DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Alana Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXL.

DROPS 156-4
DROPS Design: Mynstur nr u-735
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
650-750-800-850-1050 gr litur nr 55, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 522: 6-6-7-7-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út í hvoru megin við laskalínu (A.1/A.2, prjónamerki, A.2/A.1) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 8 útaukningar í umf.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar l snúnar brugðið (séð frá réttu) og á fram- og bakstykki eru prjónaðar nýjar l inn í mynstur eins og útskýrt er frá að neðan.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l br saman, 2 l br, 2 lykkjkur brugðið saman = 2 l færri.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat. Nýju l eru prjónaðar br (séð frá réttu).

LEIÐBEININGAR:
Í 10. hverri umf eru prjónaðar stuttar umferðir yfir 5 l garðaprjón í kanti að framan (byrjið frá réttu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, herðið á þræði og prjónið sl til baka. Með þessu þá koma kantlykkjur að framan að draga síður stykkið saman að framan.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm
STÆRÐ M: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm
STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 65 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 108-108-113-113-117 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað slétt, JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-23-23-27 l jafnt yfir = 132-132-136-136-144 l. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið nú frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, 1 l br, 2 l sl (= kantur að framan), 12-12-13-13-15 l br, A.1, setjið 1. Prjónamerki, A.2, 2 l br, A.2, 2 l br, A.1, setjið 2. prjónamerki, A.2, 0-0-1-1-3 l br, A.3, 0-0-1-1-3 l br, A.1, setjið 3. prjónamerki, A.2, 2 l br, A.2, 2 l br, A.1, setjið 4. prjónamerki, A.2, 12-12-13-13-15 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón (= kantur að framan) – LESIÐ LEIÐBEININGAR!

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað mynstur jafnóðum þannig:
LASKALÍNA:
Endurtakið útaukningu í hverri umf alls 0-2-10-20-20 sinnum. Aukið síðan út í annarri hverri umf (þ.e.a.s í hverri umf frá réttu) 23-32-30-26-27 sinnum og í 3. hverri umf 6-0-0-0-0 sinnum = 364-404-456-504-520 l.
MYNSTUR:
Prjónið nú mynstur á fram- og bakstykki þannig (útauknu l á ermum eru prjónaðar brugðið):
Fyrstu 6 l sem auknar eru út eru prjónaðar í A.2, næstu 8-9-7-8-8 útauknu l eru prjónaðar br, næstu 6 útauknu l eru prjónaðar í A.2, næstu 8-9-7-8-8 útauknu l eru prjónaðar br. ATH! (Stærð M-L-XL-XXL):
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið þá áfram með A.2 yfir kaðal og br (séð frá réttu) yfir næstu l frá A.3 þar til byrjað er á fram- og bakstykki.

S/M: Aukið síðan út eins og áður á ermi og aukið út innan við A.1/A.2 (þ.e.a.s. á milli A.1 og A.2, við prjónamerki í laskalínu) á fram- og bakstykki 1-4 sinnum til viðbótar. Nýjar l eru prjónaðar br.

L/XL/XXL: Haldið áfram með A.2 yfir næstu 6 útauknu l, prjónið br yfir næstu 7-8-8 útauknu l, aukið síðan út eins og áður á ermi og aukið innan við A.1/A.2 (þ.e.a.s. á milli A.1 og A.2, við prjónamerki fyrir laskalínu) á fram- og bakstykki 1-4-5 sinnum til viðbótar. Síðustu 1-4-5 útauknu l eru prjónaðar br.

Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31 cm frá öxl. Prjónið nú frá röngu þannig: Prjónið 55-60-67-73-76 l (= hægra framstykki), setjið næstu 80-90-102-114-116 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 l undir ermi, setjið blátt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= hlið), prjónið næstu 94-104-118-130-136 l (= bakstykki), setjið næstu 80-90-102-114-116 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, setjið blátt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= hliða), prjónið næstu 55-60-67-73-76 l (= vinstra framstykki). Nú eru 228-248-276-300-312 l á prjóni. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉRÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 106-116-130-142-148 l fyrir bakstykki og 61-66-73-79-82 l fyrir hvort framstykki. Haldið nú áfram með mynstur frá réttu þannig:
S/M: 5 l garðaprjón, 1 l br, 2 l sl (= kantur að framan), 12-12 l br, A.2, setjið prjónamerki, 8-9 l br, A.2, setjið prjónamerki, 8-9 l br, A.1, 7-7 l br, A.2 0-1 sinni á breiddina, 7-7 l br, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 9-9 l br, A.2, 9-9 l br, A.2, setji prjónamerki, 8-9 l br, A.2, setjið prjónamerki, 8-9 l br, A.1, 7-7 l br, A.2 0-1 sinni á breiddina, 7-7 l br, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 12-12 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón.

L/XL/XXL: 5 l garðaprjón, 1 l br, l sl (= kantur að framan), 13-14-15 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.1, 4-6-5 l br, A.2 1-1-2 sinnum á breiddina, 4-6-5 l br, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 10-11-12 l br, A.2, 10-11-12 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.1, 4-6-5 l br, A.2 1-1-2 sinnum á breiddina, 4-6-5 l br, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 13-14-15 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fækkið nú lykkjum og aukið út samtímis þannig:

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum mismunandi þannig:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman við kant við miðju að framan, endurtakið úrtöku með 1½-1½1½-2-2 cm millibili 5-5-4-4-5 sinnum til viðbótar.
JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við miðju kaðal á bakstykki. Endurtakið úrtöku með 2-2-1½-1½-1½ cm millibili 3-3-4-4-6 sinnum til viðbótar.
JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við kaðal í hverri mynstureiningu með br með prjónamerki í (= 8-8-12-12-12-12 prjónamerki). Endurtakið úrtöku með 3-2½-5-4-4 cm millibili 2-3-1-2-2 sinnum til viðbótar.

ÚTAUKNING (í hliðum):
Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út meðfram kaðli við ermi (þ.e.a.s. kaðall frá laskalínu) í mynstureiningu með br í hliðum – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út um 4 l á prjóni. Endurtakið útaukningu með 1½-1½-2½-1½-1 cm millibili 3-4-2-4-10 sinnum til viðbótar.

Þegar útaukningu og úrtöku er lokið eru 200-216-244-264-294 l eftir. Þegar stykkið mælist 11-12-12-13-14 cm prjónið nú mynstur þannig:
5 l garðaprjón, 1 l br, 2 l sl (= kantur að framan), 2-2-4-4-5 l br A.5, A.4, A.5, A.4 0-0-1-1-1 sinni, 7-8-6-11-15 l br, A.2 0-1-1-1-2 sinni á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.4 0-0-1-1-1 sinni á breiddina, * A.5, A.4 *, endurtakið frá *-* 2-2-3-3-3 sinnum á breiddina, A.5 1-1-0-0-0 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.2 0-1-1-1-2 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.4 0-0-1-1-1 sinni á breiddina, A.5, A.4, A.5, 2-2-4-4-5 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón (= kantur að framan). ATH: Stillið af að fyrsta kaðalinn í A.4 og A.5 þannig að það verði falleg skipting á milli mynstra! Haldið áfram með mynstur og útaukningar eftir mynsturteikningu.
Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina og stykkið mælist ca 33-34-34-35-35 cm, eru 316-332-376-396-426 l á prjóni. Setjið prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Prjónið nú stroff innan við 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki þannig:

S/M: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til 7-11 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu í hlið, 2 l br, 2 l sl, 3-4 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br fram að kantlykkjum að framan.

L/XL/XXL: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til 8-14-21 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu í hlið, 2-2-2 l sl, 3-4-3 l br, 0-2-2 l sl, 0-3-3 l br, 0-0-2 l sl, 0-0-3 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br fram að kantlykkjum að framan.

