DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Rose Socks

Prjónaðir sokkar, prjónaðir frá tá og upp með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-43.

DROPS 150-5
DROPS Design: Mynstur nr u-709
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 48, vínrauður
100-100-100 gr litur nr 44, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð:
Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri).
Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn (þ.e.a.s. dragið þráðinn aftanfrá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóninum, * stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjón (þ.e.a.s. að síðasta l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 8-12-16 l eru eftir á prjóni. Skiptið l á 2 sokkaprjóna nr 3,5 eins og sagt er frá að ofan.
Prjónið nú eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dregst saman og gatið hverfur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstri er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn þannig að ekki myndist göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. að fyrsta l er prjónuð með litnum vínrauður, næsta með litnum ljós grár o.s.frv.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan fylgir ekki fjölda l á hæðina á 10 cm, kemur það til með að hafa áhrif á lengdina á sokknum með samanburð í útreikningum með útaukningu. Ef óskað er eftir fleiri umf á hæðina á hverja 10 cm er sokkurinn prjónaður aðeins lengri áður en útaukning byrjar. Ef óskað er eftir færri umf á hæðina á hverja 10 cm er sokkurinn prjónaður aðeins styttri áður en útaukning byrjar.

STUTTAR UMFERÐIR YFIR HÆL:
Prjónað er fram og til baka í mynstri eftir mynstur A.3,
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjóni þar til 1 l er eftir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við.
Haldið áfram með snúninga alveg eins þar til 13-15-17 l eru eftir fyrir miðju á prjóni. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 l fleiri fyrir hverja umf yfir hæl. Til að koma í veg fyrir gat í skiptingum er þræðinum lyft á undan l sem prjónuð er áfram upp og lykkjan er sett snúin á prjóninn (þráðurinn sem lyft er upp á að vera í sama lit og sú l sem er prjónuð saman við). Prjónið þráðinn saman með næstu l (frá réttu er þráðurinn prjónaður og lykkja slétt saman, frá röngu er þráðurinn prjónaður og lykkja brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar l á hæl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, frá tá og upp.

SOKKUR.
Byrjið með litnum vínrauður og GALDRAHRINGUR - lesið útskýringu að ofan = 8-12-16 l skipt á 2 sokkaprjóna (það eiga að vera 5-7-9 l á fyrsta prjóni (= ofan á fæti) og 3-5-7 l á öðrum prjóni (= undir fæti). Setjið 1 prjónamerki í 1. l í byrjun umf og 1 prjónamerki í 5.- 7.- 9. l á fyrsta prjóni (= 2 prjónamerki). Síðan er mynstur prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.1. Lykkjur með prjónamerki eiga að vera með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 1 l hvoru megin við báðar l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umf, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum), síðan í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 48-52-56 l (þ.e.a.s. 25-27-29 l ofan á fæti og 23-25-27 l undir fæti).
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 l), prjónið mynstur eftir A.2 (sjá merki fyrir rétta stærð = 21-23-25 l), prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3 yfir 25-27-29 l sem eftir eru (þ.e.a.s. rendur frá tá halda áfram undir fæti og prjónamerki eru enn staðsett í lykkju með litnum vínrauður hvoru megin ofan á fæti). Þegar stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá tá (nú eru ca 5 cm að loka máli) – LESIÐ LEIÐBEININGAR, aukið út um 1 l á undan fyrra prjónamerki og 1 l á eftir seinna prjónamerki (þ.e.a.s. neðan á sokknum) – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 7 sinnum til viðbótar (= alls 8 útaukningar í hvorri hlið) = 64-68-72 l á prjóni (þ.e.a.s. 25-27-29 l ofan á fæti og 39-41-43 l undir fæti).
Setjið 25-27-29 miðjulykkjur ofan á fæti + þær 8 útauknar lykkjur hvoru megin við þær á þráð = 23-25-27 l eftir á prjóni fyrir hæl.
Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR YFIR HÆL yfir 23-25-27 l - lesið útskýringu að ofan.
Eftir stuttar umferðir yfir hæl er haldið áfram með A.3 fram og til baka yfir 23-25-27 l á hæl – JAFNFRAMT í lok hverrar umf (bæði frá réttu og frá röngu), prjónið síðustu l í umf saman með síðustu lykkju af þræði (frá réttu eru prjónaðar 2 l snúnar slétt saman og frá röngu eru prjónaðar 2 l br saman). Haldið svona áfram fram og tilbaka þar til 8 síðustu l hvoru megin við þráðinn hafa verið prjónaðar saman með síðustu l l á hæl. Setjið til baka 25-27-29 l sem eftir eru af þræði á prjóninn = 48-52-56 l á prjóni.
Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 l), haldið áfram með A.2 yfir næstu 21-23-25 l eins og áður, prjónið A.3 (= 2 l), prjónið A.4A yfir næstu 22-24-26 l JAFNFRAMT í stærð 35/37 er aukið út um 2 l jafnt yfir þessar l og í stærð 41/43 er fækkað um 2 l jafnt yfir þessar l þannig að mynstrið gengur jafnt upp (aukið/fækkið ekki í stærð 38/40), endið umf á A.4B (= 1 l) = 50-52-54 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur hringinn.
Þegar sokkurinn mælist ca 18-19-16 cm frá prjónamerki á hæl (styttra mál í stærri stærðum vegna lendar á fæti) – endið mynstur eftir merktri lykkju með ör í mynstri (veljið ör fyrir rétta stærð – mynstur A.2 kemur þá til með að enda með hálfu eða heilu blómi), prjónið 1 umf með litnum vínrauður yfir allar l. Prjónið 1 umf með litnum ljós grár JAFNFRAMT er aukið út um 4-8-6 l jafnt yfir = 54-60-60 l.
Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.5 (= 9-10-10 mynstureiningar í umf). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í litinn vínrauður. Prjónið stroff (= 1 l sl, 1 l br). Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Sokkurinn mælist ca 24-25-22 cm á hæðina frá prjónamerki á hæl.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = ljós grár
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Anna wrote:

