DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ruby Turns

Prjónuð peysa í garðaprjóni, úr DROPS Alpaca með bogalaga kanti að framan með kaðli. Stærð S - XXXL.

DROPS 151-3
DROPS Design: Mynstur nr z-645
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 3770, dökk bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir umf í mynstri frá réttu.

STUTTAR UMFERÐIR-1 HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónaðar eru stuttar umferðir til að ná fram bogalaga formi á framstykki. Stuttu umferðirnar (1 mynstureining) eru prjónaðar í garðaprjóni og kaðlamynstri þannig – (1. umf = rétta):
UMFERÐ 1-2: Prjónið A.1 (= 12 l) + 1 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka (þ.e.a.s. 1 l garðaprjón og A.1 yfir 12 síðustu l).
UMFERÐ 3-4: Prjónið A.1 + 2 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka (munið eftir A.1 yfir síðustu 12 l).
UMFERÐ 5-6: Prjónið A.1 + 4 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7-8: Prjónið A.1 + 6 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram að prjóna A.1 + 2 l garðaprjón fleiri í hvert skipti þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið A.1, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið á 3 l sl, snúið við og prjónið til baka (uppslátturinn er prjónaður slétt þannig að það myndist gat). 1 mynstureining = alls 44-50-54-60-66-74 umf.

STUTTAR UMFERÐIR-2 HÆGRA FRAMSTYKKI:
(1. umf = rétta).
UMFERÐ 1-2: Prjónið A.1 (= 12 l), snúið við og prjónið A.1 til baka.
UMFERÐ 3-4: Prjónið A.1 + 3-9-3-11-5-1 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka (munið eftir A.1 yfir 12 síðustu l).
UMFERÐ 5-6. Prjónið A.1 + 7-13-8-15-10-7 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7-8: Prjónið A.1 +11-17-13-19-15-13 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 9-10: Prjónið A.1 + 15-21-18-23-20-19 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram að prjóna A.1 + 4-4-5-4-5-6 l garðaprjón fleiri í hvert skipti þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir allar l á prjóni. 1 mynstureining = alls 24-24-24-28-28-28 umf.

STUTTAR UMFERÐIR-1 VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stuttar umferðir (1-mynstureining) eru prjónaðar í garðaprjóni og kaðlamynstri þannig – ATH: 1. umf = ranga, þ.e.a.s. 1. umf í A.2 er lesin frá vinstri til hægri:
UMFERÐ 1-2: Prjónið A.2 (= 12 l) + 1 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka (þ.e.a.s. 1 l garðaprjón og A.2 yfir 12 síðustu l).
UMFERÐ 3-4: Prjónið A.2 + 2 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka (munið eftir A.2 yfir síðustu 12 l).
UMFERÐ 5-6: Prjónið A.2 + 4 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7-8: Prjónið A.2 + 6 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram að prjóna A.2 + 2 l garðaprjón fleiri í hvert skipti þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið A.2, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið á 3 l sl, snúið við og prjónið til baka (uppslátturinn er prjónaður slétt þannig að það myndist gat). 1 mynstureining = alls 44-50-54-60-66-74 umf.