Þegar prjónaðar hafa verið 2 cm fyrir stroff frá prjónamerki er aukið út með því að slá uppá prjóninn á undan fyrstu br l í hverri br mynstureiningu – MUNIÐ EFTIR ÚTAUKNING! Þegar prjónað hefur verið 5-5-6-6-6 cm stroff er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið til baka þær 80-90-102-114-116 l af þræði á hringprjóna. Prjónið 1 umf yfir allar l og fitjið upp 12 l í lok umf = 92-102-114-126-128 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýju l (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið síðan ermina í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Miðju kaðall á ermi heldur áfram eins og áður en prjónið br yfir kaðal í laskalínu. Í umf 2 byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6 sinnum til viðbótar = 78-88-100-112-114 l. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki með 2-1½ -1-1-1 cm millibili 13-17-22-27-27 sinnum = 52-54-56-58-60 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað A.5 yfir kaðal fyrir miðju á ermi – stillið af eftir fyrsta kaðli í A.5 svo að það verði falleg skipting á milli í mynstri! ATH: Aukið ekki út í A.5 á ermi, prjónið þess vegna ekki uppsláttinn í mynstri! Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka og ermin mælist 37 cm er prjónað stroff frá prjónamerki í byrjun umf þannig: 0-0-1-2-3 l br, 1-2-2-2-2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 2 l br haldið áfram með stroff eins og í síðustu umf í A.5 (= 26 l), 2 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 3 l br, 1-2-2-2-2 l sl, 0-0-1-2-3 l br. Haldið svona áfram í 3 cm og fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2016
ERMAR:
Setjið til baka þær 80-90-102-114-116 l af bandi á hringprjóna. Prjónið 1 umf yfir allar l og fitjið upp 12 l í lok umf = 92-102-114-126-128 l.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l br af hjálaparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l br, 2 l slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (162)

country flag Erika Herren wrote:

Ich habe bereits viele von ihren Designs nachgestrickt und alle sind super gelungen. Die Jacke 156-4 soll von oben nach unten gestrickt werden.Die Anleitung dazu ist mir jedoch viel zu kompliziert. Gibt es eine passende Anleitung welche man einfacher nachstricken kann.. Mit der jetzigen Anleitung schaffe ich es leider nicht. Für eine zeitnahe Rückmeldung bin ich Ihnen sehr dankbar

12.04.2024 - 01:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Herren, hier finden Sie alle unsere Jacken, die von oben nach unten gestrickt sind; gerne können Sie auch diese Anleitungen filtern. Viel Spaß beim Stricken!

12.04.2024 - 08:31

country flag Elise wrote:

Voilà ce que je ne comprends pas après beaucoup de réflexion : il faut faire des augmentations envers au niveau des manches, d'accord mais en début de travail est est plus que difficile de visualiser où sont les manches sur la globalité du travail.

03.10.2023 - 20:16

DROPS Design answered:

Bonjour Elise, vous augmentez pour les devants, le dos et les manches pour le raglan mais tricotez ces augmentations différemment, celles des devants et du dos vont se tricoter en point fantaisie progressivement, celles des manches vont se tricoter uniquement en jersey envers. On place des marqueurs au début pour mieux se repérer, n'hésitez pas à en placer d'autres si vous êtes plus à l'aise ainsi. Bon tricot!

04.10.2023 - 07:55

country flag Milena SARDELLA wrote:

Hallo, I find the instructions particularly complex and not understandable, and so did 2 different knitting 'teachers' I asked. Is there any chance to receive help individually online? Thank you Milena

22.07.2023 - 22:42

DROPS Design answered:

Dear Milena, if you have any specific questions you can ask them here and we will answer as best as possible. You can also try the DROPS Workshop Facebook group, where other knitters will be able to give you feedback on your work and help or advise you when in doubt. Happy knitting!

