DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 156-40
DROPS Design: Mynstur nr an-023
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

HATTUR:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 3410, ljós bláfjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
100 gr litur nr 3410, ljós bláfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - ofan frá og niður.

HATTUR:
Fitjið upp 9 l á prjóna nr 8 með Andes.
UMFERÐ 1 (og síðan umf frá röngu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 17 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo að ekki myndist gat.
UMFERÐ 4 (= rétta): * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 25 l.
UMFERÐ 6 (= rétta): * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 33 l.
UMFERÐ 8 (= rétta): * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 41 l.
UMFERÐ 10 (= rétta): * 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 49 l.
UMFERÐ 12 (= rétta): Prjónið sl JAFNFRAMT er aukið út um 6-8 l jafnt yfir (= ca eftir 8. – 6. hverja l) = 55-57 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 9-10 cm er prjónað garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 4 l jafnt yfir = 59-61 l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 14 og 16 cm = 67-69 l á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 17-18 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman yst í lykkjubogann. Herðið að efst uppi á hatti og festið vel.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað í hring á hringprjóna, síðan er stykkinu skipt upp og prjónað er fram og til baka, stykkin eru aftur sett saman og prjónað er í hring.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 49 l á hringprjóna nr 8 með Andes. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 12 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Skiptið nú stykkinu og prjónað er fram og til baka í sléttprjóni þannig: Prjónið yfir fyrstu 4 l, setjið þær síðan á þráð, prjónið yfir þær l sem eftir eru, endurtakið alveg eina í hinni hliðinni. Nú eru 4 l á þræði í hvorri hlið á stykki. Prjónið nú áfram þannig: *Prjónið yfir 2 fyrstu l, setji þær síðan á þráð, prjónið yfir l sem eftir eru *, endurtakið frá *-* í hverri umf. Þ.e.a.s. setjið 2 l á þráð í hvorri hlið á stykki í þessum 2 umf. Haldið svona áfram þar til 1 l er eftir í umf (= miðjulykkja). Klippið frá.

Setjið síðan til baka allar l á hringprjóna = 49 l.
Stykkið er nú prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Prjónið þannig: * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* að miðjulykkja (= 24 sinnum), 1 l br, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br *, endurtakið frá *-* út umf (= 24 sinnum) = 97 l. Prjónið 1 umf slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Prjónið síðan 2 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. l, hvoru megin við miðjulykkju (þ.e.a.s. 48 l í hvorri hlið) og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan síðustu l í umf = 101 l á prjóni. Fellið laust af.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Corina Avram wrote:

Also, what should happen after the hat reaches 14-16cm? One should knit without increasing until 17-18 cm?

18.12.2023 - 13:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, when piece measures 14 cm, increase one more time, then when piece measures 16 cm increase one last time (there are now 67-69 sts), then continue over these stitches until pieces measures 17-18 cm, then cast off. Happy knitting!

19.12.2023 - 07:31

country flag Corina Avram wrote:

Hello, about the hat instructions: "When piece measures 9-10 cm, work in garter st over all sts AT THE SAME TIME on 1st row inc 4 sts evenly = 59-61 sts. Repeat inc when piece measures 14 and 16 cm = 67-69 sts on needle" Is the increase done on every row, RS and WS? My hat reached 69 stitches, but measures only 12 cm. Thanks :) Corina

18.12.2023 - 13:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, increase on a row from right side (read how to increase evenly here); increase when hat measures 10 cm, then work until it measures 14 cm and increase evenly 4 sts, then work until it measures 16 cm and increase 4 sts evenly = there are 69 sts in total when piece measures 16 cm.. Cast off when it measures 18 cm. Happy knitting!

18.12.2023 - 16:21

country flag Diane Turcot wrote:

Pour le tour du cou, après que l'ouvrage mesure 12 cm, vous dites de le diviser, en deux? Donc 25 et 24 m. Pouvez-vous expliquer clairement la suite. Tricoter les mailles restantes? Combien, le reste des 25? Ensuite on tourne?Je ne comprends pas. SVP, aidez-moi, je veux le réussir. MERCI

26.10.2021 - 02:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Turcot, vous divisez l'ouvrage pour le tricoter de ce moment en allers et retours (pas en rond) en jersey sur les aiguilles circulaires. Ce sont les rangs raccourcis. Regardez la video ICI. Pour la suite, suivez les explications. Bon tricot!

