heklið 1 st í hverja af 8-8-11-11-14-14 fyrstu st, endurtakið síðan í sömu umf, *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt. Stuttu umf byrja frá röngu.

BAKSTYKKI:
Heklið kústskaftsmynstur eins og áður yfir miðju 55-55-60-60-65-65 st (5 st í hvorri hlið = handvegur). Þegar stykkið mælist 69-72-75-78-81-83 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 eða 4 í kústskaftsmynstri, heklið nú 1 umf með st yfir síðustu 20-20-22-22-24-24 st í hvorri hlið (miðju 15-15-16-16-17-17 st = hálmál). Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka og er saumað saman í lokin.
Heklið 44-44-44-50-50-50 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni. Haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 35-35-35-40-40-40 st. Heklið síðan mynstur-1. Þegar heklaðar hafa verið 6 umf svona (stykkið mælist ca 8 cm) og síðasta umf sé frá réttu, heklið þá kústskaftsmynstur til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 í kústskaftsmynstri, aukið út 2 st jafnt yfir í umf 3 í kústskaftsmynstri – lesið ÚTAUKNING að ofan.
Aukið síðan út um 3 st jafnt yfir í næstu umf = 40-40-40-45-45-45 st. * Heklið 1 mynstureiningu af kústskaftsmynstri á hæðina. Heklið umf 1-2 af kústskaftsmynstri, aukið síðan út 2 st jafnt yfir í umf 3 í kústskaftsmynstri. Aukið síðan út um 3 st jafnt yfir í næstu umf = 5 st fleiri *, endurtakið frá *-* 2-2-3-2-3-3 sinnum til viðbótar á hæðina = 55-55-60-60-65-65 st. Heklið kústskaftsmynstur þar til stykkið mælist 55-56-55-56-56-57 cm á hæðina, stillið af að endað sé á umf 3 eða 4. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Heklið 32 ll (meðtaldar 3 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Heklið næstu umf þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 25 st (3 fyrstu ll = 1 st). Heklið nú mynstur-1 þar til stykkið mælist 12 cm, stillið af að síðasta umf er frá réttu. Heklið umf 1 og 2 af kústskaftsmynstri (= 5 mynstureiningar). Klippið frá og festið enda. Heklið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan kant í kant og saumið síðan kraga við hálsmál á bakstykki. Saumið saman ermar kant í kant. ATH: Einungis er saumað í st-umferð á ermi. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. ATH: Ermarnar eru einungis saumaðar við st-umf á fram- og bakstykki. Saumið vasa á framstykki. Saumið tölur í jafnt yfir niður á vinstri kant að framan – efsta talan á að saumast 1 cm niður á kústskaftsmynstri. Hneppið í gegnum st í hægri kanti að framan.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Anneke wrote:

Hallo, Dank u wel voor jullie geduldige uitleg! Ik zie nu (eindelijk) hoe ik het werk in elkaar moet naaien. Geweldig, die ondersteuning na verkoop. Merci!

14.01.2024 - 18:20

country flag Anneke wrote:

Hallo, Excuses, maar ik begrijp echt niet wat hiermee bedoeld wordt: "De bovenkant van de laatste toer van het rechter voorpand wordt tegen de bovenkant van de laatste toer van het rechter voorpand genaaid. Deze naad komt midden achter en dan wordt de kraag tegen de halslijn op het achterpand genaaid." Ik heb allerlei geprobeerd, maar ik zie het echt niet. Kan u het eventueel in andere bewoordingen uitleggen. Vriendelijke groet.

12.01.2024 - 02:07

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Aan de voorpanden heb je op een gegeven moment niet meer over de schoudersteken gehaakt, maar alleen over de steken aan de kant van midden voor. De laatste toer hiervan komt tegen de laatste toer van het andere voorpand. Dus de kopse kant wordt tegen de kopse kant van het andere voorpand genaaid. Daarna wordt de halslijn tegen het achterpand genaaid, waarbij de naad van de kopse kanten tegen midden achter komt.

