DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Enchanted

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með fölsku klukkuprjóni og stuttum umferðum. Stærð S-XXXL

DROPS 157-25
DROPS Design: Mynstur nr ne-149
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
650-700-750-850-950-1000 gr litur nr 0500, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9152.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: Takið 1 kantlykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónið stuttar umferðir til að fá bogalaga form á stykkið. Snúið einnig við á milli mynstra A.2/A.3!
Stuttar umferðir eru prjónaðar með 1. umf frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 og 2: Prjónið 8 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 3 og 4: Prjónið 12 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 5 og 6: Prjónið 16 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7 og 8: Prjónið 19-19-20-20-19-20 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 9 og 10: Prjónið 21-21-23-23-21-23 l, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram að prjóna 3 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónað hefur verið yfir allar l.
Endurtakið frá umf 1 alls 5 sinnum. (Boginn mælist nú ca 28-31-34-37-41-46 cm yst og 3 cm innst).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá prjónamerki á hlið):
STÆRÐ S: 1-8-15-22-29 cm
STÆRÐ M: 1-8-15-22-30 cm
STÆRÐ L: 1-8-15-22-30 cm
STÆRÐ XL: 1-8-16-23-31 cm
STÆRÐ XXL: 1-8-16-23-31 cm
STÆRÐ XXXL: 1-9-17-25-32 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 63-71-75-83-91-103 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 4 l) þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist göt og síðan eru prjónaðar nýjar l br (séð frá réttu)! Endurtakið útaukningu með 4-4-4-3-3-3 cm millibili 2-2-2-3-3-3 sinnum til viðbótar = 69-77-81-91-99-111 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum, fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig: Fækkið um 3-4-5-6-7-8 l 1 sinni og 1 l 1-3-3-6-7-11 sinnum = 61-63-65-67-71-73 l. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 21-22-22-23-24-25 l, fellið af næstu 19-19-21-21-23-23 l, prjónið yfir 21-22-22-23-24-25 l sem eftir eru á prjóni. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram til baka yfir vinstri öxl og fellið af 1 l við hálsmáli í næstu umf frá réttu = 20-21-21-22-23-24 l fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, prjónið 2 umf garðaprjón og fellið síðan laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA KANTSTYKKI / FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 35-38-42-45-50-57 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið nú frá réttu þannig: Mynstur A.3 (= 18 l), 16-19-23-26-31-38 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 18-21-23-24-26-30 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf í 1. mynstureiningu með stuttum umferðum er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli A.3 og l í garðaprjóni = 36-39-43-46-51-58 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf svo ekki myndist gat. Endurtakið útaukningu í síðustu umf í þeim mynstureiningum sem eftir eru með stuttum umferðum 3-4-1-2-0-0 sinnum til viðbótar = 39-43-44-48-51-58 l á prjóni. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, setjið 1 prjónamerki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni og mynstri eins og áður. Munið eftir HNAPPAGAT- sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út frá hlið eins og á bakstykki (þ.e.a.s. hliðin sem er styttri). Eftir útaukningu eru 42-46-47-52-55-62 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 20 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki (þ.e.a.s. í sömu hlið á stykki þar sem l voru auknar út) = 38-39-39-40-41-43 l. Þegar stykkið mælist 30-31-31-32-32-33 cm, setjið fyrstu 9 l á prjóninn frá réttu á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af l í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 20-21-21-22-23-25 l eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af.

VINSTRA KANTSTYKKI / FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki / framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið 1 umf slétt frá röngu áður en mynstur er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 16-19-23-26-31-38 l garðaprjón, A.2 yfir þær 18 sem eftir eru. Fellið ekki af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni með rönguna út.
Fitjið upp 42-42-44-44-46-48 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 10 cm í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út! Í næstu umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið á ermi – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2-2 cm millibili 8-10-10-12-13-14 sinnum til viðbótar = 60-64-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið: 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið á ermi þar til ermin mælist 57 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist nú ca 58 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkant á kantstykki við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan kantstykki við neðri kant á bakstykki. Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma og ermasauma innan við 1 kantlykkju – og saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 72 l (meðtaldar l af þræði) í hringum hálsmál. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið síðan af frá röngu. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br
symbols = prjónið uppsláttinn og l br saman
symbols = prjónstefna
symbols = byrjið hér á vinstra framstykki/kantstykki
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Mrs M Ringham wrote:

I am knitting 2nd size when l have not got enough stitches. Should the 8 stitches for the front band be added to the 38 stitches needed to start this piece

18.11.2021 - 13:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ringham, in 2nd size you cast on 38 sts for edge/front piece and work as follows (right piece) A.3 (= 18 sts), 19 sts in garter st, 1 edge st in garter stitch = 18+19+1= 38 sts. Happy knitting!

19.11.2021 - 07:42

country flag Giorgia wrote:

Grazie per la spiegazione! ne chiedo un'ulteriore relativa agli INTRECCI per gli scalfi : devo intrecciare a diritto sul ferro a diritto e a rovescio sul ferro rovescio anche se in questo modello le maglie sono lavorate al contrario?