26.10.2021 - 17:21

country flag Helena wrote:

Sadly, I still don't understand the instructions for the neck warmer. Also, it always helps to state if the item is knitted top down or bottom up. It helps get a picture of the garment in the head. Hat in this pattern is great though - I knitted 4 of them. Pity about the neck warmer, unless you improve on the instructions.

22.11.2019 - 20:21

DROPS Design answered:

Dear Helena, the neck warmer is worked top down, first in the round, then with short rhows (leave first 4 sts then 2 sts unworked at the end of each row until the middle stitch remains on needle, then work in the round again for the last rounds. Happy knitting!

25.11.2019 - 08:11

country flag Helena wrote:

I have done countless knitting from your patterns and I really like everything you do. However, the instructios for this neck warmer are totally incomprehensible to me. I don't understand at all where to make a division and what stitches to put on a stitch holder and which ones to knit. Love the hat though.

05.10.2019 - 12:47

DROPS Design answered:

Dear Helena, work now in rows (short rows): work the first 4 sts and slip them on a thread, work to the end of the row, turn and work the first 4 sts and slip them on a thread, work to the end of the row (= 4 sts on each side are on a thread). Continue like this but slip the first 2 sts at the beg of each row -both from RS and from WS on a thread until 1 stitch remains (= middle stitch). Happy knitting!

07.10.2019 - 10:55

country flag Rosalba Di Salvio wrote:

Salve,io vorrei fare questo cappello per una taglia 58 cm e 60 cm vorrei farlo con i ferri circolari e il filato Big delight,perché preferisco lavorare in cerchio che con i ferri diritti e poi cucire alla fine,come devo fare? Grazie per l'aiuto

15.02.2019 - 21:05

DROPS Design answered:

Buongiorno Rosalba, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

17.02.2019 - 09:37

country flag Rosalba wrote:

Salve,io vorrei fare questo cappello per una taglia 58 cm e 60 cm vorrei farlo con i ferri circolari e il filato Big delight,perché preferisco lavorare in cerchio che con i ferri diritti e poi cucire alla fine,come devo fare? Grazie per l'aiuto

15.02.2019 - 18:47

country flag Isabelle wrote:

Que veut dire 1m lis au point mousse de chaque côté? Vous dite de continuée en jersey. Merci!

18.02.2018 - 20:27

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, on continue en jersey mais la 1ère et la dernière maille va se tricoter à l'endroit tous les rangs (= mailles lisière pour la couture). Bon tricot!

19.02.2018 - 10:18

country flag Jacqueline Lhote wrote:

Je ne comprends pas la division et le glissement des mailles pour le tour de cou

08.02.2015 - 18:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lhote, vous tricotez comme pour les rangs raccourcis en laissant non travaillées les mailles de chaque côté, puis reprenez toutes les mailles ensemble, en rond. Bon tricot!

08.02.2015 - 19:34

country flag Nicole wrote:

Guten Tag, ich stricke gerade den Kragenschal und bin jetzt an der Stelle, an der die Arbeit geteilt werden und mit dem Stilllegen begonnen werden soll. Ich habe die Arbeit so geteilt, dass ich einmal 24 Maschen und einmal 25 Maschen habe. Werden jetzt immer nur zu Beginn der Hinreihen (zu Beginn der 24 Mashen und dann der 25 Maschen) Maschen stillgelegt? Werden die beiden Teile nacheinander weitergetrickt? Mit freundlichen Grüßen Nicole

08.12.2014 - 07:06

DROPS Design answered:

Das Teilen bedeutet nicht, dass Sie die Arbeit halbieren, sondern es bezieht sich nur auf die nachfolgende Anleitung. Sie gehen also wie folgt vor (nachdem Sie 12 cm in Runden gestrickt haben): Sie stricken die ersten 4 M der Rd, legen diese dann still, stricken die Rd zu Ende, wenden und stricken in der Rück-R die ersten 4 M und legen diese dann still. Dann stricken Sie die Rück-R zu Ende, wenden, stricken die ersten 2 M, legen diese still, stricken die Hin-R zu Ende, wenden, 2 M stricken und stilllegen usw.

08.12.2014 - 09:33