DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-981
DROPS Design: Mynstur nr an-004-bn
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: 50/52 - 52/54 - 54/58 cm

Efni:
DROPS Andes frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 2920, appelsínugulur
50-50-50 gr litur nr 0100, natur
+ afgangur af litnum svartur fyrir augu og nef.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) nr. 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði10 x 10 cm,
DROPS HEKLUNÁL NR 7 – fyrir eyru, nef og heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2816.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru eyrnalepparnir og nefið prjónað fram og til baka á sokkaprjóna. Stykkið er síðan sett saman og húfan prjónuð í hring á hringprjóna.

EYRNALEPPUR:
Fitjið upp 4-4-5 l á sokkaprjóna nr 8 með litnum appelsínugulur DROPS Andes.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = ranga).
Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1 kantlykkju, í umf til baka er uppslátturinn prjónaður snúinn br þannig ekki myndist gat.
Aukið út í hverri umf frá réttu 3 sinnum til viðbótar = alls 12-12-13 l í umf.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í sléttprjón þar til eyrnaleppurinn mælist 6-7-8 cm, endið á einni umf frá röngu.
Geymið stykkið og prjónið annan eyrnalepp á sama hátt.

NEF:
Fitjið upp 3 l á sokkaprjóna nr 8 með litnum appelsínugulur DROPS Andes.
Prjónið sléttprjón fram og til baka. Í fyrstu umf (= rétta) aukið út um 2 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 l í hvorri hlið = 5 l í umf. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br þannig ekki myndist gat. Aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt = alls 7 l í umf, endið á einni umf frá röngu. Geymið stykkið.

HÚFA:
Prjónið inn annan eyrnaleppinn á hringprjóna nr 8 með litnum appelsínugulur, fitjið upp 8-10-11 nýjar l (= að aftan) og prjónið inn hinn eyrnaleppinn í sömu umf = 32-34-37 l og snúið við. Prjónið næstu umf br frá röngu, snúið við. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorri hlið á undan kantlykkju. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar = 36-38-41 l, í lok umf frá réttu eru fitjaðar upp 3-4-5 l við miðju að framan, prjónið inn nefið (= 7 l) á sama prjón, fitjið upp 3-4-5 l = 49-53-58. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Húfan er nú prjónuð í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10-12-13 cm. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig:
STÆRÐ 3/5 ára: 8-8-8-8-8-9 l á milli merkja.
STÆRÐ 6/9 ára: 8-9-9-9-9-9 l á milli merkja.
STÆRÐ 10/12år: 10-9-10-10-9-10 l á milli merkja.
Fækkið nú um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman á eftir hvert prjónamerki í annarri hverri umf alls 4-4-5 sinnum og síðan í hverri umf 3 sinnum til viðbótar = 7-11-10 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 17-19-22 cm frá miðju að framan og upp að toppi.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með litnum natur með heklunál nr 7. Byrjið þar sem nefið var prjónað uppá prjóninn og heklið síðan hér niður yfir vinstri hlið: Heklið 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum annan eyrnaleppinn, meðfram kanti að aftan við hnakka, í kringum seinni eyrnaleppinn og fram að nefi. Skiptið yfir í litinn svartur og heklið 1 ll, * 1 fl, hoppið yfir ca 1 cm, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að byrjun umf. Endið á 1 fl og 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.

EYRA:
Stykkið er heklað fram og til baka neðan frá og upp.
UMFERÐ 1: Heklið 11 ll með heklunál nr 7 með litnum natur.
UMFERÐ 2: Byrjið í 2. ll frá heklunálinni og heklið 1 fl í hverja og eina af 10 næstu ll. Snúið við.
UMFERÐ 3: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 9 fl, snúið við.
UMFERÐ 4: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 8 fl, snúið við.
UMFERÐ 5: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 7 fl, snúið við.
UMFERÐ 6: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 6 fl, snúið við.
UMFERÐ 7: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 5 fl, snúið við.
UMFERÐ 8: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 4 fl, snúið við.
UMFERÐ 9: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 3 fl, snúið við.
UMFERÐ 10: Hoppið yfir fyrstu fl og heklið 2 fl.
Klippið frá og festið enda.
Heklið annað eyra til viðbótar á sama hátt.
Heklið 2 eyru með litnum appelsínugulur.