06.07.2020 - 10:55

DROPS Design answered:

Buongiorno Giorgia. Per intrecciare, lavora le maglie come si presentano. In questo caso , ha maglie rov sul diritto del lavoro, quindi le chiude lavorandole a rovescio. Sul rovescio del lavoro ha maglie a diritto e le chiude lavorandole a diritto. Buon lavoro!

06.07.2020 - 16:45

country flag Giorgia wrote:

Problema col DIETRO TAGLIA M. Voi scrivete "lavorare come segue: 1 m di vivagno a m legaccio, A.1 (= 4 m) fino a quando rimangono 2 m sul f, lavorare la 1° m A.1...."perchè la mia penultima maglia risulta essere il gett. +maglia pass. ma il ferro successivo(FERRO ROVESCIO) prevede dopo la m di vivagno 3 m a diritto. Non riesco a capire ????

03.07.2020 - 19:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Giorgia. Al ferro successivo (sul rovescio) lavora 1 m vivagno, poi lavora il simbolo della prima maglia di A1, (quindi lavora insieme a rov la gettata e la maglia passata), poi 3 maglie diritto e così via in modo che il motivo sia allineato correttamente. Buon lavoro!

03.07.2020 - 22:33

country flag Giorgia wrote:

Innanzitutto vi ringrazio per le celere risposta e per mettere a nostra disposizione questi splendidi modelli, ma non riesco proprio a capire cosa significhi "lavorare 1 ferro diritto dal rovescio del lavoro"..

19.06.2020 - 16:34

DROPS Design answered:

Buongiorno Giorgia. Sul davanti sinistro, per iniziare a lavorare il diagramma sul diritto del lavoro (parte del lavoro che si vede quando indossato) è necessario lavorare un ferro a diritto sulla parte del lavoro che rimane all'interno quando il capo è indossato (parte che nelle spiegazione viene indicata come rovescio del lavoro). Buon lavoro!

19.06.2020 - 18:21

country flag Giorgia wrote:

Quando si inizia il davanti sinistro in modo speculare a quello destro non riesco a capire quando scrivete :"Cioè lavorare 1 f dir dal rovescio del lavoro prima di lavorare il motivo". Dopo aver avviato il numero di maglie necessario alla mia taglia e fatta 1 costa a legaccio, cosa devo fare? Lavoro il ferro seguente tutto a rovescio e poi il successivo ferro lo lavoro seguendo lo schema A2?

19.06.2020 - 08:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Giorgia, deve lavorare 1 costa a legaccio, 1 ferro diritto dal rovescio del lavoro e poi inizia a lavorare il motivo come indicato.

19.06.2020 - 15:48

country flag June Long wrote:

I love this pattern having just purchased it can it be worked on two needles instead of a circular one thank you

02.10.2019 - 15:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Long, this pattern is worked in different pieces worked back and forth on circular needle to get enough room for all stitches, you can here use straight needles instead. Read more here about circular needles. Happy knitting!

02.10.2019 - 16:01

country flag Nicole wrote:

Hallo ich bin gerade beim rechten Vorderteil mit den verkürtzten Reihen fertig,nun heißt es Markierer anbringen die Arbeit wird von hier gemessen. Nun meine Frage: wird die Arbeit an der Blende gemessen oder an der kraus rechten Seite wo die Arbeit ja kürzer ist.? Würde mich über Antwort freuen damit ich weiterstricken kann 😊,lg

13.04.2019 - 10:58

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, jetzt messen Sie an der rechten Seite bzw vom Ende den verkürzten Reihen - siehe auch Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

23.04.2019 - 09:33

country flag Diana wrote:

It\'s a very nice pattern and is well explained. Thanks again

29.03.2019 - 05:47

country flag Malika Katharina Raduenz wrote:

Guten Abend,\r\nich verstehe diese Anleitung überhaupt nicht! Wieviele Maschen muss ich anschlagen für Größe XL, 83 oder 85? Und was bedeutet diese Strickrichtung?? Auf mich wirkt diese Anleitung durcheinander und unübersichtlich! Schade.\r\nIch habe schöne Stücke mit Drops gestrickt....\r\nMalika

07.12.2018 - 21:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Raduenz, in der Größe XL schlagen Sie für den Rückenteil 83 M. Rückenteil ist von unten nach oben gestrickt. Dann stricken Sie die beiden Vorderteilen, die zuerst quer von der Mitte Rückenteil gestrickt sind (siehe Pfeil und Sternchen in der Maßskizze), dann stricken Sie die verkürtzten Reihen (gestrichelten Linien) und dann von unten nach oben. Viel Spaß beim stricken!

10.12.2018 - 11:08

country flag Caroline wrote:

So I've come back to this project having got stuck at the start the short rows in size M. I understand how to go through the short rows, but the description says to 'work short rows as follows' do I continue with the existing pattern or do I just knit and purl the short rows? My 1st row from the RS starts on the 7 rib sts. Thank you

14.08.2018 - 16:54

DROPS Design answered:

Dear Caroline, the short rows on front pieces are worked in pattern, starting with the 8 first sts from RS, ie 8 sts in A.3 on right edge/front piece - start reading diagram from RS on the bottom corner on the right side towards the left -and from the left towards the right from WS). Happy knitting!

16.08.2018 - 08:48