DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
638.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
682.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
726.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 638.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 682.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 726.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Oseberg |
|
|
|
Prjónuð peysa í garðaprjóni úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð S - XXXL
DROPS 151-44 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn prjónast slétt í næstu umf þannig að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna lykkjufjöldans þá er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er frá miðju að aftan á bakstykki, út að hliðum og upp að öxl. BAKSTYKKI: Fitjið upp 119-119-119-115-113-109 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Fyrsta umf er prjónuð frá réttu: 58-58-58-56-55-53 l sl, prjóni 2 l í næstu l, 1 l sl, prjónið 2 l í næstu l og prjónið síðustu 58-58-58-56-55-53 l slétt = 121-121-121-117-115-111 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í 60.- 60.- 60.- 58.- 57.- 55. l í umf og 1 prjónamerki í 2. l á eftir 1. prjónamerki. Nú eru 59-59-59-57-56-54 l á eftir síðasta prjónamerki og 1 l á milli 2 l með prjónamerki fyrir miðju í umf. Snúið við og prjónið sl til baka frá röngu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við báðar l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. frá hverri umf frá réttu), 40-43-47-52-57-62 sinnum til viðbótar (= alls 41-44-48-53-58-63 útaukningar hvoru megin við bæði prjónamerki). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá neðri brún og upp (stykkið mælist ca 23-25-27-30-33-36 cm frá miðju og út þá eru eftir 3 útaukningar hvoru megin við bæði prjónamerkin), fellið af miðju 13-13-13-17-17-17 l í umf fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. á milli 2 prjónamerkja) og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. STYKKI 1 (vinstri hlið á stykki séð frá réttu): Haldið áfram í garðaprjóni og útaukningar eins og áður. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun á 2 næstu umf frá hálsmáli. Eftir síðustu útaukningu við prjónamerki og á eftir úrtöku við hálsmál, mælist stykkið ca 59-61-63-65-67-69 cm frá öxl og niður, ca 25-27-29-32-35-38 cm frá miðju og út og það eru 134-140-148-154-163-171 l eftir á prjóni. Í næstu umf frá röngu er prjónað þannig: Fellið af fyrstu 68-71-73-74-76-77 l meðfram hlið á peysunni, prjónið 32-32-34-36-38-40 l (= ermi), setjið þær síðan á þráð og fellið af síðustu 34-37-41-44-49-54 l á öxl. Klippið frá. STYKKI 2: Prjónið á sama hátt og stykki 1, nema spegilmynd (fellt er af frá réttu í stað frá röngu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá hlið á peysu og prjónið inn við miðju að framan og niður við neðri kant á framstykki. Fitjið upp 67-67-67-66-65-63 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 l sl í fyrstu l og prjónið síðan sl út umf = 68-68-68-67-66-64 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í 2. l frá byrjun umf í fyrstu l og prjónið síðan sl út umf = 68-68-67-66-64 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í 2. l frá byrjun umf (séð frá réttu). Snúið við og prjónið sl til baka frá röngu. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvorum megin við l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 32-35-39-43-48-53 sinnum til viðbótar (= alls 33-36-40-44-49-54 útaukningar) = 134-140-148-155-164-172 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu eftir síðustu útaukningu, fellið af fyrstu 34-37-41-45-50-55 l í umf (= neðri kantur á framstykki), prjónið þær 100-103-107-110-114-117 l sem eftir eru á prjóni og fitjið upp 17-17-17-21-21-21 nýjar l í lok umf fyrir kraga = 117-120-124-131-135-138 l – setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka fyrir kant að framan/kragi JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í lok annarrar hverrar umf efst við kraga (þ.e.a.s. í lok hverrar umf frá réttu) þar til kantur að framan/kragi mælist ca 10-10-10-12-12-12 cm frá prjónamerki, fellið síðan LAUST af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. 1. umf er prjónuð frá röngu og aukið er út í hverri umf frá röngu. Þegar fellt er af frá neðri kanti er það gert frá röngu (í stað frá réttu). FRÁGANGUR: Saumið saman við miðju að aftan á bakstykki – saumið kant í kant yst í lykkjubogann þannig að saumurinn sjáist ekki. Saumið axlasauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan og kraga við hálsmál aftan við hnakka. ERMI: Setjið til baka þær 32-32-34-36-38-40 l af þræði frá bakstykki í annarri hlið á stykki á hringprjóna rn 5, að auki eru prjónaðar upp frá réttu, 32-32-34-36-38-40 l meðfram tilheyrandi framstykki við handveg (prjónið upp 1 l í hverja l) = 64-64-68-72-76-80 l á prjóni fyrir ermi. Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt! Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til ermin mælist 6 cm frá prjónamerki. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 7 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili, 12-12-13-15-15-16 sinnum til viðbótar (= alls 13-13-14-16-16-17 fækkun á hvorri hlið) = 38-38-40-40-44-46 l eftir á prjóni. Þegar ermin mælist 44-44-42-40-38-36 cm frá prjónamerki (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og það eru ca 5 cm að loka máli), skiptið yfir á prjóna nr 4. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 5 cm áður en fellt er laust af. Ermin mælist ca 49-49-47-45-43-41 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6925 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (88)
Karina Kamp wrote:
Een gecompliceerd patroon, maar een prachtig resultaat! Een tip: zet het achterpand op, op dikkere rechte naalden en ga na een toer verder op de goede dikte rondbreinaalden. De opzetnaald wordt anders te strak, en dat is lastig bij het in elkaar zetten.
