DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1232.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-35
DROPS Design: Mynstur nr u-056-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/3 - 6/18 mán (2/4) ára
Höfuðmál cm: 38/42 – 44/46 (50/52) cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50-50-(50) gr litur nr 01, natur
50-50-(50) gr litur nr 70, ljós blágrár

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 hst á breiddina og 14 umf með fl á hæðina verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1232.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Fyrsti hst í hverri umf er skipt út fyrir 2 ll. Hver umf endar á 1 hst í 2. ll frá byrjun fyrri umf.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Fyrsti hst í byrjun hverrar umf er skipt út fyrir 2 ll. Hver umf endar á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf.

RENDUR:
* 2 umf hst með litnum ljós blágrár, 2 hst með litnum natur *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 hst með því að hekla 2 hst í næst síðasta hst.

HST HEKLAÐIR SAMAN:
Fækkað er um einn hst með því að hekla 2 hst saman, þ.e.a.s. heklið einn hst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l eftir á heklunálinni), heklið 1 hst í næstu l og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 5 l á heklunálinni.

FL HEKLAÐAR SAMAN:
Heklið 2 fl saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðir eyrnaleppar fram og til baka, síðan er stykkið heklað í hring.

EYRNALEPPUR:
Heklið 5 ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós blágrár.
Heklið 1 hst í 3.ll frá heklunálinni, 1 hst í 2 næstu ll = 4 hst, snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT er heklað þannig:
Heklið 1 umf hst JAFNFRAMT er aukið út um 1 hst í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umf alls 4-5 (6) sinnum = 12-14 (16) hst. Haldið áfram með hst og endið þegar eyrnaleppurinn mælist 5-6 (8) cm – stillið af eftir tvær umf með litnum natur.
Geymið stykkið og heklið annan eyrnalepp á sama hátt.

HÚFA:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 7-7 (7) ll með litnum ljós blágrár, heklið hst yfir annan eyrnaleppinn, heklið 16-18 (20) ll (= miðja að framan), heklið hst yfir hinn eyrnaleppinn, heklið 7-7 (7) ll og endið á 1 kl í fyrstu ll = 54-60 (66) ll/hst. Byrjið á umf = miðja að aftan. Í næstu umf er heklaður 1 hst í hverja ll/hst. Haldið áfram með hst hringinn með röndum. Þegar stykkið mælist 8-10 (11) cm frá miðju að aftan er næsta umf hekluð með úrtöku þannig: * 1 hst í hverja af fyrstu 4 lykkjum, heklið síðan 2 næstu hst saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn (nú hefur fækkað um 9-10-11 hst í umf). Heklið 1 umf án úrtöku og næstu umf þannig: * 1 hst í hverja af fyrstu 3 lykkjum, heklið síðan 2 næstu hst saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn.
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (með 1 hst færri á milli úrtöku í hvert sinn sem lykkjum er fækkað), 2 sinnum til viðbótar = 18-20 (22) hst í umf. Heklið 2-2 (3) umf án þess að fækka l. Í næstu umf eru allir hst heklaðir saman 2 og 2 = 9-10 (11) hst eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu l, herðið að og festið. Húfan mælist ca 16-18 (20) cm ofan frá og niður.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál nr 4,5 með litnum natur í kringum opið á húfunni þannig: * 1 fl í fyrstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 l/umf *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði í litnum natur ca 150 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, þræðið snúruna í gegnum annan eyrnaleppinn (neðst fyrir miðju), leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á endann.
Gerið aðra snúru á sama hátt neðst á hinn eyrnaleppinn.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Chiara Brambilla wrote:

How do I know when I have to change colour in the hat to obtain the light blue and white lines? / come faccio a capire quando cambiare colore nel cappello?

24.12.2020 - 19:17

DROPS Design answered:

Hi Chiara! STRIPES: * 2 rows/rounds htr with light blue grey, 2 rows/rounds htr with off white *, repeat from *-*. And follow the instrucions :) Happy crocheting!

24.12.2020 - 23:27

country flag Angélique wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas le début de l'étape bonnet.J'ai monté mes 7 ml mais après faut-il utiliser ces ml pour effectuer les db dans le premier cache-oreille déjà fait ou bien je fais mes 7ml que je mets de côté et je continue en db dans mes 12 db monté du cache-oreille puis je continue avec les 18 ml puis je rajoute le 2eme cache-oreille puis 7 ml.Je ne comprends pas ce passage?Pourriez-vous m'expliquer?Un grand merci d'avance.Angélique

13.11.2019 - 15:04

DROPS Design answered:

Bonjour Angélique, après les 7 ml (demi-dos), vous crochetez un des cache-oreilles soit 12 dB, puis vous crochetez 16 ml (devant du bonnet), le 2ème cache-oreille soit 12 dB et 7 ml (demi-dos) et terminez par 1 mc dans la 1ère des ml du tour = vous avez maintenant 2 x 7 ml au milieu dos et 16 ml pour le devant du bonnet. Bon crochet!