STUTTAR UMFERÐIR-2 VINSTRA FRAMSTYKKI:
(1. umf = ranga).
UMFERÐ 1-2: Prjónið A.2 (= 12 l), snúið við og prjónið A.2 til baka.
UMFERÐ 3-4: Prjónið A.2 + 3-9-3-11-5-1 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka (munið eftir A.2 yfir 12 síðustu l).
UMFERÐ 5-6. Prjónið A.2 + 7-13-8-15-10-7 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 7-8: Prjónið A.2 +11-17-13-19-15-13 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 9-10: Prjónið A.2 + 15-21-18-23-20-19 l garðaprjón, snúið við og prjónið til baka.
Haldið áfram að prjóna A.2 + 4-4-5-4-5-6 l garðaprjón fleiri í hvert skipti þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir allar l á prjóni. 1 mynstureining = alls 24-24-24-28-28-28 umf.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 l eftir A.1 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á undan A.2/A.3 þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-61-65-71-77-85 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 HÆGRA FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Prjónið alls 3 mynstureiningar með STUTTAR UMFERÐIR-1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu mynstureiningu er prjónuð 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-2 HÆGRA FRAMSTYKKI. Setjið 1 prjónamerki eftir síðustu mynstureiningu. Boginn er nú prjónaður og haldið er áfram fram og til baka yfir allar l í garðaprjóni og A.1 yfir síðustu 12 l við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 9-8-7-6-5-4 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við A.1 við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), 3-4-4-4-4-5 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-5-5-6 sinnum) og síðan í 6. hverri umf alls 8-8-8-9-9-9 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-9-8-6-5-3 cm frá prjónamerki eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf í hlið fyrir ermi þannig. Fitjið upp 3-2-2-2-1-1 l alls 3 sinnum og síðan 13-14-11-7-8-4 l 1 sinni.
Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 65-68-69-70-74-77 l eftir á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni og A.1 við miðju að framan þar til stykkið mælist 29-29-29-28-28-27 cm frá prjónamerki. Í næstu umf frá réttu eru 8 fyrstu l sl prjónaðar í kaðli slétt saman 2 og 2 = 61-64-65-66-70-73 l eftir á prjóni. Fellið laust af í næstu umf.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið STUTTAR UMFERÐIR-1 VINSTRA FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, síðan STUTTAR UMFERÐIR-2 VINSTRA FRAMSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.2 í stað A.1. Efst á öxl er fækkað um 8 síðustu l sl í kaðli (í stað 8 fyrstu).

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 stykkjum þannig að það verður klauf / op við miðju að aftan, síðan eru stykkin sett saman og prjónað er áfram yfir allar l.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 53-61-65-69-77-81 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 2 l garðaprjón *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2 l br, * 2 l garðaprjón, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 14 l eru eftir á prjóni, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 12 l – það verða 2 l garðaprjón í röð í byrjun umf) JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í mynstureiningu A.1 í sléttprjóni (2 síðustu l br í A.1 koma beint yfir 2 l br í stroffi), síðan er prjónað garðaprjón yfir 39-47-51-55-63-67 l sem eftir eru JAFNFRAMT er fækkað um 0-3-3-1-3-0 l jafnt yfir þessar l = 52-57-61-67-73-80 l á prjóni. Haldið svona áfram með mynstur með A.1 og garðaprjón þar til stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm. Geymið stykkið og prjónið hægra bakstykki.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp eins og vinstra bakstykki. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l garðaprjón *, endurtakið frá *-* þar til 16 l eru á prjóni og endið á 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkju í garðaprjóni, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, * 2 l garðaprjón, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir á prjóni og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið umf 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 39-47-51-55-63-67 l í garðaprjóni (meðtalin 1 kantlykkja) JAFNFRAMT er fækkað um 0-3-3-1-3-0 l jafnt yfir þessar l, síðan er prjónað A.3 JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í mynstureiningunni í sléttprjóni í kaðli (þannig að mynstrið passi yfir stroff), endið síðan á 1 kantlykkju í garðaprjóni (það koma til með að vera 2 l garðaprjón fleiri í röð í lok umf) = 52-57-61-67-73-80 l á prjóni. Haldið svona áfram með mynstur með A.3 og garðaprjóni þar til stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm – endið eftir sömu umf í mynstri og á vinstra bakstykki.