AUGA 1:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 4 ll með heklunál nr 7 með litnum natur, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl í hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl.
Klippið frá og festið enda.
Heklið annað auga á sama hátt.

AUGA 2:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 ll með heklunál nr 7 með litnum svartur, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fl í hringinn.
Klippið frá og festið enda.
Heklið annað auga á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið niður AUGA 2 á AUGA 1, saumið augun niður framan á húfuna.
Leggið saman eitt eyra með litnum natur og eitt eyra með litnum appelsínugulur og heklið þau saman með litnum appelsínugulur þannig. Haltu á eyranu með litnum natur að þér og byrjaðu neðst niðri á eyranu. Heklið fl í gegnum bæði stykkin upp að toppi og niður í hina hliðina (ca 16 fl). Látið botninn vera opinn og staðsetjið eyrun með litnum natur fram ca 2 cm ofan frá í hvorri hlið á húfunni. Saumið þau niður þannig að 2 hliðar á eyranu standa ca 1 cm frá hvor annarri (þannig að þau verða fylltari).
Endurtakið á sama hátt á hinu eyranu.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-981

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Colleen McMillan wrote:

Thank you for your reply but I still cannot see in my head where the snout is to be added to the hat, I find it confusing where it says once I have the 41 stitches on, at the end of the row from RS, cast on 5 sts mid front, work snout on to same needle, cast on 5 sts. How can it be the end of the row but also mid front ? can you do a video tutorial showing this step ?

28.02.2023 - 17:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs McMillan, you get it right, that's exactly how to do, after you have cast on the 5 sts, worked the snout and cast on the 5 sts join in the round and continue working in stocking stitch - the beg of round will be there but since you are working in the round (like as on a spiral), it won't be visible, and at the very end, you will crochet an edge around the whole bottom of hat, that will then hide the "join". Happy knitting!

28.02.2023 - 18:01

country flag Colleen McMillan wrote:

I am knitting the Fawn hat by Drops Design and am having trouble with understanding when and where to work the snout onto the pattern ? Is there a tutorial video for this pattern?

27.02.2023 - 19:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs McMillan, you first work the both ear flaps and the snout separately laying pieces aside, then work the HAT putting both earf flaps together with new stitches for back on hat; increasing new stitches on each side (for front piece) inserting snout at the same time, then join in the round and work all stitches in the round. Happy knitting!

28.02.2023 - 10:41

country flag Karin wrote:

Får man virka dessa o sälja?

13.01.2014 - 15:00

country flag Chris Nys wrote:

Ik druk dit patroon af en dat is meteen 4 bladzijden terwijl dit ook op 2 pagina's zou kunnen! Dit vind ik heel spijtig vanwege de inkt en papierverspilling! Er is dan ook nog een blad bij met een grote gekleurde foto van de opruiming, waar ik helemaal niets kan mee doen!Kan het niet zo dat als je kiest om af te drukken dat dit automatisch zo zuinig mogelijk gebeurt?

24.11.2013 - 10:50

DROPS Design answered:

Hoi Chris. Om de patronen gratis aan te bieden zijn we afhankelijk van de verkoop van de garens - daarom zijn advertenties een vaste en zeer belangrijke onderdeel van onze website. Maar je kan natuurlijk altijd kiezen in de print instellingen welke en hoeveel pagina's je wilt printen.

25.11.2013 - 10:07

country flag Arja wrote:

Oikein ihastuttava ja veikeä malli. Lapset tykkää!

04.11.2013 - 09:15