DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-46
DROPS Design: Mynstur nr fa-016-bn
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
250-250-250-300-300 gr litur nr 340, bláa lónið

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 fl/st og 18 raðir í mynstri verða10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 513: 7-8-8-9-10 stk
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í öllum umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í öllum umf með st, er fyrsti st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st.
Endurtakið umf 1 og 2

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að hekla 2 l saman
Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni niður í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næstu l, bíðið með að draga þráðinn í geng í lokin, heklið 1 st, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Til þess að áferðin verði eins, heklið öll stykkin fram og til baka og saumið saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 82-89-96-101-105 ll með Fabel með heklunál nr 3,5. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja og eina af næstu 3-3-3-1-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 70-76-82-86-90 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið áfram með MYNSTUR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja f. Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm = 74-80-86-90-94 l. Þegar stykkið mælist ca 27-30-33-36-39 cm (passið uppá að næsta umf sem hekluð er sé umf með fl), fellið af fyrir handveg þannig: Heklið kl yfir 4 fyrstu st, heklið síðan fl þar til 4 st eru eftir, snúið við. * Heklið 3 ll (= 1 st), heklið síðan 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið nú st fram þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman, síðan 1st í síðustu fl. Snúið við og heklið 1 umf með fl yfir allar l til baka, snúið við *. Endurtakið frá *-* 3-4-5-5-5 sinnum til viðbótar = 58-62-66-70-74 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 39-43-47-51-55 cm. Heklið nú 2 umf með mynstri eins og áður einungis yfir 16-17-18-19-20 l á hvorri hlið (miðju 26-28-30-32-34 l = hálsmál). Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 41-45-48-50-53 ll með Fabel með heklunál nr 3,5. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja og eina af 4-1-4-6-2 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 35-38-41-43-45 fl. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan!
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm, aukið út um 1 l í hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l, Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm = 37-40-43-45-47 l. Þegar stykkið mælist ca 27-30-33-36-39 cm (stillið af að næsta umf sem hekluð er er umf með fl), fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 29-31-33-35-37 l í umf. Þegar stykkið mælist ca 35-38-42-45-49 cm (stillið af að næsta umf byrjar frá hlið), byrjar úrtaka fyrir hálsmáli. Nú er einungis heklað yfir fyrstu 21-22-23-24-25 l. Snúið við og heklið til baka – jafnframt er heklað yfir 4 fyrstu l við hálsmál 2 og 2 saman – SJÁ ÚRTAKA! Í næstu umf eru heklaðar 2 síðustu l við hálsmál saman, endurtakið þessa úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 16-17-18-19-20 l eftir á öxl. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 40-44-48-52-56 cm, klippið frá.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Heklið 47-47-49-49-52 ll með Fabel með heklunál nr 3,5. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja og eina af næstu 3-3-5-5-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja og eina af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 40-40-42-42-44 fl. Haldið áfram með 4 umf til viðbótar með fl.
Heklið nú mynstur eins og á fram- og bakstykki til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 l á hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 5-7-8-10-11 sinnum til viðbótar = 52-56-60-64-68 fl. Þegar stykkið mælist ca 28-32-36-40-44 cm (stillið af að næsta umf er umf með fl), byrjið á úrtöku fyrir ermakúpu. Heklið kl yfir fyrstu 4 st, síðan eru heklaðar fl fram þar til 4 st eru eftir, snúið við. Heklið 3 ll, heklið nú 2 næstu st saman, heklið st þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 fyrstu saman, síðan 1 st í síðustu fl. Haldið svona áfram með að hekla 2 næst síðustu l saman í hverri umf þar til stykkið mælist 35-39-43-47-51 cm, klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma, hliðarsauma og ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið nú ermar í fram- og bakstykki.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið 77-84-92-99-108 fl upp meðfram hægri kanti að framan með Fabel og heklunál nr 3,5. Heklið 1 fl í hverja fl til baka. Næsta umf er hekluð frá neðri kanti þannig: Heklið 1 fl í hverja og eina af fyrstu 24-21-29-26-25 fl, * 1 ll, hoppið yfir næstu fl, 1 fl í hverja og eina af næstu 9 fl *, endurtakið frá *-* alls 5-6-6-7-8 sinnum, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja og eina fa 2 síðustu fl. Heklið 1 fl í hverja fl og 1 fl í hvern ll-boga. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið 77-84-92-99-108 fl upp meðfram vinstri kanti að framan. Heklið alls 5 umf með 1 fl í hverja fl.

HÁLSMÁL:
Heklið ca 70 til 90 fl í kringum hálsinn (einnig yfir kant að framan). Heklið 3 umf með 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda.

Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich hänge an der rechten Blende. Habe die FM in der 1. Reihe, dann eine Weitere drauf. Die 2.reihe wie beschrieben mit einer Lm nach 9 FM Bus zum Ende des Vorderteils. Jetzt meine Problem: Wie geht es weiter? Ich finde eine LM zuklein für ein Knopfloch. Wie gehe ich weiter vor? Die Blende wird ja mehr als nur 4 reihen haben oder? LG

26.10.2022 - 08:31

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die Knopflöcher können Sie gerne je nach den Knöpfegröße anpassen - es sind insgesamt 5 Reihen: 2 Reihen + 1 mit den Knopflöchern + 2 Reihen. Viel Spaß beim häkeln!