Setjið nú l frá hægra bakstykki saman við l frá vinstra bakstykki þannig að kaðlarnir séu á móti hverjum öðrum við miðju að aftan og prjónið fram og til baka yfir allar 104-114-122-134-146-160 l þannig (séð frá réttu): 39-44-48-54-60-67 l garðaprjón, prjónið A.3 (= 12 l), prjónið 2 l garðaprjón, prjónið A.1 (= 12 l) og endið á 39-44-48-54-60-67 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin með því að prjóna 2 l í næst síðustu l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 8-8-6-6-6-6 cm millibili, 2-2-3-3-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-4-4-4-4 sinnum )= 110-120-130-142-154-168 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf í hvorri hlið fyrir ermar þannig: Fitjið upp 3-2-2-2-1-1 l alls 3 sinnum og síðan 13-14-11-7-8-4 l 1 sinni = 154-160-164-168-176-182 l á prjóni.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm – stillið af að næsta umf sé frá réttu, byrjið á tilfærslu á A.1 og A.3, þannig að kaðlarnir byrja að vísa út og það verða fleiri l í garðaprjóni á milli kaðlana.
Þetta er gert þannig: Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við A.1 og A.3.
Prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan fyrsta prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.3), fellið af 1 l – LESIÐ ÚRTAKA, prjónið A.3 og aukið út um 1 l á eftir öðru prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING, prjónið garðaprjón fram að þriðja prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.1), aukið út um 1 l, prjónið A.1 og fækkið um 1 l á eftir síðasta prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, prjónið nú garðaprjón yfir þær l sem eftir eru.
Endurtakið tilfærsluna í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) og síðan í 8. hverri umf alls 7-7-8-9-9-9 sinnum. Eftir síðustu tilfærslu eru 24-24-26-28-28-28 l garðaprjón á milli 2. og 3. Prjónamerkis við miðju að aftan og alls 26-26-28-30-30-30 l garðaprjón á milli 2 kaðla við miðju að aftan.
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm eru felldar af miðju 20-20-22-24-24-24 l fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 l 2 sinnum = 65-68-69-70-74-77 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm – passið uppá að fram- og bakstykki séu jafn löng, prjónið næstu umf frá réttu og 8 og 9 l í kaðli er prjónuð sl saman 2 og 2 = 61-64-65-66-70-73 l eftir á prjóni. Fellið laust af í næstu umf. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni á hálsmáli.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 11 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 1 umf br frá röngu en þegar 5 l eru eftir á prjóni eru 2 l prjónaðar í hverja af næstu 4 lykkjum áður en endað er á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu: Prjónið A.1 (= 12 l) og endið á 3 l garðaprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar fyrstu 8 l sl í kaðli saman 2 og 2 = 11 l eftir á prjóni, fellið laust af og klippið frá.
Prjónið upp frá réttu 1 l í hverja rönd í garðaprjóni meðfram hlið með 3 l garðaprjón í lokin (prjónið upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni). Í næstu umf (= ranga) er fækkað/aukið út jafnt yfir til 60-60-62-62-64-64 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka á prjóni, prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-10-8-12-9 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 l í næst síðustu l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili, 11-13-15-17-18-21 sinnum til viðbótar (= alls 12-14-16-18-19-22 útaukningar í hvorri hlið) = 84-88-94-98-102-108 l. Fellið af þegar stykkið mælist 44-44-44-44-43-43 cm.

Prjónið aðra ermi á sama hátt, en prjónið kantinn með köðlum neðst niðri á ermi gagnstætt þ.e.a.s. eftir uppfit er prjónuð 1 umf br frá röngu jafnframt eru prjónaðar 2 l í aðra, þriðju, fjórðu og fimmtu l í byrjun umf (í stað lok umf). Næsta umf er prjónuð frá réttu: Prjónið 3 l garðaprjón og síðan A.3. Prjónið nú eins og fyrri ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2014
undir SNÚNINGAR-1 HÆGRA FRAMSTYKKI (3 l ekki 2 l): Haldið áfram að prjóna A.1 + 2 l garðaprjón fleiri í hvert skipti þar til 3 l eru eftir á prjóni.. undir SNÚNINGAR-1 VINSTRA FRAMSTYKKI (3 l ekki 2 l) Haldið áfram að prjóna A.2 + 2 l garðaprjón fleiri í hvert skipti þar til 3 l eru eftir á prjóni...

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 3 l á hjálpaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálpaprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálpaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparpjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (69)

country flag Karen wrote:

Skøn trøje! Men jeg foretrækker at strikke kanten på rygstykkerne som snoninger også i stedet for rib (ligesom den til ærmerne) og vendestrik, så trøjen bliver lidt længere midt bagpå - ellers kan forstykkerne godt virke tunge ift. ryggen. Jeg er enig med de andre kommentarer i, at et traditionelt ærme, der slutter ved skulderen samt ingen slids passer bedre til designet.