03.12.2023 - 09:32Mafra wrote:
Ich stricke die Jacke in Gr. L mit Originalwolle, jedoch mit 4,5er Nadeln. Maschenprobe 18M =36R Wie muss ich die Anleitung umrechnen? Ich habe noch nie mit eine Jacke komplett in kraus gestrickt. über Antwort wäre ich sehr dankbar
30.08.2021 - 15:20DROPS Design answered:
Liebe Mafra, waschen Sie Ihre Maschenprobe, legen Sie sie flach um sie trocknen zu lassen - dann messen Sie wieder; sollte sie immer noch stimmen, dann versuchen Sie wieder mit größeren Nadeln - Hier lesen Sie mehr über Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!
30.08.2021 - 16:07Elke wrote:
Ich stricke die Jacke in Größe L. Wie viele Maschen sollte ich nach 62 cm ab der unteren Kante vor den drei restlichen Zunamen auf der Nadel haben? Ich bin etwas verwirrt
23.03.2021 - 17:02DROPS Design answered:
Liebe Elke, sollte Ihre Maschenprobe in der Höhe stimmen, dann haben Sie 301 Maschen auf der Nadel wenn die Arbeit 62 cm misst, dh vor den 3 letzten Zunahmen = 104 M, 1 M mit Markierung, 91 M, 1 M mit Markierung, 104 M. Viel Spaß beim stricken!
24.03.2021 - 07:19Jan wrote:
Can l use any type of yarn
11.09.2020 - 04:53DROPS Design answered:
Dear Jan, this jacket is worked with 2 strands DROPS Fabel (read more about the yarn here) - you can read more about alternatives here and find the list of DROPS stores shipping worldwide here. Happy knitting!
11.09.2020 - 08:13Annabella wrote:
Necesitaría saber qué es insertar un MP. Muchas gracias.
23.05.2019 - 02:21DROPS Design answered:
Hola Annabella. Tienes colocar un marcapuntos después del punto indicado en el patrón (según la talla trabajada). Estos marcapuntos se utilizan para marcar donde se van a hacer los aumentos. Los marcapuntos siguen la labor.
25.05.2019 - 18:33Paula Schuit wrote:
Onder de duitse vragen heb ik al wat kunnen opmaken maar ben nu aan de vierde poging toe. moet je echt ca 300 steken op de 80cm rondbreipen krijgen.. is de foto van het model op de rug anders dan het werkelijke breipatroon? groet paula
13.12.2017 - 10:21DROPS Design answered:
Hoi Paula, Ja, dat aantal steken klopt inderdaad en de foto komt ook overeen. Je breit a.h.w. vanaf midden achter, vanaf de onderkant naar boven en dan via de punt weer naar beneden. Door het meerderen aan beide kanten van de maarkeerdraaden creëer je de punt op het achterpand. Op het eind naai je de middenachter naad dicht. Deze naad zijn de steken die je voor het achterpand hebt opgezet. Als je aan de slag gaat, zul je zien dat het zich vanzelf wijst.
15.12.2017 - 11:46Magitta Junge wrote:
Hallo, ich komme mit den Zunahmen für den Kragen nicht klar. Ich habe 21M zugenommen, davor habe ich eine Markierung gesetzt. Soll es jetzt 12 cm im der Länge oder in der Breite sein.
09.03.2017 - 23:15DROPS Design answered:
Liebe Frau Junge, nachdem Sie die 21 M für den Kragen zugenommen haben, stricken Sie Kraus re mit Zunahmen bis der Kragen ca 12 cm in der Höhe ab der Markierung misst. Viel Spaß beim stricken!
10.03.2017 - 08:57Lone Christensen wrote:
Kære drops, jeg mangler masker når jeg er nået til det afsnit hvor der står efter sidste udtagning (halsaflukning) Der er jo kun taget 48 m ud og de 58 jeg har fra opslag minus aflukning til hals så jeg har ikke 148 m som jeg skal bruge i str. l Venlig hilsen Lone
30.07.2015 - 12:37DROPS Design answered:
Hej Lone, Du har 68 m, tager ud på hver side af mærketråden ialt 40 gange = 80 + 68 = 148 m. God fornøjelse!
31.07.2015 - 11:17ANNICK G wrote:
Pour l'encolure dos la diminution est de 13m + 2 * 1m soit 17m pour chaque devant on ajoute 17m donc 34m au total est-ce une erreur ou comment l'on fait ? merci
25.05.2015 - 11:00DROPS Design answered:
Bonjour Annick, en taille S on commence avec 121 m, puis on augmente 4 m x 41 = 164 augm + 121 m = 285 - on rabat 13 m pour l'encolure = 272/2 côté = 136 m. On rabat ensuite 2 x 1 m côté encolure = 134 m, puis on rabat 68 m (il en reste 66), on tricote et on met en attente les 32 m suivantes et il reste bien 34 m. Bon tricot!
26.05.2015 - 10:39Jeanne wrote:
The instructions for the left front says 'decrease' at bottom edge. Should this say 'increase' as there is no mention of decreasing for the Right front.
23.04.2015 - 13:58DROPS Design answered:
Dear Jeanne, the dec under left front piece refer to the sts you cast off at the bottom edge (= at the beg of RS row on right front piece and at the beg of WS row on left front piece). Happy knitting!
23.04.2015 - 15:25