14.01.2024 - 13:19

country flag Anneke wrote:

Hallo, Betreffende mijn vraag over model nr ne-152 en uw antwoord, Comment 18: ik heb geen twee flapjes op het rugpand. Volgens het patroon dat ik volgde zitten die flapjes aan de voorkant, meer bepaald 1 aan het linker- en 1 aan het rechtervoorpand. Als ik een foto kon toevoegen zou het misschien duidelijker zijn. Of kan u mij zo helpen om dit op te lossen? Fijn nieuwjaar! Anneke

31.12.2023 - 15:59

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Bij het voorpand heb je op een gegeven moment niet meer over de buitenste 20 tot 24 st (afhankelijk van je maat) gehaakt, maar alleen over de steken midden voor, voor de kraag. Dat laatste stukje bedoel ik het 'flapje' mee. De bovenkant van de laatste toer van het rechter voorpand wordt tegen de bovenkant van de laatste toer van het rechter voorpand genaaid. Deze naad komt midden achter en dan wordt de kraag tegen de halslijn op het achterpand genaaid.

01.01.2024 - 13:10

country flag Anneke Nelissen wrote:

Hallo, ik heb model nr ne-152 gehaakt. Bij de afwerking begrijp ik niet wat bedoeld wordt met:"naai de kraag samen middenachter, met de zijkanten tegen elkaar en naai dan de kraag langs de hals op het achterpand. Is hier ergens een instructievideo van te vinden? Vriendelijke groet, Anneke

28.12.2023 - 03:24

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Als het goed is heb je 2 'flapjes' aan de achterkant voor de kraag. Deze naai je met de korte kanten tegen elkaar, zodat je een naad hebt, precies midden achter in de hals. Daarna naai je de kraag langs de halslijn, dus tegen het pand.

30.12.2023 - 18:00

country flag Lorena wrote:

Me podrian explicar a que se refiere donde dice: después hacer 1 p.a. en cada una de las 1-4-3-0-3-4 cad sig, ¿1-4-3-0-3-4?

26.08.2020 - 00:12

DROPS Design answered:

Hola Lorena. Los patrones de DROPS están preparados para varias tallas. Cuando hay en las explicaciones varios números se trabaja como sigue: el primer número es para la talla más pequeña, el siguiente número para la siguiente talla, etc. Cuando solo hay número, eso significa que es igual para todas las tallas.

30.08.2020 - 20:08

country flag Anna Hayward wrote:

I love Drops Designs, but I cannot seem to make sense of your sizing. I recently made this cardigan for my mother, who is a UK size 20. I made it XL but its a little too small. It seems from the measurements that the largest size for this cardigan correlates to a UK size 16 (which isn\'t that large). Should I use a larger hook?

17.09.2018 - 18:41

DROPS Design answered:

Dear Anna, the sizing always depends on the style of the piece, the used yarn, etc. Please always refer to the given measurements for each size and see the drawing at the bottom of the page as well. Always make a trial swatch and adjust your needle accordingly. If the piece you made is too small, you should use a biffer hook / needle. Happy Crafting.

18.09.2018 - 04:42

country flag Helen Kaiser wrote:

Do you happen to have a picture of the collar? I am having problems trying to figure out how to attach. I LOVE these patterns I have another in progress and a few more I am going to make :)

01.01.2018 - 18:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kaiser, there is no picture from the collar, just work as explained, ie short rows to give the collar the correct shape (it will be longer towards mid front and shorter towards shoulder). Happy crocheting!

02.01.2018 - 11:31

country flag Nathalie Marchand wrote:

Bonjour, je suis rendue à assembler mon cardigan, mais en lisant les indiquations je vois qu'on m'indique d' assembler le col, mais je n'ai pas les indiquations pour le faire??? pouvez-vous m'aider? Merci à l'avance et merci pour vos patrons superbes

28.11.2016 - 23:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marchand, cousez le dernier rang des 2 parties du col (devant droit et devant gauche) entre elles puis cousez le col le long de l'encolure dos (la couture des 2 moitiés de col doit arriver approx. au milieu de l'encolure dos). Bon assemblage!

29.11.2016 - 09:15

country flag Andrea Stein wrote:

Finde diese Broomstick Lace Muster wunderschön. Gibt es noch mehr Modelle ausser 158-38, bzw. 158-39, damit?

03.09.2016 - 12:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stein, wir haben auch einen Set mit Mütze, Kragenschal und Fäustlinge - siehe 158-13 und 158-14. Viel Spass!

05.09.2016 - 08:52

country flag Amanda wrote:

I am having so much trouble reading drops patterns can anyone help me to understand better just love all patterns thankyou

04.08.2016 - 02:16

DROPS Design answered:

Dear Amanda, you are welcome to ask your question here or to contact your DROPS store for any further personnal assistance even per mail or telephone. Happy crocheting!

04.08.2016 - 10:32