26.10.2022 - 16:30

country flag Henny Aarsen- Jongman wrote:

Rechtervoorpand. Daar staat bij het begin 4-1-4-6- 2l. Is dit wel goed? En moet ik dan aan het eind nog 4 vaste doen, om op 38 uit te komen? Graag uw reactie.

20.12.2021 - 12:59

DROPS Design answered:

Dag Henny,

Ja, dit zou wel moeten kloppen. Het stuk tussen de sterretjes herhaal je 6 keer, waardoor je 36 steken hebt, plus de 2 steken aan het begin = 38 steken.

06.01.2022 - 11:10

country flag Mieke wrote:

Ik lees niets over knoopsgaten en er zitten wel knippen op het vest; hoe ga ik dat doen?

16.05.2020 - 08:20

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

De knoopsgaten worden op de rechter voorbies gemaakt. (Je slaat dan af en toe een vaste over en haakt een extra losse daarboven.)

19.05.2020 - 13:40

country flag Sylvia wrote:

Hallo, ich verstehe den letzten Satz beim Ärmel nicht ("Weiter bis zu einer Gesamthöhe von 35-39-43-47-51 cm in jeder R jeweils die 2. und 3. M bzw. die zweitletzte und drittletzte M zusammenhäkeln. Faden abschneiden."). Soll wirklich in jeder Reihe abgenommen werden, also sowohl in den Reihen mit festen Maschen als auch in den Reihen mit Stäbchen? Dann wird die Ärmelkugel sehr steil und passt kaum zu den anderen Teilen.

07.07.2019 - 08:28

DROPS Design answered:

Liebe Sylvia, ja genau, so wird es abgenommen, der Armkugel misst 7 cm und soll dann mit dem Armloch anpassen. Viel Spaß beim häkeln!

08.07.2019 - 10:01

country flag Ina Charlotte wrote:

Hei. Jeg hekler den minste størrelsen, bruker riktig heklenål og garn i samme størrelse som fabel. Nå sitter jeg med en rygg på 43 cm og ikke 34. Hvordan er dette mulig når jeg har fulgt alle instruksjonene korrekt? Jeg hekler heller ikke stort, heller stramt. Utrolig irriterende når jeg har en toåring som skal bruke det, men størrelsen blir til en 11-12 åring.

05.05.2019 - 12:10

DROPS Design answered:

Hei Ina. Jeg skjønner godt at dette er frustrerende. Det høres ut som du ikke har korrekt heklefasthet. Det er dette som er avgjørende for at målene på plagget blir riktige. Vi hekler alle ulikt, så nålstørrelsen som er oppgitt i oppskriften er kun veiledende, du må selv justere denne slik at du oppnår den korrekte heklefastheten. I dette tilfellet er den 22 masker i bredden = 10 cm. Om du hekler den minste størrelsen har du 70 masker: 70/2,2 = 32 cm (nederst på bolen). God fornøyelse

06.05.2019 - 09:32

country flag Maria Ripenberg wrote:

Garnet räckte inte i storlek 128. Nu måste jag beställa ett enda nystan till med dyr fraktkostnad. /Maria

03.04.2018 - 22:19

country flag Stefanie wrote:

Hallo. Ich bin gerade beim rechten Vorderteil (Größe 134/140) dazu meine Frage: es heisst "nach 13 cm auf jeder Seite 1M aufnehmen.... nach 23cm wiederholen =47 M" . Vor den Aufnahmen sind es 45 M, dann müssten es doch nach 2 mal 2M zunehmen 49 M sein? Muss vielleicht nur auf 1Seite (Ausenkante) zugenommen werden?

03.10.2017 - 22:15

DROPS Design answered:

Liebe Stefanie, es muß nur auf 1 Seite (gegen Rückenteil) zugenommen, dh 1 M wird 2 x zugenommen. Viel Spaß beim stricken!

04.10.2017 - 11:30

country flag Marion wrote:

Hallo, ich bin gerade dabei, diese Jacke in 146/152 zu häkeln, und ich glaube, 300g Garn ist zu knapp bemessen. Ich hab nur noch 1 Knäuel, aber anderthalb Ärmel vor mir - und die Maschenprobe passte ;)

01.05.2014 - 20:32

country flag Carmen wrote:

Buen día. Por favor, si es posible, pongan GRAFICOS. uN SALUDO, cARMEN

29.04.2014 - 19:38

country flag Renate wrote:

Schönes Modell, die Farbe ist im Original viel schöner als auf dem Bild und die Wolle lässt sich einfach verarbeiten. Leider reichen 250 g für Gr. 122/128 nicht. Musste 1 Knäuel nachbestellen. So ärgerlich...

29.08.2013 - 09:47

DROPS Design answered:

Liebe Renate, vielen Dank für die Rückmeldung. Wir werden die Bemerkung zum Überprüfen an die Designabteilung weitergeben. Wenn nichts geändert wird, stimmt die Angabe für eine durchschnittliche Häkeltechnik.

03.09.2013 - 07:42