13.11.2019 - 15:48

country flag Sylvia Brown wrote:

I'm not sure what yarn type B is. Would be the same as a 3? And I also want you to know how much I love your patterns!!

21.08.2019 - 19:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brown, you'll find here the list of your yarn group B - you can read more about the yarn used here in its Shadecard. Happy crocheting!

22.08.2019 - 09:29

country flag SOLVEIG GARNES HAUGEN wrote:

Iflg oppskriften skal jeg hekle 18 lm, og deretter halvstaver over neste øreklaff. Dette blir jo alt for kort? Samtidig står det (=midt foran), noe som får meg til å lure på om det betyr at jeg skal hekle 18 lm til før jeg hekler over den andre øreklaffen. Hva er riktig? Når jeg hekler 18 lm på nål 4,5 blir det omtrent passelig til dukken...

05.06.2018 - 00:08

country flag Rebecca wrote:

Have previously made earflap hats, all of which were part of the hat, not separate. Because these earflaps are made separately and there are no pattern directions regarding best way to attach, plus cm from mid-front of "newborn" hat body to "cheek-side" edge of each earflap, I need help in making these determinations. If the newborn lived near me, this would not be an issue, but little Daniel lives 3,000 miles from my home. Appreciate your assistance. Kindest regards.

01.03.2018 - 02:15

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, if your tension is correct, then just follow the pattern crocheting first 7 ch, then 1 hdc in each of the st from 1st earflap, 16 ch (= mid front), 1 hdc in each of the st from 2nd earflap, then 7 ch and join in the round = you should have now 54 sts (ch on back piece + front piece and hdc over both earflaps). Happy crocheting!

01.03.2018 - 09:27

country flag Jessica wrote:

Hejsa. Jeg har et spørgsmål: De 2 lm jeg starter hver række med, skal jeg der i den ene af dem lave 1 halv-st i på hver række? Og i forhold til udtagning, menes der den sidste halv-st inden de 2lm eller næst sidste halv-st? Mvh. Jessica

18.04.2017 - 10:14

DROPS Design answered:

Hej Jessica, hvis du har erstattet en halv-st med 2 lm, så tæller de med som halv-st. Ja du tager ud i næst yderste halv-st, som der står under udtagningstipset. God fornøjelse!

28.04.2017 - 08:58

country flag Melanie wrote:

Hallo. Ich habe eine Frage zu den Ohrenklappen. Ich beginne mit 5 Luftmaschen. Muss ich auch hier breits der häkelinfo1 folgen und bereits hier zwei Luftmaschen zusätzlich machen? OderUSS man hier einfach in die zweite LM stechen und dann 4 halbe Stäbchen häkeln? Vielen Dank bereits im Voraus für Ihre Hilfe. MfG

02.04.2017 - 17:48

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, die 2 Lm zum wenden sind in den 5 Lm inbegriffen, dh 5 Lm häkeln, und 1 H-Stb in die 3. Lm von der Nadeln, und 1 H-Stb in die 2 nächsten Lm = 4 H-Stb (= die 2 Lm = erste H-Stb). Viel Spaß beim häkeln!

03.04.2017 - 10:55

Sally Jensen wrote:

I would like to also make the sweater that matches the Baby Blue Hat pattern - Baby Drops 25-35 pattern. Could you tell me where I would find this pattern. Thank you for all your time and help. I LOVE this site and all the help. Sally

29.05.2016 - 04:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jensen you can find the related suit under the tab "related patterns" next to the picture: it's the pattern 25-34. Happy crocheting!

29.05.2016 - 10:22

country flag Rose Keßler wrote:

Hallo, gibt es auch die Anleitung für das passende Jäckchen? Mit lieben Grüßen Rose Keßler

16.05.2016 - 13:30

DROPS Design answered:

Liebe Rose, das Kleidungsstück, das man auf dem Foto sieht, ist der Strampelanzug Modell b25-34.

17.05.2016 - 08:38

country flag Susi wrote:

Hallo kannst du mir den Anfang der Mütze noch etwas anders erklären oder gibt es dazu vielleicht ein Video# Danke

14.03.2016 - 10:28

DROPS Design answered:

Hallo Susi, in der ersten Reihe der Mütze werden zwischen den Ohrenklappen Luftmaschen gehäkelt, damit sie nachher den gesamten Kopfumfang in der Runde haben.

14.03.2016 - 11:44