31.07.2020 - 17:17

country flag Judith wrote:

Ich habe eine Frage zu den verkürzten Reihen-1 rechtes Vorderteil: "wenden und zurückstricken (die Umschläge re stricken, sodass Löcher entstehen)" - was ist mit den Umschlägen gemeint? Sie werden dort soweit ich weiß das erste Mal erwähnt. Handelt es sich um die Stelle, wo ich bei den verkürzten Reihen wende? Dann entsteht aber nicht wirklich ein Loch, wenn ich beim Wenden die "Randmasche" einfach nur rechts abstricke? Danke für Voraus für Ihre Hilfe!

17.07.2017 - 16:37

DROPS Design answered:

Liebe Judith, wenn die verkürzten Reihen gestrickt sind bis noch 3 M übrig sind, dann die nächste Reihe stricken Sie mit Umschläge wie erklärt, dann bein der nächsten Reihe stricken Sie diese Umschläge rechts so dass Löcher entstehen. Viel Spaß beim stricken!

18.07.2017 - 08:30

Tuuli wrote:

Hi! I plan to knit this garment using Drops Sarfar cotton yarn that has slightly differing gauge from that of Alpaca. Should I take this into consideration as Sarfar is recommended as substitute? How much of a difference should I expect in terms of piece lenght?

25.02.2016 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear Tuuli, both Safran and Alpaca belong the group A of our yarns, so that you can get same tension with both yarns, but remember to check your tension and adjust needle if necessary (as usual) - read more here. Happy knitting!

26.02.2016 - 10:46

country flag Birgit Delbrüger wrote:

Ich verstehe die Anleitung unter dem Korrekturreiter nicht. Worauf bezieht sich das?

20.01.2015 - 10:48

DROPS Design answered:

Sie brauchen den Korrekurreiter nicht weiter zu beachten, wenn Sie die Jacke nach der Online-Anleitung stricken, die Korrekturen gelten für die gedruckten Hefte, in der Online-Anleitung sind sie enthalten.

21.01.2015 - 21:55

country flag Sirius Boessenkool wrote:

Made this, aboslutely love it, in a beautiful greengrey wool. However, for me, the vest is slightly shorter than on the model, I have found this with multiple drops patterns. If I were to make it again I'd lengthen it a bit. It was a pleasure to knit this pattern though, and a pleasure to wear the vest.

25.11.2014 - 19:47

country flag Anne Lies wrote:

Bij de mouwen staat 3 ribbels in ribbels breien (na het boordje) Moet dat zijn 3 cm? of naalden?

14.04.2014 - 10:02

DROPS Design answered:

Hoi Anne. Je breit 3 ribbels = 6 nld ribbelst

14.04.2014 - 12:23

country flag Lotta wrote:

Mycket roligt mönster, kul att sticka. Jag flyttade upp ärmkullen och koftan sitter perfekt med säkerhetsnål som knäppning

01.02.2014 - 15:09

country flag Claudia Kronsbein wrote:

Gibt es eine maschenprobe für das Garn?

06.01.2014 - 08:45

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Maschenprobe steht im oberen Teil der Anleitung: 10 x 10 cm = 24 M x 48 R kraus re.

06.01.2014 - 11:46

country flag Kathrine B. Norvik wrote:

Er det riktig at det bare skal legges opp 11 masker på ermet?

25.09.2013 - 14:03

DROPS Design answered:

Hej Kathrine. Ja, du begynder med at strikke de lille kabel for enden af aermet. Naar du er faerdig lukker du af og strikker masker op langs kanten og felles/økes det jevnt fordelt til 60-60-62-62-64-64 m

25.09.2013 - 14:57

country flag Anne Tranvouez wrote:

Merci de votre réponse. Une nouvelle question : Pourquoi utiliser une aiguille circulaire pour tricoter en aller-retour ? Merci

03.09.2013 - 15:57

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tranvouez, on utilise des aiguilles circulaires même pour tricoter en allers et retours, on a ainsi suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Si vous n'êtes pas habituée, n'hésitez pas à consulter nos vidéos pour apprendre. Bon tricot!

03.09.2013 - 17:02