Nu kan jag svara på min egen fråga från 11 november! Jag stickade 12 cm innan jag började med ökningarna och fick då en socka som passar lite tight till en fot i storlek 37, så 12 cm verkar ge den minsta storleken. Och då borde måttet från tån när ökningarna ska börja alltså vara 12-15-17 cm i de olika storlekarna.

05.12.2023 - 15:48

country flag Anna wrote:

Det måste vara fel i beskrivningen. Stämmer verkligen längden när man ska böja med ökningar för hälen? Jag stickar mellanstorleken, där man ska börja med ökningar efter 19 cm. På fotografiet ser ökningarna ut att börja vid övre halvan av den 1:a blomman från tån, men när jag har stickat 19 cm är jag på ungefär samma ställe på blomma nummer 2. Och sockan ser ut att bli alldeles för lång, precis som många andra säger i sina kommentarer.

15.11.2023 - 09:31

DROPS Design answered:

Hej Anna, Vi skal høre med design om opskriften stemmer, i så fald skal vi skrive det tydeligere - hold øje her i opskriften :)

16.11.2023 - 14:43

country flag Susana Rodríguez-Vida wrote:

En la versión española de este patrón hay un error. En el párrafo que comienza "Trabajar la sig vta como sigue", FALTA indicar que, después de trabajar A.1 y A.2, hay que trabajar A.3 (para completar los 27 pts). Asimismo, donde dice "trabajar A4" debería decir "trabajar A.4A". Por cierto, gracias por este hermoso patrón.

11.11.2021 - 11:24

country flag Leena wrote:

I have knitted these, using the Karisma yarn, and will have to say it was time wasted. I could not get the gauge and the length of the foot to match properly, and had to unravel and try several times before the sock would NOT be a giant length! Also, the quality of the yarn was a VERY disappointing. After only a short time in use, I already had holes in the socks. I have had to darn them many times. This yarn is not made for wear! Fellow knitters, do not waste your time on this pattern or yarn.

03.01.2021 - 09:21

country flag Jolien wrote:

Vanaf welk moment worden de steken over 4 naalden verdeeld?

11.06.2018 - 09:56

DROPS Design answered:

Dag Jolien, Dat staat niet specifiek aangegeven, maar dat kan je doen hoe het jou het prettigst uitkomt. Dit kun je gelijk aan het begin doen, want dat breit het makkelijkst. Je verdeeld de steken over 3 naalden en je breit met de 4e naald.

12.06.2018 - 09:43

country flag Ella wrote:

Hei, kysyisin kantapään lyhennetyistä kerroksista, seuraavasta kohdasta: "Jatka tasoneuletta, mutta neulo nyt kantapään jokaisella krs:lla 1 s lisää." Tarkoittaako tämä, että neuletta jatketaan keskimmäisillä 17 s:lla, ja otetaan reunoissa neulomatta jätettyjä silmukoita takaisin neuleeseen?

17.04.2018 - 12:18

DROPS Design answered:

Kyllä, työhön otetaan jokaisella kerroksella 1 odottamassa oleva silmukka takaisin työhön.

17.04.2018 - 13:35

country flag Ella wrote:

Hei, kysyisin kantapään lyhennetyistä kerroksista, seuraavasta kohdasta:\r\n\"Jatka tasoneuletta, mutta neulo nyt kantapään jokaisella krs:lla 1 s lisää.\" Tarkoittaako tämä, että neuletta jatketaan keskimmäisillä 17 s:lla, ja otetaan reunoissa neulomatta jätettyjä silmukoita takaisin neuleeseen?\r\n

16.04.2018 - 11:17

country flag Hanne Kirstein wrote:

Sokken bliver aaalt for lang i foden, hvis man følger opskriften. Har nu opgivet.

24.12.2015 - 09:55

Alex wrote:

Hello, I got confused with your measurements. It says "When piece measures 17-19-22 cm.." to start increases. To me, the 17-19-22 cm seem to be way too far. Even looking at your photo, we can see that increases start much earlier (it seems that for my size 38/40 I would need to start the increases already after 9 cm , not after 19 cm... Can you please clarify this as the measurements in your description somehow don't seem to match the photo...

04.03.2015 - 20:49

country flag Carina Wernersson wrote:

Har en till fråga om sockan. Stickar i nr 3 då jag inte fick till masktätheten med 3,5. Nu har min dotter provat sockan men säger att den sitter för tajt vid häl och fotled. Hur ska ja göra då? Vad kan ni råda mig till ?

27.02.2015 - 12:36

DROPS Design answered:

Hej Carina, du kanske kan fortsätta med sticka 3,5 då blir hälen och foten lite lösare. Annars får du börja om och välja en större storlek.

25.05.2015 - 15:06