23.07.2023 - 19:41

country flag Dawn wrote:

Yoke: whichever size you are knitting, the instructions are missing 20 stitches. 132-132-136-136-144 after inc, but only 112-112-116-116-124 are in directions. How/Where are the remaining 20 stitches placed? In looking at the pictures, I would guess that over the sleeves should be A.2, P 7, A.2, P 7, A.1 instead of A.2 , P 2, A.2, P 2, A.1. Please clarify.

01.10.2022 - 04:11

DROPS Design answered:

Dear Dawn, the instructions are correct. For example, for size S: 5 sts in garter st, P1, K2, P12, A.1 (=6), insert 1st marker, A.2 (=6), P2, A2 (=6), P2, A.1 (=6), insert 2nd marker, A.2 (=6), P0, A.3 (=24), P0, A.1 (=6), insert 3rd marker, A.2 (=6), P2, A.2 (=6), P2, A.1 (=6), insert 4th marker, A.2 (=6), P12, K2, P1, 5 sts in garter st. In total, it adds up to 132 stitches. Happy knitting!

03.10.2022 - 01:13

country flag Glenda Resnick wrote:

Hello, I just asked a similar question yesterday, however I don't want to mess up so close to the end...this was a poorly done pattern but I like the sweater. I have been knitting almost 60 years. I am at the final increase in the rib before cast off. I am looking at 58 increases ...I am knitting an XL. I am pretty sure that I followed the pattern correctly. Is this too many?

30.09.2022 - 19:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Resnick, as long as you increase in every purl section before casting off, it should work; the increasing in the purl sections will allow enough width without getting a too wider edge. Happy knitting!

03.10.2022 - 08:16

country flag Glenda Resnick wrote:

I don't understand the last increase before casting off stitches....how many'purlsections' are there? how many stitches constitute a purl section? In other words...how many inctmreases should there be for the rib?

30.09.2022 - 06:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Resnick, increase 1 stitch in every section worked with purled stitch whatever the number of sts there are and either purled stichtes from rib or from pattern. The number of stitches increased will depend on your size, simply increase 1 purl stitch every time you purl between knitted stitches. Happy knitting!

30.09.2022 - 08:24

country flag Katarina Pettersson wrote:

Kan man byta ut karisma mot lima? lika mycket garn i så fall?

15.09.2022 - 12:10

DROPS Design answered:

Hej Katarina, ja det kan du, testa vår garn-konverterare; välj Karisma, välj antal g i din storlek och välj 1 tråd så ser du hur mycket du skall ha i DROPS Lima :)

15.09.2022 - 15:18

country flag Glenda Resnick wrote:

What is the best way to increase on every row to get a smooth edge?

30.04.2022 - 21:40

DROPS Design answered:

Dear Glenda, you can increase in an edge stitch (before or after it, depending on the side you are working on). If there is a big hole after a YO, you can pick up the horizontal thread between two stitches and work it twisted. Happy knitting!

30.04.2022 - 22:30

country flag Pauline E Thorson wrote:

I am looking at this pattern. Is it me or do the gauge and the completed inches for each size does not add up? For example, if I take the stitch count at the separation for the sleeves (assuming this is around the bust size) for the XXL size says I will have 312 stitches. Assuming I have the correct gauge of 21 stitches= 4 inches. that means that there are 5.25 stitches per inch. 312/ 5.25= 59.5 inches. What am I missing to get the 47.5 inches that the pattern says at the top?

28.04.2022 - 07:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thorson, the tension of 21 sts = 4" is measured when working stocking stitch, but you will need more stitches to work cables. Should your tension be right and if you keep this tension when working, then you will have the correct finished measurements. Happy knitting!

28.04.2022 - 11:56

country flag Glenda Resnick wrote:

On the yoke it says inc every row 20 times (for raglan) then incr every other row 26 times...it also says that all Inc are done on the right side so are the incr's done on every RS row then every other RS row?

26.04.2022 - 06:25

DROPS Design answered:

Hi Glenda, You increase to raglan first on every row (both right and wrong side) x 20, then every other row (each row from the right side ) for the remaining increases. Happy knitting!

26.04.2022 - 06:55